Þjóðviljinn - 20.10.1989, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 20.10.1989, Blaðsíða 6
Bamfjandsam- legt umhverfi á íslandi Foreldrar þjást af sektarkennd gagnvart börnum sínum, segir Hugo Þórisson sálfræð- ingur Einn þeirra sem látið hafa sig varða samskipti yfirvalda, skóla og foreldra við yngstu kynslóðina er Hugo Þórisson sálfræðingur. Við spurðum hann hvaða áhrif ríkjandi ástand í dagvistar- og skólamálum hefði á börnin og foreldra þeirra. „Ef við erum að ræða um yngstu börnin og þann þeyting sem foreldrar standa í með þau á milli leikskóla, athvarfs og heimi- lis, þá er ljóst að þetta skapar öryggisleysi og kvíða hjá barninu ef við miðum við hinn valkostinn, að barnið þurfi ekki að vera á nema tveim stöðum: leikskóla og heima. Allir vita að börn þurfa öryggi, og öryggiskennd skapast fyrst og fremst af stöðugleika í umhverfi og í því fólki sem börnin um- gangast. Við þær aðstæður sem foreldrum og börnum eru nú boðnar, er foreldrum hins vegar í mörgum tilfellum gert ókleift að veita þessa öryggiskennd. Ég átti þátt í að gera könnun meðal 7-11 ára skólabarna á höf- uðborgarsvæðinu, þar sem eink- um var kannað hvort börnin þjáðust af kvíðatilfinningu. í ljós kom að 20-25% barna voru hald- in meira og minna óljósum kvíða gagnvart skólanum. Kvíði getur birst á margan hátt: sem maga- verkur, ógleði eða höfuðverkur, t.d. Kvíði dregur mjög úr líkam- legri orku barnanna og ein- beitingarhæfileika, og kvíðinn bitnar ekki síst á námsárangri. Það er óeðlilega hátt hlutfall að í 25 nemenda bekk skuli 5-6 nem- endur þjást af kvíða. En hvaða áhrifhefur dagvistar- vandinn á samskipti barna og for- eldra? Það þarf ekki að taka það fram að samskipti barna og foreldra í umferðaröngþveitinu í höfuð- borginni verða mjög yfirborðs- kennd og ófullnægjandi fyrir börnin, sem sitja bundin í aftur- sætinu á meðan foreldrið sér um aksturinn eins og hver annar leigubflstjóri. Þegar heim er komið tekur oft ekki betra við: mesti annatfminn á heimilinu, matargerð og tiltekt. Síðan er borðað og börnin sett í rúmið. í þessu mynstri er mjög hætt við að samskipti verði ekki mettandi fyrir börnin, og því er mikilvægt fyrir foreldra að vanda til þess tíma sem þeir eiga með börnun- um. Ég hef oft orðið var við það að foreldrar og jafnvel fóstrur og kennarar þjást af sektarkennd vegna þess að þau geta ekki boð- ið börnunum það sem þau þarfn- ast. En samviskubit og sektar- kennd eru afar ófrjóar tilfinning- ar sem gera lítið annað en að draga úr fólki orku. Ábyrgðin liggur ekki síður hjá stjórnvöldum, sem bera sína stóru ábyrgð á því að skapa þetta umhverfí, sem ég vil kalla barnf- jandsamlegt. Þingmennirnirokk- ar eru flestir á þeim aldri, að þeir eiga ekki börn í grunnskóla. Þeir hafa kannski meiri áhuga á öldr- unarmálunum af skiljanlegum ástæðum. Menn virðast þurfa að upplifa þetta ástand sjálfir til þess að skilja eðli vandans. En við get- um orðað það þannig að þær að- stæður sem nú ríkja séu á kostnað frumþarfa barnsins: þarfanna fyrir öryggi og stöðug mannleg samskipti. _5|g Neyðarástand í Þótt um 85% íslenskra kvenna séu útivinnandi eiga einungis 12% barna kost á uppbyggilegri dagvistarstofnun og 46% kost á leikskólaplássi. Og biðlistarnir lengjast stöðugt Á íslandi hefur þátttaka kvenna í atvinnulífinu fariö hraðvaxandi síðustu áratug- ina, eða úr 20% árið 1960 í 85% árið 1985. Þessi mikla breyting hefurjafnframtvaldið byltingu í öllu fjölskyldulífi, og hefur það ekki hvað síst bitn- að á börnunum. En þrátt fyrir að börn hafa þannig verið svipt mæðrum sínum að um- talsverðu leyti, þá hefur samfélagið ekki talið ástæðu til þess að gefa nema 12% íslenskra barna á aldrinum 1- 6 ára kost á uppbyggjandi samfelldum leikskóla. Þjóðfé- lagið lítur enn á slíkt sem „neyðarúrræði" fyrir einstæð foreldri. En jafnvel börn ein- stæðra foreldra þurftu að bíða nærri ár til þess að fá slíkt pláss í Reykjavík, og ef slík foreldri taka upp á því að fara í sambúð er börnunum um- svifalaust sagt upp vistinni. Bleyjubörn eru óvelkomin Að mati stjórnvalda hefur þótt eðlilegra að bregðast við þessum breytingum með uppbyggingu leikskóla, sem veita þjónustu hálfan daginn með vaktaskiptum í hádeginu. En jafnvel þessi úr- lausn er ekki til staðar nema fyrir lítinn hluta, eða 46% ungbarna á landinu öllu frá hálfs árs til 6 ára aldurs. Auk þess hefur svo illa verið að uppbyggingu leikskóla staðið, að undantekning er að þeir séu mannaðir sérmenntuðu starfsfólki. Undantekning er einnig ef börn giftra foreldra í Reykjavík fá leikskólapláss áður en þau eru orðin þriggja ára. Kom fram í samtali okkar við Berg Felixson forstöðumann Dagvistar barna í Reykjavík, að leikskólarnir hefðu ekki aðstöðu til þess að taka við tveggja ára börnum þar sem þau væru ennþá með bleyjur og ekki væri hægt að skipta á þeim í leikskólum. Ekk- ert nýtt dagvistarheimili eða leik- skóli var opnað í Reykjavík á síð- asta ári, enda hafði borgarstjór- inn í mörgu öðru að snúast. En um síðustu áramót voru að sögn Kristínar Á. Ólafsdóttur borgar- fulltrúa 2000 börn í Reykjavík á biðlista eftir leikskóla- eða da- gvistarplássi. Sá listi segir þó ekki til um þörfina þar sem börn for- eldra í sambúð eiga ekki kost á dagvist og tveggja til þriggja ára biðtími er eftir leikskólaplássi. Um síðustu áramót voru að auki 1.065 börn hjá 364 dagmæðrum í Reykjavík samkvæmt heimildum Dagvistar barna, en víst má telja að ekki séu öll slík tilfelli skráð hjá borginni. Og eru þá vantaldar allar ömmurnar og ættingjarnir sem gegna dagmóðurhlutverki fyrir börnin sem bíða eftir þvf að fá sómasamlegan leikskóla á meðan pabbi og mamma eru að vinna. Dagvistar- tilboðum fækkar Athyglisvert er varðandi dag- vistarmálin í Reykjavík, að ef frá eru tekin börn starfsfólks á da- gvistarheimilum, þá hefur þeim börnum einstæðra foreldra sem njóta þessarar þjónustu fækkað á síðustu 4 árum úr 1.040 í 980, á meðan börnum starfsfólks hefur fjölgað úr 116 í 199. Biðröð barna einstæðra foreldra hefur þá lengst að sama skapi. Kristín Á. Ólafsdóttir borgar- fulltrúi sagði að fulltrúar borgar- stjórnarminnihlutans hefðu ítr- ekað lagt það til í borgarstjórn, að borgin verði 4% útsvarstekna í uppbyggingu dagvistarstofnana eða leikskóla barna og að efnt yrði til sérstaks átaks til þess að fullnægja þeirri knýjandi þörf sem er á úrbótum í þessum efn- um. Slíkum tillögum hefði verið vísað frá síðastliðin þrjú ár meðal annars með þeim afsökunum að ekki væri hægt að manna slíkar stofnanir. Ekki er tekið fram í frávísunartillögum hvort það séu hin tæknilegu vandamál við bleyjuskipti sem þar eru afger- andi - eins og forstöðumaður Dagvistar barna benti á í samtali við Þjóðviljann og áður er getið - en Kristín Á. Ólafsdóttir sagðist margoft hafa bent á það í borgar- stjórn að skortur á sérmenntuðu starfsfólki á leikskólum borgar- innar væri sjálfskaparvíti er staf- aði af of lágum launum borgar- innar til þessa starfsfólks. Nýtt skólastig Á vegum menntamálaráðu- neytisins er nú verið að vinna að frumvarpi um nýtt skólastig, leikskólastig, sem tekur til barna á aldrinum hálfs árs til 6 ára. Svandís Skúladóttir fulltrúi í ráðuneytinu segir að með þessu frumvarpi sé stefnt að fræðslu- skyldu en ekki skólaskyldu: að sveitarfélögum verði gerð lagaleg skylda að veita börnum á þessum aldri aðgang að leikskóla. Sam- kvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að hinn nýi leikskóli verði sveigjanlegri stofnun en sá sem nú viðgengst: börn geti dvalið 4, 5,6,7eða8klstí skólanum á dag, allt eftir þörfum foreldra. Svand- ís sagði að umtalsverða uppbygg- ingu þyrfti á leikskólum til þess að hægt væri að framkvæma þessi áform. Einnig væri ljóst að rekst- ur leikskólans yrði dýr. Á vegum Yngstu börnin Kennsluframboð til yngstu bekkja grunnskólans hefur farið minnkandi undanfarna áratugi. 40% 7-12 árabarna meira og minna ein heima á daginn Þótt leikskólatímabil barn- anna einkennist af martraðar- kenndum biðlistum, neyðar- úrræðum og þeytingi með börnin á háannatíma í um- ferðinni, þá tekur ekki betra við þegar börnin komast á grunnskólaaldur. Meginþorri 6 ára barna nýtir sér engu að síður þá þjónustu sem grunn- skólinn býður upp á fyrir þennan aldurshóp. En þá rekast menn á reglur sem eru með slíkum ólíkindum, að þær eiga sér enga hliðstæðu með- al siðmenntaðra þjóða: fslensk skólayfirvöld veita grunnskólum heimild til þess að veita þessum bömum kennslu sem svarar einni kennslustund á viku. Ef25 eruíbekknum,þá eru þetta 25 stundir. En ef um minni staði er að ræða, þar sem t.d. 3-5 börn eru á þessum aldri, þá er heimilt að veita þriggja til fimm tíma kennslu á viku. Verður ekki annað séð en að sú grófa mismun- un sem í þessari reglu er fólgin brjóti í bága við stjórnarskrána. Ný grunnskólalög Sólrún Jensdóttir fulltrúi í menntamálaráðuneytinu sagði í samtali við okkur að í fjárlaga- frumvarpi því, sem nú hefur verið lagt fyrir þingið, sé gert ráð fyrir fjárveitingu til þess að leiðrétta þetta grófa misrétti, þannig að öll 6 ára börn fái á næsta ári sama kennslustundafjölda og 7 ára börn. Jafnframt eru í vinnslu hjá menntamálaráðuneytinu drög að nýju lagafrumvarpi um grunn- skólann, sem gerir ráð fyrir því að öll 6 ára börn verði skólaskyld. Það þýðir að þau fá rétt til ókeypis námsgagna. Kennsluframboð til sjö ára barna mun nú vera innan við þrjár klukkustundir á dag, fimm daga vikunnar. En til þess að koma til móts við þær kröfur sem gerðar eru til grunnskólans um að hann sinni börnum betur í vinnu- tíma foreldra hafa skólayfirvöld fundið nýja lausn, sem einnig mun óþekkt meðal nágranna- þjóða okkar: upp hefur verið tekin svokölluð „viðvera" utan hins raunverulega skólatíma. Þannig geta foreldrar komið börnum sfnum í tímabundna geymslu í skólanum fyrir og eftir kennslu. Ný lausn: barnageymslur Á þessu var byrjað fyrir 4-5 árum, og er nú komið í flesta grunnskóla höfuðborgarsvæðis- ins. Þessi þjónusta gengur út á það að foreldrar geta komið 6, 7 og 8 ára börnum í „geymslu" í skólanum kl. 7.30 á morgnana, þó þau eigi ekki að byrja fyrr en kl 9. Sama þjónusta er veitt í há- deginu á milli kl. 11.30 og 13, en þá eru vaktaskipti í skólanum og er þessi viðverutími nýttur bæði af morgun- og eftirmiðdagsbörn- um. Þá er sama þjónusta einnig veitt frá kl. 15.30 til 17. Þessi ráðstöfun kemur þó ekki í veg fyrir vaktaskiptin í hádeg- inu, þar sem nær allir grunn- skólar eru tvísetnir. Fyrirkomu- lag þetta hefur verið vel þegið af foreldrum, sem búa við þetta neyðarástand, en það er einnig umdeilt meðal skólafólks, þar sem skólarnir eru ekki í stakk búnir til að veita þá faglegu 6 SÍÐA-NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 20. október 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.