Þjóðviljinn - 28.04.1989, Blaðsíða 18
Neðarlega til vinstri á myndinni sést maður láta bursta skóna sína. Varla hefur hann gert þar sem maður sést. Það var frumkvöðullinn Louis Jacques Mandé Dagurre sem tók
sér grein fyrir því að sú skóburstun yrði söguleg, því þetta er fyrsta Ijósmynd sögunnar þessa mynd fyrir 150 árum, í París árið 1839.
Þegar sólin lærði að teikna
Ljósmyndin á 150 ára afmæli um þessar mundir
„Sólin hefur lært að teikna"
skrifaði hrifnæmt skáld fyrir
150 árum þegar fréttir bárust
af fyrstu Ijósmyndunum. Það
var í janúar 1839 að Mandé
Daguerre tókst að framkalla
fyrstu Ijósmyndirnar með að-
ferð sem síðan var kennd við
hann, Daguerreaðferðin, en
hún byggðist á því að notaðar
voru silfurhúðaðar málmplöt-
ur við töku myndarinnar.
Ljósmyndavélin fangar augna-
blikið og varðveitir um ókomna
tíð. Þessi uppgötvun átti því eftir
að hafa mikil áhrif og þá ekki síst í
fréttamiðlun. Áður höfðu dag-
blöð notað teiknara til að lífga
upp á síðurnar en með tilkomu
Ijósmyndarinnar var hægt að færa
atburð eða persónur til lesandans
beint.
Ljósmyndavélin varð þó ekki
strax algengt verkfæri á ritstjórn-
um. Það er eiginlega ekki fyrr en
upp úr 1920 að Ijósmyndavélin
verður ómissandi verkfæri á
hverri ritstjórn eða um 90 árum
eftir að fyrsta ljósmyndin leit
dagsins ljós. Ástæðan var sú að
daguerreaðferðin og aðrar að-
ferðir við framköllun mynda voru
mjög seinvirkar og tækin sem
þurfti til þess að festa augnablikið
á filmu mjög fyrirferðarmikil.
Flestar ljósmyndir sem voru
teknar á síðustu öld voru því
teknar á stofum. Samt sem áður
burðuðust nokkrir eldhugar með
vélarnar út um víðan völl og festu
atburði á filmu einsog nútfma
fréttaljósmyndarar gera.
Þjóðverjinn Alois Löcherer er
sennilega fyrsti Ijósmyndarinn
sem festir ákveðna atburðarás á
filmu en það var myndaröð af
uppsetningu hinnar frægu styttu
Bæheimur í Múnchen. Þetta var
árið 1850 og við myndatökuna
notaði hann nýja ljósmynda-
tækni, svonefnda calotype aðferð
sem hann hafði fundið upp sjálf-
ur.
Fyrsti alþjóðaviðburðurinn
sem var skráður með ljósmynd-
um var Krímarstríðið árið
1851.Flestar myndir frá Krím-
arstríðinu eru uppstilltar myndir.
Bandaríkjamaðurinn Mathew
Brady er sennilega fyrsti stríðs-
ljósmyndarinn sem reynir að
sýna á myndum hvernig stríðið er
Verkamenn vinna við að setja
upp styttu í Munchen árið 1850.
Ljósmyndari Alois Löcherer.
raunverulega. í borgarastyrjöld-
inni í Bandaríkjunum ferðaðist
hann um með aðstoðarmenn og
tók ljósmyndir af átökum og
hörmungum stríðsins. Þetta var á
árunum 1861-1865.
En það voru fleiri atburðir en
stríð sem þóttu þess virði að þeir
væru festir á filmu. Andrew Jos-
eph Rusell ljósmyndaði þann at-
burð þegar járnbrautarteinarnir
frá austurströnd Bandaríkjanna
og vesturströnd voru tengdir
saman í Utah árið 1869. Nú orðið
gerist varla sá atburður í heimin-
um sem fréttnæmur þykir að hóp-
ur ljósmyndara sé ekki mættur á
staðinn til þess að skrá það sem
gerðist með myndavélum.
-Sáf/The Democratic Journalist
18 SIÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. apríl 1989