Þjóðviljinn - 28.04.1989, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 28.04.1989, Blaðsíða 11
„Það er lítið svigrúm fyrir bók- menntatúlkun í textafræðinni,“ segir Gísli. „Stíll, frásagnar- tækni, bygging og formgerð verk- anna verða útundan í fræðunum hér. Mönnum er ekki í nöp við þessa hluti en þeim finnst þeir ekki skipta máli.“ „Vandamálið er rannsóknar- hugtakið hér á landi,“ segir Gunnar Ágúst. „Rannsókn er fflólógíía. Það er ekki rannsókn að skoða bókmenntirnar heldur handritin og tengsl þeirra." „Svo koma bækur eins og dokt- orsritgerðir Jónasar Kristjáns- sonar um Fóstbræðrasögu og bók Óskars Halldórssonar um Hrafnkötlu sem ættu að fleyta rannsóknum fram um mörg ár, en þá verður ekkert framhald á þeim. Þær standa einar,“ segir Örnólfur. Á þessu hyggjast aðstandend- ur ráðstefnunnar ráða bót með því að stofna tímarit um fornbók- menntir. Það á að heita Skáld- skaparmál. Á ráðstefnunni tala mestmegn- is ungir fræðimenn, en fyrstur á mælendaskrá er Jakob Bene- diktsson sem er kominn yfir átt- rætt. „Hann er bæði elstur núlif- andi fræðimanna okkar og yngs- tur hinna viðurkenridu fræði- manna á þessu sviði,“ segir Örn- ólfur. „Hann hefur víða farið og margt séð og er svo ungur í anda að hann á eins vel heima þarna og við hin.“ „Aðaleinkenni ráðstefnunnar er að þar ægir saman efnum,“ segir Gísli. „Þetta er hersýning, vopnatal,“ takaallirundir. „Ráð- stefnan er ekki um tiltekið við- fangsefni heldur sýnishorn af öllu sem við erum að gera. En aðal- áherslan er á fornar sögur og kvæði sem bókmenntir." Ráðstefnan er öllum opin, allir eru velkomnir hvenær sem er ráðstefnudagana. Dagskrá birtist í Þjóðviljanum í gær, bls. 16. Ráðstefnugjald er kr. 500.- SA Gísli Sigurðsson, Gunnar Ágúst Harðarson og Örnólfur Thorsson. Mynd: Jim Þetta er hersýning Merk ráöstefna ungra fræöimanna um íslenskar fornbókmenntir Um helgina verður haldin ráð- stefna um íslcnskar fornbók- menntir í ráðstefnusölum ríkis- ins, Borgartúni 6. Hún hefst í kvöld kl. 20.00 og heldur áfram í fyrramálið kl. 10.00. Átján fræðimenn flytja þar erindi um ýmsa þætti fornbókmenntanna, en þó er megináherslan á að skoða bókmenntalega þætti. I fréttabréfi um ráðstefnuna segir m.a.: „Það er mál manna að á undan- förnum árum höfum við íslend- ingar verið eftirbátar erlendra fræðimanna við rannsóknir á bókmenntaarfi okkar. Ástæðan kann að vera sú að hér hefur handritafræði setið í öndvegi en önnur sjónarmið síður átt upp á pallborðið. Traustar textarann- sóknir eru vissulega sú undir- staða sem allt frekara starf byggir á en þær eru ekki endastöðin heldur upphafið.“ Ábyrgðin á ráðstefnunni hvflir á herðum þriggja manna, Gísla Sigurðssonar bókmenntafræð- ings, Gunnars Ágústs Harðar- sonar heimspekings og Örnólfs Thorssonar bókmenntafræðings. Við spyrjum hver hugmyndin sé með þessu mikla þingi. „Hugmyndin er ekki eingöngu að ögra ráðsettum fræðimönnum heldur að stefna saman ungum fræðimönnum, líka þeim sem til þessa hafa sinnt nútímabók- menntum og nálgast fornbók- menntir fyrst og fremst sem góð- an skáldskap," segir Örnólfur. „Það vantar fræðilegan vettvang fyrir þetta fólk og þó að kerfið banni ekki fólki að tala saman opinberlega hvetur það heldur ekki til þess.“ „Háskólinn býður ekki upp á framhaldsnám í þessum fræðum sem væri mikill hvati,“ segir Gísli. „Menn þurfa að vinna doktorsritgerðir sínar um íslensk- ar fornbókmenntir í útlöndum undir leiðsögn erlendra kennara sem hafa minni innsýn í fræðin en okkar menn.“ „Okkur langar til að búa til vettvang fyrir þessi fræði, kynna það sem hefur verið að gerast er- lendis og hvetja fólk til að hittast og kynnast sem hefur áhuga á þeim,“ segir Örnólfur. „Fræðin hérna heima eru í föstum farvegi og undir áhrifavaldi textafræð- innar. Menn verða að ljúka sveinsstykki í textafræði áður en mark er tekið á því sem þeir segja um þessi verk sem bókmenntir." Föstudagur 28. apríl 1989 NÝTT HHLGARBLAÐ - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.