Þjóðviljinn - 23.06.1989, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 23.06.1989, Qupperneq 12
Losið ykkur við þessa herstöð! Ég veit ekki af hverju en þegar ég gekk inn á Hótel Holt til fundar við þá ágætu konu, Helen Caldecott, þá hljómaði stöðugt í kollinum á mér lag Leonards Cohens: „There is a War Það er stríð, stríð milli hinna ríku og hinna snauðu, stríð milli manns og konu, stríð milli þeirra sem segja að það sé og þeirra sem segja að það sé ekki. Þessar laglínur voru svo' áleitnar að ég ætlaði aldrei að geta komið mér að efninu þegar ég var búin að kynna mig fyrir Helen. Hún var greinilega fremur þreytt á við- tölum við misupplýsta blaða- menn, var því í fyrstu fremur snögg upp á lagið, jafnvel dá- lítið herská, vildi afgreiða spurningarnar með eins at- kvæðis orðum og spurði grimmt á móti. Er á leið varð hún mælskari og ég slapp lif- andi í gegnum viðtalið. 30 bandarískar herstöövar Við höfumgjarnan tilhneigingu til að œtla að Astralía sé öruggari staður en ísland. Hvað rak þig til að starfa að friðarmálum? „Hvers vegna ætti Ástralía að vera eitthvað öruggari? Það eru 30 bandarískar herstöðvar í Ástr- alíu, m.a. stærsta herstöð CIA í heimi. Heyrðu, komstu á fyrir- lesturinn minn? Þú varst þpr ekki?“ Nei, ég komst ekki, því miður. Hins vegar hef ég séð myndina þína, Efþér er annt um þessa jörð (If You Love This Planet). „Hver er þá spurningin ná- kvæmlega?“ Mig langar að vita svolítið um uppruna þinn og einnig hvernig stóð á því að þú fórst að blanda þér í friðarbaráttu? „Allt í lagi. Ég fæddist í Melþo- ume í Ástralíu og ólst þar upp til 15 ára aldurs en þá fluttist ég til Adelaide, lauk framhaldsskóla- námi, fór í læknanám, giftist þar og eignaðist þrjú böm á þremur ámm. Árið 1966 þegar ég var 26 Vigfús Geirdal ræðir við lækninn og baráttukonuna Helen Caldecott 12 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐj Föstudagur 23. júní 1989

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.