Þjóðviljinn - 04.10.1989, Blaðsíða 9
Skylda verður öll fiskiskip til að
selja á innlendum mörkuðum
Rœða Jóhanns Antonssonar áþingi Fjórðungssambands Norðlendinga
Meginvandamál sjávarútvegs á
líðandi stund eru fólgin í því að
afkastageta greinarinnar er langt
umfram þarfirnar. Þetta á bæði
við um veiðar og vinnslu. Kvóti á
veiðar er ekki orsök þess eins og
sumir láta í veðri vaka, heldur er
þvert á móti kvóti og stjórnun af-
leiðing af of mikilli afkastagetu.
Forsenda afnáms kvóta-
kerfisins er skipulögð minnkun
flotans, sem leitt gæti til
jafnvægis milli afrakstursgetu
fiskistofnanna og afkastagetu
fiskiskipaflotans. Umfram af-
kastagetu veiða og vinnslu leiðir
af sér að of mikið fjármagn er
bundið í greininni. Ég býst við að
flestir geri sér grein fyrir réttmæti
þessara staðhæfinga varðandi
fiskiskipaflotann, en ef til vill
gera færri sér grein fyrir að hið
sama á einnig við um vinnsluna.
Skert úthald fiskiskipa vegna
kvótaleysis er áhyggjuefni
margra og þá oftast vegna þess að
atvinna verði ekki næg á landinu í
heild eða í einstaka byggðarlög-
um. Það er skiljanlegt að fólk hafi
áhyggjur af atvinnuleysi bæði í
einstaka byggðarlögum og á
landinu öllu, en í raun og veru er
það mun stærra áhyggjuefni hve
arðsemi sjávarútvegs er lítil,
vegna vannýttra framleiðslu-
tækja bæði á sjó og landi.
Vegna verkefnaskorts fiski-
skipanna deila menn vart lengur
um að flotinn sé of stór. Það er
einungis þráttað um það hversu
mikið af stór flotinn kann að
vera. En það skiptir ekki máli
hvort það þarf að minnka
fiskiskipaflotann um 10% eða
50% - leiðir til að minnka hann
éru jafn torsóttar eftir sem áður.
Staðreyndin er nefnilega sú að
enginn vill verða sá sem sér á eftir
skipum.
Þjóðhagsstofnun hefur nýlega
reiknað út að ef skip yrðu úrelt
sem næmi um 10% af flotanum
og kvóta þeirra skipa útdeilt á
þau skip sem eftir verða - muni
afkoma skipanna batna um heil
7% ef engin greiðsla yrði fyrir
viðbótarkvótann, en um 5% ef
þorskígildið yrði selt á litlar 10 kr.
kílóið. Þetta dæmi sýnir í hnot-
skurn hvað um er að ræða. Ef
staðið yrði með slíkri uppstokkun
með sölu á kvóta, verða menn að
hafa í huga, að þar með væru út-
gerðir að auka hagræðingu og
kostnaðurinn yrði ekki nema
brot af hinum mögulega ávinn-
ingi. Þannig er útí hött að tala um
skattlagningu, eins og margir
hafa slysast til að gera þegar
þessa þjóðþrifahugmynd ber á
góma, hugmynd sem felur í sér
aukinn gróða fyrir sjávarútveg-
inn.
Nú eru teikn á lofti um að enn
og aftur verði veiðiheimildir tak-
markaðar á næsta ári. Þá mun út-
reikningur Þjóðhagsstofnunar
snúast við; afkoma starfandi út-
gerðarfyrirtækja gæti þess vegna
rýrnað um 7% vegna afla-
samdráttar. Og þá mun enn og
aftur verða hrópað á „gengis-
lækkun til að leiðrétta rekstrar-
grundvöllinn” eins og það er
ævinlega orðað.
Af hverju á þjóðin alltaf áð
sætta sig við gengisfellingar til að
„leiðrétta rekstrargrund-
völlinn”? Hve lengi verður
ásættanlegt að reiknitölur grund-
vallarins miðist við of stóran flota
og vannýttar fiskvinnslustöðvar?
Hvers vegna er ekki hag-
kvæmnisleiðin valin? Hvers
vegna aukum við ekki frekar arð-
semi greinarinnar heldur en fella
gengið og lífskjörin með?
Harkaleg átök
framundan
Ég tel að ástæðan fyrir því að
við fetum okkur ekki inn á
hagkvæmnisleiðina sé sú, að bar-
áttan um núverandi kvóta yfir-
skyggir alla skynsemi og um leið
hagkvæmni. Vissulega hafa
menn reynt að þokast í áttina
innan núverandi fyrirkomulags.
En þvi' miður hafa orðið slys á
þeirri leið. Þannig hefur t.d. það
tíðkast við úreldingu nokkurra
fiskiskipa, að kvótinn hefur verið
færður af bátum yfir á togara. Af-
leiðing þessa hefur orðið að sífellt
fleiri þorsktittir eru í minnkandi
kvótatonnum.
Nú er þar komið sögu, hvort
sem okkur líkar betur eða verr,
að við verðum að fækka verulega
togurum. Fyrir því liggja bæði
fiskifræðilegar ástæður og
arðsemisrök. Að mínu mati þola
breytingar á þessu fyrirkomulagi.
litla bið. Þau átök sem við höfum
orðið vitni að síðustu daga vegna
Patreksfjarðar eru aðeins smjör-
þefurinn af þeim harkalegu
átökum sem framundan eru,
verði ekki snarlega farið af þeirri
braut sem nú er farin. Hag-
kvæmnisleiðin bíður eftir okkur.
Undirrót átakanna um kvót-
ann er að fiskvinnslan í landinu
býr við minnkandi hráefni og hef-
ur ekki aðlagast að þeim
breytingum sem orðið hafa í
sjávarútvegi á undanförnum
árum. Fjármagn sem bundið er í
vinnslunni ber ekki þann arð sem
eðlilegt getur talist.
Frysting og vinnsla um borð í
skipum sem aukist hefur að und-
anförnu þýðir í raun að minna
hráefni kemur til vinnslu í landi.
Aukinn útflutningur á ísvörðum
fiski í gámum hefur sömu áhrif -
þ.e. minni hráefnisvinnslu í
landi. Fiskvinnslan á íslandi býr
um þessar mundir við mun meira
óöryggi varðandi hráefni en
vinnsla á Humbersvæðinu í Bret-
landi og svæðinu í N-Þýskalandi í
kringum Cuxhaven og Bremer-
haven. íslenskir útgerðarmenn
(sem eins og kunnugt er eru aðal-
eigendur íslenskrar fiskvinnslu)
skipuleggja landanir erlendis
hálft ár fram í tímann og miða við
að jafnt og nægt framboð sé á
ísfiski þar.
íslenskir fiskframleiðendur
geta e.t.v. best tryggt sér hráefni
með því að kaupa á mörkuðunum
á Hull og í Cuxhaven! Það kann
líka vel að vera við ákveðnar að-
stæður að það borgi sig frekar í
raun fyrir íslenska framleiðendur
að kaupa hráefni á mörkuðunum
í Bretlandi og Þýskalandi, ef hrá-
efnið þyldi flutninginn heim aftur
heldur en að kaupa skip á upp-
sprengdu verði til að fá aðgang að
kvótanum!
Öfugt við það sem ætla mætti
eykst ásókn í siglingar skipa og
gámaútflutning með minnkandi
kvóta. Öfugt segi ég, m.a. vegna
þess að Iang stærstur hluti ís-
lenskrar útgerðar er á sömu
hendi og fiskvinnslan í landi.
Einnig þetta minnkar umsvifin í
landi. Þörf fiskvinnslunnar fyrir
kaup á nýjum bátum og togurum
eykst auðvitað við þetta og ef
bátar eru keyptir á uppsprengdu
verði, þarf að drýgja tekjur með
sölu afla erlendis til að endar nái
saman. Við erum sem sagt í víta-
hring sem við verðum að koma út
úr.
Ef við drögum saman sem ég
hef hér verið að segja í stuttu
máli, þá lítur dæmið þannig út að
rekstrargrundvöllur sjávarútvegs
er brostinn vegna þess, að
framleiðslutækin eru miðuð við
framleiðsluhætti og markaði eins
og þeir voru fyrir tíu árum. Eng-
inn gengisfelling getur gert það
sem þarf að gera - fækka fiski-
skipum og auka hagkvæmni fisk-
vinnslunnar. Síðustu tímar hafa
fært okkur mörg ný og freistandi
tækifæri til að auka arðsemi
sjávarútvegsins en hinir nýju
möguleikar sem eru fyrir hendi
hafa ekki verið nýttir vegna þess
að skipulagið er drepið í dróma
gærdagsins.
Knúnir til aðgerða
Við íslendingar erum knúnir til
aðgerða. Við lifum í heimi þar
sem allir vilja mikið frjálsræði í
viðskiptum. Og samfara auknu
frjálsræði hefur hagsæld aukist.
Við erum að komast inn á stóra
markaði með öðrum hætti en
áður. En jafnvel þau lönd sem
geta státað af hvað mestu
frjálsræði hafa einhverja ramma
eða reglur til að ýta undir
efnahagslíf í höndum eigin þjóð-
ar. Þannig hafa Bandaríkjamenn
t.d. þá reglu að bannað er að
flytja arð af erlendri atvinnustarf-
semi þar úr landi.
Sú hugmynd sem felur í sér
hvort tveggja í senn meira frjáls-
ræði í viðskiptum við aðrar þjóðir
og hina óhjákvæmilegu hag-
ræðingu sem ég áður minntist á,
er í þessum dúr: skylda verður öll
fískiskip til að selja fískinn á
íslenskum fískmörkuðum. Þessi
hugmynd lætur ekki mikið yfir
sér, en þegar grannt er skoðað
gæti hún uppfyllt þarfir okkar um
meiri hagkvæmni í sjávarútvegi,
meiri arðsemi fyrir þjóðarbúið og
valdið byltingu í lífskjörum þjóð-
arinnar.
Með hinum nýja íslenska fisk-
markaði myndi markaðs-
starfsemi sú, sem nú fer fram með
íslenskar afurðir á Humber-
svæðinu og í Cuxhaven færast inn
í landið.
Þar með gæti íslenska fisk-
vinnslan keypt það sem hún þarf
og vill hér á mörkuðum svo fremi
að hún sé samkeppnisfær í verði
við erlenda aðila. Því auðvitað er
óhjákvæmilegt að leyfa erlendum
aðilum að bjóða í fiskinn á ís-
lensku mörkuðunum. Á hinn
bóginn getum við gert eins og
Evrópuríkin mörg gera, - sett
kvóta á magnið sem útlendingar
geta keypt á mörkuðum okkar
hérlendis. Reyndar búum við
okkur í leiðinni til góða
Hönnum og smíðum
ýmsan ryðfrían búnað
til meðhöndlunar á fiski
svosem:
Færibönd
Þvottakör Já
Snyrtiborð A
Safnkassa M
Rekka
Rennur j Æ
o.fl.
Leitið nánari upplýsinga
utgerðarmenn
Pósthólf 437
602 Akureyri
Sími 96-27300