Þjóðviljinn - 28.04.1989, Qupperneq 17
Your Supply Depot, Ltd.
Buy Olrect & Save!!!
Cali 1-312-697-0222 for
FAST DELIVERY!
I’rict' SUM>
The Legend Continues...
RAMBO III
Imhe láíéitftim'bó; Siailone
unleasnesdestiudion oo ího
Rus$:ans ín Afghanlstan
Knilaotakef Gil Hibben- s
Rambo III. is the one Siy
uses on the Russtans. Fea-
tures a razor sharo 11M *ong
Sufgica; SteeiBowte styie
blade. Bxtra heavy duty
handguards provide suro
grip under ali conditions
Genuíne Hardwood nandle.
Lanyard hoíö in handle and
nylon lanyard. Overall fength
of 16’*. Comes complete with
a rugged 100% genuine
cowhtöe ieather sheath with
leg tie. This uníque gtlt and
coiíector's tlem comes in iís
own gift box. #K106
Ko:íe P&wkng py ðfi o?
HstÖHí»» ZimrpK** * Ít«í8 Cö'OíCÖ. A;i R>§Ktf,
unriof AuvwxizsAiw
A Licensed
Reproduction of
the Knite used
by Syiveater
Stðitone In
Tang stamped:
Designed by
Hibben Knives,
Loulsvilte.KY
and signed by
Gil Hibben.
Retaii
$1 30.00
Your Price
$99.95
Forsíða pöntunarlistans frá lllinois. Einsog sjá má þá er Ftarnbo-
hnífurinn kynntur rækilega á forsíðunni.
staka tilfellum getur viðtakandi
fengið undanþágu frá lögreglunni
til þess að leysa út vopnið, t.d. ef
um safnara er að ræða eða ef við-
komandi er með byssuleyfi þá
getur hann fengið leyfi til þess að
leysa út loftbyssur. í flestum til-
fellum eru þó vopnin endursend
til sendanda.
Karl taldi ekki að mikið af
vopnum sem væru send svona
kæmust í gegnum tollinn hinsveg-
ar taldi hann að töluvert af slíkum
drápstólum bærust hingað til
lands með íslenskum ferða-
mönnum.
Hingað með
ferðamönnum
Helgi Daníelsson hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins
sagðist ekki áður hafa heyrt um
pöntunarlista á borð við þann
sem barst inn á ritstjórnina.
Hann sagði að Rannsóknarlög-
reglan yrði af og til vör við að
ákveðnir unglingahópar séu með
vopn og þá fyrst og fremst hnífa,
en þó sagðist hann hafa heyrt tal-
að um og séð allskonar önnur tól
sem væru stórhættuleg.
Hann nefndi sem dæmi að ný-
verið hefði komið upp mál á Sel-
tjarnarnesi þar sem ung stúlka
var fyrir skoti úr loftbyssu en
hana sakaði ekki sem betur fer
þar sem skotið fór í föt hennar.
Heföi hún fengið skotið í andlitið
hefði hún getað stórskaddast
hinsvegar.
Þá sagði Helgi að það hefðu af
og til komið upp hnífastungumál
þar sem árásarmaðurinn bæri
reglulega á sér hnífa. Flest hnífa-
stungumál gerast hinsvegar í
heimahúsum og þá eru yfirleitt
notuð eggvopn úr eldhúsinu.
Flest þessara vopna taldi Helgi
að kæmu til landsins með íslensk-
um ferðamönnum. Hann tók sem
dæmi smelluhnífana, sem er
bannað að selja hér á landi en eru
töluvert í umferð samt. Hann
taldi að þeir kæmu flestir frá
Spáni.
í reglugerð frá dómsmálaráðu-
neytinu er kveðið á um hverslags
tól og tæki er ólöglegt að flytja til
landsins, þar á meðal eru smellu-
hnífar, rambóhnífar og önnur
bitjárn sem talið er aö hægt sé að
skaða fólk með. Einnig eru lás-
bogar og loftbyssur bannaðar.
Sama gildir um handjárn og fót -
járn að ekki sé talað um táragas.
Flestir sem eru aö panta þetta
að utan ætla sér þó ekki að nota
þessi vopn í návígi við aðra menn
heldur er þetta meira upp á sport-
ið, t.d. vilja sportveiðimenn og
hálendisfarar vera vel útbúnir
góðum hnífum og margir gera sér
ekki grein fyrir því að bannað er
að flytja svona vopn inn. Komist
þessi vopn hinsvegar í hendur
óvita eða misindismanna getur
stórslys hlotist af.
Smá sýnishorn hnífa sem tollurinn hefur gert upptæka nýlega. Myndir
Jim Smart
BRIDGE
;-.K:
CSjf
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Fjörugt mót
Aðalsteinn Jörgensen og
Ragnar Magnússon urðu íslands-
meistarar í tvímenning 1989. Þeir
sigruðu í hörkukeppni, en fjögur
pör voru í sérflokki í þessu móti.
Þessi fjögur pör eru;
Aðalsteinn Jörgensen-Ragnar
Magnússon, Arnar Geir
Hinriksson-Einar Valur Krist-
jánsson ísafj., Guðlaugur R.
Jóhannsson-Orn Arnþórsson og
Guðmundur Páll Arnarson-
Þorlákur Jónsson.
Innbyrðis keppni þessara para
þróaðist þannig;
Að loknum 6 umferðum:
Guðmundur-Þorlákur 102
Aðalsteinn-Ragnar 61
Arnar-Einar 49
Guðlaugur-Örn 27
Að loknum 10 umferðum:
Guðmundur-Þorlákur 129
Aðalst.-Ragnar 109
Arnar-Einar 102
Guðlaugur-Örn 51
Að loknum 16 umferðum:
Arnar-Einar 186
Guðmundur-Þorlákur 156
Aðalst.-Ragnar 156
Guðlaugur-Örn 84
Að loknum 20 umferðum:
Guðmundur-Þorlákur 172
Aðalst.-Ragnar 168
Guðlaugur-Örn 143
Arnar-Einar 132
Og fyrir síðustu umferðina
(eftir 22 umf.) var staðan þessi:
Aðalsteinn-Ragnar 168
Guðlaugur-Örn 149
Guðmundur-Þorlákur 144
Arnar-Einar 144
Tvö efstu pörin mættust í síð-
ustu umferð og nokkuð ljóst að
úrslit mótsins réðust þar (nema
skyndibombur úti í sal fleyttu
óverðugum eða verðugum
upp...). Lokastaðan varð þessi:
1. Aðalsteinn Jörgensen-
Ragnar Magnússon BH/BR
166 stig
2. Arnar Geir Hinriksson-Einar
Valur Kristjánsson ísafj. 159
stig
3. Guðlaugur R. Jóhannsson-
Örn Arnþórsson BR 151 stig
4. Guðmundur Páll Arnarson-
Þorlákur Jónsson BR 130 stig
5. Hjördís Eyþórsdóttir-Anton
R. Gunnarsson BR/BBrh. 78
st'g
6. Asgeir P. Asbjörnsson-
Hrólfur Hjaltason BH/BR 69
stig
7. Ólafur Lárusson-Hermann
Lárusson BR 68 stig
8. Jón Stefánsson-Sveinn Sig-
urgeirsson B. Skagfj. Rvk 54
stig
9. Sævar Þorbjörnsson-Karl Sig-
urhjartarson BR 43 stig
10. Hrannar Erlingsson-
Matthías Þorvaldsson BR/
BFB 21 stig
Mótið fór vel fram undir stjórn
Agnars Jörgenssonar, en honum
til aðstoðar voru Kristján Hauks-
son og Þórður Sigfússon.
í lokin má þó minnast á fárán-
lega tímasetningu mótsins, en
upphaf spilamennsku var kl. 10
árdegis á laugardeginum. Væri
ekki nær að hefja spilamennsku á
föstudagskvöldinu, þegar flestir
eru á fótum?
Sveit Pólaris keppir um þessa
helgi í Rottnerás-mótinu í Sví-
þjóð, eins konar bikarkeppni
sveita á Norðurlöndum.
Sumarbridge í Reykjavík hefst
væntanlega þriðjudaginn 9. maí í
húsi Bridgesambandsins. Um-
sjónarmenn verða Ólafur Lárus-
son, Hermann Lárusson, Jakob
Kristinsson og ísak Örn Sigurðs-
son.
Alslemma ’89 , mótahald um
land allt í sumar á 8 stöðum, hef-
ur vakið gríðarlega athygli. Stað-
irnir eru;
1 mót:
Gerðuberg í Breiðholti 20.-21.
maí.
2. mót:
Kirkjubæjarklaustur 10.-11.
júní. Hótel Edda.
3. mót:
Hrafnagil v/Akureyri 24.-25.
júní. Hótel Edda
4. mót:
Reykholt í Borgarfirði 8.-9. júlí
Hótel Edda.
5. mót:
ísafjörður 22.-23. júlí. Hótel
Edda (Menntask.)
6. mót:
Húnavallaskóli 12.-13. ágúst.
Hótel Edda.
7. mót:
Hallormsstaður 26.-27. ágúst.
Hótel Edda.
8. mót:
Félagsheimilið í Kópavogi 16,-
17. september.
í boði eru verðlaun að samtölu
1.550.000 kr., auk þess sem spil-
að verður um silfurstig. Skipu-
lagðar ferðir verða m/rútu á alla
staðina utan höfuðborgarsvæðis-
ins. Skráning í 1. mótið (Gerðu-
berg) er hafin hjá Forskoti sf., í
síma: 91-62 33 26.
Ábyrgðarmenn Alslemmu ’89
eru Ólafur Lárusson og Jakob
Kristinsson.
Eins kvölds tvímenningur
verður hjá Skagfirðingum næsta
þriðjudag. Síðasta þriðjudag var
fullt hús (34 pör).
Bragi Hauksson og Sigtryggur
Sigurðsson náðu einu spili í móts-
blaðið á EM-tvímenning. (Því
miður taldi heimildamaður þá frá
Austurríki í textanum, en það
rýrir ekk gildi spilsins);
G8
Á98763
K9
Á43
D643 Ákl05
K D10
ÁD32 1085
D985 972 KG107
G542
G764
62
Sagnir gengu:
Suður Vestur Norður Austur
(Bragi) (Sigtr.)
Pass 1 lauf 2 hjörtu Dobl
4 hjörtu Pass Pass
Pass 4 spaðarPass Dobl
Pass Pass
Ekki óeðlilega lagði Sigtryggur
niður hjartaás í upphafi og meira
hjarta. Sagnhafi henti tígli í
borði. Spilaði spaða þrisvar áður
en hann sneri sér að laufinu. Sig-
tryggur drap í annan gang og
skilaði meira laufi, og þau skila-
boð að sjá um tígulinn sjálfur.
Sagnhafi tók sér langan umhugs-
unartíma og lagði síðan niður
tígulás. Vandamálið blasti nú við
Sigtryggi. Inni á tígulkóng, yrði
hann að spila hjarta í tvöfalda
eyðu. Hann henti því tígulkóng,
yrði hann að spila hjarta í tvö-
falda eyðu. Hann henti því tíg-
ulkóng í. Sagnhafi var þá ekki
ýkja seinn á sér að spila sig inn í
blindan og út með tígultíu og
hleypti henni mjúklega þegar
Bragi lét lágt. 11 slagir og mjög
gott spil Pólverjanna í A/V.
Galdurinn við þetta spil er sá, að
þetta tekst aðeins á móti skárri
spilurum. Þeir sjá nefnilega sömu
stöðuna fyrir sér, eða hverjum
hefði dottið í hug að láta tígul-
kónginn undir ásinn?
Prik fyrir Sigtrygg Sigurðsson.
HÚSNÆÐIEFTIR
HJÓNASKILNAÐ
EÐA SAMBÚÐARSLIT
Því miður er það staðreynd,
að hjónaskilnuðum hefur fjölg-
að hin síðari ár. Við skilnað
breytast aðstæður m.a. þannig,
að þar sem áður dugði ein
íbúð, þarf oft tvær eftir skilnað-
inn. Það hefur í mörgum til-
vikum orðið upphafið að nýju
vandamáli.
EIGNARHLUTI MAKA
KEYPTUR
Algengl er að sá aöili, sem
hefur fengið forræði barna eftir
skilnaðinn, kaupi eignarhlut
fyrrverandi maka í íbúð þeirra.
Það er ekki sama hvernig að |
þessari tilhögun er staðið. |
NAUÐSYNLEGUR
FRESTUR TIL KAUPANNA
Við hjónaskilnað eða sam-
búðarslit gengur það dæmi
ekki upp, ef gert er ráö fyrir að
annar aðilinn kaup eignarhlut
hins með láni frá Húsnæðis-
stofnun, nema tekið sé tillit til
þess tíma sem það tekur að
afgreiða lán frá henni.
BIÐ EFTIR LÁNI
Umsóknir um lán frá Hús-
næðisstofnun ríkisins eru af-
greiddar í þeirri röð sem þær
berast stofnuninni. Eini greinar-
munurinn, sem gerður er á um-
sóknum, er að umsækjendum
er skipt í forgangshóp og víkj-
andi hóp. í forgangshópi eru
þeir sem eru að byggja eða
kaupa í fyrsta sinn. Þeir sem
búa í ófullnægjandi íbúð teljast
einnig í forgangshópi hvað af-
greiðslutíma varðar.
Umsækjendur um lán, sem
eru að skilja, teljast flestir til
víkjandi hóps, eigi þeir íbúð
fyrir.
Ef skilnaður er óhjákvæmilegur,
leitaðu þá upplýsinga
um lánsrétt þinn
áður en þú samþykkir
að kaupa eignarhlut
fyrrverandi maka í íbúð ykkar.
Föstudagur 28. apríl 1989 ' NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 17