Þjóðviljinn - 28.04.1989, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 28.04.1989, Blaðsíða 12
MINNING Hákon Bjamason Lokið er nú ævi manns, sem setti svip á öldina í íslensku þjóðfélagi. Hákon Bjamason skógræktarstjóri er látinn á 82. aldursári. Lát hans táknar kafla- skipti í sögu skógræktar á íslandi. Hann hóf starfsferil sinn, þegar orðið skógrækt var á fárra vörum. Nú er þetta orð gjarnan notað sem lausnarorð í dreifðum byggðum íslands og á vörum þéttbýlisbúa táknar það draum um betra land, ástand, sem geri mannlíf á þessu landi fegurra. Það var gaman, að Hákon skyldi fá að lifa þessi umskipti. Enginn maður átti meiri þátt í þeim en hann, sjálfur brautryðjandinn, sem mátti lengi heyra sína eigin rödd hljóma sem í eyðimörku. Röddina, sem hrópaði á íslenska þjóð um það, að landið hennar ætti ekki að vera í tötrum, heldur gæti það verið grænt og fagurt, ef þjóðin kynni að umgangast það og vildi gjarnan skuld forfeðr- anna við það, skuldina, sem þeir urðu að stofna til svo að þeir gætu lifað. Hákon Bjarnason starfaði lengst af ævi sinnar í þjónustu ríkisins, en hann gerði það ekki sem hljóðlátur embættismaður, heldur sem trúboði, sem flutti fagnaðarerindi um hið sanna andlit fslands, en lét um leið refsivöndinn ríða á þjóðinni fyrir misgerðir hennar gegn landinu, Meistari Jón endurborinn, en veifandi annarri biblíu. Hákon Bjarnason fæddist 13. júlí 1907 í Reykjavík. Foreldrar hans voru merkishjónin Ágúst H. Bjarnason, síðar prófessor í heimspeki við Háskóla íslands, og Sigríður Jónsdóttir, Ólafs- sonar ritstjóra og alþingismanns. Á því leikur enginn vafi, að æsku- heimili Hákonar hefir mótað hann mjög. Prófessor Ágúst var ekki bara háskólakennari fyrir þröngan hóp stúdenta, heldur einn mesti alþýðufræðari á sinni tíð. Hið mikla ritverk hans „Yfirlit yfir sögu mannsandans“, heimsspekisaga, hafði veruleg áhrif á heila kynslóð. Sigríður móðir Hákonar var ein þeirra kvenna, sem sté fram í upphafi aldarinnar úr þöguili dyngju nafnlausra íslenskra kvenna og gerðist kornung kennari við Kvennaskólann í Reykjavík. Hákon lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1926 og hélt að því loknu til náms í skógræktarfræðum við Land- búnaðarháskólann í Kaup- mannahöfn. Þaðan brautskráðist hann 1932 fyrstur íslendinga í þessum fræðum. Veturinn eftir vann hann sem aðstoðarmaður á Plantefysiologisk Laboratorium við sama háskóla. Heim til ís- lands kom hann vorið 1933 og tók þá við framkvæmdastjórn Skóg- ræktarfélags fslands, sem stofnað hafði verið á Alþingishátíðinni 1930, en síðan starfað af litlum krafti. Hákon hleypti lífi í starf- semi félagsins, kom á fót gróðrar- stöð þess í Fossvogi í Reykjavík, sem Skógræktarfélag Reykjavík- ur tók við 1947. Á þessum fyrstu árum bast hann tryggðaböndum við Skógræktarfélag íslands, sem aldrei rofnuðu. Hann var fram- kvæmdastjóri þess fram á lok sjö- unda áratugarins og ritstjóri Ársritsins 1936-1963. Heiðursfé- lagi þess var hann kjörin 1977. Hinn 1. mars 1935 var Hákon skipaður skógræktarstjóri og gegndi því starfi í 42 ár til 30. júní 1977. Hann tók við litlu búi hjá Skógrækt ríkisins og litlum skiln- ingi stjórnvalda á þeirri starf- semi, sem hann átti að veita fof- stöðu. Má til marks um það nefna, að allt framkvæmdafé Skóg- ræktar ríkisins árið 1934 var á fjárlögum 7.500 kr. En vissulega skógræktarstjóri Fæddur 13 var heimskreppan í algleymingi á þessum árum. Lítið rættist úr á næstu árum og fyrir því mun hafa komið til tals, að hann tæki að sér auk skógræktarstjórastarfsins starf við nýstofnaða Atvinnu- deild Háskólans. Fyrir því dvald- ist Hákon erlendis veturinn 1936- 37 til þess að kynna sér vinnu- brögð við tilraunastarfsemi í jarðrækt. Hann var fyrst við hina heimsþekktu rannsóknastöð í Rothamstead í Englandi og vann undir handleiðslu dr. Fishers, sem talinn er höfundur nútíma tilraunastærðfræði. Síðari hluta vetrarins dvaldi hann í Stokk- hólmi við Skógræktarháskólann hjá próf. Olaf Tamm, kunnasta jarðvegsfræðingi Svía um þær mundir. Til þess kom þó ekki, að hann færi að Atvinnudeild Háskólans, heldur tók hann vorið 1937 við forstöðu Mæðiveikivarna. Minn- ist ég þess sem strákur, að faðir minn sagði okkur þetta vor, ný- kominn frá Reykjavík, að Hákon Bjarnason væri nýtekinn við þessu starfi vegna þess, hver dugnaðarforkur hann væri talinn, enda þótti mikið við liggja að hamla gegn vágesti þeim sem þá ógnaði íslenska sauðfjárstofnin- um. Ýmsum mun nú finnast þetta nokkur kaldhæðni örlaganna fyrir bæði Hákon og sauðfjár- bændur í ljósi þeirrar viður- eignar, sem hann átti síðar í við sauðfjárræktarmenn, þar sem hann var af ýmsum talinn versti óvinur íslensku sauðkindarinnar. Forstöðu Mæðiveikivarna gegndi Hákon til 1941. Fleiri opinberum störfum mun Hákon ekki hafa gegnt utan vett- vangs skógræktarinnar, ef frá er skilin seta í ýmsum ráðum og nefndum svo sem Náttúruvernd- arráði frá stofnun þess til 1972. Er ekki ástæða til að telja fleira upp af því hér. En sannleikurinn er sá, að skógræktin tók svo hug Hákonar allan, að hann taldi ekki veita af að helga henni alla krafta sína. T.d. mun honum hafa boð- ist þátttaka í stjórnmálastarfi, en því hafnaði hann. Hann brýndi enda oft fyrir okkur starfsmönn- um sínum að einbeita okkur að skógræktinni. Og ég minnist þess, að hann var lítt hrifinn af því, að ég skyldi vera að vasast í pólitík eða öðru félagsmálastússi. Hákon var ekki fyrr tekinn að starfa að skógræktarmálum hér heima en hann markaði sér þá stefnu, sem mest áhersla hvíldi á allan hinn langa starfsferil hans: Innflutning trjátegunda til ís- lands - og raunar allra plantna, sem auðgað gætu gróðurríki þess. í Ársriti Skógræktarfélags ís- lands 1933-34 birti Hákon fyrstu stóru stefnumótandi grein sína: „Framtíðartré íslenskra skóga“. t>ar fer hann að bera saman veðurfar á íslandi og í Alaska í fyrsta skipti opinberlega. En það var síðan eilíft áhersluatriði í fræðslu hans og athugunum. Þessum hugmyndum sínum fylgdi hann eftir í verki strax og hann varð skógræktarstjóri með því að reyna að afla fræs að vest- an og árin 1936-39 flytur hann inn plöntur ýmissa tegunda frá Nor- egi, sem nú eru fagrir minnis- varðar um þessa fyrstu viðleitni: Fjallaþinur og blágreni á Hall- ormsstað. Lýðveldislundurinn á Tumastöðum og elsti sitkagreni- lundurinn í gróðrarstöðinni í Fossvogi, svo eitthvað sé nefnt. Arið 1943 birtir hann svo eina af sínum stóru ritgerðum í júlí 1907. Dáinn 16. apríl 1989 Hákon Bjarnason í Skorradal vorið 1974. Ljósmynd V. Eriksson. Ársritinu: „Um ræktun erlendra trjátegunda“, 50 blaðsíðna grein, sem um árabil var grundvallar- heimild um þetta efni. Strax og heimsstyrjöldinni lauk tekur hann svo að leita sambanda austan hafs og vestan til þess að útvega fræ fyrir skógræktina hér í samræmi við stefnuna, sem grein- in 1943 markaði. Alaskaförin haustið 1945 og Noregsförin vor- ið 1947 mörkuðu tímamót í þessu efni, því að þá efndi hann til pers- ónulegra sambanda, sem fullyrða má, að reyndust traustasti grund- völlurinn undir fræöflunarstarfi hans alla starfsævina. Um báðar þessar ferðir skrifaði hann ítar- legar frásagnir í Ársritið. Var Al- askaferðin auðvitað mikið ævin - týri á þeim tíma. Og þar var Há- kon líka að ganga slóð móðurafa síns Jóns Ólafssonar. í þessari för fann Hákon m.a. alaskalúpínuna og hafði með sér heim fræ af henni. Hann skrifaði svo í frá- sögn sinni: „En auk þessa tók ég bæði rætur og fræ af ýmsum plöntum, sem uxu á þessum slóð- um og mér virtist, að fengur mundi í að flytja hingað til lands. Einkum leist mér vel á lúpínur, sem uxu eftir endilangri strönd- inni meðfram skógarjaðrinum. Geti sú jurt vaxið af sjálfsdáðun hér á landi og breiðst út, er áreið- anlega mikill hagur af því þar sem lúpínur bæta mjög allan jarðveg, sem þær vaxa í“. Ég er sannfærður um, að þessi jurt á eftir að valda algerri bylt- ingu í landgræðslu á íslandi. Loks hillir nú undir það 40 árum eftir að Hákon skrifaði þessi spá- mannlegu orð. Þessi merka saga verður ekki rakin lengra hér, en aðeins minnt á, að við leiðarlok gat Hákon séð, að flutt höfðu verið til landsins á annað hundrað trjátegundir frá á annað þúsund stöðum víðs vegar úr heiminum og einn tugur þeirra hafði þegar numið land og gerst þegnar í íslensku gróðurríki. Meiri blessun náttúrunnar gat Hákon vart fengið fyrir þennan meginþátt í lífsstarfinu. Þess vegna mun nafn hans ætíð verða nefnt meðal hinna fyrstu, sem urðu til þess að bæta íslenskt gróðurríki og gera landið byggi- legra. Annar stóri þátturinn í lífs- starfi Hákonar var baráttan fyrir því að stöðva jarðvegs- og gróð- ureyðinguna og endurheimta landgæði. Hann byrjaði á að leita orsakanna, eins og allir góðir rannsakendur gera. Hann kynntist landinu snemma. Fór tvisvar sinnum ríðandi kringum landið, sem fáir íslendingar hafa gert. í hringferðinni 1933 hóf hann sýnatöku á eldfjallaösku, sem leiddi nokkrum árum síðar til samstarfs þeirra Sigurðar Þór- arinssonar og varð grundvöllur að sérstakri grein innan jarðfræð- innar: Öskulagatímatalinu. En það mun vera eitt merkasta fram- lag íslendinga til alþjóðlegra jarðvísinda. Við þessar rann- sóknir kynntist Hákon upp- blæstrinum og myndun fokjarð- vegsins á íslandi. Saga uppblást- ursins tengdist sögu þjóðarinnar, sem Hákon hafði lifandi áhuga á og þekkti flestum betur. Árið 1942 birti hann í Ársritinu mikla grein, sem nefndist „Ábúð og ör- tröð“, þar sem hann áætlar nú- verandi gróðurlendi og skóglendi (reyndist síðar furðu nærri hinu sanna) og rekur orsakir jarðvegs- og gróðureyðingarinnar. En hún vakti ógnarleg andsvör ýmissa forystumanna í landbúnaði og margra bænda. Ég held með henni hafi byrjað fyrir alvöru stríðið um landið og nýtingu þess, sem Hákon háði alla ævi eftir það. Síðar skrifaði hann svo fjölda greina um þetta efni, iðulega til andsvars heiftarlegum árásum. Samvinna Skógræktarfélags ís- lands og Skógræktar ríkisins varð með býsna óvenjulegum hætti, þegar um er að ræða ríkisstofnun og áhugamannafélag. En hér sat sami maður framkvæmdastjóri hvors tveggja. Eftir að Valtýr Stefánsson ritstjóri varð formað- ur skógræktarfélagsins myndað- ist í Hákoni og honum tvístirni, sem fékk miklu áorkað: Skóg- ræktarfélög spruttu upp um allt land og sjötti áratugurinn ein- kenndist af gríðarlegri bjartsýni. Gagnviðarhugmyndin fékk góð- an byr. Hinn mikli áróðursmaður Hákon Bjarnason var óþreytandi að boða fagnaðarerendið: Hann var fyrstur skógræktarmanna á Norðurlöndum að nota kvik- myndinasem fræðslumiðil. Hann lét Skógrækt ríkisins gera þrjár skógræktarmyndir, hina fyrstu 1940. Ferðaðist með þær um allt land. Það var mikið nýnæmi á fimmta og sjötta áratugnum og mjög vinsælt. Hákon hafði vissu- lega orðið á valdi sínu bæði talað og ritað, en engi að síður er það undrunarefni, hve vel honum varð ágengt að fá fjölda fólks til liðs við skógræktarhugsjónina, því að fyrstu þrjá áratugina í starfi sínu hafði hann hvorki víð- lenda né stórvaxna skógarreiti til þess að flagga með. Ég held aðal- skýringin sé stanslaus elja hans að kynna þetta hjartans mál sitt. Hann var alltaf að, lét ekkert tækifæri ónotað. í því birtist ma. sú staðreynd, að starf Hákonar Bjarnasonar var jafnframt líf hans. Ég held fyrsta stóra áróðurs- átak Hákonar hafi verið stofnun Landgræðslusjóðs í sambandi við atkvæðagreiðsluna 1944 um stofnun lýðveldisins. Lands- söfnunin sem þá fór fram skilaði ótrúlegum árangri í peningum og umtali. Eftir þetta var Land- græðslusjóður ætíð eitt af óska- börnum Hákonar, þótt hann yrði kannski aldrei þess megnugur, sem hann hafði vænst. Hann sýndi hug sinn í verki, er hann gaf sjóðnum tæplega 200 ha land- spildu í Straumi sunnan við Hafn- arfjörð. Það er land, sem verður æ verðmætara sem frá líður. Há - kon var formaður sjóðsstjórnar- innar frá stofnun 1944 til 1977. Hákon Bjarnason var gæddur miklu innsæi, hæfileika til þess að sjá langt inn í ókomna tíð, sem byggir bæði á hugmyndaflugi og þekkingu. Það birtist víða í máli hans töluðu og rituðu. Eftir hann liggur geysimikið ritað mál, þeg- ar allar ritgerðir hans og blaða- greinar eru lagðar saman. Hann þýddi á íslensku 1950 bók eftir bandarískan náttúrufræðing, Fa- irfield Osborn, sem nefnist „Heimur á heljarþröm". Það var fyrsta bókin á íslensku um um- hverfisvandamál heimsins. Þar má lesa margt af því, sem um þau mál hefir síðan verið sagt og ritað af öðrum eftir 1970. Ég starfaði undir stjórn Há- konar í aldarfjórðung og á honum margt að þakka. Hann var hvort tveggja í senn mildur og harður húsbóndi. Hann reyndi að ala okkur undirmenn sína upp sem trúboða til að berjast fyrir hug- sjóninni um grænna og betra ls- land. Það bar örugglega árangur, þótt enginn okkar komist með tærnar, þar sem hann hafði hæl- ana sem baráttumaður, því að hann var sannkaliaður baráttu- jaxl. Hann var okkur mikill fræð- ari og föðurlegur siðameistari. Við vorum auðvitað ekki alltaf sammála, en skildum alltaf vinir, á hverju sem gekk. Samskipti Hákonar við er- lenda skógræktarmenn voru mikil, en þau voru bein afleiðing af fræöflun hans, sem áður er á minnst. Nánust urðu samskiptin við Norðmenn. Hann var kjörinn heiðursfélagi Norska skógrækt- arfélagsins, eini útlendingur, sem hefir orðið þess heiðurs aðnjót- andi. Fagur vottur þess, hve mik- ils hann var metinn meðal norskra skógræktarmanna er það, að skógræktarstjóri Noregs er í dag kominn til þess að fylgja honum til grafar fyrir hönd skóg- ræktarmanna og skógræktarsam- taka og stofnana í Noregi. Hákon Bjarnason var hraust- menni mikið og naut góðrar heilsu, þar til síðustu mánuðina, að undan varð að láta. Hákon var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðrún Magnús- dóttir og eignuðust þau eina dótt- ur, Ingu deildarstjóra. Þau slitu samvistum. Síðari kona hans, Guðrún Bjarnason sem lifir mann sinn, var honum alla tíð ómetanleg stoð og stytta. Börn þeirra fjögur eru: Laufey, kennari; Ágústa, grasafræðingur; Björg, flugfreyja og Jón Hákon skógtæknifræðing- ur og skrúðgarðyrkjumeistari. Við leiðarlok tel ég mér gæfu að hafa notið þess að fá að starfa undir einum mesta ármanni ís- lands á þessari öld og þakka hon- um leiðsögn og samfylgd. Við hjónin sendum Guðrúnu og börnum þeirra Hákonar inni- legar samúðarkveðjur. Sigurður Blöndal 12 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. apríl 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.