Þjóðviljinn - 20.10.1989, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 20.10.1989, Qupperneq 5
Úti að aka með bömin? í hádeginu eru hátt í 15.000 börn á höfuðborgarsvæðinu flutt á milli skóla, dagvistar og heimilis. Stór hluti þessara flutninga fer fram á einkabílum foreldra, sem eru að skjótast úr vinnutíma til þess að flytja börn sín í hvers kyns neyðarathvörf. Hvers vegna er þetta svo? Hvaða kostnað hefur þetta í för með sér fyrir börnin, foreldrana, atvinnulífið og þjóðfélagið í heild? Sigurður og Elín eru rúm- lega þrítug hjón á höfuðborg- arsvæðinu og eiga 3 börn: þriggja, sex, og sjö ára. Þau hafa nýlega komið yfir sig húsnæði og vinna bæði utan heimilis. Vaxtabyrðin af hús- næðislánunum er orðin þeim þung, en þó er annað sem íþyngir þeim meira í daglegu lífi: flutningur á börnunum í þau athvörf, sem þeim hefur með herkjum tekist að finna fyrir börnin sín. Yngsta barnið er hjá dag- mömmu í öðru borgarhverfi þrjá heila daga vikunnar og tvo mor- gna. Amma bjargar tveim eftir- miðdögum. Sex ára barnið er hjá annarri dagmömmu á morgnana en kemur heim í hádeginu til þess svo að fara tvær stundir í skólann á milli kl. 13 og 15. Þá er það sótt úr skólanum og er heima með eidri bróður sínum sem er sjö ára, nema á þriðjudögum þegar það fer beint úr skólanum í spilatíma í Tónlistarskólanum. Sjö ára bam- ið fer í gæslu í skólanum kl. 8 á morgnanna, en kennslan er frá 9.00- 12.00. Þennan mánuðinn á elsti sonurinn svo að mæta í sundi daglega milli kl. 14-15 í Sundhöll- inni, en þar fyrir utan er hann í spilatíma tvisvar í viku á milli klukkan 17 og 18. Til þess að sinna þessum flutningum þurftu Sigurður og Elín að kaupa tvo bflafyrirfjölskylduna. Bflakostn- aður fjölskyldunnar er því nokk- uð hár með tryggingargjöldum og öllu. Sigurður keyrir yngsta barn- ið til dagmömmunnar kl. 8 á mor- gnana, og fer um leið með elsta soninn í geymslu í skólanum. Hann sækir yngsta barnið líka tvisvar í viku í hádeginu til þess að fara með það til ömmunnar og svo kemur hann kl. 17.30 til þess að sækja það og veita því friðsæld og unað heimilislífsins. Móðirin fer með sex ára strákinn til dag- mömmu á morgnana og sækir hann í hádeginu til þess að gefa honum að borða og fara svo með hann í skólann. Hann er svo heppinn að geta verið samferða vini sínum úr skólanum kl. 15, enda er mamman þá að sækja elsta soninn úr sundhöllinni, þar sem hann var í sundtíma. Það er Elín sem sér um að fara með syn- ina tvo í spilatíma tvisvar í viku. Hún er svo heppin að eiga skiln- ingsríkan vinnuveitanda og hafa frjálsan vinnutíma, þannig að hún getur jafnvel tekið hluta af vinnunni með sér heim um helgar' til þess að vinna upp það sem hef- ur tapast í umferðinni með börn- unum yfir vinnuvikuna. En jafnvel sá tími hefur líka styst í vetur miðað við það sem var í fyrra eftir að þeir gerðu hrað- brautina utan í Öskjuhlíðinni. Það sparar henni að minnsta kosti 15 mínútur á dag. Algengt lífsmynstur Það lífsmynstur fimm manna fjölskyldu á höfuðborgarsvæð- inu, sem hér hefur verið rakið virðist í fyrstu bæði ýkt og fjar- stæðukennt, en er við nánari at- hugun ekki fjarri lagi: Einungis á leikskólum Reykjavíkurborgar voru 1680 böm í þessum flutning- um í hverjum hádegistíma á síð- atliðnum vetri. Grunnskólarnir bjóða yfirleitt ekki upp á nema tveggja til þriggja stunda kennslu í skóla daglega fyrir sex og sjö ára börn, og dæmi eru þess að sjö ára börn þurfi að sækja leikfimi eða sund í annan stað. Vaktaskipti í grunnskólunum eru líka í hádeg- inu, því íslendingar hafa ekki get- að boðið börnum sínum það að eiga einsetinn skóla og eru þar að því er virðist einir á báti meðal siðmenntaðra þjóða. Foreldrar á höfuðborgarsvæðinu þurfa því að sækja eða fara með um 4000 sex og sjö ára börn í hádeginu og koma þeim í dagvistun eða til afa og ömmu, ættingja eða dag- mömmu eða heim, þar sem þau eru ein eða með systkinum sínum í reiðuleysi. í skólaskýrslum Reykjavíkur frá 1975 kemur fram að um 40% 7-12 ára barna eru meira og minna ein heima á dag- inn og af börnum einstæðra for- eldra er fjórðungur 7 ára barna og yngri og 64% 7-12 ára barna „meira og minna sjálfala á dag- inn“ samkvæmt mannverndar- skýrslu landlæknis frá síðasta ári. Neyðarathvarf í hverjum árgangi barna á höf- uðborgarsvæðinu eru nú um 2000 börn. Á aldrinum 1/2 árs til 8 ára eru því 16.000 börn. Miðað við það að 80% mæðra eru útivinn- andi má ætla að meginþorri þess- ara barna séu á þeytingi í hádeg- inu, og þau heimili munu vart finnast lengur þar sem fjöl- skyldan situr í ró og næði í kring- um hádegisverðarborð í miðri viku. f mannverndarskýrslu land- læknis frá síðasta ári kemur fram, að á árunum 1960-83 hefur tíðni hjónaskilnaða aukist um 200% á meðan hún jókst um 100% í Sví- þjóð á sama tíma. í sömu skýrslu kemur fram að dánartíðni ís- lenskra bama 0-14 ára af völdum slysa hafi verið nærri helmingi hærri hér á landi en í Svíþjóð eða 12,4 á 100.000 íbúa á móti 6,8. Þennan mismun verður að skoða í ljósi þess að í Svíþjóð þekkist ekki tvísetinn skóli. Þar þekkist ekki heldur að börnum sé boðið upp á tveggja klukkustunda við- veru í skóla á dag. Eða sundur- slitinn skólatíma. Eða að foreldr- ar skuli þurfa að vera á þeytingi með börn sín á háannatíma í um- ferðinni til þess að koma þeim fyrir í einhvers konar neyðarat- Föstudagur 20. október 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5 hvörfum utan skólatíma. Viðver- utími barna í yngstu bekkjar- deildum grunnskólans á Norður- löndunum er yfirleitt frá kl. 9-15 eða lengur. Og vinnutími for- eldra er einnig skemmri. í raun og veru er það undrun- arefni hvað foreldrar á íslandi hafa látið bjóða sér og börnum sínum í þessum efnum og enn meiri furðu ætti það að vekja, hversu vitlaust sá þjóðhagslegi sparnaður er reiknaður, sem ábyrgðaraðilar þessa skipulags virðast hugsa út frá. Því stað- reyndin er sú, að þvert ofan í yfir- lýstan vilja, þá hafa yfirvöld skólamála séð þá leið hagkvæm- asta til að draga úr fjárlagahalla ríkissjóðs, að minnka framboð á þjónustu við yngstu börn grunn- skólans. Það hefur bitnað harka- lega á þeim varnarlausu: börnun- um okkar. Verður það látið líðast öllu lengur? Texti: Ólafur Gíslason Ljósmyndir: Jim Smart Myndirnar sem fylgja grein- unum eru sviösettar og tolkiö i þeim er alls oviökomandi efni þeirra Sjá næstu síður Annað líf Samfelldur skóladagur í Fossvogsskóla hefur breytt lífi mínu, segir einstæð móðir 11 ára barns Hádegið hefur verið mér mar- tröð allt frá því að ég fór að vinna, segir einstæð móðir ellefu ára barns, sem er kennari að at- vinnu, í samtali við Þjóðviljann: f nærri 10 ár hef ég upplifað hádegistímann sem einhverja martröð: Þegar klukkan er að verða hálf tólf í síðustu kennslu- stund fyrir hádegi fer maður allur að spennast upp vegna þess sem í vændum er. Þegar hringt er út er rokið í bflinn og á barnaheimili eða heim til þess að gefa barninu að borða. Maður hendir í það súrmjólk eða einhverju tilbúnu og svo er henst af stað aftur og skilið við barnið, kannski grát- andi einhvers staðar, og svo í skólann þar sem maður á að standa hress og uppbyggilegur frammi fyrir 25-30 nemendum klukkan eitt. Það er ótrúlegt að maður skuli hafa látið bjóða sér og barninu sínu þetta í öll þessi ár. Ég skil það fyrst núna, eftir að barnið fékk samfelldan skólatíma frá 8.10 til 14.20, hvflíkur munur það er að geta andað rólega í há- deginu. Ekki bara fyrir mig, held- ur líka fyrir barnið. Þetta hefur breytt lífi okkar, aukið mér starfskraft og aukið ánægju barnsins af skólanum. Foreldrar eiga ekki að láta bjóða sér og bömum sínum þetta lengur. -ólg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.