Þjóðviljinn - 12.05.1989, Blaðsíða 12
BARNAKOMPAN
Umsjón:
KRISTÍN VALSDÓTTIR
ANDRÉS GUÐMUNDSSON
Kíkkí pási
Einu sinni var páfagaukur
sem hét Kíkkí. Stelpan og
strákurinn sem áttu Kíkkí hétu
Árni og Helena. Kíkkí vildi
vera vinur allra og láta alla
vera vini sína. Eitt sinn þegar
fjölskyldan var að borða þá
var kjöt í karrí. Kíkkí var að
fljúga og lenti hann ofan í karr-
ísósunni. Þá heyrðist pafs og
Kíkkí skrækti. Helena sagðist
vorkenna Kíkkí. Hann hefur
þó ekki níu líf.
Anna Björnsdóttir 9 ára
Þessi þrjú hús eiga aö fá vatn úr réttum vatnshönum.
Leggðu pípurnar án þess að þær liggi yfir hvor aðra. Þú
mátt ekki fara upp fyrir neinn vatnshanann.
Stafurinn göldrótti
Hér færðu sjónhverfingu tii að glíma við.
Þú lætur göngustaf eða prik standa á milli
hnjánna á þér og sleppir honum. Hann stendur
og hallar sér á ýmsar hliðar þegar þú segir skip-
unarorðið, sem þú semur sjálfur.
Sjónhverfingin er í því fólgin að þú festir svart-
an eða gráan tvinna í buxnaskálmarnar. Tvinna-
spottinn verður að vera nógu langur svo þú getir
gengið eðlilega. Þegar þú sest lætur þú stafinn
innan við þennan spotta og lætur hann hvíla á
honum. Þá hallast stafurinn örlítið en virðist
standa lóðrétt án þess að nokkuð styðji hann.
Síðan getur þú leikið á viðstadda með því að
hreyfa hnén og þá hreyfist stafurinn jafnframt.
Eldspýtur,
sápa
og sykur
í þessa tilraun þarftu að
nota 5 eldspýtur, skál með
vatni í, sápubútog sykurmola.
Fyrst lætur þú eldspýturnar
fljóta á vatninu í skálinni.
Hafðu bil, á stærð við 10
krónu pening, á milli endanna
sem snúa að miðjunni. Síðan
tekur þú sápubútinn og tálgar
endann þannig að hann líti út
einsog blýantur. Seturoddinn
á sápunni í vatnið í miðjunni
milli spýtnanna. Þá munu eld-
spýturnar hörfa til hliðanna.
Þá tekur þú sápuna í burtu og
snertir vatnið á sama blettin-
um með sykurmolanum.
Hvað gerist þá?
SAPA
SYKUR
12 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 12. maí 1989
Svorfur
tvfnru
Kalli eignast
kassabíl
Það var einu sinni strákur sem hét Kalli. Kalli er 6 ára en hann
er alveg að verða 7 ára. Hann verður 7 ára á morgun. Þegar
Kalli á að fara að sofa þá getur hann ekki sofnað af forvitni um
það hvað hann skuli fá. Loksins sofnar Kalli en þá dreymir hann
um afmælið. Hann dreymir að hann fái mikið af pökkum. Hann
fær sápukúlur frá Siggu frænku, bíl og hatt frá Nóa frænda,
skóladót frá ömmu og afa og frá mömmu og pabba fær hann ...
æ, núna vaknar Kalli. Hann þurrkar stírurnar úr augunum.
Mamma og pabbi er vöknuð. Þau bjóða Kalla góðan dag og
spyrja hann hvort hann vilji opna pakkann sinn núna eða bara
þegar gestirnir koma. Kalli segist vilja opna hann núna strax.
Hann kemur auga á ofsalega stóran pakka og á honum stendur
skrifað með stórum stöfum. TIL KALLA FRÁ MÖMMU OG
PABBA. Hann opnaði böggulinn og þá kom í Ijós að þetta var
kassabíll. Hann þakkaði mömmu og pabba fyrir gjöfina himinlif-
andi af gleði. Og svona endar svo sagan um Kalla.
Svanhildur Snæbjörnsdóttir 9 ára