Þjóðviljinn - 13.06.1989, Qupperneq 13
Jón Karlsson hjúkrunarfræðing-
ur hefur undanfarið starfað á
sjúkrahúsi Rauða hálfmánans í
Kabúl og annar landi er nýlega
farínn þangað til starfa.
Raufti krossinn
Átta til hjálparstarfa í sumar
íslenski Rauði krossinn sendir hjálparfólk og sérfrœðinga víða um
heiminn. AðstoðveittíAfganistan, Eþíópíu, Grenada, Thailandi,
Pakistan og víðar
r
I sumar fara 4/ulltrúar á vegum
Rauða kross Islands til hjálpar-
starfa erlendis og verða þá sendi-
fulltrúar á vegum RKI alls 8.
Tveir hjúkrunarfræðingar fara
til starfa á sjúkrahúsum Rauða
krossins og Rauða hálfmánans
fyrir flóttamenn og stríðssærða í
Thaiiandi og Afganistan, fram-
kvæmdastjóri Almannavarna
ríkisins er kominn til Grenada í
Vestur-Indíum til að aðstoða
heimamenn við skipulagningu
neyðarvarna og sjálfboðaliði fer
til Gojjam-héraðs í Eþíópíu tU að
vinna að þróunarverkefni sem
unnið er í samvinnu Rauða kross
íslands og Rauða kross Eþíópíu.
Guðjón Petersen, fram-
kvæmdastjóri Almannavarna
ríkisins, fór nýlega til eyjunnar
Grenada í Karabíska hafinu til
mánaðardvalar þar sem hann
mun aðstoða starfsmenn Rauða
Útboð
Óshlíð - undirstöður
undir grjótnet
pr Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint f verk. Magn: Undirstöður 40 stk., mótaflötur 450 m2, steypa 85 m3. Verki skal lokið 1. september 1989. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Isa- firði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 12. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 26. júní 1989.
Vegamálastjóri
y
Útboð
Norðurlandsvegur, Víðivellir - Uppsalir, 1989
''/'//m Sm V Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint ~ verk.
Lengd vegarkafla 9,0 km Magn 230.000 m3 Verki skal lokið 30. júlí 1990. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 12. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 26. júní 1989.
Vegamálastjóri
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
Guðmundar Jónasar Helgasonar
Selvogsgrunni 5
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hafnarbúða, fyrir góða
hjúkrun og hlýhug í hans garð.
Guðríður Guðmundsdóttlr
Helga Guðmundsdóttlr
Helgl Ingvar Guðmundsson
Gísll Guðmundsson
Jónas Gunnar Guðmundsson
Finnur Guðmundsson
Slgurþór Guðmundsson
Sverrlr Guðmundsson
Guðmundur Tómas Guðmundsson
Barnabórn og barnabarnabörn
Frlðrik Slgurðsson
Halldór Þorvaldson
Nanna Þorlelfsdóttlr
Eyrún Þorleifsdóttlr
Sigurrós M. Sigurjónsd.
Margrét Þorvarðardóttlr
Krlstín Aðalsteinsdóttir
Guðrún Aðalstelnsdóttir
Sólbjört Aðalstelnsd.
kross Grenada við að skipuleggja
og efla neyðarvamaáætlun
Rauða krossins sem er hluti af
almannavömum landsins. Gren-
ada er sjálfstætt ríki síðan 1974,
um 375 ferkm. að stærð og íbúa-
fjöldi rúmlega 100.000. Grenada
hefur á undanförnum áratugum
orðið illa úti í fellibyljum og mið-
ast starf Guðjóns við að þjálfa og
undirbúa heimamenn til að mæta
slíkum náttúruhamfömm.
Ólafur Guðbrandsson hjúkr-
unarfræðingur fór 1. júní sl. til
Afganistans til starfa í 6 mánuði
við sjúkrahús Rauða hálfmánans
í Kabúl. Alls vinna nú um 60 út-
lendingar á vegum Rauða kross-
ins og Rauða hálfmánans við
hjálparstörf í Kabúl. Þar er og
annar sendifulltrúi RKÍ, Jón
Karlsson. Þetta er þriðja ferð
Ólafs á vegum Rauða krossins,
áður hefur hann tvívegis verið í
Thailandi þar sem hann starfaði í
búðum fyrir flóttamenn og stríðs-
særða við landamæri Kambódíu.
Helena Jónsdóttir leggur af
stað til Eþíópíu 20. júní
næstkomandi til ársdvalar í
Gojjam-héraði en þar mun hún
starfa að verkefni sem unnið er í
samvinnu íslenska og eþíópíska
Rauða krossins. Verkefnið felst í
uppbyggingu ungmennahreyf-
ingar Rauðakrossdeildar héraðs-
ins, kennslu í skyndihjálp og
frumheilsugæslu, vemdun linda
og trjárækt, auk þess sem unnið
verður að eflingu fiskveiða í
Tana-vatni. Þetta er fyrsta ferð
Helenu á vegum Rauða krossins
og er hún fjórði sjálfboðaliðinn
sem fer til starfa í Gojjam-héraði.
Björg Pálsdóttir hjúkmnar-
fræðingur fer 2. júlí nk. til starfa í
flóttamannabúðum í Thailandi
þar sem hún hefur verið ráðin til 6
mánaða. Björg tekur við af Vig-
dísi Pálsdóttur, sem verið hefur
þar undanfama 6 mánuði. Þetta
er fyrsta ferð Bjargar á vegum
Rauða krossins en hún hefur
áður starfað í Wollo-héraði í Eþí-
ópíu á vegum Hjálparstofnunar
kirkjunnar. Björg er tuttugasti og
þriðji sendifulltrúinn sem Rauði
kross íslands sendir til starfa á
vegum Alþjóðarauðakrossins í
Thailandi.
Auk ofangreindra sendifull-
trúa em nú 4 aðrir íslendirigar við
hjálparstörf á vegum Rauða
krossins. Þeir em: Jón Karlsson,
hjúkmnarfræðingur, sem starfar
við sjúkrahús Alþjóðaráðs
Rauða krossins í Kabúl, Jónas
Valdimarsson og Sigríður Sverr-
isdóttir í Gojjam-héraði í Eþíóp-
íu, en Sigríður snýr heim síðla
sumars, og Lilja Steingrímsdóttir
hjúkmnarfræðingur í búðum
fyrir afganska flóttamenn og
stríðssærða í Quetta í Pakistan.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Borgarmál
Borgarmálaráð Alþýðubandalagsins hefur ákveðið að hefja undirbúning
borgarstjórnarkosninga 1990 með hópastarfi um ákveðin málefni. Félagar
og stuðningsmenn eru eindregið hvattir til þess að taka þátt í starfinu.
Fyrstu fundir hópanna verða:
Miðvikudaginn 14. júní:
Atvinnumál - veiturnar - jafnrótti kynjanna.
Mlðvikudaglnn 21. júní:
Skólamál - dagvistir - æskulýðsmál - íþróttir.
Fundirnir eru haldnir á Hverfisgötu 105, 4. hæð og hefjast kl. 20.30.
Ráðgert er að hefja starfið nú, en aðalvinnan fer fram að loknum sumar-
leyfistíma.
Borgarmál
Umhverfi, skipulag, samgöngur
Fundur borgarmálaráðs um umhverfis-, skipulags- og samgöngumál í
höfuðborginni í kvöld kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Allt áhugafólk hvatt til að mæta.
ABR
Sumarferð ABR
Reykjanes
Áningarstaðir verða ma.: Garöskagi, Reykjanesviti, Seiatangar, Vigdísar-
vellir.
Að vanda verður leiðsaga og fræðsla um mannlíf, náttúru og önnur sór-
kenni þessa svæðis í góðum höndum.
Farið verður þann 24. júní nk.
Fylgist með auglýsingum næstu daga. - Stjórn ABR.
Sumarferð Alþýðubandalagsirts á Austurlandi:
Um söguslóðir á Fljótsdalshéraði
laugardaginn 8. júlí 1989.
Farið verður í rútum kl. 9 frá Söluskála KHB á Egilsstöðum og ekið um
Skriðdal, Fljótsdal, Fell, Hróarstungu og austur yfir hjá Lagarfossi til baka í
Egilsstaði kl. 19. - Bílferðir verða skipulagðar frá fjörðunum eftir þátttöku.
Staldrað verður við á völdum sögustöðum, skoðaðar fomminjar á gömlum
þingstöðum, kirkjur og bæir og fræðst um umhverfið, m.a. væntanleg
skógræktarsvæði á Héraði.
Meðal leiðsögumanna verða Guðrún Krlstlnsdóttlr minjavörður, Helgl
Hallgrfmsson náttúrufræðingur, Páll Pólsson fræðimaður frá Aðalbóli og
Skarphóðlnn Þórlsson líffræðingur. Fararstjóri: Hjörlelfur Guttorms-
son.
Tllkynnlð þátttöku sem fyrst tll Ferðamiðstöðvar Austurlands, Eglls-
stööum, sfml (97)1 20 00.
öllum heimil þátttaka. - Alþýðubandalagið - kjördœmlsráð.
Alþýðubandalagið Austfjörðum
Fundir á Austurlandi
Hjörlelfur Guttormsson alþingismaður verður á opnum fundum á Austur-
landi á næstunni sem hér segir:
Bakkafirði, skólanum, þriðjudaginn 13. júni kl.
20.30.
Vopnafirði, Austurborg, miðvikudaginn 14. júní kl.
20.30.
Reyðarfirði, Verkalýðshúsinu, fimmtudaginn 15.
júní kl. 20.30.
Borgarfirði, Fjarðarborg, miðvikudaginn 21. júní kl.
20.30.
Eskifirði, Valhöll, fimmtudaginn 22. júní kl. 20.30.
Fundarefni: Störf Alþingis og hagsmunamál byggð-
arlaganna.
Fyrirspurnir og umræður.
Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið á Akureyri
Fundur með Steingrími J.
Alþýðubandalagið á Akureyri heldur fund I Lárusar-
húsi, Eiðsvallagötu 18 ( kvöld, þriðjudag 13. júní
klukkan 20.30. Steingrfmur J. Sigfússon landbúnað-
ar- og samgönguráðherra mætir á fundinn.
Fólagar og stuðningsmenn eru hvattir til að mæta.
Stjómln.
Steingrímur J.
i og
\allt gengur betur +j
ÞJÓÐVIUINN —SÍÐA 13