Þjóðviljinn - 23.06.1989, Síða 26
Jónas Viðar Sveinsson (málverk) í
Alþýðubankanum Akureyrl, opið á
afgreiðslutíma.
Ásmundarsalur: Ásgeir Lárusson
sýnir vatnslitamyndir, í dag 13-19,
lau.su. 13:30-20. Til 25.6.
FÍM-salurinn: Guðrún Guðmunds-
dóttir, þrívíðar veggmyndir úr pappír.
Virka 13-18, helgar 14-18. til 27.6.
Árnagar&ur v/Suðurgötu, handrit-
asýning þri.fimm. lau. 14-16 til 1.9.
Gallerí Madeira, Evrópuferðum
Klapparstíg 25. Pétur P. Johnson
sýnir Ijósmyndir. 8-18 virka daga til
16.7.
LEIKLIST
Þjóðlelkhúslð, Framá, færeyskur
gestaleikur, lau og su kl. 20. Bílaverk-
stæði Badda, Nýjabíói, Siglufirði í
kvöld kl. 21. Samkomuhúsinu, Akur-
eyri lau, su og mán. kl. 21.
Leikhópurinn Virginía, Iðnó, Hver
er hræddur við Virginíu Woolf, í kvöld
oglau 20:30.
Hafnarborg, Strandg. 34 hf, Á tólf-
æringi, 14-19 alla daga nema þrið. til
7.8.
Kjarvalsstaðir, sumarsýning á verk-
um Kjarvals, daglega 11-18, til 20.8.
Lau. 14-18, Haukur Dór og Preben
Boye opna sýn. Málverk, teikn. grafík
og granítskúlptúrar. Til 9.7.
Norræna húsið anddyri: Jörð úr
ægi, myndun Surtseyjarog hamfar-
irnar í Heimaey. 9-19 nema su. 12-
19, til 24.8. Kjallari: Sumarsýning á
verkum Jóhanns Briem, daglega 14-
19 til 24.8.
Nýhöfn, Kristján Davíðsson opnar
málverkasýningu lau. kl. 14-16.10-
18virkadaga, 14-18 helgar til 12.7.
Magnús Tómasson sýnir í útibúi
SPRON Álfabakka 14. Opið á af-
greiðslutímatil 1 sept.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur sýnir
Ijósmyndiraf Jóhannesi Páli II páfa
eftir Adam Bujak. Opið alla daga 11 -
19.
Slunkaríki, ísafirði. Rósa Ingólfs-
dóttir, grafíkmyndir. fimm.-sunn. 16-
18 til 25.6.
Listasafn Sigurjóns, opiö ld.,sd. 14-
17. Mán, miðv.fim. 20-22. Tónleikar
þrið. 20.30. Fdilokað. Kaffistofan
opin á sama tíma. Tekið á móti hóp-
umeftirsamkomul.
Safn Ásgríms Jónssonar, lands-
lagsmyndir, 13:30-16 alla daga nema
mán. Til septemberloka.
Þjóðminjasaf n opið alla daga nema
mán. 11-16. Fjaðraskúfar og fiski-
klær, sýning um menningu inúíta og
indíána, farandsýn. í tilefni að 10 ára
afm. heimastjórnar á Grænlandi.
Hefstídag kl. 17:15.Tilágústloka.
Fundur Ameríku. Sýning í Sjóminja-
safni (slands, Vesturgötu 8 Hf. Opin í
sumar alla daga nema mán. 14-18.
Listasafn Einars Jónssonar opið
aila daga nema mán. 13.30-16.
Opnum sýningu á listaverkum jarðar-
gróðans með vorinu. Aðgangur
ókeypis sé góðri umgengni heitið,
annars er goldið með himinháum
upphæðum vanvirðingar. Folda.
Þrastarlundur v/ Sog, olíumálverk
eftir Mattheu Jónsdóttur. Til 26.6.
TÓNLIST
Pauluskantorei frá Hamm í Vestur-
Þýskalandi heldurtónl. í Hallgríms-
kirkju lau. kl. 20:30. Kórinn syngur við
messu í kirkjunni su. kl. 14. Stjórn-
andi Rolf Schönstedt.
örn Magnússon heldurpíanótón-
leika í Norræna húsinu su. kl. 20:30.
Toccata og ensk svíta e/ Bach, són-
ötur op 26 og 109 e/ Beethoven.
Sinfóníuhljómsveit íslands heldur
tónleika í Samkomuhúsinu í
Vestmannaeyjum su. kl. 16:30.Tónl.
eru haldnir í samvinnu við kór Landa-
kirkju og eru í tilefni af 70 ára afmæli
Vestmannaeyjakaupstaðar. Þrír kafl-
Hvað á að gera um helgina?
Páll Magnússon,
fréttastjóri Stöðvar 2:
„í kvöid ætla ég að fara í grillveislu sem Sigurveig Jónsdóttir vara-
fréttastjóri ætlar að bjóða okkur samstarfsmönnum sínum í. Aðeins að
sletta úr klaufunum þar. Að öðru leyti ætla ég að nota helgina til að
mála.“
ar úr Pákumessu e/ Haydn, Sinfónía
nr. 9 e/ Dvorák. Einsöngvarar Mar-
grét Bóasdóttir og Viðar Gunnars-
son, stjórnendur Guðmundur H.
Guðjónssonog Petri Sakari.
Hátíðartónleikar í Hallgrímskirkju
su. kl. 16, tilefni innsetning sr. Ólafs
Skúlasonar í embætti biskups ís-
lands. Kór Bústaðakirkju, einsöngv-
arar og flokkur hljóðfæraleikara flytja
ýmis kirkjuleg verk, stjórnandi Guðni
ÍÞRÓTTIR
Fótboiti. 1 .d.ka. Valur-Fylkir, ÍBK-ÍA,
FH-KR og KA-Víkingur sd. 20.00,
Fram-Þór mán. 20.00.1 .d.kv. Valur-
(A og UBK-Stjarnan föd. 20.00, KR-
KAId. 14.00.2.d.ka. Leiftur-ÍRföd.
20.00, Einherji-Selfoss og ÍBV-
Tindastóll Id. 14.00, Víðir-Völsungur
og UBK-Stjarnan mán. 20.00.
HITT OG ÞETTA
Koyaanisqatsi, kvikmynd e/ Go-
dfrey Reggio um Hopi indíánana og
heimssýn þeirra verður sýnd í Há-
skólabíói í dag kl. 15:30. Aðgangur
ókeypis og öllum heimill, aðeins
þessi einasýning.
fslensk/Norrænu vinafélögin standa
fyrir Jónsmessuhátíð við Norræna
húsið í kvöld. Hefst kl. 20, Maístöng
reistkl. 20:30.
Norræna húsið, Borgþór Kjærne-
sted heldur fyrirlestra um íslenskt
samfélag á laugardögum í sumar. Á
sænsku kl. 17, finnsku kl. 18. Til 26.8.
Árleg skógræktarferð Kvenfélaga-
sambands Kópavogs verður farin að
Fossá í Kjós á morgun. Farið áeinka-
bílum kl. 14 frá Félagsheimili Kópa-
vogs.
Bandalag íslenskra skáta og Ung-
mennafélag íslandsgangastfyrir
Göngudegi fjölskyldunnar lau og su.
Gönguferðir á bilinu 2-7 tímar.
Ferðafélagið,
Jónsmessunæturganga í kvöld kl.
20. Dagsferðirsunnud. Þórsmörkkl.
8, Móskarðshnúkar-Tranat-
Eyjadalurkl. 10, Eyjadalur-
Meðalfellsvatn kl. 13. Helgarferð í
Þórsmörk 23.-25.6. Sumarleyfisferð
áVestfirði 24.-29.6.
Hana nú, vikuleg laugardagsganga
frá Digranesvegi 12 kl. 10.
Útivist, Jónsmessunæturganga,
Langistígur- Þingvellir í kvöld kl. 20.
Helgarferðir23. -25.6.
Jónsmessuferðir í Núpsstaðarskóga
og í Þórsmörk.
FJÖLMIÐLAR
Páll H. Hannesson
Oömur fallinn ( Sakadómi Heykjavíkur I máll ákæruvaldsins fyrir hönd
sr. Þórle Stephensens aean Halll Maanússvní blaðamannl-
108. giein
Menn gera sér misháar hug-
myndir um hlutverk fjölmiðla.
Af sumum eru þeir taldir meðal
mikilvægustu stofnana þjóðfé-
lagsins, þeir skapi og stýri þjóð-
málaumræðunni og þar með
hugsanagangi hins almenna borg-
ara. Aðrir telja fjölmiðla ómerki-
legt fyrirbæri, slúðurbera sem sí -
fellt eru í leit að neikvæðum frétt-
um með annarlega hagsmuni í
huga. Einhvers staðar mitt á milli
liggur sennilega „sannleikurinn",
ef efahyggja heiðvirðs blaða-
manns leyfir slíka orðnotkun. Og
má það svo sem einu gilda, því
sínum augum lítur hver á silfrið.
Því verður þó varla neitað að fjöl-
miðlar á íslandi eru fyrirferðar-
miklir, jafnvel þó töluvert sé til í
því að sjóndeildarhringur þeirra
takmarkist við Lækjartorg og
nærliggjandi götur.
Fræðilega séð geta fjölmiðlar á
íslandi verið svo sem hvað sem
er, virðulegar og áreiðanlegar
fréttastofur eða slúðurberar
slæmra tíðinda. Við því er ekkert
að gera og fátt að segja þó fjöl-
miðlar misnoti sér sín tækifæri til
að upplýsa almenning eða að
koma á framfæri einhverjum
uppbyggilegum staðreyndum.
Hitt er verra ef einhver önnur
valdastofnun þjóðfélagsins gerir
lítt dulbúna tilraun til að hefta
möguleika þessara sömu fjöl-
miðla til að koma á framfæri upp-
lýsingum eða sinna því idealska
hlutverki sínu að veita þjóðfé-
laginu „aðhald“. Og þá gildir
einu hvort sú tilraun er meðvituð
eður ei.
Sú ákvörðun ríkissaksóknara
að taka að sér hlutverk ákæru-
hlutverkið á grundvelli úreltrar
greinar hegningarlaganna, laga
númer 108 og sakadómara að
sakfella og dæma til þungrar fé-
sektar á grundvelli sömu laga-
greinar, hlýtur að skoðast sem
slík tilraun. Lagagreinin sem hér
um ræðir, kveður á um að hver sá
sem „hefur í frammi skammar-
yrði, aðrar móðganir í orðum eða
athöfnum eða ærumeiðandi að-
dróttanir við opinberan starfs-
mann, þegar hann er að gegna
skyldustarfi sínu, eða við hann
eða um hann út af því, skal sæta
sektum, varðhaldi eða fangelsi
allt að þremur árum. Aðdróttun
þótt sönnuð sé, varðar sektum, ef /
hún er borin fram á ótilhlýðilegan
hátt.“
Eins og allir vita hefur opinberi
geirinn þanist út á íslandi sem í
flestum löndum heims og stór
hluti allra launþega á íslandi telst
vera opinberir starfsmenn. Öll
stjórnsýslan er skipuð opinberum
starfsmönnum og dómskerfið.
Alþingi og lögreglan, heilbrigðis-
kerfið og menntastofnanir,
o.s.frv. Það er túlkunaratriði
dómsstólanna að meta hvað
kunna að vera skammaryrði eða
móðganir í garð þessara starfs-
manna. En það sem er svo undar-
legt við þessa lagagrein að blaða-
maður getur skrifað heilagan
sannleik um opinberan starfs-
mann, og sá sannleikur kann
hugsanlega að vera meiðandi
fyrir þann hinn sama og jafnvel
móðgandi, sérstaklega ef
sannleikurinn er sá að hinum op-
inbera starfsmanni hafi orðið á í
messunni.
Nú hafa dómstóll og ríkissak-
sóknari tekið höndum saman um
að virkja þessa umræddu laga-
grein og hafa sett upp þá sekt sem
menn verða að greiða fyrir að
vanvirða með ofangreindum
hætti opinberan starfsmann,
jafnvel þó allt sem um hann hafi
verið sagt sé heilagur sannleikur.
Blaðamenn eru ekki opinberir
starfsmenn og því var gott og
blessað þó vararíkissaksóknari
komi fram í fjölmiðli og kalli
menn ritsóða og ærumorðingja, -
áður en dómur er fallinn. Blaða-
menn hafa enga grein 108 til að
fela sig bak við eða hefna sín
með. Slík ummæli eru ekki nægi-
lega sterk til þess að Hæstiréttur
sjái ástæðu til að vísa máli frá, og
hefur sú gerð verið túlkuð sem
blessun Hæstaréttar yfir slíkum
munnsöfnuði, munnsöfnuði sem
eflaust mundi kosta blaðamann
eða almennan borgara kvartmillj'
ón væru þau viðhöfð um opin*
beran starfsmann.
Reyndar virðist fikissaksókn-
ari gera sér nokkum mannamun í
þessu efni, því nýlega lét lögmað-
ur fyrir rétti fast að því liggja að
ráðherra nokkur hefði framið
meinsæri fyrir dómstólum. Þó
ákæran hafi verið alvarleg og
skipti viðkomandi ráðherra og
landsmenn vonandi nokkru hefur
ekkert heyrst frá ríkissaksóknara
um að hann hyggist kanna það
mál frekar. Þó segir í 21. grein
laga númer 74. 1974 að „ríkis-
saksóknari skal hafa gætur á
afbrotum, sem framin eru.“ En
um þetta mál skal ekkert fullyrt á
einn hátt eða annan og flokkast
slíkt eflaust undir slúður hjá ein-
hverjum.
phh
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 23. júní 1989