Þjóðviljinn - 20.10.1989, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 20.10.1989, Blaðsíða 13
Bíll ársins Danir velja bíla ársins Eftir að hafna í fjórða sæti í Evópu í fyrra sigraði Renault 19 í kjörinu í Danmörku. Vol- vo í hagsmunaárekstrum á Norðurlöndum Spekingar í bílamálum kepp- ast um það einsog í öðrum grein- um að velja bestu nýju bílana á markaðinum hverju sinni. Brátt verður tilkynnt val á bíl ársins í Evrópu, en það er sú viður- kenning sem er jafnan veitt mest athygli hér á landi. í Danmörku hafa menn tekið forskot á sæluna og útnefnt Renault 19 sem bíl ársins þar í landi. Renault 19 Fjórtán tegundir bíla keppa um titilinn Bíll ársins í Evrópu 1990. Þannig vill til að Renault 19 kom á markað í flestum löndum Evrópu í fyrra og keppti því um titilinn þá. Þá hafnaði Renault- inn í fjórða sæti, á eftir Fiat Tipo, Opel Vectra og VW Passat. Mikl- ar sveiflur eru oft á milli ára í svona keppnum og hefði Frakk- inn jafnvel átt möguleika á að vinna keppnina að þessu sinni. í sérstöku bílablaði danska blaðsins Politiken um síðustu helgi var tilkynnt val á bíl ársins í Danmörku. Það kom Volvo í Danmörku í opna skjöldu að Renault 19 skyldi vera valinn bíll ársins. Volvo hafði gert sér vonir um titilinn fyrir Volvo 440 en tókst ekki betur en svo að fimmta sætið féll þeim í skaut. Hinsvegar hefur Volvo umboð fyrir Renault í Danmörku og á fleiri Norður- löndum og setur þetta þá í nokkra klípu þarsem Renault framleiðir bíla að sömu stærðum og fyrir svipaðan markaðshóp og Volvo. Misminni blaðamann ekki vakti það einmitt athygli á sínum tíma þegar Renault 9, bfll ársins í Evr- ópu 1982, fékkst ekki seldur í Danmörku vegna þess að Volvo óttaðist að hann minnkaði sölu á þeirra eigin bílum. En hvað um það, næstu bílar í kjörinu í Danmörku voru Mazda 323, Ford Fiesta, Skoda Favorit og Volvo 440. Tveir fyrstnefndu hafa hefð fyrir sínu nafni, en eru nú í talsvert breyttri útfærslu. Það gerist æ algengara að bflafram- leiðendur halda sömu nöfnum á bílum sínum í langan tíma þótt þeir breytist hvað eftir annað. Þá vekur það óneitanlega athygli að Skódinn skuli vera svo ofarlega í þessu kjöri. Evrópa 1990 Mazdan, Fordinn og Skódinn keppa allir um bíl ársins í Evrópu en kjörið verður kunngjört eftir hálfan annan mánuð. Ellefu aðr- ar bflategundir koma til greina í þetta kjör en þær eru: Audi V8, Citroen XM, Daihatsu App- lause, Honda Accord, Mercedes Benz 300/500 SL, Nissan Prairie, Nissan 200 SX, Nissan Maxima, Suzuki Swift, Subaru Legacy og VW Corrado. Nissan ætti að eiga ágæta möguleika á sigri með þrjár tegundir í hópi þeirra bestu. Blaðamaður Bil Motor og Sport í Danmörku heldur hinsvegar mest upp á Ford Fiestu, Hondu Accord og Citroen XM en þeir tveir síðartöldu verða með í kjör- inu í Danmörku á næsta ári. Það hlýtur að vera kominn tími til að þeir sem skrifa um bflamál á íslandi stofni sér klúbb og velji bíl ársins og fleira í þeim dúr. Ara- tuga hefð er fyrir þessu í öðrum löndum og því ekki hér í okkar brjálaða bílalandi. Eftirtaldir bfl- ar hafa verið valdir bílar ársins í Evrópu/Danmörku á þessum áratug: 81: Ford Escord/Escord, 82: Renault 9/VW Polo, 83: Audi 100/Ford Sierra, 84: Fiat Uno/ Uno, 85: Opel Kadett/Kadett, 86: Ford Scorpio/Scorpio, 87: Opel Omega/Peugeot 309, 88: Peugeot 405/Peugeot 405, 89: FiatTipo/Tipo, 90: ?/Renault 19. -þóm Ný bílasala hefur bæst í hóp þeirra sem fyrir eru þrátt fyrir miklar sveiflur í bílasölu. Hún heitir einfaldlega Bílasalan og er að Smiðjuvegi 4, í húsi Egils Vilhjálmssonar h/f. Eigandi er Ludvig Hraundal sem áður starfaði hjá E.V. og Bílasölunni Blik. Talsverðarendurbætur hafa verið gerðar á húsinu þannig að nú er þar rúmgóður innisalur sem einkum er ætlaður fyrir nýlega bíla en einnig er útisvæði fyrir fleiri bíla. Föstudagur 20. október 1989 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 13 Bílar ársins í Danmörku árið 1989: Fremst og til hægri er Renault 19, þá Mazda 323, Ford Fiesta oq loks Skoda Favorit sem hafnaði óvænt í fjórða sæti. BIFREIÐAEIGENDUR! SPARIÐ TlMA - SPARIÐ FYRIRHÖFN Rennið bílnum í gcgn hjá Bón- og þvottastöðinni, Sigtúni 3. Óhreinn bill er leiðinlegur - hreinn bill er augnayndi. Margir bileigendur hafa ekki tima til þess að þvo og bóna bíla sina en flestir hafa 12-15 min. aflögu (sem þarf til að fara með bil gegnum Bón- og þvottastöðina, Sigtúni 3). Bilarnir eru tjöruhreinsað- ír, siðan háþrýstiþvegnir og um leið fer fram undirvagnsþvottur. Þessu næst er bill- ínn þveginn með mjúkum vélburstum og einnig fer fram handþvottur sem er nauð- synlegur (hægt er að fá bilinn eingöngu handþveginn). Siðan fer billinn gegnum bónvélina og loks fer hann gegnum heitan blástur og er snyrtur. Það tekur ekki mikinn tíma að Iáta þvo og bóna reglulega en það eykur endingu bilsins og ánægju bileigandans. Ath. Vegna afkastagetu stöðvarinnar, sem er yfir 40 bilar á klst., er biðtími stuttur, nánast enginn. Tima þarf ekki að panta. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 8.00-18.40. OPIÐ LAUGARDAGA KL. 9.00-16.40. Bón- og þvottastöðin hf. Sigtúni 3, Sími 14820.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.