Þjóðviljinn - 23.06.1989, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 23.06.1989, Blaðsíða 18
 HELGI ÓLAFSSON Karpov óstöðvandi í Rotterdam Allt gengur á afturfótunum hjá Jóhanni sem er neðstur þegar þrjár umferðir eru eftir Anatoly Karpov hefur verið algerlega óstöðvandi á heimsbik- armótinu í Rotterdam. Þegar þrjár umferðir eru eftir af mótinu hefur hann svo gott sem tryggt sér sigur, hefur hiotið 9Vi vinning úr 12 skákum. Aðeins Jan Timman á einhverja möguleika á að ná honum en heldur er það ólíklegt. Timman hefur hlotið 8'/2 vinning að loknum 13 skákum en í þriðja sæti kemur Armeníumaðurinn Vaganian með 8 vinninga úr 13. skákum. Jóhanni Hjartarsyni hefur gengið allt í óhag og vermir botnsætið með 3‘/2 vinning úr 12 skákum. Þetta er fimmta heimsbikar- mótið og í því sjötta og síðasta fæst úr því skorið hvor hreppir heimsbikarinn Karpov eða Kasp- arov. Síðasta mótið fer fram í Sví- þjóð í haust og sennilega mun Karpov þá standa örlítið betur að vígi hvað varðar heimsbikar- stigin. Ef annar þeirra vinnur mótið sem verður að teljast harla iíklegt hreppir sá hinn sami heimsbikarinn. Karpov hrifsaði forystusætið strax í fyrstu umferðunum í Rott- erdam með sigrum yfir Seirawan, Timman, Portisch og Nogueiras. Hann komst svo óvænt í taphættu gegn Nigel Short er óvenjulega bíræfin vinningstilraun mistókst gjörsamlega. Honum tókst þó að bjarga hörmulega útlítandi bið- stöðu og tók síðan upp þráðinn og barði á Jusupov, Jóhanni og Sax. Karpov hefur sennilega aldrei verið betri og aldrei að vita nema honum takist að stela glæpnum og slá stigamet Bobby Fischers (2785 Elo-stig) áður en Garrí Kasparov nær því marki. Heimsbikarmótið í Rotterdam átti upphaflega að vera skipað 18 keppendum en tveir helltust úr lestinni. Boris Spasskí treysti sér ekki til að vera með og eftir eina umferð tók Robert Hubner sam- an föggur sínar og hætti keppni. Bar við lasleika en maður tekur svoleiðis skýringar með fyrir- vara. Hubner hefur hvað eftir annað hætt keppni í skákmótum og einvígjum. Vegna þessa hefur staðan í mótinu verið fremur ó- ljós en eftir 14 umferðir var hún þessi: 1. Karpov 9Vi v. (af 12) 2. Tim- man 8'/2 v. (af 13) 3. Vaganian 8 v. (af 13) 4.-5. Nunn og Van der Wiel 7 v. (af 13) 6.-7. Short og Sokolov 6V2 (af 12) 8. Seirawan (6V2 v. (af 13) 9.-10. Salov og Nog- ueiras 6 v (af 12) 11. Sax 5V2 (af 12) 12.-13. Jusupov og Ehlvest 5 v. (af 12) 14. Ljubojevic 4*/2 (af 13) 15. Portisch 4 v. (af 12) 16. Jóhann Hjartarson 3V2 v. af (12). Enn veldur frammistaða Jó- hanns vonbrigðum. Þetta ár hef- ur gengið með eindæmum illa hjá honum. Hann hefur oft litið sómasamlegar stöður í Rotter- dam en einkennilega margar yfir- sjónir, bæði taktískar og strateg- ískar sett svip á taflmennskuna. Skák hans við Karpov verður tekin til meðferðar hér en hún var tefld í 13. umferð og það var greinilegt á taflmennsku Jóhanns að hann ætlaði ekki að gefa sig fyrr en í fulla hnefana. Þrátt fyrir þunga pressu Karpovs er lengi vel tvísýnt um úrslit. Jóhanni verða á nokkrar skyssur og missir endan- lega þráðinn í 41. leik: Anatoly Karpov - Jóhann Hjart- arson Enskur leikur 1. RÍ3 Rfó 2. c4 c5 3. Rc3 e6 4. g3 Karpov er í miklu stuði og rúllar upp hverjum stórmeistaranum á fætur öðrum. b6 5. Bg2 Bb7 6. 0-0 a6 7. b3 d6 8. Bb2 Be7 9. d4 cxd4 10. Rxd4 („Broddgaltar-afbrigðið" gafst Jóhanni vel í viðureignum sínum við Kortsnoj á síðasta ári og Karpov hefur áreiðanlega tekið það með í reikninginn í undirbún- íngi sínum fyrir einvígið. Hann fer í smiðju til Svíans Ulf Anders- son og velur leið sem í fyrstu virð- ist fremur bitlaus en tryggir hvít- um frumkvæðið án nokkurrar áhættu.) 10. .. Bxg2 11. Kxg2 Dc7 12. e3 Db7 13. Df3 Ha7 14. Dxb7 Hsb7 15. f4 0-0 (15. .. g6 er varla betri leikur. Eftir 16. e4 0-0 17. f5 e5 18. Rc2 stendur hvítur betur að vígi.) 16. f5 e5 17. Rc2 Rc6 18. Hadl b5 19. cxb5 axb5 20. b4 Hd8 21. Rd5 Rxd5 22. Hxd5 Bf6 (Rétt ákvörðun. Svarta staðan virðist býsna traust eftir t.d. 22... Kf8 en með 23. e4, - a3 og - Re3 nær hvítur að auka stöðuyfir- burði sína.) 23. Hfdl Re7 24. Hxd6 Hxd6 25. Hxd6 Rxf5 26. Hc6 h5 27. e4 (27. Hc5 leit vel út en svartur á gagnfærimeð27... Hd7!o.s.frv.) 27. .. Rd4 28. Hc8+ Kh7 29. Re3 Re6? (Það á ekki við í þessari stöðu að hörfa með hinn vel staðsetta riddara. Betra var 29. .. Bg5! og svartur ætti að geta varist t.d. 30. Rd5 h4! 31. Hc7 Hxc7 32. Rxc7 Bd8! og svartur heldur velli.) 30. Rd5 Rg5 31. Rc3 Re6 32. h4 g6 33. Rd5 Bg7 34. Hc6! (Hindrar 34. .. f5. Það er merkilega erfitt að finna leik í þessari stöðu. Kannski er 34. .. Hb8 best en Jóhann reynir að ná mótspili.) 34. .. g5 35. hxg5 Rxg5 36. Rc3 (Betra var 36. Hc7 strax en Karpov hefur yndi af því að end- urtaka leiki.) 36. .. Re6 37. Rd5 Rg5 abcdefgh 38. Hc7! Hxc7? (önnur meinleg ónákvæmni. Nauðsynlegt var 37. .. Hb8 og baráttan heldur áfram.) 39. Rxc7 Rxe4 40. Rxb5 Bf8 41. Rc3 Rxc3? (Eftir þetta er staða svarts von- laus. Nauðsynlegt var 41. .. Rd2 (eða 41. .. Rd6) og svartur getur enn veitt viðnám t.d. 42. Rd5 Rc4 43. Bc3 Kg644. a4 Kf5 45. a5 Ke6 o.s.frv.) 42. Bxc3 Kg6 43. a4 - Frípeð hvíts verða ekki stöðvuð svo Jóhann gafst upp. Þriðja Alslemman um helgina Útlit er fyrir góðri þátttöku í Alslemmunni, sem spiluð verður að Hrafnagili í Eyjafirði um þessa helgi. Spilamennska hefst kl. 13 á morgun (laugardag) og er nóg að mæta á keppnisstað, án fyrirfram skráningar. Ef þátttaka fer vel yfir 30 pör, verða verðlaun hækk- uð í 150-160 þús. kr., fyrir mótið, fyrir u.þ.b. 5-6 efstu pörin. Að auki verður spilað um fjölda silf- urstiga. Mótið er opið öllum. Fyrir dyrum stendur þátttaka okkar í tveimur alþjóðlegum mótum. Landslið yngri spilara er á förum til Svíþjóðar, til þátttöku í Norðurlandamóti yngri spilara og landsliðið í Opnum flokki er senn á förum til Finnlands, til þátttöku í Evrópumótinu, sem hefst í byrjun júlí. Sveit Braga Haukssonar tók þátt í sterku alþjóðlegu móti, svo nefndu Schipool-mót, sem er hið þriðja í röðinni. Upp undir 70 sveitir tóku þátt í mótinu, frá ýmsum löndum. Sveit Braga stóð sig ekki eins vel og í fyrra, þegar sveitin var í hópi 10 efstu. Að þessu sinni hafnaði sveitin í 25. sæti, en sigurvegarar urðu lands- lið Hollands. Einum leik er lokið í 1. umferð Bikarkeppni BSÍ. Sveit Pólaris sigraði sveit Sveins R. Eiríks- sonar (hluti af landsliði yngri spil- ara) nokkuð örugglega. Áríðandi er að fyrirliðar skili inn úrslitum leikja til BSÍ tímanlega, og virði þau tímamörk sem sett hafa ver- ið. Aðalfundur Bridgefélagsins var haldinn sl. miðvikudag. Er þetta er skrifað, er ekki búist við miklum breytingum á stjórn fé- lagsins. Nv. formaður er Haukur Ingason. Og fullt hús var í Sumarbridge sl. þriðjudag. Tæplega 60 pör mættu til leiks og varð að loka húsinu um kl. 18.30. Umsjónar- maður minnist þess ekki að áður hafi verið lokað svo snemma, þegar fullt hús hefur verið. Skipan helstu (stigaefstu) sveita í Bikarkeppni Bridgesam- bandsins, sem er nýhafin, er að þessu sinni: Pólaris: (Karl Sigurhj., Sævar Þorbj., Guðlaugur R. Jóh., Örn Amþórss., Þorlákur Jónss. og Guðmundur Páll Arnarson). Jón Baldursson, Ragnar Her- mannss., Aðalsteinn Jörg. og Ragnar Magn. Delta: Haukur Ingason, Hörð- ur Arnþórsson, Gylfi Bald. og Sigurður B. Modern Iceland: Ólafur Lár., Hermann Lár., Magnús Ólafs- son, Páll Valdimarsson og Jakob Kristinsson. Samvinnuferðir/Landsýn: Helgi Jóhannsson, Björn Eysteinsson, Þorgeir Eyjólfsson og Guðmundur Sv. Hermanns- son. Eiríkur Hjaltason, Páll Hjalta- son, Hjalti Elíasson og Jón Ásbj. Ásgrímur Sigurbj., Jón Sig- urbj., Anton Sigurbj. og Bogi Sigurbj. Bragi Hauksson, Sigtryggur Sig., Ásmundur Pálss., Guð- mundurPéturss.,ÁsgeirP. Ásbj. og Hrólfur Hjaltason. Sigurður Vilhjálmsson, Júlíus Sigurjónsson, Hrannar Erlings- son, Matthías Þorvaldsson og Einar Jónsson. Sigfús Örn Árnason, Gísli Steingrímsson, Jón Páll Sigur- jónsson og Sverrir Ármannsson. Gugga Þórðar: Anton R. Gunnarsson, Friðjón Þórhalls- son, Jón Þorvarðarson, Ragnar Björnsson og Sævin Bjarnason. Líklegt er að sigurvegarar í Bikarkeppni BSÍ 1989 komi úr þessum hópi, en nv. bikarmeist- arar eru í sveit Pólaris, sem sigr- aði sveit Braga Haukssonar í úr- slitum í fyrra. Opna Alþjóðlega mótið í Tylösasandi í Svíþjóð, sem nokk- uð hefur verið sótt af spiluram héðan síðustu árin, verður um mánaðamótin júlí/ágúst. Nánari uppl. á skrifstofu BSÍ. Smáatriðin í Bridge (iðulega nefnt svo þegar mönnum sést yfir þau í hita leiksins) geta reynst dýrmæt. Lítum á dæmi: S: 97652 H: 532 T: G94 S: KD ÁK S: Á104 H: 87 H: 96 T: D10532 T: K86 L: D1064 L: 97532 S: G83 H: ÁKDG104 T: Á7 L: G8 Sagnir gengu: Suður Vestur Norður Austur 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Útspil Spaðakóngur, lítið og tían hjá Austri (kall). Spaða- drottning og lágt hjá öllum. í þessari stöðu skipti Vestur yfir í lágan tígul, nían, kóngur og ás. Trompin tekin og tígli síðan spil- að að gosa. Vestur fór upp með drottningu. Slétt staðið. Eitthvað athugavert við þetta? Hvað með að spila tíguldrottn- ingu í þriðja slag? Sagnhafi er varnarlaus, og getur ekki hindrað Austur í að fara inn í spilið. Jamm, smáatriðin geta skipt sköpum. BRIDDS 18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Ólafur Lárusson Föstudagur 23. júní 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.