Þjóðviljinn - 28.04.1989, Síða 29
^ Tilkynning
Um lóðahreinsun í Reykjavík,
vorið 1989
Samkvæmt ákvæðum heilbrigðisreglugerðar,
er lóðareigendum skylt að halda lóðum sínum
hreinum og þrifalegum. Umráðamenn lóða eru
hér með minntir á að flytja nú þegar af lóðum
sínum allt, er veldur óþrifnaði og óprýði og hafa
lokið því eigi síðar en 14. maí n.k. Að þessum
fresti liðnum verða lóðirnar skoðaðar og þar
sem hreinsun er ábótavant verður hún fram-
kvæmd á kostnað og ábyrgð húseiganda, án
frekari viðvörunar. Þeir, sem óska eftir hreinsun
eða brott-flutningi á rusli á sinn kostnað, til-
kynni það í síma 18000. Til að auðvelda fólki að
losna við rusl af lóðum hafa verið settir gámar á
eftirtalda staði: Við Njarðargötu í Skerjafirði,
Holtaveg-Vatnagarða, Sléttuveg, Hraunbæ og
við Jafnasel í Breiðholti. Eigendur og umráða-
menn óskráðra umhirðulausra bílgarma, sem
eru til óþrifnaðar á götum, bílastæðum, lóðum
og opnum svæðum í borginni, eru minntir á að
fjarlægja þá hið fyrsta. Búast má við, að slíkir
bílgarmar verði teknir til geymslu um takmark-
aðan tíma, en síðan fluttir á sorphauga. Úrgang
og rusl skal flytja á sorphauga við Gufunes á
þeim tíma sem hér segir.
mánudaga-föstudaga kl. 08-21
laugardaga kl. 08-20
sunnudaga kl. 10-18
Rusl, sem flutt er á sorphauga, skal vera í um-
búðum eða bundið og hafa skal ábreiður yfir
flutningakössum. Ekki má kveikja í rusli á sorp-
haugum og hafa ber samráð við starfsmennina
um losun. Sérstök athygli skal vakin á því, að
óheimilt er að flytja úrgang á aðra staði í borgar-
landinu. Verða þeir látnir sæta ábyrgð, sem
gerast brotlegir í þeim efnum.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík
Hreinsunardeild
Orðsending frá
Verkamannafélaginu
Dagsbrún
Aðalfundur Dagsbrúnar verður haldinn 10. maí
nk.
Reikningar félagsins vegna ársins 1988 liggja
frammi á skrifstofu félagsins, Lindargötu 9.
Stjórn Dagsbrúnar
SVÆÐISSTJÓRN
MÁLEFNA
FATLAÐRA
AUSTURLANDI
Forstöðumaður óskast
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Austurlandi
auglýsir stöðu forstöðumanns við þjónustumið-
stöðina Vonarland lausa til umsóknar frá 1.
september n.k. Markmið þjónustumiðstöðvar-
innar er að veita 8 fötluðum langtímavistun og
jafnframt er eitt skammtímavistunarpláss. For-
stöðumaður ber ábyrgð á faglegri og rekstrar-
legri stjórnun heimilisins í samráði og samstarfi
við svæðisstjórn. Forstöðumaður skal hafa
reynslu og menntun í þjálfun og umönnun fatl-
aðra. Aðstoðað er við útvegun á húsnæði. Um-
sóknarfrestur er til 31. maí n.k. og óskast um-
sóknir sendar á skrifstofu Svæðisstjórnar Aust-
urlands, pósthólf 124, 700 Egilsstaðir. Nánari
upplýsingar eru veittar af forstöðumanni Vonar-
lands, sími 97-11577 frá 8-16 eða á skrifstofu
svæðisstjórnar, sími 97-11833 frá 13.30-17.00
alla virka daga.
KENNARA-
HÁSKOLI
ÍSLANDS
Almennt kennaranám
til B.ED.-prófs
Umsóknarfrestur um þriggja ára almennt kenn-
aranám við Kennaraháskóla íslands er til 5.
júní. Umsókn skal fylgja staðfest afrit af próf-
skírteinum. Umsækjendur koma til viðtals dag-
ana 8.-14. júní, þar sem þeim verður gefinn
kostur á að gera grein fyrir umsókn sinni.
Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða önnur próf
við lok framhaldsskólastigs svo og náms- og
starfsreynsla sem tryggir jafngildan undirbún-
ing.
Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðu-
blöðum fást á skrifstofu skólans, Stakkahlíð,
105 Reykjavík, sími: 91-688700.
Rektor
Vélstjórar - vélstjórar
Vélstjóra vantar að Skeiðsfossvirkjun í Fljótum
Skagafirði.
Ágætis aðstaða fyrir fjölskyldu með börn.
Áhugaverð sveit með mikla framtíðarmöguleika
og mikið félagslíf.
Viðkomandi þarf að hefja störf 1. júní 1989.
Laun samkvæmt kjarasamningi S.M.S og
Siglufjarðarkaupstaðar. Nánari upplýsingar
gefur veitustjóri eða bæjarstjóri Siglufjarðar í
síma 96-71700 og stöðvarstjóri Skeiðsfoss-
virkjunar í síma 96-7322, 96-73203.
ff / Tilkynning:
Þeir sem telja sig eiga bíla á geymslusvæði
„Vöku“ á Ártúnshöfða og í Gufunesi þurfa að
gera grein fyrir eignarheimild sinni og vitja
þeirra fyrir 14. maí n.k. sbr. 110 gr. umferðar-
laga.
Hlutaðeigendur hafi samband við afgreiðslu-
mann „Vöku“ að Eldshöfða 6 og greiði áfallinn
kostnað.
Að áðurnefndum fresti liðnum verða geymslu-
svæðin hreinsuð og bílgarmar fluttir á sorp-
hauga á kostnað og ábyrgð eigenda, án frekari
viðvörunar.
Reykjavík 24.04.89
GATNAMÁLASTJÓRINN í REYKJAVÍK
Hreinsunardeild
Rauðsokkahreyfingin
á íslandi
Helga Sigurjónsdóttir fjallar um upphaf, þróun
og endalok rauðsokkahreyfingarinnar í laugar-
dagskaffi Hlaðvarpans 29. apríl kl. 11.00 fyrir
hádegi.
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Öldrunarþjónustudeild
Laus er staða verkefnastjóra á vistunarsviði
öldrunarþjónustudeildar.
Æskileg er menntun félagsráðgjafa, en starfið
felst í yfirumsjón með húsnæðis- og vistunar-
málum aldraðra hjá Reykjavíkurborg.
Um er að ræða 100% stöðu sem er laus nú
þegar.
Umsóknarfrestur er til 12. maí nk.
Umsóknareyðublöð fást hjá Starfsmannahaldi
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð.
Nánari upplýsingar veitir Þórir S. Guðbergsson
og Ásta Þórðardóttir í síma 25500.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við framhaldsskóla
Við Menntaskólann á Egilsstöðum eru lausar til umsóknar
kennarastöður í eftirtöldum greinum:
frönsku, dönsku, stærðfræði, tölvufræði, viðskiptafræði og sál-
fræði eða uppeldisfræði.
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja er laus til umsóknar staða
skólameistara til eins árs og staða aðstoðarskólameistara til fimm
ára.
Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki eru lausar kennarastöður
í þýsku og stærðfræði.
Við Kirkjubæjarskóla á Síðu vantar kennara til að kenna fiskeld-
isgreinar, eina og hálfa stööu. Upplýsingar veitir skólastjóri í
símum: 98-74633 og 98-74640.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu' 6, 150 Reykjavík fyrir 19.
maí nk.
Menntamálaráðuneytið
Rafveita Siglufjarðar.
A
Félagsráðgjafi
Félagsmálastofnun Kópavogs óskar að ráða
félagsráðgjafa til starfa. Um er að ræða fullt
starf í fjölskyldudeild með áherslu á barna-
verndarmál. Starfsreynslaeræskileg. Umsókn-
arfrestur er til 15. maí nk. Umsóknareyðublöð
liggja frammi á Félagsmálastofnun Kópavogs,
Digranesvegi 12. Nánari upplýsingar veita fé-
lagsmálastjóri oig deildarfulltrúi í fjölskyldudeild
í síma 45700.
Félagsmálastjóri Kópavogs
Eiginmaður minn og faðir okkar
Kristján Kristjánsson
Mávahlíð 1
Reykjavík
sem lést á Mallorka 13. apríl 1989 verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 2. maí kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd.
Elín Guðmundsdóttir Erlingur Kristjánsson
Sigrún Kristjánsdóttir Kristján G. Kristjánsson