Þjóðviljinn - 20.10.1989, Blaðsíða 18
Atli Heimir Sveinsson
það hans deild og Hrafn Gunn-
laugsson kom þar hvergi við
sögu, ekki frekar en hann á nokk-
urn þátt í listrænni tilurð þessa
verks. Hann hafði ákveðnar hug-
myndir um samstarfsmenn, sem
hann reyndi að koma á framfæri
við mig, en sem ég fór ekki eftir.
Hann reyndi líka að hafa áhrif á
samstarfsmenn Heikinheimos,
en hann hlustaði heldur ekki á
hann. Menn láta ekki skikka sig
til að vinna með fólki heldur velja
þeir sjálfir sína samstarfsmenn.
- Hrafn virðist ekki hafa sætt
sig við þetta og því miður tók að
bera á miklum samstarfsörðug-
leikum hans fyrst við Thor, síðan
við Heikinheimo og loks við mig.
Ég vil taka það fram að ég mun
aldrei vanmeta hlut Hrafns í því
að ráðist var í þessa framkvæmd
og aflað til hennar fjár. Þar stóð
hann sig mjög vel og ég er honum
þakklátur fyrir það. Sem emb-
ættismaður íslenska Sjónvarps-
ins hefur hann staðið sig vel. En
hann hefur ekki fengið að taka
eina einustu listræna ákvörðun.
Hann er skrifaður framleiðandi
þessarar myndar, en er til þess
eins settur að sjá til þess að fjár-
hagsáætlunin fari ekki úr bönd-
um, það er allt of sumt.
- Nú er Vikivaki kominn á úr-
vinnslusviðið, efnissöfnun er lok-
ið og það sem eftir er er til að
mynda textun á norðurlandamál-
in svo mynd og tónlist njóti sín.
Þessu munum við þrír, ég, Thor
og Heikinheimo fylgja eftir. Svo
er komið að kynningunni og við
þrír erum einhuga um hvernig að
henni skuli staðið. Það hefur ver-
ið mjög gaman að vinna að þessu
verkefni, ég hef góðar vonir um
að hér sé að verða til hið merk-
asta listaverk og von til þess að
það komi til með að vekja athygli
á íslenskum söngvurum og
leikurum erlendis. Eins vonumst
við til þess að Vikivaki verði upp-
haf samvinnu óperu og norrænna
sjónvarpsstöðva, þá er tilgangin-
um náð.
LG
Það gerist ekkert hér
Nú mun ljóst vera, aíí hugmyndir
svonefndrar landsliðsnefndar sem
fráfarandi stjórn Bridgesambandsins
skipaði nýlega, hafa misst marks með
öllu. Aðeins 4-5 pör sóttu um þátttöku
f undirbúningshópi. Að sögn fram-
kvæmdastjóra sóttu aðeins 4 pör um,
en haft er eftir einum „nefndar-
manna“ að 5 pör hafi sótt um og
möguleiki væri á sjötta parinu (sic...).
\ frumtillögum nefndar, sem
auglýstar voru að hluta nýlega, var
gert ráð fyrir 8-10 pörum í hópi, sem
kæmi saman einu sinni í viku fram að
áramótum. Þá yrði haldin eins konar
keppni (sem engin keppni yrði í, því
hún átti ekki að hafa áhrif nema að
hluta til á endanlegt val liðs) og hóp-
urinn skorinn niður í ca. 4-6 pör, sem
síðan héldu áfram æfingum, þar til
endanlegt lið 3 para yrði valið (með
handafli; þ.e. með hliðsjón af æfing-
um). Ekki lá Ijóst fyrir er auglýsingin
var birt, hver skyldi annast endanlegt
val, því hluti „nefndarinnar" ætlaði
sér að taka þátt í æfingum og er ekk-
ert nema gott um það að segja. Öllu
óljósara getur þetta nú ekki orðið og
því gerðu menn sér grein fyrir. Þeim
vonum sem einhverjir kunna að hafa
borið í brjósti um breytt vinnubrögð í
BRIDGE
18 SfÐA - NÝTT HELGARBLAÐ
þessum efnum sem öðrum í starfi Bri-
dgesambandsins, hefur endanlega
verið sökkt á dýpsta hafsbotn.
Eða eiga þessi mál að fá að líða
áfram, hægt og hljótt, og stefnan
áfram sett á 16. sætið?
Helgi Jónsson og Sverrir Ármanns-
son sigruðu Opna minningarmótið á
Selfossi um síðustu helgi. 35 pör tóku
þátt í mótinu, sem var með
barometer-sniði. f 2.sæti urðu Aðal-
steinn Jörgensen og Einar Jónsson og
Matthías Þorvaldsson og Ragnar
Hermannsson í 3. sæti.
Anton Haraldsson og Pétur Guð-
jónsson sigruðu Norðurlandsmótið í
tvímenning (bæði svæðin), sem spilað
var á Hvammstanga sl. laugardag. 26
pör tóku þátt í mótinu. f 2. sæti urðu
bræðurnir Ásgrímur og Jón Sigur-
björnssynir frá Siglufirði. Keppnis-
stjóri var Jakob Kristinsson.
Opna sveitamótið á Húsavík verð-
ur spilað dagana 3.-5. nóvember
(föstudag til sunnudag). Spilaðir
verða 7 leikir með 16 spilum, eftir
Monrad-fyrirkomulagi (efstu sveitir
hverju sinni, sem ekki hafa mæst
áður). 2 leikir á föstudegi, 3 á laugar-
degi og 2 á sunnudegi. Keppnisgjald
pr. sveit er kr. 12.000. í boði er sér-
stakur „pakki": Rvík-Hvík-Rvík
(flug og gisting í tvíbýli í 2 nætur með
morgunverði, kr. 11.000 pr. mann).
Verðlaunin verða kr. 100.000 í 1.
verðlaun, kr. 50.000 í 2. verðlaun og
kr. 25.000 í 3. verðlaun. Þátttaka til-
kynnist fyrir mánaðamótin til Ferða-
skrifstofu Húsavíkur (Guðlaug) í s.
96-42100. Björgvin Leifsson (s. 96-
42076 og vs. 41344) veitir ennfremur
allar nánari upplýsingar.
Minnt er á skráninguna í íslands-
mót kvenna og yngri spilara í tví-
menning, sem spilað verður um þessa
helgi í Sigtúni 9. Skráð er á skrifstofu
BSI. Mótin hafa hlotið dræmar undir-
tektir til þessa.
Kristjánsmótið á Sauðárkróki er
spilað um þessa helgi. Þetta er boðs-
mót og er pörum af Norðurlandi boð-
in þátttaka.
Nokkuð ljóst er að Bridgesam-
bandið mun verða af talsverðum tekj-
um í Landsbikarkeppninni í tvímenn-
ing, sem spiluð er í þessari viku. Staf-
ar það af lélegri kynningu á keppn-
inni. Mörg félaganna fengu keppnis-
gögn ekki í hendurnar fyrr en á
mánudag/þriðjudag í þessari viku,
auk þess sem kynning var ekki nógu
áhrifamikil eða fullnægjandi með út-
sendum gögnum. Til þessa hefur ver-
ið lögð áhersla á að tekjur af keppn-
inni rynnu í húsakaupasjóð sam-
bandsins, auk þess sem gullstig eru
veitt fyrir efstu sætin. Bæði þessi atr-
iði vantaði, sem er miður, því þetta
keppnisform gefur spilurum á lands-
byggðinni tækifæri til að „kljást“ við
spilara á höfuðborgarsvæðinu, á
jafnréttisgrundvelli. Búast má við
mjög lélegri þátttöku.
í fundargerð stjórnar BSÍ frá 5.
október sl., má lesa orðrétt (varðandi
úrslitaleikinn í Bikarkeppni BSÍ):
„Stefnt er að því, að leikurinn fari
fram 10.-11. nóvember.“
f fundargerð hluta stjórnar BSÍ frá
22. september, má hins vegar lesa, að
forseti gerir tillögu um að leiknum
verði frestað (átti að spilast upphaf-
lega þá um kvöldið) og að Iagt verði
fyrir mótanefnd að ákveða tímasetn-
ingu fyrir úrslitaleikinn að höfðu sam-
ráði við hlutaðeigandi. Hér með er
lýst eftir glötuðu samráði...
Matthías Þorvaldsson og Ragnar
Hermannsson, í sveit Flugleiða, náðu
3. sætinu á Minningarmótinu á Selfossi
um síðustu helgi, eftir að hafa leitt
mótið undir lokin. Hér er fallegt spil
frá mótinu, þar sem vörnin hjálpar
Matthíasi nokkuð:
S: ÁKD952
H: KD
T: ÁD4
L:73
S: G8643
H: Á65
T: K
L: D1065
S: 7
H: G10842
T: 10752
L: Á84
Eftir opnun Ragnars í Norður (átt-
um breytt) á 2 laufum, enduðu sagnir í
3 gröndum og í Suður (Matthías).
Vestur fann laufaútspilið, lítið, drott-
ning og fjarki. Laufatía, áttan, nían og
sjöan. Þá fannst Austri nóg komið af
svo góðu, lagði niður hjartaás og spil-
aði síðan þriðja laufinu. Þá var komið
að Matthíasi, sem tók á ásinn og bað
félaga sinn kurteislega um að varpa
hjartakóng í slaginn. Síðan kom hjart-
agosi og hjartatía, og þegar nían birtist
frá Vestri, var ekki laust við að ánægj-
uhljóð heyrðist frá Matthíasi. í lokin
var svo tígullinn toppaður og aukabón-
us sá dagsins ljós, er kóngurinn kom
siglandi frá Austri. lOslagir og toppur.
Ólafur
Lárusson
Föstudagur 20. október 1989
S: 10
H: 973
T: G9863
L: KG92
Menn velja sjálfir
sína samstarfsmenn
Atli Heimir Sveinsson um Vikivaka: Hrafn Gunnlaugsson stóð sig
vel við fjáröflun, en listrænar ákvarðanir hefur hann ekki tekið
um.
Hrafn er aðeins settur til að sjá til þess að fjárhagsáætlun fari ekki úr
böndum, segir Atli Heimir. Mynd: Jim Smart.
Hrafn ræður
engu
- Alla sem unnu að kvikmynd-
inni valdi Heikinheimo, enda er
Atli Heimir Sveinsson hafði
samband við Þjóðviljann í til-
efni af grein um sjónvarpsóp-
eruna Vikivaka í Nýju Helgar-
blaði þann 6. október síð-
astliðinn. Vildi Atli Heimir mót-
mæla því að á greininni mætti
skilja að Hrafn Gunnlaugsson
hefði eitthvað með listrænar
ákvarðanir eða framleiðslu
óperunnar að gera. Hvoru-
tveggja væri rangt og því vildi
hann fá að rekja hvernig vinn-
an að óperunni hefði gengið
fyrir sig svo Ijóst væri hver
hlutur Hrafns væri.
- Vikivaki er samnorræn fram-
leiðsla og þetta er í fyrsta skipti
sem samvinna af þessu tagi hefur
verið reynd, segir Atli Heimir.
- Ég hef fylgt þessu verki eftir frá
byrjun og kem til með að fylgja
því þar til það verður tilbúið, en
frumsýning verður væntanlega
um næstu páska, á öllum Norður-
löndunum samtímis.
- Sagan Vikivaki eftir Gunnar
Gunnarsson var eitt af mínum
óskaverkefnum, ég er eiginlega
búinn að ganga með þá hugmynd
í aldarfjórðung að gera eftir
henni einhvers konar sviðsverk.
Þegar Nordvision svo sneri sér til
mín og bað mig að skrifa óperu
var ég ekki í vafa um hvaða efni
ég vildi taka fyrir, og þegar ég var
búinn að segja leikstjóranum,
Hannu Heikinheimo frá Finn-
landi söguna, varð hann mjög
hrifinn og taldi efnið rétt.
- Síðan byrjaði vinnan að
óperunni með því að við Gunnilla
Jensen dramatúrg frá Svíþjóð
fórum að skipta bókinni niður í
leiklistaratriði. Þetta var gert í
Svíþjóð og Finnlandi og sú skipt-
ing féll að mínum hugmyndum
um óperuna. Þetta var búið 1987
og eftir það gat ég gert verkáætl-
un og út frá henni kostnaðaráætl-
un, sem hægt var að leggja til
samþykktar fyrir Nordvision, og
þá fyrst var samþykkt að ráðast í
verkið.
Náin samvinna
- Næsta stig var að velja skáld
til að skrifa söngtexta eða libretto
upp úr bókinni og það féllst Thor
Viihjálmsson góðfúslega á að
gera. Textinn var síðan saminn á
grundvelli þeirrar verkáætlunar
sem ég og Gunnilla Jensen gerð-
um og það var mjög ánægjuleg
samvinna. Thor er afburðaskáld
sem ræður yfir mörgum strengj-
um í sinni hörpu. Hann er mikill
aðdáandi Gunnars Gunnars-
sonar og sú aðdáun var gagn-
kvæm þrátt fyrir þann aldursmun
sem á þeim var.
- Næsta stig var síðan að skrifa
músíkina og þá þurfti líka að
velja hljómsveitarstjóra sem væri
ábyrgur fyrir flutningi verksins.
Til þess var auðvitað ráðinn Petri
Sakari frá Finnlandi, sem nú er
aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands. Saman völdum
við svo söngvara og upptökur
fóru svo fram í Kaupmannahöfn í
maí síðastliðnum með kór og
hljómsveit Danska ríkisútvarps-
ins, þremur finnskum og tíu ís-
lenskum söngvurum. Þá kom að
því að velja leikara og það kom
auðvitað í hlut Hannus Heikin-
heimos leikstjóra.
- Samvinna okkar þriggja,
mín, Thors og Heikinheimos hef-
ur verið óskaplega náin og góð.
Thor var mér mjög eftirlátur og
fús til að breyta sínum texta eftir
mínum óskum, enda orðin
kveikja tónlistarinnar og eiga að
þjóna henni um leið, segir Thor.
Samvinna okkar Heikinheimos
byggist á einföldum skilmálum.
Hann sagði: Þú skrifar þína mús-
ík eins og þú vilt og sendir mér
hana jafn harðan og leyfir mér
síðan að prjóna minn myndræna
kontrapúnkt við hana. Þannig
höfðu allir fullkomið frelsi en
tóku auðvitað mið hver af öðr-
i