Þjóðviljinn - 20.10.1989, Side 7
uppeldismálum íslendinga
ráðuneytisins er nú verið að
kanna hina ýmsu valkosti varð-
andi skiptingu kostnaðar, og
sagði Svandís of snemmt að ræða
þau mál að svo stöddu. Hins veg-
ar væri stefna ráðuneytisins skýr:
Dagvistarheimili eða leikskóla-
stigið eigi að byggja á sömu for-
sendum og grunnskólinn til þess
að skapa samfellu í uppeldinu.
Því börn fæðist ekki 6 ára, eins og
margir stjórnmálamenn virðist
nú halda.
Við þetta er einungis því að
bæta að hér á Vesturlöndum þyk-
ir það til marks um gjaldþrot hins
sovéska hagkerfis að víðast í A-
Evrópuríkjunum þurfa menn að
bíða árum saman eftir að fá
keyptan bíl. Hvert stefnir það
þjóðfélag, þar sem börnin þurfa
að bíða árum saman eftir þeirri
umönnun sem þau þurfa
nauðsynlega á að halda hér og
nú?
afskipt í skólakerfinu
umönnun sem boðleg er við þær
aðstæður sem boðið er upp á.
Ragnar Georgsson hjá skóla-
skrifstofu Reykjavíkur sagði að
þeir litu á þetta sem „neyðar-
hjálp“, og hann sagðist vona að
þetta yrði ekki til þess að slæva
áhuga ráðamanna á að lengja
skóladaginn.
Lengri
skóladagur
Lengi hafa menn talað fagur-
lega um lengingu skóladags og
samfelldan einsetinn skóla, en
hvernig er það í reynd? Arthúr
Mortens sérkennslufulltrúi, sem
á sæti í menntamálanefnd Al-
þýðubandalagsins sagði að hlutur
menntakerfisins af þjóðartekjum
hefði haldist nokkuð óbreyttur
lengi, eða 14-15%. Hins vegar
hefði hlutur grunnskólans farið
minnkandi, jafnvel þótt laun
kennara hafi að einhverju verið
bætt. Minnkunin kemur einkum
fram í minna kennsluframboði
hjá yngri bekkjardeildum grunn-
skólans. Á meðan þátttaka
kvenna í atvinnulífinu hefur vax-
ið úr 20% í 85% frá 1960 til 1985
þá hefur kennsluframboðið í
grunnskólanum verið minnkað
um um það bil 10% á sama tíma.
Arthúr Morthens sagði það vafa-
sama stefnu hjá stjórnvöldum að
auka hlut yfirbyggingarinnar í
skólakerfinu á meðan grunn-
skólinn væri látinn sitja á hakan-
um.
Sólrún Jensdóttir sagði í sam-
tali við blaðið að í því frumvarpi
að nýjum grunnskólalögum sem
nú væri unnið að á vegum
menntamálaráðuneytisins væri
fyrst og fremst mörkuð sú stefna
að lengja skólahald 6, 7 og 8 ára
bama um 10-15% á næstu 3
árum. Þá verður það framtíðar-
markmið sett inn í lögin, að stefnt
sé að einsetnum skóla og að
skólinn bjóði upp á lengri viðvem
og fleiri verkefni en beina
kennslu. Sagði Sólrún þetta vera
stórt verkefni og hefði verið sú
hugmynd verið rædd að stefna að
framkvæmd á 10 árum.
Undantekning
frá reglunni
Þótt langflestir skólar á höfuð-
borgarsvæðinu séu tvísetnir, þá
eru til undantekningar. Ein
þeirra er Fossvogsskóli. Þar er nú
verið að gera tilraun á vegum
menntamálaráðuneytisins: með
lengdan samfelldan skóladag:
eldri börnin eru í skólanum frá kl.
8.10 til 14.20, en þau yngri írá
8.50 til 12.30. Gæsla er veitt á
morgnana frá kl 7.45 fyrir börn
foreldra sem fara snemma til
vinnu. Kári Arnórssbn skóla-
stjóri sagði að þótt ekki væri
komin nema hálfs annars mánað-
ar reynsla á þetta fyrirkomulag,
þá hefðu þeir þegar orðið varir
við mikla ánægju meðal foreldra.
Áberandi væri líka að kennararn-
ir hefðu afslappaðri og betri tíma
til þess að sinna allri undirbún-
ingsvinnu við þessar aðstæður.
„íslenskir foreldrar eru allt of
kröfulitlir gagnvart skólanum,“
sagði Kári. „Eg veit ekki til þess
að tvísetnir skólar eins og hér
tíðkast séu til í öðrum löndum.
Þetta er alveg séríslenskt fyrir-
bæri. Engum skóla á að leyfast að
láta nemendur þurfa að fara í
skólann tvisvar eða þrisvar á dag.
Þá ætti ekki að leyfa það að
kennsla fari fram eftir kl 16 á dag-
inn. Krakkar eru ekki móttæki-
legir fyrir nám eftir þann tíma.
Nú er hins vegar algengt að eftir-
miðdagsnemendurnir séu til kl.
17.
Skólinn sem
menningar-
miðstöð
„Það er augljós krafa að
skólinn fái lengri tíma með börn-
in,“ sagði Kári. „Ekki bara til
beinnar kennslu, heldur einnig til
annarra starfa. Einkaskólar sem
nú eru dreifðir út um bæinn og
kenna tónlist, dans, föndur, tölv-
uvinnslu og margt fleira, eiga
heima innan skólans. Á Húsavík
hefur Tónlistarskólinn t.d. lengi
verið innan veggja barnaskólans
til mikils hagræðis fyrir alla aðila.
Skólarnir eiga að þjóna sínu
hverfi að þessu leyti sem alhliða
menningarmiðstöðvar. “
Aðspurður um álit á því fyrir-
komulagi sem skólarnir hafa boð-
ið uppá með aukinni „viðveru“ í
upphafi og lok skóladags sagði
Kári að þetta væri vandræða-
lausn. Við núverandi aðstæður
vantaði bæði búnað og uppeldis-
menntað fólk til að sinna þessu
hlutverki. Þessi starfsemi ætti að
vera í öðru húsnæði og með öðru
starfsfólki en kennurum, og það
væri hlutverk borgarinnar að
byggja þetta upp.
Kári sagði jafnframt að mjög
misjafnt væri, hvernig skólarnir
gætu mætt þessum kröfum.
Skólarnir í nýju hverfunum væru
yfirleitt yfirsetnir og oft væri
íþróttaaðstaða annars staðar en
sjálfur skólinn.
Sjoppur í
staö skóla
Grunnskólar á Norðurlöndun-
um eru ekki bara frábrugðnir
þeim íslensku að því leyti að þeir
eru einsetnir. Skólarnir sjá böm-
unum einnig fyrir næringarríkri
máltíð í hádeginu. Hér á landi
hafa fræðsluyfirvöld talið væn-
legast að fela svokölluðum sjopp-
um þetta hlutverk. Um þetta
segir í skýrslu Ólafs Ólafssonar
landlæknis: Mannvernd í velferð-
arþjóðfélagi: neyslukönnun
meðal 10-14 ára skólabarna í
Reykjavík árin 1977 og 1978
leiddi í ljós að allt að fjórðungur
daglegrar neyslu þessara barna
kemur frá söluskálum. Enn frem-
ur: „Sykurneysla hefur aukist
gífurlega, aðallega vegna þess að
neysla sælgætis, sætabrauðs og
gosdrykkja hefur aukist og sam-
svarar um 1/4 af heildarneysl-
unni, en árið 1938 var neysla
þessara tegunda um 5% af
heildarneyslu.“ Og enn fremur:
„Mikið er leitað til söluskála í
fæðuleit, en þar eru nær eingöngu
seldar tilbúnar vörur. Þar býðst
nær eingöngu sælgæti og vítam-
ínsnautt litað sykurvatn...Börn
og unglingar ráða miklu um eigið
fæðuval. Hætt er við að skilaboð
yfirvalda um hollari fæðuval og
neysluvenjur nái ekki vel til
bama og unglinga, því að veru-
legur hluti 7-12 ára barna gengur
sjálfala mikinn hluta dagsins
vegna mikillar vinnu foreldra."
Að þessu upptöldu má ljóst
vera að jafnt er nú komið með
foreldrum og fræðsluyfirvöldum
á íslandi: hvorugur aðilinn getur
með réttu horft kinnroðalaust
framan í uppvaxandi kynslóð.
Hvenær verður mælirinn fullur?
Föstudagur 20. október 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 7