Þjóðviljinn - 12.05.1989, Blaðsíða 26
y X T~ 4 S (o 7- 8 V Y s 10 n
w~ (2 /3 14 10 V )S X* i? 10 4 S? 18 W~
20 )0 )S 18 18 4- \4 w )# 3 2-1 4
14 J u 21 4 S? 22 2% J9 18 S? w~ 4 W
10 S? is 8 W /8 4 lö 20 IÖ 18 S? ‘1 0
V 2S 4 10 1 (p 10 S? 4 21 i4 )4 10 s? 10 20
l /Ý 26 2.0 21 8 )0 s? 4 IS ? 16 10 S? J
)4 21 18 S? n 10 2/ 18 S? f 18 ll 1/ s?
22 10 S? 28 y~ 2°) 18 18 SP )0 \4 12 20
?3 \sr 14 22 /0 y 4 )2 ?o 4 )0 )é>
10 5T É iS V 3 4 )4 /o 4 S2 * 7- /6
4 f 10 20 10 14 14 24 4 22 )l S2 8 31
S? u J SP 13 8 y " s? 2Z 32 s?
JÓHANNA
LEÓPOLDSDÓTTIR
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá bæjarnafn.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla
6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 43“. Skilafrestur er þrjár vikur.
Verðlaunin verða send til vinningshafa.
/é é ? 5 8 )D )Í9 18 10 4 2Ð
Verðlaunakrossgáta
Nr. 43
Lausnarorðið fyrir krossgátu nr. 40 var GOÐAHNÚKAR. Dregið var úr
róttum lausnum og upp kom nafn Dóru Hlínar Ingólfsdóttur, Amar-
tanga 17, Varmá. Hún fær senda bókina Nú er kominn tími til, eftir
Drude Dahlerup.
í lokuðu hrrhorei
Hörpuskel að hætti
Snæfellinga
Vonandi varð öllum gott af síð-
asta fiskrétti og komust fram úr
uppskriftinni þrátt fyrir að prent-
villupúkinn læddi inn heilu orði.
svona til að rugla menn svolítið í
ríminu og flækja uppskriftina.
Við sem fórum á vatnskúrinn
stóðum okkur svona eins og efni
stóðu til því uppskriftin að hon-
um var afar ófullnægjandi. Þess-
ari hugmynd um að fara á vatns-
kúr í nokkra daga er aftur komið
á framfæri og skal fólki bent á að
leita til sérfróðra aðila til að fara
sér nú ekki að voða í leit sinni að
fínni línum og bættri heilsu.
En svona í tilefni þess að ég
ætla að skreppa á Snæfellsnesið
nú um hvítasunnuna komu mér í
hug tveir fiskréttir sem minna
mig presónulega mjög á Nesið.
Það er að fá sér góðan saltfisk
(blautsaltaðan) og með honum
kartörflur, rúgbrauð og smjör.
Sumir vilja að sjálfsögðu hamsa-
tólg frekar. Óþarfi ætti að vera að
minna menn á gamaldags plokk-
fisk úr afgangnum.
Hinn fiskrétturinn af Nesinu er
af öðrum toga, það er hörpuskel-
fiskur. Hann er mjög fljótlegt að
hafa til en eitt verður aldrei of oft
brýnt fyrir fólki, að ofsjóða hann
ekki. Hörpuskelfiskur þarf bara
rétt að hvítna, annars verður
hann mjög seigur.
Fyrir fjóra
800 gr. hörpuskelfiskur
smjör
salt
3-5 hvítlaugsgeirar
ný steinselja
Meðlæti
sítróna
ristað brauð
Pannan er hituð og á hana sett
smjörið og hvítlaukurinn og hitað
smástund. Passið að smjörið
brenni ekki. Þá er fiskurinn sett-
ur á pönnuna og látinn malla í 2-3
mínútur á meðan oft er hrært í
honum. Fylgist vel með fisknum
svo hann ofsoðni ekki og hafið
ristaða brauðið, sítrónuna og
tómatana tilbúna ásamt öðru er
til þarf, svo að máltíðin geti hafist
strax. Að síðustu er steinseljan
klippt yfir fiskinn, pönnunni
skellt á borðið, og þá er maturinn
til.
Það má nota í þessa uppskrift
fisk sem skorinn er í lítil stykki,
og getur það verið góð tilbreyting
frá hinni hefðbundnu soðningu.
Verði ykkur að góðu.
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 43 er
nýútkomin Ijóðabók eftir Elísa-
betu Jökulsdóttur, Dans í lokuðu.
herbergi. Höfundur gaf út.
KUKL
Hilmar öm
Hilmarsson
hjálpar nútímamanninum að afs-
anna máltækið að það er ýmislegt
sem okkur er ekki ætlað að skilja
fýrr en eftir dauðann.
Hinir nýju stjórnendur eru yf-
irleitt alvitrar verur sem ýmist af
eigin hvötum eða fyrir atbeina
almættisins eru að kenna ráð-
villtu mannkyni hvemig það geti
losnað úr viðjum efnisins og
raungert þann guðlega neista sem
býr í okkur öllum. Nú mætti ætla
að allt þetta venjulega veraldar-
vafstur gæti staðið andlegum
þroska fyrir þrifum, en það er víst
algjör misskilningur. Hin fleygu
orð sálmaskáldsins, „Upp, upp
mín sál og allt mitt geð“, virðast
ekki síst eiga við hina svokölluðu
uppa, því fáir aðrir hafa ráð á
helgarnámskeiðum leik- og ræst-
Ramtha, - illkvittinn púki sem sé
að reyna að saurga upphaflegu
kenningarnar.
Það er eftirtektarvert að bæði
Ramtha og gervi-Ramtha koma í
gegnum sömu manneskjuna, en
önnur alvitur rásuð vera, Michael
að nafni, hefur hins vegar haldið
sér nokkum veginn þó svo hann
hafi skipt um rásir. Upphaflega
komst boðskapur Michaels á
framfæri í gegnum hóp af fólki
sem utan andaglasafundanna átti
það sameiginlegt að vera virtir
borgarar í góðum stöðum.
Samkvæmt núverandi stöðvar-
stjóra Michael, kom að því að
þetta ágæta fólk fór að óttast um
mannorð sitt og starfsframa ef
ske kynni að það fréttist hvað það
væri að bauka á kvöldin, þannig
Af kosmískum fjölmiðlasprengingum
Það hefur vafalaust ekki farið,
framhjá dulspekilega sinnuðum
lesendum að mannkynið stendur
um þessar mundir á merkum
tímamótum. Við erum á þrösk-
uldi vitundarbreytingar sem
popp- eða alþýðugúrúar nefna
„New Age“ eða Nýöld.
Því miður ber ekki öllum sam-
an um það í hverju breytingarnar
eru fólgnar eða hvert við erum
yfirhöfuð að stefna, en ég mun
reyna af veikum mætti að gera
grein fyrir þeim meginstefnum
sem eru í gangi þessa stundina.
Talsmenn Nýaldar eru á einu
máli um það að núlifandi kyn-
slóðir séu útvaldar og að ýmsir
þeir sem meðal okkar standa
muni alls ekki smakka dauðann
fyrr en við sjáum geimbræðralag-
ið/Maitreya/Kristsvitundina/og-
hvaðekki koma í ríki sínu.
Ekki er öllum saman um stað-
setningu eða eðli sælureitsins sem
hinir útvöldu munu byggja, -
ýmsir halda á lofti hugmyndum
sem virðast skyldar hefðbundn-
um kristilegum skilgreiningum á
þúsundáraríkinu, aðrir eru á því
að geimbræðralagið muni flytja
rjóma mannkynsins til Krabba-
þokunnar eða Síríusar.
Hins vegar eiga boðberar Ný-
aldar margt sameiginlegt hvað
sem lokatakmarkinu líður: flestir
hafa tekið upp það sem George
Orwell nefndi „Newspeak" eða
„Nýmælgi“ og gömlum hug-
tökum hafa verið gefin ný nöfn til
þess að fólk fari ekki að rugla
fornum og hallærislegum hug-
myndum saman við nýjar spenn-
andi leiðir sem nota kjarnakljúfa
sjálfrar náttúrunnar og önnur
skammtaeðlisfræðileg lögmál.
Mikið af þessari nýju visku
kemur í gegnum það sem áður
var nefnt miðilsdá, en hefur nú til
aðgreiningar verið nefnt
„Channeling" eða rásun. Áður
fyrr þegar miðilsdá og andastjórn
voru upp á sitt besta var enginn.
miðill með miðlum nema hann.
hefði í það minnsta einn sléttu-
indíána til þess að lýsa hinum ei-
lífu veiðilendum, Charles og Fri-
edrich til að lýsa blámóðunni
miklu sem tók við af vígvellinum í
fyrri eða seinni heimsstyrjöld-
inni, eða einhverjum framliðnum
forvígismanni spíritistahreyfing-
arinnar sem sagði framlífið ennþá
stórkostlegra en jafnvel hann
hefði þorað að gera sér vonir um.
En nú hefur svona stjórnendum,
ásamt ærslafullum smaladrengj-
um eins og Runka verið parkerað
og alvitrir ábúðarfullir leiðbein-
endur hafa tekið við og miðla, ég
meina ræsa fram, boðskap sem
Hin fleygu orð sálmaskáldsins,
„Upp, upp mín sál og allt mitt
geð“ virðast ekki síst eiga við
hina svokölluðu uppa, því fáir
aðrir hafa ráð á helgarnámskeið-
um leik- og ræstingakonunnar
Shirley MacLaine.
ingakonunnar Shirley MacLaine
sem er einhver skærasta stjarna
hreyfingarinnar um þessar mund-
ir.
Shirley hefur gert ýmislegt
annað en að sofa hjá ónefndum
norrænum krataleiðtogum, hún
er líka gömul sál sem hefur upp-
götvað fæðingarrétt sinn og eðli í
gegnum rásun. Það vakti mikla
athygli þegar hún gerðist áköf
fylgikona andlegs stjórnanda sem
nefnir sig Ramtha og ekki minni
athygli þegar hún afneitaði
Ramtha og hóf samstarf við aðra
stjórnendur sem henni þóttu öllu
heppilegri. Hin kosmíska pólitík
gefur þeirri veraldlegu greinilega
lítið eftir hvað varðar byltingar
og umbreytingar...
Ramtha er ekki síst umdeildur
vegna þess að hann gerði nokkuð
sem alvitrar og tímalausar verur
gera yfirleitt ekki: hann kúventi
og í stað þess að boða þá áhyggju-
lausu og uppljómuðu framtíð
sem hann varð fyrst frægur fyrir,
boðar hann nú niðurlægingar-
tíma, myrkar aldir og hrun sið-
menningarinnar. Margir eldri
Ramtha-aðdáendur útskýra
þetta sem svo að nýja útgáfan af
Ramtha sé plat, þ.e. gervi-
að Michael skipti einfaldlega um
rás! Umskiptin hafa greinilega
veitt Michael innsýn í mannlegan
breyskleika því hann er orðinn
meir dipló í því hvernig hann orð-
ar hlutina. Upphaflega skipti
hann mannfólkinu í sjö hópa, en
sú skipting felst í því að við kom-
um hingað í sjö mismunandi
„hlutverkum": stríðsmaður,
handverksmaður, vitringur,
fræðimaður, prestur, konungur
og þræll. Síðasta hlutverkið hefur
nú verið umorðað, líklega vegna
þess að núverandi stöðvarstjórar
gætu misst vinnuna sakir mann-
fyrirlitningar og enska hugtakinu
„slave“ hefur verið skipt út með
orðskrípinu „server“ sem mætti
kannski þýða sem þjónari.
Hugsanlega er eitthvað til í
þessu öllu saman og því ætla ég að
eyða nokkum greinum í það að
segja frá því helst sem er að ger-
ast úti í hinum stóra dulspeki-
heimi. Þótt margir segi að hér sé
aðeins um að ræða gamalt vín á
nýjum belgjum, getur maður
ekki annað en dáðst að markaðs-
setningunni og þess vegna vænti
ég þess að þið getið varla beðið í
heila viku eftir nýju slúðri.
Reynið samt að þrauka.
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 12. maf 1989