Þjóðviljinn - 20.10.1989, Page 11
® •
Reykjavík
300 miljóna reikningsgat
Rekstrarkostnaður borgarinnar vegna heilsugœslu vanáœtlaður um 116 miljónir við útreikninga vegna breyttrar
verkaskiptingar ríkis og sveitarfélaga. 280 miljón króna kostnaður vegna tannlœknaþjónustu gleymdist og skrifast
stœrsti hlutinn á Reykjavík. ÓlafurRagnar Grímsson: Aldrei ætlunin að Reykjavík græddi300 miljónir á kostnað
Landsmanna
Rckstrarkostnaður Reykjavík-
ur vegna heilsugæslu og
hcimaþjónustu reyndist van-
reiknaður um rúmar 100 miljónir
króna þegar reiknaðir voru út
kostnaðarliðir vegna verkaskipt-
ingar ríkis og sveitarfélaga.
í Þjóðviljanum í gær var greint
frá því að þær forsendur sem
sveitarfélögin hefðu lagt fram
þegar gengið var frá frumvarpinu
í fyrra, hefðu verið mjög götótt-
ar. Par hefði skakkað um 400-500
miljónir króna. Lang stærsti hluti
þessarar skekkju er vegna
Reykjavíkurborgar.
Indriði Þorláksson, hagsýslu-
stjóri, sagði við Nýtt Helgarblað í
gær, að Reykjavíkurborg hefði
áætlað að kostnaður vegna
heilsugæslu í borginni væri um 61
miljón króna á ári. Samkvæmt
áætlun heilbrigðisráðuneytisins
reyndist kostnaðurinn hinsvegar
177 miljónir króna og skakkar
þar því urn 116 miljónir.
Indriði sagði að inn í út-
reikninga Reykjavíkur hefði
vantað meirihlutann af rekstrar-
kostnaði heilsugæslustöðvarinnar
auk þess sem heimaþjónustan
hefði alls ekki verið reiknuð með.
Samtals reyndist kostnaður
vegna heilsugæslu í landinu vera
vanáætlaður um 200 miljónir
króna.
Þá reyndist kostnaður vegna
tannlæknaþjónustu ekki hafa
verið reiknaður með, en hann
nemur um 280 miljónum á ári og
er þá miðað við verðlag 1989.
Stærsti hluti þess skrifast einnig á
Reykjavík. Varlega áætlað skrif-
ast á Reykjavík um 150 miljónir
af kostnaði vegna
tannlæknaþjónustu þannig að
borgin hefur vantalið hátt í 300
miljónir króna.
„Það hefur ekki enn verið
reiknað út hvernig sá kostnaður
skiptist, en ég býst við að lang-
stærsti hlutinn sé vegna
tannlæknaþjónustu í Reykja-
vík,“ sagði Indriði.
Þótt ákveðið hafi verið að
fresta því að taka uppgjör ríkis-
sjóðs inn í fjárlög þar til gert hefði
Kostnaður vegna tannlækna-
þjónustu gleymdist.
verið út um þennan þátt þá
standa aðrir þættir samkomulags-
ins sem gert var við sveitarfé-
lögin. Þannig er Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga t.d. óskertur í fjár-
lagafrumvarpinu. Breytingin á
lögum um verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga var fyrst og fremst í
þágu smáu sveitarfélaganna, en
ekki til þess að Reykjavíkurborg
hagnaðist á breytingunni einsog
borgin myndi gera ef forsendurn-
ar frá því í fyrra væru látnar halda
sér.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði að lögin um
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga hefðu fyrst og fremst verið
gerð fyrir smáu og miðlungsstóru
sveitarfélögin.
„Það var aldrei tilgangur þess-
ara breytinga að Reykjavík
græddi yfir 300 miljónir á ári á
kostnað hins sameiginlega sjóðs
allra landsmanna," sagði Ólafur
Ragnar.
„Það var bara ákveðið að
fresta að gera út um þessar end-
urgreiðslur þar til þessi mál væru
komin á hreint. Það stóð aldrei til
að ríkið bæri meiri útgjöld en
áður. Við teljum því að það beri
að endurskoða þessa útreikninga
áður en ákveðið verður hverjar
endurgreiðslurnar verða og að
það beri að gera það áður en fjár-
lögin verða endanlega afgreidd
frá alþingi,“ sagði Indriði.
Sáf
Borgarminjavörður
Mælt með Margréti
Meirihluti menningarmála-
ncfndar borgarinnar ákvað í gær
að mæla með Margréti Hall-
grímsdóttur fornleifafræðingi
sem borgarminjaverði. Margrét
hefur m.a. stjórnað uppgreftrin-
um í Viðey.
Fulltrúar minnihlutans, Kristín
Á. Ólafsdóttir og Bryndís
Schram, sátu hjá við afgreiðsl-
una. Kristín lét bóka að hún teldi
að skipa hefði átt dómnefnd til að
meta hæfni umsækjenda. Sú til-
laga var felld á fundinum.
Umsækjendur voru ellefu.
-Sáf
Suðurlandsskjálfti
13.000 manna byggð í hættu
Guðjón Petersen: Ef áhrif Suðurlandsskjálfta yrðu sambœrileg og varð á Kópaskeri 1976 gœti 13.000 manna byggð
á Suðurlandi orðið óbyggileg. Nýfengin reynsla sýnir að byggingarstaðlar standast ekki kröfur.
Reynslan frá Mexíkó 1985 sýnir að byggingastaðlar standast ekki álag. Mynd: Ragnar Stefánsson.
Jarðskjálftarnir í Kaliforníu
hafa a ný beint huga manna að
jarðskjálftahættunni á Suður-
landi. Misgengissvæðið sem
liggur um þvert Suðurland frá
Ölfusi að Heklu hefur verið að
safna í sig orku í nær heila öld, og
sérfræðingar eru ekki í vafa um
að þessi orka muni leysast úr læð-
ingi með kröftugri skjálftahrinu á
næstu áratugum. Ef mynstrið
verður það sama og 1784 og 1896
mun hrinan byrja austantil á
svæðinu og færast síðan vestur í
átt að Selfossi á nokkrum dögum
eða vikum.
Reynslan frá
Kopaskeri
Guðjón Petersen forstjóri Al-
mannavarna sagði í samtali við
Þjóðviljann að auðvitað væru
jarðskjálftar eins og þeir sem
urðu nú í San Francisco, í Mexíkó
1985 og í San Fernando 1971 lær-
dómsríkir, en mestu vitneskjuna
sem við höfum um skjálftaþol ís-
lenskra mannvirkja sé þó kannski
að finna í reynslunni frá Kópa-
skeri 1976, en þá varð jarðskj álfti
sem mældist 6,3 stig á Richter-
kvarða í 10 km. fjarlægð frá bæn-
um. Afleiðingarnar voru í stuttu
máli þær, að bærinn varð óbyggi-
legur vegna skemmda á húsum,
eyðileggingu á skolp- og vatns-
Ieiðslum og hitaveitu. Ef við flytj-
um þessa reynslu yfir á hættu-
svæðið á Suðurlandi, þá erum við
að tala um 13.000 manna byggð í
sömu aðstöðu.
í skýrslu Almannavarna um
Suðurlandsskjálfta frá 1978 er
bent á að byggðir eins og Hvera-
gerði, Selfoss, Laugarás, Flúðir,
Hella og Hvolsvöllur séu innan
hættusvæðisins. Sömuleiðis
mannvirki eins og Ölfusárbrú,
Sogsbrú, Iðubrú, Þjórsárbrú,
Brúin yfir Ytri Rangá og Eystri
Rangá. Þá er einnig bent á að
Búrfellsvirkjun og Sogsvirkjanir
liggja við norðurmörk svæðisins
og aðaldreifilínur raforkukerfis-
ins frá Hellisheiði að Kirkjubæj-
arklaustri. í skýrslunni er jafn-
framt bent á að mjög lítið sé vitað
um skjálftaþol þessara mann-
virkja, en jarðskjálftahættan er
fyrst og fremst fólgin í áhrifum
skjálftans á mannvirki. Við
spurðum Guðjóri Petersen hvað
hefði gerst í þessum efnum síðan
1978. Vitum við eitthvað betur
hvar við stöndum nú?
-í fyrsta lagi er rétt að geta þess
að skýrslan frá 1978 var tekin al-
varlega, og strangara eftirlit hef-
ur verið haft með mannvirkja-
gerð síðan. En hvað varðar eldri
byggingar erum við ekki miklu
nær. Við vitum þó að um 30%
húsa á Suðurlandi eru hlaðin, og
slíkar byggingar þola jarðskjálfta
ver. Allt frá því að skýrslan var
gerð höfum við lagt til að úttekt
verði gerð á öllum opinberum
byggingum á svæðinu, en því hef-
ur ekki verið sinnt, nema hjá
Vegagerðinni og Landsvirkjun.
Menn eru hins vegar að læra
það nú, af reynslunni frá San
Francisco, Mexíkó og víðar, að
jarðskjálftastaðlar þeir sem not-
ast hefur verið við standast ekki
að öllu leyti. Staðlar þessir hafa
byggt á burðarþolsútreikningum,
en nú hefur komið í ljós að það er
einnig lögun mannvirkisins, sjálf-
ur arkitektúrinn, sem skiptir máli
og einnig jarðvegurinn og gerð
jarðskorpunnar sem mannvirkið
er reist á. Að fenginni þessari
reynslu er ljóst að það eru margir
óvissuþættir í íslenskum bygging-
um, þannig að við vitum ekki
hvernig þær munu standast jarð-
skjálfta. Þá er eftirliti ábótavant,
þannig að þótt ákveðin járna-
binding sé t.d. til staðar á
teikningu, þá er enginn ábyrgur
aðili sem fylgist með að hún sé
framkvæmd.
Landsvirkjun
á varðbergi
Við vitum hins vegar meira um
orkumannvirkin og brýrnar.
Landsvirkjun hefur yfirfarið öll
sín mannvirki og bætt úr þar sem
veikleika var að finna. Og eftir að
jarðskjálftaskýrslan kom út var
þriðju orkulínunni frá Hrauneyj-
arfossi valinn staður norðan
hættusvæðisins og niður í Hval-
fjörð. Vegagerðin hefur sömu-
leiðis yfirfarið öll brúarmann-
virki með tilliti til jarðskjálfta-
hættu.
Þá er einnig vert að minna á
atriði sem mönnum hættir til að
gleyma, en það er festing á
innréttingum og innanbúnaði
húsa. í Mexíkó sáum við hvernig
þutrgir innanstokksmunir komu
út í gegnum húsveggi á húsum
sem stóðu að öðru leyti. Og í San
Fernando eyðilagðist tæknibún-
aður símstöðvanna þótt bygging-
arnar stæðu.
Að lokum Guðjón, nú er hús
Fjölbrautaskólans á Selfossi að
stórum hluta úr gleri. Er sú bygg-
in byggð samkvæmt jarðskjálfta-
stöðlum?
Jarðskjálftastaðlar lágu fyrir
þegar teikningin að skólahúsinu
var samþykkt, og hún hefur síðan
verið yfirfarin af jarðskjálfta-
verkfræðingi og fengið grænt
ljós. Engu að síður hefur menn
greint á um réttmæti slíkrar bygg-
ingar á þessum stað.
-ólg
Föstudagur 20. október 1989; NÝTT HELGARBLAÐ - SIÐA 11