Þjóðviljinn - 23.06.1989, Qupperneq 28

Þjóðviljinn - 23.06.1989, Qupperneq 28
Lax á miljón Ætla má að þeir laxar sem dregnir voru að landi í bestu laxveiðiám landsins hafi kost- að að meðaltali miljón krónur hver. Það þykir mjög fínt að komast í árnar sem fyrst á vor- in og því eru laxveiðileyfin dýr- ust fyrstu vikurnar. Talið er að fyrstu tvær vikurnar hafi verið seld laxveiðileyfi fyrir um tut- tugu miljónir en að landi komu um 20 laxar á þeim tíma. ■ Fjármálastjórinn ákvað að borga Það varð heldur betur uppi fótur og fit á bæjarskrifstofun- um í Hafnarfirði þegar fréttist að bæjarfógetinn hótaði að slökkva á rafmagninu vegna þess að ríkisskattstjóri taldi Rafveituna skulda tólf miljónir í vangoldinn söluskatt, en Rafveitan neitaði að borga þar sem fyrirtækið vildi ekki gangast við þessari skuld. Nú voru góð ráð dýr, einkum þar sem yfirstjórn bæjarins var stödd í vinarbæjarheimsókn- um. Guðmundur Árni Stef- ánsson bæjarstjóri var stadd- ur í Færeyjum og Gunnar Rafn Sigurbjörnsson bæjar- ritari á Grænlandi. Það var því fjármálastjórinn Þorsteinn Steinsson sem þurfti að bera hitann og þungann af þeim ákvörðunum sem þurfti að taka. Hann ákvað að borga. ■ Fantasía og Regnboga- strákurinn Það er engin gúrkutíð í leikhúslífi Reykjavíkur sem stendur, Ég býð þér von sem lifir, heitir nýtt verk eftir nýjan leikhóp, sem kallar sig Fant- asíu og frumsýnir á fimmtudaginn. En það er ekki eina nýja ís- lenska verkið sem verður frumsýnt í Reykjavík á næst- unni, því Regnbogastrákur- inn, barnaleikrit eftir Ólaf Gunnarsson verður frum- sýnt í Gerðubergi laugardag- inn kemur. ■ STADREYND! stórlœkkað verð á takmörkuðu magni. ...um er aö ræöa heitt mál því meö sérstökum samningi viö GRAM verksmiðjunar í Danmörku bjóöum viö nú þrjár gerðir GRAM kæliskápa (sjá hér aö neðan) á einstaklega hagstæöu veröi. Gram býöur 11 gerðir kæliskápa, meö eöa án frystis. Einnig 9 gerðir af frystiskápum og frystikistum. 180 Itr. kælir + 70 Itr. frystir B: 59,5 cm D: 62,1 cm H: 126,5-135,0 cm (stillanleg) verð áður 47.200 nú aðeins 4Bi!€0 (stgr. 39.995) 285 Itr. kælir + 70 Itr. frystir B: 59,5 cm D: 62,1 cm H: 166,5-175,0 cm (stillanleg) verð áður 59.010 nú aðeins S2M (stgr. 49.999) 198 Itr. kælir + 146 Itr. frystir B: 59,5 cm D: 62,1 cm H: 166,5-175,0 cm (stillanleg) verð áður 65.030 nú aðeins (stffr. 55.993) GÓÐIR SKILMÁLAR, TRAUST ÞJÓNUSTA 3JA ÁRA ÁBYRÐ /FOniX HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420 Djass hjá Sigurjóni.Þriðjudagstónleikar Listasafns Sigurjóns Ólafssonar þann 27. júní verða djasstón- leikar og koma þar fram Friðrik Karlsson gítarleikari, Maarten van der Valk trommuleikari, Reynir Sigurðs- son víbrafónleikari og Richard Korn bassaleikari. Þeir félagar hafa unnið saman frá því um síðustu áramót og hafa leikið í Heita Pottinum, Bíókjallaranum og á skólatónleikum. I Listasafni Sigurjóns flytja þeir meðal annars verk eftir Pat Metheny, Chick Corea og Cörlu Bley. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og fást aðgöngu- miðar á kr. 350.- við innganginn. Kaffistofa safnsins verður opin. IMWR GREIÐSLUR LÉTTA ÞÉR RÓÐIMNN Oft hefur verið óþægilegt að greiða hærri raf- magnsreikninga á veturna en öðrum árstímum, einmitt þegar fasteignagjöldin, tryggingaiðgjöldin og bifreiðagjöldin dembast inn um bréfalúguna ásamt öllum hinum reikningunum. Rafmagnsveitur ríkisins vilja nú sem áður létta þér greiðslubyrðina. Héðan í frá verður aðeins lesið af mælum einu sinni á ári. Á öðrum tímum verður orkunotkunin áætluð. Greiðslum verður því að mestu leyti jafnað á þá reikninga sem þú færð senda annan hvern mánuð. Þessi nýbreytni er liður í þeirri stefnu okkar að veita örugga og hagkvæma þjónustu. Við höfum hugfast að góður orkubúskapur er forsenda vel- ferðar og framfara.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.