Þjóðviljinn - 28.04.1989, Page 6
Bónus viö kassann. Fljótvirk af-
greiðsla og gott verð halda við-
skiptavinunum glöðum.
Er tími stórmarkaðanna að líða
undir lok? Er kannski kominn
tími til þess að fá fleiri valmögu-
ieika varðandi verslunarhætti
bæði fyrir neytendur og verlunar-
menn? Markaðir af ýmsu tagi
spretta nú upp eins og gorkúlur í
Reykjavík og úthverfum borgar-
innar.
Hagkaup sem áður var helsti
markaður barnafjölskyldunnar
er nú flutt inn í íburðarmeiri
húsnæði og óneitanlega hiýtur
það að hafa áhrif á vöruverð.
Uppi á Höfða og vestur á Granda
hafa kaupmenn tekið sig saman
um markaði og í Kolaportinu
undir sjálfri gullkistu þjóðarinnar
Seðlabankunum svarta, er hægt
að gera góð kaup á þörfum sem
óþörfum varningi.
Að gera góð kaup er ekki ein-
ungis frístundagaman, heldur
nauðsyn barnafjölskyldunnar þar
sem verðlag á barnafötum og
öðrum nauðsynjum er ekki í
neinum tengslum við kaupmátt
þessara hópa.
Standandi
útsala
Einn slíkur markaður er til
húsa í Verslunarmiðstöð Vestur-
bæjar, þar hafa fjórtán fyrirtæki
tekið sig saman og eru með alls-
herjar útsölu á lagerbirgðum sín-
um.
Þetta er ekki útsala í hefbund-
inni merkingu þess orðs heldur
markaður sem er kominn til þess
að vera. þegar eitt fyrirtæki hefur
selt sínar vörur kemur annað inn.
Stór fyrirtæki í fata- og skó-
innflutningi geta ekki gert ná-
kvæm innkaup og þess vegna er
svona sölutækifæri á umfram-
birgðum mjög hagkvæmt fyrir
fyrirtækið og neytendur um leið.
Verðlag er lágt, og oft á tíðum
samningsatriði.
Að sögn Jónasar Halldórs-
sonar framkvæmdastjóra mark-
Verslunin úr
sparifötunum
Bónusbúðir, viðbrögð kaupmanna við kreppunni. Lægra
verð, minni íburður, sömu gæði
Álnavörur og fatnaður frá öllum tímum.
aðsins er það með öllu ógerlegt
fyrir kaupmenn sökum lager-
kostnaðar og fjármagsnástands
að sitja uppi með stóran lager.
„Kaupmaður nokkur á Lauga-
veginum varð að hætta rekstri
verslunar sinnar án fyrirvara og
því var markaðurinn kjörið tæki-
færi fyrir hann að losna við vörur
sínar og fyrir neytendann að taka
þátt í því að ákveða raunverulegt
vöruverð. Sá hátturinn er hafður
Hvað segja Neytendasamtökin?
Jóhannes Gunnarson formað-
ur Neytendasamtakanna sagðist
fagna tilkomu versiunar með
lægra vöruverð fyrir neytendur.
Hins vegar hafa Neytendasam-
tökin varað við neikvæðum áhrif-
um strikamerkingar. Verðmerk-
ing einstakra hluta er ekki lengur
nauðsynleg fyrir verslunina.
í nágrannalöndunum þar sem
þetta kerfi hefur verið tekið upp
hefur reynslan sýnt að verðmerk-
ingum hefur hrakað með tilkomu
strikamerkinga.
Skv. upplýsingum forstjóra
neytendaráðs Danmerkur og
sænsku neytendastofununarinn-
ar hefur verðmerking hrunið.
Ætlast er til þess að kaupmenn
merki vöruverð á hillukant og
hefur brunnið við að gleymst hef-
ur að breyta því verði meðan ná-
kvæmni hefur verið gætt í verð-
breytingum í kassa.
Kannanir í Bandaríkjunum og
Kanada hafa leitt í ljós að verð-
skyn neytenda hrakar með til-
komu strikamerkinga. Gamli
góði verðmiðinn, áminningin., er
horfinn.
Hins vegar er kosturinn við
þetta kerfi sá að afgreiðslan er
fljótvirkari, lagerhald betra, og
möguleiki á því að fækka
kössum. Fyrir svo utan að ógern-
ingur er að slá inn skakkt verð.
„Við neytendur ætlumst til
þess að lækkun á kostnaði versl-
unarhalds skili sér til neytenda
með lægra vöruverði, sagði Jó-
hannes Gunnarsson formaður
Neytendasamtakanna. eb
á, að ef engin hreyfing er á einni
vörutegund í nokkra daga, þá er
verð hennar tekið til endurskoð-
unar. í endurskoðun þessari felst
aðeins ein aðgerð, þ.e. lækkun
vöruverðs. Sem dæmi má nefna
flík, þykka vetrarúlpu sem sett
var á 1900 kr en hreyfðist ekki og
þá var verðinu breytt í 900 og þó
svo að um svona mikla lækkun sé
að ræða er það allra hagur,“ sagði
Jónas.
Katrín Andrésdóttir móðir sex
drengja sagði í samtali við Nýja
Helgarblaðið að hún fagnaði
þessum markaði. Það eru mikil
slit á strigaskóm, stígvélum og
hlífðarfötum á hennar heimili og í
venjulegum búðum eru barnaföt
skammarlega dýr.
Landinn
í dvala
Jónas Halldórsson fram-
kvæmdastjóri markaðarins sagð-
ist vona að svona viðskiptahættir
vektu íslendinga úr dvala, eða
örvaði hugmyndaflug landans í
verslunarháttum. „Fólk kannski
uppgötvar hversu gífurlega háar
álagningar eru hérlendis þegar
það gerir sér grein fyrir því að það
er hægt að fá svipaða vöru fyrir
miklu minna fé.
Hinar alræmdu Glasgow-ferðir
eru að nokkru leyti upphafs-
kveikjan að þessum mörkuðum,
því þar komnust margir neytend-
ur að því í fyrsta sinn að hægt væri
að gera góð kaup og á sama tíma
versla ódýrt.“sagði Jónas.
Vöruverði er haldið niðri með
rekstrarsparnaði sem felst fyrst
og fremst í styttri vinnutíma
starfsfólks og litlum sem engum
íburði í innréttingum.
Markaðurinn í Verslunarmið-
stöð Vesturbæjar er opinn frá kl
12 til 18.30 daglega og frá 10 til 16
á laugardögum. Þess skal getið að
hægt er að greiða með greiðslu-
kortum.
Bónus
við kassan
Á dögunum var opnaður mat-
armarkaður inn við Elliðavog
sem nefnist Bónus. Verslun þessi
er rekin á svipuðum grundvelli og
markaðurinn sem sagt var frá hér
að ofan. Að vísu er aðeins einn
aðili sem að honum stendur, en
opnunartími er hinn sami og
vöruverð talsvert miklu lægra en
annars staðar þar sem neytand-
inn gengur beint inn í lager versl-
unarinnar.
Jóhannes Jónsson eigandi
verslunarinnar Bónus hefur verið
verslunarstjóri hjá SS í 20 ár og
lætur nú loksins verða af því að
hrynda hugmynd sinni í fram-
kvæmd, þ.e. afsláttarverslun
með staðgreiðslukerfi.
Strikamerking er á öllum vöru-
tegundum og gerir það afgreiðsl-
una miklu hraðvirkari, fyrir utan
að ekki þarf eins marga kassa og
ella.
Sem dæmi um verðmismun má
nefna að brauð sem merkt er frá
framleiðslufyrirtækinu á kr 95
kosta hjá Bónus kr 89.
í versluninni eru um 900 vöru-
titlar, en í venjulegri kjörbúð af
sömu stærð eru titlarnir um þ.b.
4000. í þessu felst mikill sparnað-
ur fyrir viðskiptavininn, þvf vita-
skuld er það þannig að ein vöru-
tegund sér að hluta til um
greiðslu hinnar.
Það er nú ekki eins og hér sé
um að ræða einhvern glænýjan
sannleika í verlsunarmálum held-
ur er þessi verslunarháttur frem-
ur sá gamli góði á leiðinni til
baka. Það ber vitaskuld að fagna
þeim möguleika geta keypt salt í
grautinn án þess að fara í spari-
fötin.
eb
6 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. april 1989
Samkeppnin
af hinu gó&a
Kaupmannasamtökin fetta
ekki fingur út í nýja verslunar-
hætti því samkeppnin er af hinu
góða sé rekstrargrundvöllur í
lagi, sagði Guðni Þorgeirsson
skrifstofustjóri Kaupmannasam-
bands íslands þá er blaðamaður
Þjóðviljans innti hann álits á
Bónus-búðinni. Hann sagði
hins vegar að það hefði sýnt sig í
gegnum árin að erfitt er að halda
slíku fyrirtæki gangandi þar sem
vöruverð er háð sveiflum og öðr-
um breytingum í viðskiptalífinu.
eb