Þjóðviljinn - 23.06.1989, Page 4
Snorri Olsen, deildarstjóri tekju- og lagasviðs
fjármálaráðuneytisins er á beininu
2,2 miljarðar
söluskattsskulda
tapaðir
Búist við að rúmur miljarður innheimtist. 1600 fyrirtæki voru á
vanskilaskrá. Nokkur hundruð fyrirtækjum var iokað. Munum
ganga eftir söluskattsskuldum jafnvel þó það þýði gjaldþrot
viðkomandi fyrirtækis. Sektum eða fangelsi verður beitt gegn
söluskattsskuldum þar sem það á við I f ramtíðinni. Munum skoða
sem sett hafa fyrirtæki á höfuðið og stofnað ný til
að forðast söluskattinn og koma yf ir þá ábyrgð
Fjármálaráðuneytið hefur frá
byrjun þessarar viku beitt sér
fyrir verulega hertum inn-
heimtuaðgerðum vegna sölu-
skatts. Hundruðum fyrirtækja
hefurveriðlokaðogj afnvel verið
lokað fyrir rafmagn hjá heilu
bæjarfélögunum vegna sölu-
skattsskulda. Óhætt er að segja
að þessar aðgerðir hafi mælst
misjafnlega fyrir hjá skuldurun-
um og hafa sumir neitað að borga
skuldimar vegna þess að þeir
telja að þeim beri ekki að greiða
þær. En nú er enga miskunn að
finna hjá fjármálaráðuneytinu.
Snorri Ólsen, deildarstjóri í fjár-
málaráðuneytinu er á beininu.
Af hverju er verið að grípa til
þessara aðgerða núna?
„Það má kannski segja að það
sé löngu tímabært að grípa til ein-
hverra aðgerða. Við höfum verið
að skoða innheimtu á opinberum
gjöldum í nokkuð langan tíma og
því er ekki að leyna að við erum
óhressir með árangurinn þar. Við
erum með útistandandi og í van-
skilum líklega um 8,5 miljarð
króna, og þá er ég að tala um
opinber gjöld samtals, þ.e. sölu-
skatt, launaskatt, tekju og
eignaskatt, þungaskatt og stað-
greiðslu. Söluskatturinn er lang-
stærsti hlutinn, þar eru vanskil
upp á 3,3 miljarða og við vonum
að með þessu átaki og þessum
nýju innheimtureglum að þá ná-
ist inn verulegur hluti þessara
vanskila. Jafnframt að þetta
verði til að breyta siðferðinu,
þannig að menn fari að skila sölu-
skatti á réttum tíma og fari þann-
ig að lögum um söluskatt. Það má
segja að það sé fyrst og fremst
tilgangurinn.“
Þú talar um nýjar reglur,
hverjar eru þær?
„Það eru mjög einfaldar og
skýrar reglur. Við erum að tala
um að héðan í frá munum við
innheimta söluskatt í samræmi
við lögin. Það má kannski segja
að það hafi ekki verið gert hingað
til. Það má geta þess að í lögum
um söluskatt segir að deila um
söluskattsákvörðun eða áfrýjun
hennar, frestar ekki eindaga
skattsins eða leysir undan
neinum viðurlögum sem lögð eru
vegna vangreiðslu hans. Nú ef
skattur er síðan lækkaður eða
felldur niður að undangengnum
dómi þá á ríkissjóður að endur-
greiða það sem lækkuninni nem-
ur. Þetta er sú einfalda regla sem
við erum að vinna eftir í dag og
munum vinna eftir í framtíðinni.
Áður var kannski meiri óvissa um
hvernig menn stóðu að þessu,
það gat verið mismunandi milli
innheimtuumdæma, það gat
skipt máli hvað maðurinn hét eða
hvað hann skuldaði mikið. Eftir
því sem menn skulduðu meira þá
voru menn oft á tíðum hræddari
við að ganga að honum. Þannig
að þetta eru algjörlega ný vinnu-
brögð og miklu harðari aðgerðir
en hefur verið farið í áður og við
töldum mjög skynsamlegt að fara
í þetta með átaki. Þá átta menn
sig á því að alvara er á ferðum og
allir þeir sem skulda lenda í þessu
á svipuðum tíma. Hin leiðin var
sú að taka þetta á einhverjum
mánuðum, en þá hefðu sjálfsagt
margir gagnrýnt okkur fyrir að
þeir væru fyrstir í röðinni og aðrir
kæmu eftir einhverja mánuði.
Mér sýnist þetta ætla að skila
þeim árangri sem við vonuðumst
eftir.“
Sem væntanlega hefur verið sá
að hreinsa upp þessar skuldir?
„Hluti af átakinu er auðvitað
að hreinsa upp skuldir. Þó skiptir
miklu meiru í þessu sambandi að
menn fari eftir lögum í framtíð-
inni. Við erum að tala um 8,5
miljarð í vanskilum en t.d. í ár
erum við að innheimta opinber
gjöld upp á 66 miljarða, en fjár-
lögin eru upp á 77 miljarða.
Þannig að það skiptir verulegu
máli að innheimtan frá degi til
dags sé í lagi. Með því að bæta
innheimtuna um eitt prósent þá
erum við að tala um 660 miljónir
króna. Tilgangurinn með nýjum
vinnubrögðum er því að bæta
daglega innheimtu, jafnframt
sem það væri ánægjulegt að ná
einhverju inn af þessum van-
skilum. Hins vegar er alveg ljóst
að verulegur hluti af þessu er tap-
aður, vegna þess að menn hafa
fengið að liggja með þetta lengi
og hafa safnað þessu upp. Þegar
síðan er farið í innheimtuaðgerð-
ir er vonlaust að fá þetta borgað
vegna þess að vandinn er svo
stór. Það eina sem liggur fyrir
mörgum fyrirtækjum er gjaldþrot
og mörg eru þegar komin í gjald-
þrot, þannig að það er ekkert
annað að gera en að afskrifa stór-
an hluta af þessu.“
Og hvað ertu að tala um stóran
hluta?
„Af söluskattinum gæti ég trú-
að að þyrfti að afskrifa tvo þriðju
hluta þegar upp er staðið.“
Þýðir þetta ekki með öðrum
orðum að innheimtukerfi hins op-
inbcra hefur verið í molum?
„Það er kannski ekki inn-
heimtukerfið, hins vegar hafa
reglurnar verið óljósar. Það er
auðvitað mjög erfitt fyrir inn- -
heimtumenn að vinna eftir regl-
um sem hafa ekki alveg verið
klárar, menn hafa getað komist
upp með það að fá fyrirgreiðslur í >
gegnum ákveðna aðila og þá
kannski ekki ráðuneytið hvað
síst. Núna er búið að breyta þessu
og innheimtumenn hafa fullan
stuðning ráðuneytisins í öllum
þessum aðgerðum. Við vonum
að framtíðinni fylgi þeir þessu
fastar eftir en verið hefur, því
reglurnar eru nú svo skýrar og
einfaldar að það á ekki að vera
nokkur vandi að fara eftir þeim.
Auk þess sem allir sem mynda
söluskattsskuld hljóta að gera sér
grein fyrir að þeir lenda í þessum
aðgerðum."
En er réttlætanlegt að loka
fyrir rafmagn hjá heilu bæjarfé-
lögunum eins og Hafnarfirði og
Keflavík, þar sem um deilumál er
að ræða sem hafa verið til um-
fjöllunar lengi í ríkisskattanefnd?
„Við erum nú þannig í sveit
settir, opinberir starfsmenn að
við megum ekki ræða um skatta-
eða skuldamál einstakra aðila og
ég mun að sjálfsögðu ekki gera
það. Hins vegar getum við rætt
þetta prinsipp hvort áfrýjun eða
deila um skattskyldu eigi að
fresta eindaganum. Það er alveg
ljóst að samkvæmt lögunum þá á
það ekki að gerast. Menn hafa
nokkuð blandað saman í umræð-
unni núna skattskyldu og
greiðsluskyldu. Þetta eru tveir
aðskyldir hlutir, lögin eru alveg
klár um það að ménn eiga að
greiða skattinn þó svo þeir séu
ekki sammála skattstjóra eða
ríkisskattstjóra. Þ.e.a.s. um leið
og skattur hefur verið lagður á þá
fellur hann með venjulegum
hætti í eindaga og þá eiga menn
að greiða hann. Ef menn eru ekki
sáttir við skattlagninguna þá geta
þeir leitað til dómsstóla og fengið
endurgreiðslu ef þeir vinna mál-
ið. í þessu er að okkar mati fólgið
jafnræði allra.
Ef við tökum dæmi af tveimur
aðilum sem eins er ástatt um,
báðir eru með fyrirtæki sem selur
sömu vöruna og báðir sömu velt-
una t.d. í kringum 50 miljónir og
báðir eiga þá að skila 10 miljón-
um í söluskatt í hverjum mánuði.
Annar aðilinn tekur sig til og
segir: Varan sem ég sel er ekki
skattskyld, ég ætla að bera þetta
undir úrskurð ríkisskattanefndar
eða dómsstóla. Ferlið í gegnum
dómskerfið getur tekið þrjú ár.
Þessi aðili, eftir gömlu reglunni
kæmist þá upp með að halda inni í
fyrirtækinu 360 miljónum á ári,
meðan að hinn borgar alltaf
reglulega. Þetta raskar verulega
samkeppnisaðstöðu milli aðil-
anna, sá sem borgar ekki skattinn
getur boðið sína vöru miklu ódýr-
ar og sá sem fer eftir reglunum fer
hugsanlega á hausinn, en hinn sit-
ur þá uppi með alla verslunina.
Þetta er hlutur sem við teljum al-
gjörlega óviðunandi og ætlum að
koma í veg fyrir.“
En nú eru til dæmi þess að fyr-
irtæki hafa velt á undan sér skatt-
greiðslu í gegnum skattakerfið og
ríkisskattanefnd í allt að þrjú ár.
Hvað finnst ykkur t.d. um vinnu-
brögð ríkisskattanefndar þar sem
afgreiðsla virðist oft hafa mikla
tilhneigingu til að dragast á lang-
inn?
„Við vonumst nú til þess að í
framhaldi af þessum aðgerðum,
að þá komi þessir aðilar sem
vinna þessi mál til með að vinna
þau hraðar. Þá er ég að tala um
skattkerfið í heild. Það á þá líka
við að þeir aðilar sem bera sín
mál, t.d. undir ríkisskattanefnd
að þeir hafi ekki hag af því að
fresta málinu, heldur öfugt. Ef
upp kemur að það þurfi að bæta
við mannskap í skattakerfinu til
að flýta málum, þá munum við að
sjálfsögðu skoða það.“
En hversu háar upphæðir hafa
skilast inn í þessu áttaki og hversu
mörgum fyrirtækjum hefur verið
lokað vegna vanskila?
„Nákvæmar upplýsingar liggja
enn ekki fyrir, en þeim fyrirtækj-
um sem hefur verið lokað skipta
einhverjum hundruðum og þær
miljónir sem hafa komið inn
skipta einnig einhverjum hund-
ruðum. En samkvæmt upphaf-
legum listum sem við sendum til
innheimtumanna voru fyrirtækin
í kringum 1600 talsins. Það er
hins vegar ljóst að þarna eru fyr-
irtæki sem eru gjaldþrota, önnur
sem hafa hætt starfsemi, þarna
eru einstaklingar sem ekki er
hægt að „loka“, þannig að það er
ekki allur þessi fjöldi sem lendir í
lokunaraðgerðum. Hins vegar
verður farið í aðgerðir gegn þess-
um aðilum, lögtaksaðgerðir,
uppboð og gjaldþrot ef þess þarf
með.“
En telur þú að þessar aðgerðir
geti komið í veg fyrir að menn láti
fyrirtæki fara á hausinn til að
losna við að borga söluskatts-
skuldir?
„Nei, það er á hreinu að þær
gera það ekki. Hins vegar verður
farið í það, þegar þessi hrina er
yfirstaðin að skoða hvort ein-
hverjir hafi leikið þann leik og við
munum reyna að ná fram ábyrgð
á þá sem gera það. í söluskatts-
lögunum er kveðið á um að það
sé refsivert að skila ekki sölu-
skatti, það er heimilt að beita
sektum, eða ef brot er ítrekað
eða mikið má beita varðhaldi eða
fangelsi allt að sex árum. Þetta
eru heimildir sem ekki hafa verið
notaðar hingað til, en það stend-
ur til að reyna að ná fram viður-
lögum samkvæmt þessum heim-
ildum ef menn gerast brotlegir.
Þannig að það er verið að herða
aðgerðir og reyna að ná upp nýju
siðferði."
Nú er vitað að menn hafa sett
fyrirtæki á hausinn og stofnað ný
til að forðast söluskattsgreiðslur.
Þeir mega s.s. eiga von á einhverj-
um slíkum aðgerðum fyrir sínar
fyrri syndir?
„Þeir mega eiga von á því, já.
Grófustu dæmin sem við þekkj-
um eru nýleg og ég á von á því að
á þau verði látið reyna fyrst.“
En hvernig er ástandið með
staðgreiðsluna?
„Okkur sýnist að fyrir árið .
1988 séu vanskil í staðgreiðslu um
einn miljarður, en sú tala sé raun-
verulega nær 500 miljónum þegar
menn fást til að skila öllum
nauðsynlegum gögnum.“
Munið þið taka tillit til þess við
innheimtu söluskattsins hvort sú
innheimta geti leitt fyrirtækið í
gjaldþrot?
„Nei.“
phh
4 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 23. júní 1989