Þjóðviljinn - 20.10.1989, Blaðsíða 14
abriel
Höggdeyfay
ÍéA
GSvarahlutir
Hamar<shnfAa 1
Hamarshöfda 1
Simar 36510 og 83744
Hjá okkiir er enginii kostnadur
vegna mælingor eða isclningar & rafgeymum.
85 úra reynsla liyggir góða þjóuustu.
PéLAR HF.
ralgeynaþjAiinirfa - EinboUl 6 - Box 500» - 105 Kcykjavík - Sími 618401
BÍLAR
1. Skipt um kerti
2. Skipt um platínur
3. Hreinsuð geymissambönd
4. Rafgeymir mœldur
5. Rafhleðsla mœld
6. StaKari mældur
7. Viftureim stillt
8. Kúpling stillt
9. Rúðusprautur stilltar
10. ísvari á rúðusprautur
11. Þurrkublöð athuguð
12. Frostlögur mældur
13. Olía á vél mæld
14. Vélarstilling
15. Ljósastilling
4 str. vél kr. 4.975
fyrir utan efni
Kerti, platínur og ísvari á rúðusprautur
innifalinn í verði)
Bílasala
Bordtnn
Smiðjuvegi C 24
Kópavogi, sími 72540
hf.
Sveiflur á nýjum og notuðum
Eftir gífurlegan samdrátt virðist sala á nýjum bílum hafa jafnað sig á
ný og sölumenn notaðra bíla horfa til betri tíma
Versnandi hagur þjóöar-
bús, samdráttur, kreppa, eða
hvaö menn vilja kalla þaö
hverju sinni hefur haft mikil
áhrif á bifreiðaviðskipti
landans, sem er eitt besta
dæmiö um sveiflur í íslensku
efnahagslífi. Sala á nýjum
bifreiðum dróst verulega
saman á fyrri hluta þessa árs
en hafa verður í huga að þjóð-
in var á fjárfestingarfylliríi
næstu árin á undan. Þessar
sveiflur höfðu ekki síður áhrif
á sölu notaðra bíla og hefur
gengið mjög misjafnlega að
selja notaða undanfarin miss-
eri.
Gífurlegur samdráttur
Skemmst er að minnast yfirlits
Bílgreinasambandsins frá því í
sumar yfir sölu á nýjum bílum
fyrri hluta árs samanborið við
sama tíma í fyrra. f ljós kom að
salan hafði dregist saman um
Bílasölur hafa verið yfirfullar á þessu ári en ætla má að rýmra verði um hvern bíl á næstunni. Mynd: Jim Smart.
tæplega 4000 bfla á aðeins fimm
fyrstu mánuðum ársins.. Salan
hafði minnkað frá 6528 í 2642 bfla
fyrstu fimm mánuði ársins sem
mjög merkileg þróun.
Nú má ekki taka þessar tölur
svo alvarlega og segja sem svo:
Fjöldi bíla sem klendingar kaupa
í ár er aðeins 40% miðað við
venjulegt ástand. Árið 1988 var
nefnilega ekki venjulegt ár í
þessu tilliti og ekki geta menn
endalaust haldið áfram að kaupa
fleiri bíla. Þessi staðreynd (fjár-
festingarfyllirí síðustu ára) hefur
ekki síður haft áhrif á minnkandi
sölu á nýjum bflum og versnandi
hagur heimilanna gerði. Þar að
auki hefur verð á nýjum bflum
farið vaxandi á ný eftir gífurlegar
verðlækkanir á því sviði. Þarfasti
þjónn nútímans hefur því átt
mjög undir högg að sækja að und-
anförnu og er útlit fyrir að svo
verði einnig á komandi misser-
um.
Notaðir bílar
En hvaða áhrif hefur þetta á
sölu á notuðum bflum? Flestir
bflasalar segja að verðhrunið á
nýjum bflum hafi komið sér afar
illa fyrir þá. Salan jókst svo gífur-
lega á nýjum bflum á sama tíma
og erfitt var að losna við notaða
bfla og því tóku margir upp á því
að eiga fleiri bíla en áður. Fyrir
vikið varð mjög slæm sala á bíla-
sölum því eigendur notaðra bíla
áttu erfitt með að sætta sig við að
eign þeirra lækkaði svo mikið í
verði.
Einhver kippur virðist vera að
koma í söluna á ný í kjölfar
minnkandi sölu nýrra bfla. Salan
var þó mjög róleg á fyrri hluta
ársins, en þá virtist sem menn
keyptu hvorki nýja bfla né not-
aða. Sumir bflasalar sögðust
jafnvel ekki muna eins slæma
sölu í fjölda ára. Nú hafa menn
leitað á notaða markaðinn á ný
og stefnir í góðæri hjá bflasölum á
komandi misserum. Búist er við
áframhaldandi samdrætti í sölu á
nýjum bílum en bflasalar notaðra
bfla segjast ekki óttast um sinn
hag á næstunni.
Eitt af því sem einkennt hefur
markaðinn á notuðum bflum í
ríkari mæli er hve menn geta gert
góð kaup ef rétt er boðið. Bflasöl-
urnar voru yfirfullar í sumar og
tóku sumir hvaða tilboði sem var
bara til að losa um fé. Framboð á
notuðum bílum er enn mjög
mikið þannig að þótt eftirspurnin
hafi aukist hafa kaupendur úr
miklu að velja, en eigendur
illseljanlegra bfla eiga erfitt um
vik. Þannig má gera góð kaup
með því að bjóða á réttan hátt í
réttu tegundirnar.
Staðgreiðsla er án efa lang hag-
stæðasti greiðslumátinn fyrir
kaupendur. Afsláttur er gefinn
þetta 10-25%, allt eftir hvaða teg-
und er um að ræða, og heyrst hef-
ur staðgreiðsluafsláttur upp á allt
að þriðjung bflverðsins. Venju-
lega hefur ástæðan fyrir stað-
greiðsluafslætti verið mikil afföll
og vanskil á víxlum og skulda-
bréfum en ástandið í íslensku
efnahagslífi hefur ekki síður átt
hlut að máli að undanförnu.
Margir keyptu bfla um efni fram á
sínum tíma og nú þegar komið er
að skuldadögum verða menn að
ná að selja þótt það kosti ein-
hvern afslátt. Fyrir vikið hefur
reynst mönnum betur að fá lán í
banka ef hægt er að ná verðinu
niður, enda þótt útlánsvextir
banka séu með óhagstæðara móti
um þessar mundir.
-þóm