Þjóðviljinn - 28.04.1989, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 28.04.1989, Blaðsíða 8
Brasilía Eþíópía Mengistu hangir á sovéskri hjálp Baráttukjarkur hers hans, sem s. I. ár missti álíka marga mennfallna og Bandaríkjamenn í Víetnamstríðinu, er á þrotum Ihartnær þrjá áratugi hefur ver- ið stríð í Eþíópíu, og skyldi maður þó ætla að landsmenn þar gætu haft margt skynsamlegra við tímann að gera. í landi þessu, sem er yfir 1.220.000 ferkíló- metra að stærð og hefur um 44 miljónir íbúa, er væntanleg með- allífslengd 44 ár, ungbarnadauði yfir 17 af hundraði og ólæsi 85 af hundraði (allt þetta samkvæmt fremur ónákvæmum hagskýrsl- um). Á þessum áratug og þeim næsta á undan hefur hung- ursneyð lagt í valinn þarlendis hundruð þúsunda af manneskj- um, enginn veit nákvæmlega hve ur síðan fengið mikla aðstoð, einkum hernaðarlegs eðlis, frá Sovétríkjunum, Kúbu o.fl. Stjórn hans hefur af mikilli grimmd barið niður alla and- stöðu, eftir því sem henni hefur enst afl til, en ekki hefur það tek- ist allsstaðar. f norðurhluta ríkis- ins eru öflugar skæruliðahreyf- ingar, sem halda sínu gegn eþíóp- ska stjórnarhernum og vel það. Herforingjastjórnin tók í arf eftir keisarann stríð við upp- reisnarmenn í Eritreu og fékk þar að auki á fyrstu árum sínum á sig innrás Sómala, er ágirntust suð- vesturhluta landsins, sem að miklu leyti er byggður fólki af ópíu. Báðir þessir aðilar hafa koptíska kristni líkt og Amharar, þjóð sú er mestu ræður í Eþíópíu, og tala semísk mál náskyld amh- örsku. En saga Eritreu hefur á ýmsan hátt verið önnur en hérað- anna suður á hálendinu, t.d. var hún undir ítölskum yfirráðum frá því fyrir aldamót til heimsstyrj- aldarinnar síðari og menntun var þar um miðja öldina orðin meiri en í Eþíópíu sjálfri. Eritreumenn vilja því sjálfstæði. Tígremenn sætta sig hinsvegar að líkindum við sjálfstjórn, en telja bráðnauð- synlegt að losna við stjórn Meng- istus. Uppreisnaraðilar þessir tveir, Mengistu - leitar hjálpar hjá ísra- el og Kim II Sung. upp stjórnmálasamband við fsra- el, en því sleit keisarinn í vináttu- skyni við araba eftir Jom Kipp- úrstríðið 1973. Eþíópski einræð- isherrann er hörkutól og slunginn stjórnmálamaður á sinn hátt, annars hefði honum ekki tekist að halda velli á valdastóli þetta lengi við jafnerfiðar aðstæður. En hætt er við að hann komist í krappari dans en nokkru sinni fyrr, ef Sovétríkjastjórn Gorbat- sjovs snýr við honum baki og hann heldur engu að síður fram þeirri stefnu að berjast til síðustu kúlu, eins og vestrænir dipló- matar í Addis Ababa telja að hann muni gera. dþ. Yfir 100 vegnir af leigu- morðingjum Að minnsta kosti 102 Brasi- líumenn voru vegnir s.l. ár í deilum út af bújörðum og afnot- um af þeim, að því er hermt er í skýrslu frá kaþólsku kirkjunni þarlendis. Flestir hinna myrtu voru kotungar, sem stórjarð- eigendum þóttu vera til óþæginda og fengu því til atvinnumorðingja að ryðja þeim úr vegi, svo sem alvanalegt er þarlendis og í fleiri Suður-Ameríkulönd uni. í skýrslunni stendur ennfrem- ur, að nærri 500 manns hafi verið myrtir þarlendis frá og með árinu 1985 út af jarðadeilum. 4555 brasilískir stórjarðeigendur eiga eða hafa umráðarétt yfir 140 milj- ónum hektara ræktanlegs lands. Þar í landi vinna um 38 miljónir manna að landbúnaðarstörfum, en 14 miljónir af þeim eru með öllu án eignar- eða afnotaréttar á landi. Reuter/-dþ. Georgía Mikil ólga eftir manndráp Yfir 60 á sjúkrahúsum vegna gaseitrunar. Pingmaður krefst aukinnar sjálfstjórnar Eritreanskir skæruliðar með hertekinn eþíópskan fána - lýkur næstum þrjátíu ára stríði þeirra með sigri ef Gorbatsjov hættir að styðja við bakið á Mengistu? margar. Af völdum mikillar fólksfjölgunar er skógurinn, sem fyrir aldamót þakti um helming hálendis Eþíópíu, að miklu leyti horfinn, og þegar hann bindur ekki jarðveginn lengur blæs hann upp. Skaut sér braut á valdastól Síðasta Eþíópíukeisaranum var steypt af stóli 1974 og tók þá við völdum herforingjastjórn. Einn herforingja þessara, Meng- istu Haile Mariam, drap 1977 átta háttsetta félaga sína og hefur síð- an verið hæstráðandi landsins. Hann útnefndi ríki sitt „sósíal- ískt“ að fyrirmynd frá ríkjum undir stjórn kommúnista og hef- sómölsku þjóðerni. Kúbanir hrundu þeirri innrás fyrir Eþíóp- íustjórn, og einræðisherra Sómalílands, sem Siad Barre heitir, hefur síðan átt í of miklu basli heimafyrir til að hafa ráðrúm til að gera grönnum sín- um í norðri frekari óskunda. Kristnir berjast innbyrðis f norðri hefur Mengistu hins- vegar, þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir og mikinn sovéskan vopnabúnað, mistekist að ganga á milli bols og höfuðs á upp- reisnarhreyfingum kristinna Er- itreumanna og íbúa í Tígre (Tig- ray), landshluta í fjallendinu milli Eritreu og hinnar eiginlegu Eþí- sem hafa með sér bandalag, unnu mikinn sigur á stjórnarhernum tvo fyrstu mánuði þessa árs í Tíg- re, tvístruðu þremur herfylkjum og felldu og tóku til fanga um 10.000 manns. Talið er líklegt, að s.l. ár hafi Eþíópíuher misst álíka marga menn fallna og Banda- ríkjamenn alla sína stríðstíð í Víetnam. Kristnir berjast innbyrðis Nú sjást þess merki að Sovét- menn séu teknir að þreytast á því að styðja Mengistu í stríði þessu, sem hann virðist með öllu ófær um að vinna. Þeir hafa hvatt hann til að reyna samningaleiðina við uppreisnarmenn og gefið í skyn að þeir kunni að hætta að senda honum vopn, þegar núgildandi samningur þeirra við hann um þesskonar aðstoð rennur út seint á næsta ári. Baráttukjarkur Eþí- ópíuhers er sagður á þrotum eftir mikið mannfall og ósigra og er margra ætlan að stjórn Mengistus falli svo að segja jafnskjótt og So- vétmenn hætti að vopna hann. Mengistu hefur brugðist illa við þessum nýja tóni frá Moskvu og hafist þegar handa um að tryggja sér vopn annarsstaðar frá, ef Sovétmenn skyldu bregð- ast, m.a. hefur hann í þeim til- gangi leitað til Kim II Sungs í Norður-Kóreu og hyggst taka Mikill hiti er í mönnum í Ge- orgíu síðan 9. þ.m. er sov- éskir hermenn dreifðu kröfu- fundi í Tíflis af hömlulausum hrottaskap. Opinberlega hefur verið tilkynnt að hermennirnir hafi orðið 20 manns að bana, en fregnir hafa borist um að dánar- talan kunni að vera miklu hærri. Beittu hermennirnir við þetta tækifæri kylfum, hvesstum skóflum og og eiturgasi. Mörgum þeim er voru á vett- vangi ber saman um að hermenn- irnir hafi lokað undankomu- leiðum með skriðdrekum og brynvögnum áður en þeir réðust á fólkið á útifundinum, sem hald- inn var á Rústavelí próspekt, að- algötu í Tíflis. Hafi tilgangur her- mannanna því greinilega verið sá að leika fólkið illa, en ekki að dreifa því. Reiði fólks í Tíflis út af þessu virðist beinast einkum að yfirvöldum í Moskvu, sem það telur hafa fyrirskipað þessar ógn- araðfarir eða að minnsta kosti samþykkt þær. Bendir fólk í því sambandi á að liðssveit í þjónustu innanríkisráðuneytisins, sérþjálf- uð til að bæla niður óeirðir, hafi verið þarna að verki. Dzhumber Patiashvili, leiðtogi georgíska kommúnistaflokksins, sagði af sér vegna þessa máls og við tók Givi Gumbaridze, sem heldur því fram að lítill hópur manna í georgísku forustunni hafi sent hermennina á vettvang. Vadím Medvedev, hugmynda- fræðingur sovéska kommúnista- flokksins, hefur tekið undir þetta og fullyrt, að ráðamenn í Moskvu hafi ekki verið með í ráðum. Talsmaður sovéska utanríkisráð- uneytisins hefur tilkynnt að rann- sóknir í málinu séu hafnar og vera kunni að einhverjir herforingjar og hermenn verði ákærðir. Ekk- ert ákveðið hefur enn komið fram um það, hver á staðnum hafi gefið fyrirskipun um að beita eiturgasi og skóflum. Gumbaridze hefur viðurkennt að herinn hafi beitt „kemískum efnum“ gegn mannfjöldanum og að nokkrir menn hafi látist af völdum þeirra. Yfir 60 manns eru á sjúkrahúsum í Tíflis af völdum gaseitrunar og að sögn meðlims rannsóknarnefndar, er skipuð hefur verið af þessu tilefni, leiðir gas þetta af sér mikinn höfuð- verk, minnisleysi og að lokum lömun taugakerfisins. Læknar eiga í erfiðleikum í meðhöndlun sjúklinganna, þar eð herinn neit- ar að gefa upp, hvaða gastegund sé um að ræða, og viðurkennir raunar ekki að eiturgasi hafi ver- ið beitt. En einhverskonar taugagas mun það hafa verið. Ir- aklíj Menagarisjvili, heilbrigðis- málaráðherra Georgíu, fór í við- tali á þriðjudag hörðum orðum um herinn af þessu tilefni, sakaði hann um lygar og kvaðst stað- ráðinn í að icnýja yfirherstjórnina til að láta uppi, hvaða gastegund hefði verið beitt. Ýmsar sögur eru á kreiki um aðdragandann að hryllingsat- burði þessum og er því jafnvel fleygt að á bakvið hann hafi verið um að ræða samsæri með það fyrir augum að auka vandræði Gorbatsjovs og stjórnar hans. Víst er um það að atburðurinn hefur vakið meðal Georgíu- manna almenna reiði, sem kemur fram í kröfum um aukið sjálf- ræði. Þarlendur kvikmyndaleik- stjóri að nafni Eldar Shengelaja, sem kjörinn var á hið nýja full- trúaþing Sovétríkjanna á dögun- um, lýsti því yfir á fundi í Moskvu í s.I. viku að hann myndi beita sér fyrir því að sovétlýðveldin fengju víðtæka sjálfstjórn og jafnvel um síðir fullt sjálfstæði. dþ. Veiðifélag Elliðavatns Stangaveiði á vatnasvæði Elliða- vatns hefst 1. maí. Veiðileyfi eru seld á Vatnsenda og Elliðavatni. Á sömu stöðum geta félagar úr Sjálfbjörg, unglingar (12-16 ára) og ellilífeyrisþegar úr Reykjavík og Kópavogi fengið afhent veiði- leyfi án greiðslu. Veiðifélag Elliðavatns 8 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. apríl 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.