Þjóðviljinn - 23.06.1989, Síða 25
KVIKMYNDIR
Leðurblökumaðurinn
slær allt út
Kvikmyndin um Batman virðist ætla að slá út allar framhalds-
myndirnar hvað vinsældir varðar
Á kvikmyndasviðinu verður
sumarsins 1989 kannski minnst í
Bandaríkjunum sem sumars
hinna mörgu framhaldsmynda. í
ár eru sýndar framhaldsmyndir
af nánast öllum vinsælustu kvik-
myndunum vestan hafs síðustu ár
og er þar að sjálfsögðu þriðja
ævintýri Indiana Jones fremst í
flokki. En nú er útlit fyrir að það
verði annað ævintýri sem laði til
sín flesta áhorfendur í sumar,
ævintýrið um Leðurblökumann-
inn alias Batman.
Þeir sem muna eftir hasarblað-
amenningu ungra pilta vita að
Leðurblökumaðurinn var að
sjálfsögðu ein aðal hetjan ásamt
Súpermanninum og Köngulóar-
manninum og fleirum. Súper-
mennið fékk mesta athygli kvik-
myndagerðarmanna og hafa ver-
ið gerðar nokkrar stórmyndir um
hann á meðan hinir hafa einungis
verið notaðir í minniháttar sjón-
varpsseríur eða sjónvarpsmynd-
ir. Hér á landi hafa einmitt verið
sýndir hinir gömlu og yndislega
lélegu sjónvarpsþættir um Leð-
urblökumanninn að undanförnu
og hafa þeir vafalaust vakið ein-
hverjar minningar hjá fyrrum les-
endum hasablaðanna. Árið 1966
var einnig gerð kvikmynd um
Batman í tengslum við sjónvarps-
þættina en varla er hægt að tala
um nýju myndina sem framhalds-
mynd.
Það hefur sumsé verið gerð
stórmynd um Batman með öllum
þeim tilkostnaði sem nauðsyn-
legur er til að kvikmynd verði
vinsæl í Bandaríkjunum, ss. ný-
tísku tæknibrellum að ógleymd-
um stjörnum í aðalhlutverkum.
En það hafa ekki allir kynnst
Batman í gegnum hasarblöðin og
hver er hann þá þessi Batman?
Eftir að Súpermaðurinn kom til
jarðar frá plánetunni Krypton
árið 1939 datt Vincent Sullivan í
hug að búa til aðra álíka súper
hetju gædda einhverjum ofur
eiginleikum. Hann fékk til liðs
við sig 18 ára gamlan skopmynd-
ateiknara, Bob Kane, og aðeins
nokkrum dögum síðar hafði
Kane skapað Leðurblökumann-
inn. Hugmyndina fékk hann að
láni frá kvikmyndunum The
Mark of Zorro og The Bat
Whispers og notáðist að auki við
flugvélina sem Leonardo da
Vinci hafði hannað meira en fjór-
um öldum áður. Leðurblöku-
manninum var síðan ætlað, líkt
og öðrum ofurmennum, að berj-
ast gegn því illa og nota til þess
alla þá hæfileika sem honum voru
skapaðir.
Og nú er Leðurblökumaðurinn
orðinn 50 ára og hlýtur það að
hafa haft áhrif á að ráðist var í
gerð kvikmyndar um kappann.
Það er hinn þrítugi leikstjóri Tim
Burton sem ræðst í þetta verkefni
en hann hafði áður aðeins gert
tvær kvikmyndir í fullri lengd.
Það eru Pee-Wee‘s Big Advent-
ure og Beetlejuice sem báðar
höfðu að geyma mikilfenglega
hönnun á leikmynd og förðun og
voru ennfremur vinsælar gaman-
myndir. Kvikmyndafyrirtækið
Warner Bros. leist þó í fyrstu
ekkert á að svo óreyndur leik-
stjóri tæki að sér 30 miljón doll-
ara verkefni. En framleiðendurn-
ir Peter Guber og Jon Peters, sem
ákváðu fyrir 10 árum að gera
mynd um Batman, stóðu með
Burton sem leikstjóra og því var
ekki breytt.
En hver átti þá að hljóta þann
heiður að leika sjálfan Batman?
Michael Keaton þótti falla vel inn
í hlutverkið, sérstaklega eftir
snjalla frammistöðu sína í Beetle-
juice. Ákveðið var að sleppa Ro-
bin (besti vinur Batmans) og
gætu einhverjir orðið ósáttir við
þá tilhögun, en aðal óvin Bat-
mans, jókerinn, leikur Jack Nic-
holson (hver annar?). Síðan er
auðvitað blandað einum kvén-
manni í spilið og verður hún Bat-
man innan handar í baráttunni
við hin illu öfl. Kim Basinger
leikur þennan kvenljósmyndara
og hvernig skldi hún svo taka því
þegar hún kemst að því að yástin
hennar, Bruce Wayne, er leður-
blökumaður?
Hvað sem því líður og hvert
sem ágæti myndarinnar er þá er
nú runnið upp hið mesta
Batman-æði vestan hafs. Alls
kyns hlutir tengdir Batman, eða
amk. nafni hans, seljast nú sem
heitar lummur og má telja fullvíst
að kvikmyndin verði mjög vel
sótt. Hún verður eflaust það vel
sótt að verði farið eftir hefð
bandarískra kvikmyndagerðar-
manna í dag verður þessi mynd
um Batman síðar kölluð Batman
I.
Vicki Vale (Kim Basinger) og Bruce Wayne (Michael Keaton) áður en
hún kemst að því að hann er einnig sjálfur Batman.
Jack Nicholson leikur Jókerinn sem er versti óvinur Leðurblöku-
mannsins.
Klippiborðið
Ítaíinn Lina Wertmiiller sem gerði ma. hina stórkostlegu Swept Away
árið 1975 er nú að vinna að nýrri kvikmynd. Hún kallast Up to Date en
hefureinnig gengið undir nöfnunum Crystal or Ash, Fire or Wind og As
Long as it‘s Love. Myndin er sambland af ástar og spennusögu og
segir ma. frá blaðamanni og rannsóknum hans á alnæmi. Síðasta
mynd Wertmullers, Camorra, þótti ekki ýkja góð en hún var líkt og
þessi nýjasta skírð ótal nöfnum áður en vinnslu hennar lauk. Rutger
Hauer leikur blaðamanninn í Up to Date og Nastasja Kinski Ijósmynd-
ara í Líbanon en auk þess leikur Faye Dunaway eitt aðalhlutverkanna.
Af Dunaway er það annars að frétta að hún virðist hafa nóg að gera um
þessar mundir. í síðustu viku sögðum við frá því að hún er að leika í
The Handmaid's Tale, leikstýrðri af Volker Schlöndorff eftir handriti
Harolds Pinters. Auk þessara tveggja mynda leikur Dunaway í Wait
Until Spring, Bandini, ásamt Joe Mantegna, Burt Young og Barbet
Schröder (leikstýrði Barfly) og í Cold Sassy Tree.
Þið munið eftir Last Picture Show sem Peter Bogdanovich gerði svo
eftirminnilega árið 1971. Nú hefur Bogdanovich gengið til liðs viö
nánast alla leikarana frá þeirri mynd eða þau Cybil Shepherd, Jeff
Bridges, Timothy Bottoms, Cloris Leachman, Eileen Brennan og
Randy Quaid. Flest þeirra stigu sín stærstu skref í átt til frægðar í
gömlu myndinni en við bíðum spennt eftir þessari nýju sem gefið
verður nafnið Texasville.
Hverjum haldiði að Sovétmaðurinn Andrei Konchalovski sé nú aðfara
að leikstýra í sinni nýjustu kvikmynd? Hverjum nema boxaranum
Sylvester Stallone! Annar töffari ekki ómerkari veröur einnig innan-
borðs, eða Kurt Russell.
Þegar ekki er hægt að gera framhaldsmyndir eru bara gerðar kvik-
myndir um gerð annara kvikmynda. Þannig er allavega raunin í nýrri
kvikmynd sem Kevin Kline og Clint Eastwood leika í. Hún kallast White
Hunter, Black Heart og fjallar um gerð einnar eftirminnilegustu kvik-
myndar John Hustons, African Queen. Kline leikur Bogart sem fékk
einmitt óskar að launum á sínum tíma en Eastwood leikur Huston
sjálfan enda leikstýrir hann þessari óvenjulegu mynd. En hver skyldi
leika Katharine Hepburn?
Kyntáknið Mel Gibson leikur nú í nýjustu mynd John Badham og
kallast hún Bird on a Wire. Þetta ku vera blanda af spennu og gríni,
kannski eitthvað svipað og síðasta mynd Badhams, Stakeout, og leika
Goldie Hawn og David Carradine einnig aðalhlutverk. Annars er Gib-
son að fara að leika siálfan Hamlet í uppfærslu Franco Zeffirellis á
verki Shakespeares. Aður hefur Zeffirelli gert Rómeó og Júlíu en
myndin um Hamlet kemurtil með að keppa við mynd Danans Gabriels
Aksels en hann gerði síðast Gestaboð Babettu. Mynd Aksels kallast
Amled.
Dancers ★*
(Dansmeistarinn)
Mynd fyrir fanatíska ballettaðdáendur en
ekki marga aðra. Herbert Ross tekst alls
ekki að endurtaka The Turning Point en
góðar ballettsenur halda myndinni á floti.
Baryshnikov verður seint talinn til betri
leikara en hann kann að dansa.
Statepark 0
(Allt á hvolfi í þjó&garðinum)
Aulahúmor frá upphafi til enda.
The Presldio ★★
(Presldio-herstöðin)
Buddy-hasar-ástar-mynd með vel film-
uðum eltingarleikjum á götum San Fran-
sisco borgar. Connery og Harmon eru
hörkutól af ólikum uppruna en standa sam-
an í „týpísku" og leiðinlegu lokaatriði.
Death Wish 4 0
(Auga fyrir auga 4)
Aðeins fyrir allra hörðustu Bronson-
aðdáendur.
The Naked Gun ★★
(Beint á ská)
Stanslaus brandaraskothríð i tæpar
tvær klukkustundir. Hittnin er þó misjöfn,
oft er hitt í mark en lika er skotið bæði yfir og
framhjá. Jafnast kannski ekki á við Air-
planeí en það má hlæja að vitleysunni.
Babette's gæstebud ★★★★
(Gestaboð Babettu)
Þessi gómsæta mynd Gabriels Aksels
er uppgjör bókstafstrúarmanna við
freistinguna og syndina. Stórgóð persónu-
sköpun og veislan f lokin er ógleymanleg.
Laugarásbíó
Me and Hlm ★
(Ég og minn)
Dæmi um hvernig ágætis hugmynd evr-
ópsks leikstjóra verður að lágstemmdri
gamanþvælu i Hollywood. Ádeilan á að
karlmenn hugsi með klofinu fer út um þúfur
en stundum má hlæja að vitleysunni. Vel er
valið í aðalhlutverkið og stendur Griffin
Dunne sig vel innan um konurnar.
Fletch Llves ★★
(Fletch lifir)
Mynd fyrir aðdáendur Chevy Chase en
þeir sem ekki iikar kappinn ættu að sitja
heima. Fletch er á köflum mjög fyndin en
sum atriðin eru gjörsamlega mislukkuð.
Fyrri myndin var betri.
Twins ★
(Tvíburar)
Einstaklega þunn og ófyndin mynd þar
sem áhorfandinn veit ailtaf hver næsti
brandari verður. Lakasta mynd Ivans Reit-
mans til þessa og hefði handritið aldrei átt
að fara lengra en i ruslakörfuna.
Bíóhöllin
Police Academy 6 0
(Lögregluskóllnn 6)
Hvernig er hægt aö ætlast til þess að fólk
hlægi að sömu fúlu bröndurunum ár eftir
ár? Þessi sjötta mynd i röðinni um lögreglu-
skólann er slakari en þær siðustu þar á
undan og er þá mikið sagt.
Three Fugltives ★★
(Þrjú á flótta)
Ágætis gamanmynd á meðan þlottið
virkar en dettur niður þess á milii. Martin
Short er aðal aðhlátursefnið sem mis-
heppnaðasti bankaræningi kvikmyndanna
í allt of stórum frakka.
Young Guns ★★★
(Ungu byssubófarnir)
Vestrar eru komnir úr tisku en þessi gæti
aukið hróður slikra mynda. Hér höfum við
allt sem þarf, átök og tragediu, hetjudáð og
kómidiu, fólsku og jafnvel rómantik. Estev-
ez skemmtilegur sem Billi barnungi.
Betrayed ★★
(Setlft á svikráftum)
Enginn hefur gert betri pólitískar
spennumyndir en Costa-Gavras en því
miður er þessi ekki ein þeirra. Nokkur
átakanleg atriði þarsem rasistarnir eru ó-
geðslegri en nokkru sinni fyrr, en síðan
snýst myndin upp í venjulega, annars
flokks spennumynd.
Working Girl ★★
(Eln útivinnandi)
Mjög góður leikur allra aðalleikaranna
nær ekki að toga þessa ófrumlegu afþrey-
ingarmynd upp úr meðalmennskunni.
Mike Nichols fær þó uppreisn æru eftir hina
hræðilegu Heartburn. Snotur kvikmynda-
taka hjá Ballhaus.
A Flsh Called Wanda ★★★
(Fiskurlnn Wanda)
Nánast fullkomin gamanmynd. Hárfínn
húmor i skotheldu handríti og gamlinginn
Crichton stýrir af mikilli fimi. Erfitt að gera
upp á milli aðalleikaranna sem eru hver
öðrum betri. Betri skemmtun er vandfund-
in.
Bíóborgin
The Blg Blue ★★★★
(Hlft bláa volduga)
Undurfagurt listaverk Bessons er óður til
hafsins bláa og allra þeirra sem því unna.
Ástarsaga og uppgjör persóna, sem stund-
um eru á mörkum þess mannlega, við
sjálfa sig og fortíðina. Glæsilegar viðlinsu-
tökur á breiötjaldi, bláminn yfir myndinni er
stórkostlegur og tónlistin fellur vel að. Þér
líöur vel af þessarí.
Dangerous Liasions ★★★
(Hættuleg sambönd)
Þrungin, en jafnframt hrífandi tragi-
kómidía þar sem allir enj táldregnir. Frá-
bær leikur ber myndina uppi, sérstaklega
Malkovich og Close sern hástéttarpakkið
sjálfselska. Mynd fyrir rómantlkera en
endirinn er í hróplegu ósamræmi við þjóð-
félagsástandið á þessum tima.
Raln Man ★★★
(Regnmafturinn)
Regnmannsins verður minnst fyrir ein-
.stakan leik Hoffmanns í hlutverki einhverfa
ofvitans fremur en sem góðrar kvikmynd-
ar. Óskar fyrir handrit og leikstjóm fremur
vafasamur og Barry Levinson hefur áður
stýrt betur.
Hóskólabíó
Marrled to the Mob ★★
(Gift mafíunnl)
Johnathan Demme hefur oftast hitt bet-
ur í mark þótt einvalaleikaralið sé nú með i
för. Oft góðar útfærslur en liður að lokum út
i furðulegt sambland af frásagnarmáta
teiknimynda og leikinna. Tónlist David
Byme er smellin og skemmtileg.
Stjömubfó
My Stepmother is an Allen ★★
(Stjúpa mfn gelmveran)
Enn ein útfærslan af E.T. þarsem
geimvera f kvenmannsmynd kemur til jarð-
ar f ákveðnum tilgangi. Slær á létta strengi
með mörgum smellnum atriðum en verður
að lokum mjög hugmyndasnauð, eins og
flestar vísindaskáldsögur nútímans verða
því miður. Ágætlega leikin og Aykroyd og
Basinger mynda skondiö par.
Who's Harry Chumb? ★
(Harry...hvaft?)
Billeg gamanmynd með nokkrum aula-
bröndurum. John Candy bjargar því sem
bjargað verður en hann er enginn Peter
Sellers þó hann skipti ört um gervi sem
spæjarinn Harry.
Krlstnihald undir jökll ★★★
Góð, og athyglisverð mynd á íslenskan
mælikvarða sem unnin er af fagmennsku.
Krístnihaldið er skemmtileg og fersk á að
horfa en ber full mikla virðingu fyrir texta
Nóbelskáldsins.
Föstudagur 23. júní 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25