Þjóðviljinn - 23.06.1989, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 23.06.1989, Blaðsíða 22
? z 3 Y (p b 9 e 9 Y )o V iT 9 7- II F~ IZ V z 2 13 f 12 7- )b 1Z 17- 1-8 (Y> n ib IO /Y zo 9 Zl 22 23 F~ JO ÍT V * ZO \o )&> Zb /o 2 7- ío /3 *?- L 9 2 1v- IV V 3 S /p 7- ? v Ib 'Ý ? %9f-~ 10 9 <3 10 2S 9 10 Zo ¥~ 10 9 12 10 W z sr ib V \Z ib 13 X.0 9 30 31 S* 10 9 * S~ <2 & zu 9? b )4 vl- /Ý 9 n b s IO ib ? 1 31 b 10 <9 b 7- $ )o b 10 iz. Zb 7X )b V \(o 1.0 H- 10 ) v- n Zo Zi zs 9 10 Xjd Z(cr 9 31 Ý /o 9 ZO b 9 % \ Æ 4 Z0 b T~ e ■T 9 1& v- Zo fb AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞ/EÖ Verðlaunakrossgóta ANDRUMSLOFi Nr. 49 GUEPS Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á ríki. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 49“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. 1 3I 2Í 30 22 )? 10 j#] V i Lausnarorðið fyrir krossgátu nr. 46 var SYÐRITUNGA. Dregið var úr róttum lausnum og upp kom nafn Ingibjargar Jónsdóttur, Hagaseli 32, Reykjavík. Hún fær senda bókina Sálumessa eftir Ramón J. Sender. Verðlaun fyrir krossgátu nr. 49 er skáldsagan Andrúmsloft glæps, eftir Juan Benet í þýðingu Guð- bergs Bergssonar. Forlagið gaf út. Sálgreining svefnstellinga Ertu bröltari eða stytta? Táknmál líkamans í svefni er ný rannsóknargrein sálfræðinga. Hvernig þú kemur þér fyrir í ból- inu getur sagt til um persónuleika þinn. Ameríski geðlæknirinn og sál- fræðingurinn Samuel Dunkell hefur lagt stund á svefnstöðu- rannsóknir um árabil og komist. að þeirri niðurstöðu að vel s'é hægt að segja til um persónuleika manna eftir því hvernig þeir liggja í bólinu. Talið er að hver maður skipti um stöðu 20-100 sinnum á hverri nóttu, en samkvæmt Dunkell er það sú staða sem við vöknum í sem segir til um persónuleikann. Flestir eru mjög íhaldssamir á stellingu og velja hana fyrir lífstíð strax sem kornabörn. Þeir er við svefnstöðurannsóknir fást skipta stellingum í tvær megintegundir, annars vegar sú staða sem sofnað er í, og hins vegar sú staða sem viðkomandi vaknar í. Svefnstellingar geta verið mjög margvíslegar en fjórar stellingar sem við öll þekkjum eru þó al- gengastar. Það eru vitaskuld til miklu fleiri stellingar en þessar fjórar og hefur Samuel Dunkell skrifað um þetta heila bók þar sem hann gef- ur öllum stellingum sérstök nöfn og lýsir gaumgæfilega hvernig hendur og fætur skrúfast og snú- ast. Sem dæmi um stellingar Dunk- ells má nefna Strokufangastöð- una, það er þegar viðkomandi virðist vera tilbúinn að stökkva út úr rúminu þó hann sé steinsof- andi. Múmíu- og framingostell- ingin. Á nóttunni erum við semsagt berskjölduð og getum engu leynt, því persónuleikann má lesa úr bröltinu í bólinu, en það eru sem betur fer ekki mjög margir sem hafa áhorfendur í svefnher- berginu. 1. Fósturstelling. Skríðið er saman í kuðung, með hnén dregin upp að kviði og höfuðið beygt. Þeir sem sofa lengst í þessari stöðu eiga skv. Dunkell við óöryggi að stríða, angistarfullir og þurfa mikið á öðrum að halda. 22 SÍÐA -^NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 23. júnf 1989 MATUR BRIAN PILKINTON SKRIFAR Ostablóm kál Þetta er mjög einfaldur og góður enskur smáréttur. Afar fljótlegur og auðveldur í fram- kvæmd og er vel þess virði að reyna hann. Til að byrja með þarf 1 mið- lungsstöran blómkálshaus. í sósuna þarf: 50 gr. smjör eða smjörlíki 50 gr. hveiti 500-600 ml mjólk salt og pipar eftir smekk 100 gr. rifinn ostur, hvaða teg- und sem er Bræðið smjörið á pönnu. Lækkið hitann og hrærið hveitið út f og látið malla í 1-2 mínútur, en hrærið stöðugt í. Þá er mjólkinni hrært varlega útí, eða þangað til hún hefur blandast vel. Látið suðuna koma upp, minnkið hitann og látið malla í 2-3 mínútur. Svo er osturinn settur útí, en at- hugið að það má alls ekki sjóða eftir það. Brjótið blómkálið niður í nokkuð stóra bita og sjóðið í 10-12 mínútur, en sá suðutími fer eftir stærð kálsins. Setjið í eldfast mót og hellið sósunni yfir. Dreifið yfir brauðmylsnu og setjið fatið í ofn og stillið á grill. Þegar farið er að krauma og gullinn litur kominn á, er rétturinn tilbúinn. Til að fá meiri fyllingu í rétt- inn set ég handfylli af rækjum útí sósuna um leið og ostinn, eða þá soðinn fisk af ýmsu tagi. 2. Kviðlega. Ef þú sefur á maganum, teygir úr þér, grúfir andlitinu oní koddann og breiðir sængina yfir haus þá tilheyrir þú þeirri manngerð sem endilega vill ráða yfir öðru fólki. Þú munt vera lítt gefin fyrir óvæntar uppákomur og reynir allt sem þú getur til þess að koma þínum vilja á framfæri. 3. Hrjótandi á bakinu. Ert þú einn af þessum afslöppuðu sem liggja beinflatir á bakinu? Sért þú úr þessum flokki, þá ertu opinn, öruggur með sjálfan þig og hefur líklega verið uppáhaldsbarnið í þinni fjöl- skyldu. 4. Hliðarfósturstelling. Þetta ku vera algengasta svefnstellingin. Að kúra sig saman í leit að hlýju. Þeir sem svona sofa eiga auðvelt með að takast á við raunveruleikann og horfa á björtu hliðamar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.