Þjóðviljinn - 28.04.1989, Síða 9
# #
FrwTi Tn a r witdfttid
Ju XXl3 X XJXXxtlvxöX^ XCXl^ X X XJWL
Samningamál
Verkfalli afstýrt í
Hið opinbera og Félag háskólakennara sömdu um kauphækkanir í anda BSRB-samningsins og
stóraukið ríkisframlag íRannsóknasjóð Háskólans. ASl ogVSlþinguðu með Steingrími í gœr
Samninganefndir Félags há-
skólakennara og ríkisvaldsins
urðu í gær á eitt sáttar um nýjan
kjarasamning sem að mestu er á
líkum nótum og samkomulag
ríkisins og félaga BSRB. Þó eru
þau frávik að samið er um pró-
sentuhækkanir en ekki krónutölu
og að ríkið hyggst auka stórum
fjárframlag sitt í Rannsóknasjóð
Háskólans í ár og á ári komanda.
Svavar Gestsson á fundi meö kennurum í gær. Mynd Jim Smart.
Kennaraverkfallið
Það verður að semja
Samkvæmt samningsdrögun-
um fá háskólakennarar 2,65%
kauphækkun 1. apríl, 1,95% 1.
september, 1,25% 1. nóv. og 2%
1. jan. 1989. Samningurinn gildi
út þann mánuð. Auk þessa fá
háskólakennarar 6.500 króna orl-
ofsuppbót og persónuuppbót 1.
desember sem nemi u.þ.b. 30%
af desemberlaunum hvers og
eins.
En það sem mestu varðar
máski fyrir háskólakennarara til
lengri tíma litið er ákvæði um
stóreflt framlag ríkisins í Rann-
sóknasjóð Háskólans sem hangið
hefur á horriminni á umliðnum
árum. í ár mun ríkið leggja 16
miljónir í sjóðinn samkvæmt
samkontulaginu en 30 miljónir á
næsta ári.
Jóhann Malmquist, formaður
Félags háskólakennara, sagði í
gær að aukin efni rannsókna-
sjóðsins yrði til þess að nú væri
hægt að umbuna vísinda- og
fræðimönnum sem skarað hefðu
frarn úr og lagt í afrek sín meiri
vinnu en skyldan krefði. Jóhann
kannaðist ekki við að hafa rofið
samstöðu með verkfallsfélögum
BHMR, um samfylgd hefði
aldrei verið að ræða.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði samkomu-
lagið gott dæmi um það hvernig
tvinna mætti saman ábyrga'
launastefnu í anda BSRB-samn-
inganna og ákvæði um framtíðar-
uppbyggingu í þágu þjóðarinnar
allrar. BHMR-fólk hlyti að átta
sig á því að ríkið myndi hvergi
hvika frá launastefnu sem tug-
þúsundir landsmanna hefðu fall-
ist á.
En Páll Halldórsson, formaður
BHMR, sagði samningsdrög
ríkisins lofa góðu vegna ákvæð-
anna um framlög í rannsókna-
sjóð. Þetta fé vildi verkfallsfólk
BHMR fá en ekki í sjóð sem óvíst
væri hvernig úthlutað yrði úr
heldur sem hærri kauptaxta.
Fulltrúar ASÍ og VSÍ gengu í
gærkveldi á fund sáttasemjara en
fyrr um daginn þinguðu þeir með
forsætisráðherra í stjórnar-
ráðinu. Ræddu menn hvernig
ríkisstjórnin gæti liðkað fyrir
samningsgerð nteð ýmsum ráð-
stöfunum, ss. í skattamálum fisk-
vinnslufyrirtækja og varðandi
gengi. Að fundi loknum gerði
forsætisráðherra hvorki að játa
því né neita hvort gengisfelling
kæmi til greina. ^s
Verkfall hins íslenska kennara-
félags hefur nú staðið í þrjár
vikur og neyðarástand skapast í
skólunum. Kennarar hafa nú ver-
ið með lausa samninga í hálft ann-
að ár án þess að hlustað sé á kröf-
ur þeirra. Hvers vegna vill ríkis-
valdið ekki standa við lofrorð sín
um að tryggja eðlilegt samræmi á
milli kjara ríkisstarfsmanna og
þess sem gildir á almennum
launamarkaði?
Þetta sögðu fulltrúar HÍK
meðal annars á fundi með blaða-
mönnum í gær. Krafa þeirra fjall-
ar um samning til þriggja ára þar
sem lágmarkslaun háskólamanna
verði um það bil 75 þúsund á
mánuði. Það samsvarar að þeirra
mati 37% meðalhækkun launa.
Fulltrúar HÍK áttu í gær fund
með forsætisráðherra, og Svavar
Gestsson menntamálaráðherra
mætti á fjölsóttum fundi kennara
í gær, þar sem greinilega var heitt
í kolunum. A fundinum lýsti
Svavar því yfir að enginn nem-
andi yrði útskrifaður frá grunn-
skóla eða menntaskóla án prófa,
en sagði um leið að ekki væri
hægt að ákveða með hvaða hætti
þessi mál yrðu leyst fyrr en samn-
ingar hefðu náðst í deilunni.
Svavar sagði jafnframt að ein
meginástæðan fyrir hinni erfiðu
stöðu kennara nú væri sú að
skólinn væri afgangsstærð í ís-
lensku þjóðfélagi. Það væri hans
baráttumál að færa skólann ofar á
forgangslistann í íslensku þjóðfé-
lagi, og sú barátta væri jafnframt
kjarabarátta fyrir kennarastétt-
ina. Hins vegar væru ytri aðstæð-
ur til samninga nú mjög þröngar,
en stundaglasið væri að renna á
okkur og því yrði að semja strax.
Fulltrúar HÍK sögðu eftir
fundinn með Svavari að þau væru
bjartsýnni en áður og sögðu jafn-
framt að góður andi hefði ríkt á
fundi þeirra með Steingrími
Hermannssyni fyrr um morgun-
inn. Við trúum því enn að vilji sé
fyrir hendi til þess að gera þriggja
ára samning, en við höfum hins
vegar ekki enn fengið að heyra
neitt bitastætt tilboð frá samn-
inganefnd ríkisins um slíkan
samning, sögðu kennarar. Á
fundinum í gær voru mættir tveir
fulltrúar samtaka framhalds-
skólakennara á Norðurlöndum,
sem fluttu HÍK samstöðukveðjur
og um 13 miljónir króna í pening-
um. Kernnarasamband íslands
(grunnskólakennarar) gáfu einn-
ig 2 miljónir í verkfallssjóð. Og
loforð bárust um frekari fjár-
stuðning frá Norðurlöndunum.
HÍK hefur þegar úthlutað um
15 miljónum úr verkfallssjóði til
kennara í verkfalli. _ó|g
Brynjólfur jarðsunginn. Utför Brynjólfs Bjarnasonar fyrrv.
menntamálaráðherra og forystumanns í íslenskri vinstri hreyfingu í
áratugi fór fram frá Fossvogskirkju að viðstöddu fjölmenni í gær. Séra
Rögnvaldur Finnbogason prestur á Staðastað jarðsöng. Mynd - Jim
Smart.
Mengun
Díoxín mælist í íslensku lýsi
Srprtskn Ivfinscnmhnn/iió hn>ttir nrS knt/nn ivlpnckt hnrvknlvvi vponn
Sænska lyfjasambandið hættirað kaupa íslenskt þorskalýsi vegna
efnamengunar. Ekki ástœða til að óttast segir Hollustuvernd ríkisins
Samtök lyfsala í Svíþjóð hafa í
samvinnu við Lýsi hf. gert
efnagreiningar á íslensku þorska-
lýsi sem sýna að það inniheldur
6-10 ppm (einingar af milljón) af
eiturefninu díoxín. Niðurstaðan
leiddi til þess að samtökin hafa í
bili hætt að kaupa íslcnskt
þorskalýsi.
- Þessar niðurstöður koma
okkur alls ekki á óvart og þær eru
í fullu samræmi við aðrar mæling-
ar sem eru til á díoxíninnihaldi
fituríkrar fæðu, sagði Daníel
Viðarsson hjá Hollustuvernd
ríkisins, í samtali við Nýja Helg-
arblaðið. Þessi díoxínefnasam-
bönd eru alls staðar í náttúrunni
og safnast fyrir í fituríkum vef.
Staðreyndin er sú að díoxín í
móðurmjólk hefur mælst allt að
því tvöfalt meira á hvert gramm
fitu en í íslenska lýsinu, og
áhyggjur sænsku lyfsalasamtak-
anna stafa sjálfsagt af þvf að ef
ungbörnum, sem neyta bara
móðurmjólkur er að auki gefið
óhóflega mikið magn af lýsi, þá
getur neyslan farið að nálgast
hættumörkin. Hvað varðar
fullvaxið fólk, þá eru þessar tölur
langt undir hættumörkum.
Daníel segir að díoxínefnasam-
bönd hafi skaðvænleg áhrif á lík-
amann með tvennum hætti: með
útvortis snertingu geta þau valdið
langvinnum húðsjúkdómum. Við
inntöku setjast þau í fituríkan vef
eins og lifur og miðtaugakerfi, og
valda þar skemmdum. Eitt al-
varlegasta mengunarslys sem
orðið hefur í Evrópu var einmitt
af völdum díoxíns sem komst út í
andrúmsloftið við sprengingu í
efnaverksmiðju í Soveso á N-
ftalíu fyrir 10-15 árum.
Díoxínsambönd myndast með-
al annars í iðnaði og þorri díoxín-
mengunar í náttúrunni á sér
þrennar orsakir: í fyrsta lagi opn-
ar sorpbrennslustöðvar, þar sem
sorp er brennt við tiltölulega
lágan hita. Við brunann myndast
díoxínsambönd úr skaðminni
efnum. Sorp er víða brennt með
þessum hætti hér á landi.
í öðru lagi myndast díoxín við
stál- og málmbræðslu og fylgir úr-
gangi frá slíkum verksmiðjum.
í þriðja lagi myndast díoxín við
bleikingu á pappír.
Daníel sagði að díoxínmengun
í íslenskum fiski mætti rekja til
slíks efnaúrgangs sem safnast
hefði fyrir í hafinu.
Daníel Viðarsson sagði að þeir
hjá Hollustuverndinni teldu ekki
ástæðu til sérstakra ráðstafana að
svo stöddu að öðru leyti en því að
varast bæri að gefa ungbörnum
sem neyta mjög einhæfrar fæðu
of stóra skammta af lýsi. Ðaníel
sagði jafnframt að íslenskt lýsi
hefði komið betur út úr mæ-
lingum en t.d. norskt, og að þeir
hjá Lýsi hf. væru nú að finna að-
ferðir til þess að hreinsa efnið úr
lýsinu, sem væri lofsvert framtak.
Haukur Stefánsson fram-
leiðslustjóri hjá Lýsi hf. sagði að
þeir hefðu ekki stórar áhyggjur af
þessum niðurstöðum, þvert á
móti hefði komið í ljós að íslenskt
lýsi væri nær helmingi hreinna en
það norska. Áfram yrði fylgst
með díoxínmagni í fram-
leiðslunni í Svíþjóð, en mæling-
arnar væru flóknar og kostuðu
um 100 þúsund kr. hver mæling.
Haukur sagði að þeir hjá Lýsi hf.
væru nú að finna upp aðferðir til
þess að hreinsa díoxínið úr sinni
framleiðslu. Það væri ekki ýkja
mikið mál.
Danél Viðarsson sagði enn-
fremur að Norðurlöndin hefðu í
sameiningu sett viðmiðunarmörk
fyrir díoxínmengun í matvælum,
og væri það magn sem hér um
ræðir langt undir þeim mörkum.
Því væri engin ástæða fyrir fólk til
þess að kasta lýsisflöskunum.
-ólg
Föstudagur 28. apríl 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9