Þjóðviljinn - 28.04.1989, Qupperneq 30
Hvað á að gera um helgina?
Halldór Ásgeirsson
myndlistarmaður
Hef engin sérstök plön en býst við því að glugga í nokkrar ljóðabækur,
enda er ég að kaupa mér íbúð og þarf að kynnast henni. Þess vegna
verð ég að öllum líkindum bundinn innanhúss að undanskildum reglu-
bundnum sundferðum. Ég á mjög góða sundskýlu sem ég krækti mér í
fyrir norðan sl. sumar á ferð minni um landið.
MYNDLIST
Jón Axel, kolateikningar, í Nýhöfn
Hafnarstræti, hefstld., virka10-18,
helgar 14-18, lýkur 17.5.
Daðl Guðbjörnsson, málverk, í FÍM-
salnum Garðastræti, hefstföd., virka
13-18, helgar 14-18, lýkur 16.5.
Ófeigur Björnsson sýnir skúlptúra í
Gallerí Grjóti, Skólavst., hefstföd.,
virka 12-18, helgar 14-18, lýkur
15.5.
„Áfram veginn" í Safnahúsinu
Sauðárkróki: Áslaug Sigurbjörns-
dóttir, Dagrún Magnúsdóttir, Gréta
Ósk Sigurðardóttir, Guðrún Nanna
Guðmundsdóttir, (ris Ingvadóttir,
Tryggvi Þórhallsson, Þórdís Elín Jó-
elsdóttir. Hefst ld., dagl. 15-18, lýkur
7. maí.
Pétur Bjarnason í Ásmundarsal,
dagl. 14-20, Iýkur4.5.
Halldór Árni Sveinsson (málverk) í
Listasafni ASf Grensásv., virka 16-
20, helgar 14-20, lýkurmád.
Samsýning í Art-Hún, Stangarhyl 7,
virka 14-18, helgar 13-18, lýkur
mád.
Ragna Ingimundardóttir (keramik)
á Kjarvalsstöðum, dagl. 11-18, lýkur
sd.
Einar Hákonarson (emaléruð
myndverk) á Kjarvalsstöðum, dagl.
11-18.
Sigurlaugur Elíasson (grafík) Undir
pilsfaldinum, Hlaðvarpanum Vest-
urg., virka 14-19, helgar 14-22, lýkur
mád.
Jón Gunnarsson (málverk) í Hafn-
arborg Hfirði, dagl. 14-19nemaþd.,
Iýkur7.5.
Sigríður Ásgeirsdóttir (glermyndir)
ÍNorrænah.,dagl. 11-18, lýkurmád.
Sjötíu verk fimmtán málara úr
Listmálarafélaginu á Kjarvalsstöð-
um, dagl. 11-18, lýkur mád. Samsýn-
ing í Nýllstasafninu Vatnsstíg, virka
16-20, helgar 14-20. Síðasta sýn-
ingarhelgi síðustu sýningar á Vatns-
stígnum.
Listasafn Einars Jónssonar, ld„
sd. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn
dagl. 11-17.
Listasafn íslands. Salur 1: Jón Stef-
ánsson, Kjarval, Scheving. Salur2:
Verk átta samtímamanna. Salur 3 og
4: Hilma af Klint, farandsýning frá
Svíþjóð. Mynd mánaðarins: Mosi við
Vifilsfell e. Kjarval, kynntfid. 13.30.
Dagl. 11-17nemamád.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á
Laugarnesi, helgar 14-17.
Eiríkur Smith, vatnslitamyndir í Gall-
erí Borg Pósthússtr., opið virka 10-
18, helgar 14-18, Iýkur2.5.
Árni Rúnar Sveinsson (málverk) á
Mokka Skólavörðustíg, hefst Id.
Gallerí Gangskör, virka 12-18
nema mád., gangskörungar sýna.
Ásgrímssafn Bergstaðastr., vatns-
litamyndir til maíloka, dagl. 13.30-16
nemamád.
Tumi Magnússon í Slunkaríki ísa-
firði, dagl. 16-18, lýkur Id.
Síðustu sýningar um helgina hjá
Egg-leikhúsinu á „Sál mín er
hirðfífl í kvöld“ í Hlaðvarpanum,
Nýhöfn og aftur I Hlaðvarpanum.
Myndin sýnir Þór Túliníus og
Viðar Eggertsson sem konung
og hirðfífl í þriðja þætti.
Hugleikur sýnir Ingveldi á Iðavöllum
Galdraloftinu Hafnarstræti 9 Id. 20.30
(miðap. 24650).
Leikfélag Hveragerðis sýnir Dýrin í
Hálsaskógi í Bæjarbíó Hfirði Id.
14.00,17.00, sd. 14.00.
Bílaverkstæði Badda aftur á litla
sviði Þjlh. þd., mid. 20.30, leikförí
vændum.
Ofviðrið í Þjlh. föd., sd. 17.00.
Leikfélag Dalvikur sýnir Dysina e.
BöðvarGuðmundsson, leikstj. Þrá-
inn Karlsson, í Félagsheimili Kópa-
vogsföd., Id. 16-18.
Hvað gerðist í gær? Alþýðuleikhús-
ið í Hlaðvarpanum Vesturg. 3 Id.
20.30.
Haustbrúðurí Þjlh. Id. 20.00. Óvitar
ÍÞjlh.ld.sd. 14.00.
Brúðkaup Fígarós föd., sd. 20.00 í
Óperunni.
Sveitasinfónían í Iðnó föd., sd.
20.00.
Sjang og Eng í Iðnó Id. 20.00.
Ferðln á heimsenda I Iðnó Id. sd.
14.00.
Sál mín er hirðfífl í kvöld, Egg-
leikhúsið Hlaðvarpanum Vesturg,
föd., sd. 20.00, síðustu sýningar.
TÓNLIST
Snæfellingakórinn í Reykjavík
syngur i Félagsheimili Stykkishólms
Id. 16.30, eins. Theodóra Þor-
steinsdóttir, Friðrik Kristinsson
söngstj. Píanóleikur Ingibjörg Þor-
steinsdóttir.
Kór Hafnarf jarðarkirkju syngur
verk e. Friðrik Bjarnason og Missa
Sancti Nicolai e. Haydn í kirkjunni sd.
17.00, með tólf manna hljómsveit,
eins. Erna Guðmundsdóttir (sópran),
Sigríður Jónsdóttir(messósópran),
Magnús Steinn Loftsson (tenór), Að-
alsteinn Einarsson (barítón).
Söngféiagar 1 & 8 í Gerðubergi sd.
16.00, stj. Helgi R. Einarsson.
Bandaríska tónskáldið Neil B. Roln-
ick leikur raftónlist hjá Musica nova
Id. 16.00 á Hótel Borg, Andrea Gylfa-
dóttir (í Grafík) syngur í einu verk-
anna.
TónleikarTónmenntaskóla Rvíkur í
Óperunni Id 14.00, einleikur og sam-
spil yngri nemenda. Ókeypis.
Vortónleikar Skagf irsku söngs-
veitarlnnar í Langholtskirkju sd.
17.00, eins. Guðmundur Sigurðsson,
Halla S. Jónasdóttir, Hreiðar Pálma-
son, Óskar Pétursson, verk e. m.a.
Schubert, Hándel, stj. Björgvin Þ.
Valdimarsson.
Norski píanóleikarinn Leif Ove
Andsnes á tónleikum Tónlistarfé-
lagsins i Óperunni þd. 20.30, verk e.
Chopin, Grieg, Schubert.
Tríó Egils B. Hreinssonar í Heita
pottinum Duus-húsi sd. 21.30.
HITT OG ÞETTA
Laugardagur- Alþjóðadagur dans-
listarinnar. íslenski dansflokkurinn
og Félag íslenskra listdansara minna
á daginn með sýningum í Kringlunni
11.30,12.30, á Eiðistorgi 14.15 og
Kjarvalsstöðum 16.00.
Ferðafélagið. Sd. 10.30 Skíöaganga
yfir Kjöl, frá Stíflisdal að Fossá í Hval-
firði, verð 1000. Sd. 13.00 Skíða-
ganga í Jósepsdal, verð 600. Sd.
13.00 Gönguferð inn Jósepsdal, yfir
Ólafsskarð að Suðurlandsvegi, verð
600. Md. 10.30 Hengill, göngu- og
skíðaferð, verð 600. Brottför austan
Umfmst, börn m.f. frítt
Útivist. Sd. 13.00 Básendar-
Hunangshellar-Ósar, verð 1000.
Md. 13.00 Gönguferð á Keili („fjalla-
hringurinn" 1. ferð), verð 900. Brott-
för vestan Umfmst, börn m.f. frítt.
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi 10.00frá Digranesv. 12.
Birkið angar og liljurnar skarta sínu
fegursta.
Félag eldri borgara. Göngu-Hrólfur
leggur af stað frá Nóatúni Id. 10.00.
Opið hús íTónabæ Id. frá 13.30,
dansleikurog skemmtun 20.00. Opið
hús sd. í Goðheimum, Sigtúni 3,
spjall, spil og tafl frá 14, dansað 20-
23.30. Ópið hús Tónabæ md. frá
13.30, félagsvist frá 14.00.
Ekkert MÍR-bíó þessa helgi, en opið
hús md. 1. maí á Vatnsstíg 10 frá
14.00, kaffisala. sýningar, ferðakynn-
ingar, tónlist, hlutaveltao.fi.
Skáldskaparmál, ráðstefna um forn-
bókmenntirnar I Borgartúni 6 föd. frá
20.00, Id.og sd. 10-17.
„Evrópuhúsið," öryggismál og við-
skiptahagsmunir. FundurNorræna
sumarháskólans, málshefjendur
Árni Bergmann, Vigfús Geirdal, sd.
14.00 Norræna húsinu.
Aldargamall Þórbergur. Pétur
Gunnarsson talar um Þórberg, lesið
úrverkum, Id. 15.00 Borgarbóka-
safninu Gerðubergi.
Skemmtikvöld hjá Barðstrendinga-
félaginu Id. Hreyfilshúsinu frá 21.00.
Bænadagursd., bænaguðþjónustur
í öllum kirkjum: „Verði gróandi þjóðlíf
með þerrandi tár, sem þroskast á
guðsríkis braut."
ÍÞRÓTTIR
Karfa, NM. Föd.: Svíþjóð-Noregur
14.00 Keflavík, Finnland-Danmörk
18.00Grindavík, (sland-Svíþjóð
20.00 Njarðvík. Ld.: (sland-Noregur
14.00 og Svíþjóð-Finnland 16.00 í
Keflavík.
Fatlaðir. Handknattleiksmót með fs-
landi A og B, V-Þýskalandi og Noregi.
Frá 20.00 föd.ogl 0.00 Id.
Fótbolti, Rvkmót, undanúrslit, KR-
Fylkirld. 17.00 og Víkingur-Fram
sd. 20.30.
Stöplamir hennar
Hólmfríðar
Sumardagskrá Sjónvarpsins er
nú að byrja að skríða yfir skjáinn
og virðist ýmislegt forvitnilegt
þar á ferð. Mér þótti ágætt að
heyra þá yfirlýsingu sjónvarps-
manna að nú skyldi innlent efni
aukið yfir sumartímann. Oft hafa
'sumrin nefnilega verið skelfileg
eyðimörk - sem kannski er eins
gott ef maður á að komast út í
góða veðrið. Svona er maður nú
mótsagnakenndur.
En burtséð frá samvisku-
kvölum sjónvarpssjúklinga á
fögrum sumarkvöldum þá eru
nýju þættirnir farnir að birtast
einn af öðrum. Hringsjáin byrj-
aði um síðustu helgi, í fyrrakvöld
fór Hafsteinn Hafliðason græn-
um fingrum um áhorfendur og
léttmetið á kvöldfréttatíma út-
varpsins er að stokkast upp.
Og svo er fréttastofan farin að
Ieggja til umræðuþætti á þriðju-
dagskvöldum. Um það er í sjálfu
sér allt gott að segja og reynslan
verður að skera úr um það hvort
fréttahaukunum fer stjórnin bet-
ur úr hendi en Hrafni Gunnlaugs-
syni.
Á þriðjudaginn var Árni Þórð-
ur Jónsson með umræðuþátt um
ferðamál sem fór allur prúð-
mannlega fram. Þrátt fyrir nokk-
uð eldfimt framlag Björns S. Lár-
ussonar héldu ferðamálafrömuð-
irnir stillingu sinni. Þátturinn var
að mörgu leyti ágætur utan hvað
ég fékk eins og svo oft áður á
tilfinninguna að menn væru ekki
komnir í sjónvarpssal til að upp-
lýsa almenning heldur til að sýna .
okkur hversu vel þeim færust
störfin úr hendi og hversu rétt
brautin væri sem þeir fetuðu. Það
væru hinir sem væru á villigötum.
En semsé, allt var þetta með
felldu og svo komu fréttir og að,
þeim loknum kvaddi Rósa.
Daginn eftir hringdi svo kunn-
ingi minn í mig til að ræða þennan
þátt. Hann þekkir dálítið til í
ferðamálunum og honum var
nokkuð heitt í hamsi út af stöpla-
ritum sem fulltrúi Flugleiða í
þættinum, Hólmfríður Árnadótt-
ir, vitnaði í og höfðu þann tilgang
að sýna hversu vonlaus sam-
keppnisaðstaða íslenskra veiting-
ahúsa væri andspænis erlendum
matsölustöðum sem þyrftu ekki
að borga nema brot af því sem
íslenskir vertar þurfa að greiða
fyrir hráefnið í matinn.
Ég kannaðist við sönginn um
matarskattinn og spurði kunning-
ja minn hvað hann hefði við þetta
að athuga. Jú, það voru vöruteg-
undirnar sem bornar voru saman.
í pakkanum sem borinn var sam-
an voru sjö tegundir hráefnis, eitt
kíló af hverri. Þar var salat, kart-
öflur, tómatar og egg og svo þrjár
kjöttegundir: svínahryggur,
nautahryggur og kjúklingur. Alls
greiddu íslensku veitingahúsin
3.200 kr. fyrir pakkann, þar af
2.400 kr. fyrir kjötið, en danskir
vertar þurftu ekki að greiða nema
um 1.200 kr. fyrir sama hráefni.
Þarna var um hreina fölsun að
ræða að sögn kunningja míns.
Hann vitnaði í hóteleiganda á
landsbyggðinni sem sagði að 95%
þeirra máltíða sem hann bæri á
borð fyrir erlenda ferðamenn
væru fiskur, einkum lax sem væri
orðinn svo ódýr eftir að fiskeldið
færðist í vöxt. Afgangurinn pant-
aði lambakjöt. Kunningi minn
hélt því semsé fram að ef borið
hefði verið saman verðlag á laxi,
lúðu og lambakjöti hefði útkom-
an orðið allt önnur.
Ég segi ekki að ég geti tekið
undir með kunningja mínum sem
gekk svo langt að sjá í þessu sam-
særi Flugleiða. Fyrirtækið vildi
með þessu sýna að það væri svo
dýrt að ferðast hér heima að það
borgaði sig að fara til útlanda -
með Flugleiðum að sjálfsögðu!
Ég get hins vegar tekið undir
með Birni S. Lárussyni að ég er
orðinn dálítið þreyttur á þessum
eilífa söng um vonsku ríkisvalds-
ins. Vissulega getur rtkið verið
vont og sjálfsagt að veita því að-
hald. En það er engin ástæða til
að gera það verra en það er með
rangfærslum og villandi saman-
burði. Stundum er hins vegar
eitthvað að hjá manni sjálfum og
það lagast ekki nema maður hafi
kjark til að horfast í augu við það.
Og til þess eiga fjölmiðlar að
vera: að hjálpa viðmælendum
sínum og notendum að komast að
kjarna hvers máls. Ekki að ein-
blína á hismið eða þyrla upp
moldviðri á forsendum sem ekki
standast að rýnt sé í þær. Það
gerðu stöplarnir hennar Hólm-
fríðar ekki.
FJÖLMIÐLAR
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
30 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. apríl 1989