Þjóðviljinn - 28.04.1989, Blaðsíða 26

Þjóðviljinn - 28.04.1989, Blaðsíða 26
1 2 h Y- s <b 9 8 9 6 V 10 )l 11> T 3 T TZ lp Z SP i¥■ 1S !(, 17 z V 1$ /9 / Z WH )6~ X 8 Zi Zo JS~ T 13 22 Xr 19 w zi /9 9 / i S? 1 1 T 7T~ 2— (0 22 Zi V 21 25 n n T H 3 z 2Z T IL Z 3 3 2 T H 27- Zv- 20 ZD )7 2 )S T 10 52 * ío ) 8 /9 4 JS Z? /9 X 7Y~ T JÝ Z2. 4 7T ZÝ % 92 z lo QP /9 ll JS 9 1 3o IÉ zo 9 i V 31 a 2X 22 2j+ V IZ IG (* zo 12 3 2 29- 2Ý V J9 Jto Y~ ZP / ga 2 22 22 2 '2 2, zo JS 2Ý /9 2 V 3 >t 12 W~ zz w l Zo z 29- w~ 4 92 30 2 3Z T Y Z /9 1 T 31 92 L, vr~ JÓHANNA LEÓPOLDSDÓTTIR AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Setjiö rétta stafi í reitina hér fyrir neöan. Þeir mynda þá bæjarnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 41 “. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. H 1 J? 2 2? 9 6 Verðlaunakrossgáta Nr. 41 Lausnarorðið fyrir verðlaunakrossgátu nr. 38 var BREIÐAVÍK. Dregið var úr réttum lausnum og upp kom nafn Erlings Jónssonar Háholti 6, Garðabæ. Hann fær senda bókina Samræður um kenningu Búddá eftir Francis Story. Verðlaun fyrir krossgátu nr. 41 er Ijóðabókin Flugur eftir Jón Thor- oddsen, fyrsta íslenska bókin sem hafði eingöngu að geyma prósaljóð. Útgefandi er Flugur. TAROT Grillaður lax Nú þegar vor er í lofti þó enn sé kalt og allt óvíst með veðrið á morgun þá fannst mér allt í einu viðeigandi að borða eitthvað sumarlegt. Ég valdi lax, það var oft lax í matinn á sumrin heima hjá mér, þegar ég var krakki. Nú er hægt að fá ódýran og góðan eldisfisk allt árið. Þökk sé Ossuri, Álfheiði og fleirum fiskeldismönnum. Þegar þið kaupið fiskinn gætið þá að því að hann sé nýr. Ef þið sjóð- ið hann hafið stykicin um þriggja sentimetra þykk, látið suðuna koma upp á vatninu, saltið og látið laxinn í pottinn. Slökkvið undir fiskinum og látið liggja í sjóðandi vatninu þar til hann er rétt laus frá beini. Passið að of- sjóða ekki fiskinn. Margir setja lárviðarlauf út í vatnið. Betra er að nota víðan pott. En þetta var nú svona rétt til upprifjunar. Hugmyndin sem ég hafði af matreiðslu á laxi nú um helgina er að grilla hann. Best er að grilla hann á útigrilli en grillið í eldavél- inni gefur okkur ágætis forskot á sæluna. Þykkum laxastykkjunum er raðað í skúffu og pensluð með kryddleginum báðum megin og afganginum helt yfir þau. Stykkin eru síðan látin liggja í leginum og snúið öðru hvoru. Á meðan útbú- um við kartöflurnar og græn- metið sem við ætlum að baka með. Það þarf miklu lengri bök- unartíma en laxinn. Fiskurinn þarf um það bil 3-4 mínútur á hvorri hlið. Gott er að grilla lauk, sellerí, gulrætur og spergilkál. Prófið að pensla grænmetið að- eins með kryddleginum líka. Með þessum rétti er gott að bera kryddsmjör. Að lokum vil ég minna ykkur á að ágætt er að hafa kaldan lax og silung í salat og líka á að prófa að gera laxasúpu. Uppskriftina af henni fáum við hjá mömmu og ömmu ef svo ber við. Verði ykkur að góðu. Fyrir fjóra: Tæpt kíló af laxi Um 1/2 kg grænmeti nokkrar kartöflur Kryddlögur: 1 bolli matarolía 3 hvítlauksgeirar 1 teskeið steitt rósmarín salt hvítur pipar Hilmar Örn Hilmarsson Eldmóður og annað karlmannlegt Eldur var til forna tengdur karlkynorku og hugtakinu „hreinsun“. Hvernig forfeðurnir fóru að því að mynda þessi hug- myndatengsl er jafnvel djúpri sál eins og mér fyrirmunað að skilja, en þannig er það nú samt. Líkt og Blikarar eru tákn Vatns og hinu kosmíska kven- kyni í gegnum kynferðislega táknfræði, eru Vendir tákn Elds og karlkyns. Það þarf ekki mikið ímyndunarafl eða Freudískan þankagang til þess að sjá þau tengsl, en fyrir þá sem hafa gam- an af orðsifjafræði má benda á það að sumir telja orðið „Völur“, þ.e. stafur, sé skylt norræna orð- inu Völsi og gríska orðinu Phallus. Svo maður bulli aðeins áfram þá hefur verið sett fram sú kenning að starfsheitið Völva væri dregið af orðinu Völur og það komið útaf göngu eða töfra- stöfum sem þessar ágætu konur notuðu til forna. Að vísu hefur heyrst að illa upplýstir ásátrúar- menn erlendis telji orðið Völva skylt latneska orðinu „Vulva“, en þau tengsl verða ekki augljós nema maður tali með amerískum hreim. En sleppum þessu og förum út í táknfræðina. Til forna tengdist eldurinn hreinsun í gegnum þá eiginleika hans að brenna upp hluti. Hann þótti standa fyrir frumkvæða eiginleika, endurnýj- un og upphaf. Orka, kraftur og framkvæmd tengjast eðli elds, - í stuttu máli stendur frumefnið Eldur fyrir alla þá þætti sem við karlmennirnir reynum að telja okkur til tekna. Líkt og eldmerkin í stjörnu- speki, Hrútur, Ljón og Bogmað- ur eru Vendirnir í Tarotspilunum birtingar orku, stolti og ævintýra- þrá, en í þeim spilum þar sem þessir kraftar eru í ójafnvægi eiga þeir til að breytast í andhverfu sína. Höfum þennan formála ekki lengri og förum beint út í túlkan- irnar. Nú hafið þið fengið ítar- legar túlkanir á öllum frumefnun- um og ættuð því að geta spáð hvern meðalmann í kaf. Viðbætur og túlkanir á Vöndum Ás: Blind og óstöðvandi orka. Sköpun og upphaf. Kraftur til að framkvæma nýja hluti. Möguleikar á því að yfirvinna gömul höft og byrja á ein- hverju nýju. 2: Möguleiki á því að stjórna kringumstæðum, fólki eða nánasta umhverfi. Auður og upphefð. Glás af peningum. 3: Viðskipti og umsvif ýmis kon- ar. Það borgar sig að koma sér upp samböndum við fáar en á- reiðanlegar manneskjur. 4: Vinnu lokið við ákveðin verk- efni. Tími til að slaka áog njóta ávaxtanna af því sem fólk hefur komið í verk. 5: Rifrildi og leiðindi varpa skugga á allt. Tímabil þar sem ekkert virðist ætla að ganga upp. Haldi fólk sér samt við efnið mun það að lokum upp- skera laun erfiðisins. 6: Varanlegur sigur unninn á utanaðkomandi kringumstæð- um. Óvinveitt öfl tekin föstum tökum. 7: Heiðarleiki og hugprýði borga sig. Hjálp eða umbun á óvænt- an hátt. Réttlætið sigrar að lok- um. 8: Óvænt tækifæri bjóðast ef fólk bregst snöggt við. Ferðalag með stuttum fyrirvara. 9: Styrkur í gegnum það að blanda innsæi saman við út- sjónarsemi. Nýjar og óvæntar leiðir gefast best. Heilsuhreysti almennt séð, bati ef um veikindi hefur verið að ræða. 10: Óvæntar skuggahliðar birtast á nánasta umhverfi. Fólk upp- lifir allt í einu neikvæðar hliðar á einhverju sem það hafði hald- ið öruggt og gott. Manneskja sem var talin áreiðanleg sýnir af sér valdsýki og beitir kúgun. Skjaldsveinn/Prinsessa: Kona sem er huguð og snjöll. Á það oft til að reiðast yfir hlutum sem öðrum þykja smámunir. Ljón eða Bogmaður. Riddari: Gjafmildur maður sem stundum á það til að vera of stoltur og einangrar sig því oft frá fólki. Bogmaður. Drottning: Kona sem á gott með að laga sig að kringumstæðum. Hún er traust í vináttu sem ást- um en verður þó yfirleitt alltaf að stíga fyrsta skrefið sjálf. Hrútur. Konungur/Prins: Hugrakkur maður sem oft þykir ógurlega gaman að hneyksla aðra. Hef- ur gaman af óvæntum uppá- komum, er rómantískur og tryggur með sterka réttlætis- kennd. Hrútur eða Ljón. 26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. apríl 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.