Þjóðviljinn - 20.10.1989, Síða 23
DÆGURMAL
HEIMIR MÁR
PÉTURSSON
að minnsta kosti fjórum útgáfum
og finnst mér „Jet mixið“, af Reg-
ínu langbesta útgáfan. Útgáfan á
„Hér í dag...“ er miklu flatari og
daufari.
Ef ég ætti að nefna þau lög
plötunnar sem falla best að mín-
um smekk yrði röðin nokkurn
veginn þessi: „Speed Is The
Key“, „Dear Plastic", „Pump“,
„A Day Called Zero“, „Tidal
Wave“ og „Regína“. Illskuleg
rödd Einars Arnar í bakgrunnin-
um í „Pump“ er að vísu dálítið
pirrandi við fyrstu heyrn, en með
tímanum verður hún nauðsyn-
legur undirtónn við létta og meló-
díska sönglínu Bjarkar. Þessi lög
eiga það sameiginlegt að vera
húkkandi þegar búið er að setjast
einu sinni niður með textablaðið
fyrir framan sig og hlusta.
Þá er lag á „Hér í dag...“ sem
sker sig nokkuð frá öðrum lögum
plötunnar og það er „Planet“.
Fjarrænt lag um heimssýn plán-
etu, óravíddirnar, smæðirnar og
margt þar á milli. Gítarleikur
Þórs í þessu lagi er nettur og sýnir
hvernig lítið og einfalt getur virk-
að vel. Þór er ekki mikill gítar-
leikari en hann notfærir sér mjög
vel hljómtæknina og býr til
skemmtilegan gítarhljóm. Syk-
urmolarnir í heild „fitta“ mjög
vel saman. En sterkustu burðar-
bitarnir eru engu að síður Sigt-
ryggur og Björk. Sigtryggur er of-
boðslega hugmyndaríkur og ör-
uggur trymbill og framlag hans til
Sykurmolanna er mjög mikið.
Björk verður síðan betri og betri
söngkona með tímanum og er
farin að syngja skýrar, kannski
vegna þess að textarnir sem hún
syngur fara batnandi? Raddsvið
Bjarkar er sérstakt og hún beitir
því af miklum galdri.
En þó ekki væri nema vegna
innanbandspólitíkur Sykurmol-
anna, væri ljótt að nefna ekki alla
meðlimi bandsins til sögunnar.
Einar Örn er eins og ómissandi
slettireka í Sykurmolunum. Mér
hefur lengst af þótt sviðsfram-
koma hans sársaukafull og óþar-
flega móðgandi, en í seinni tíð
hefur hann slípað aðeins til
broddana og virkar miklu betur.
Sem söngvari er hann oft
nauðsynleg viðbót við Björk. Þá
er trompetleikur hans farin að
skipta máli stundum.
Bragi er hljóðláti maður Syk-
urmolanna. Hann skilar sínu án
þess að maður taki eftir því og er
að því leytinu skyldur Ringo
Starr. Bragi er þó vafalítið betri
bassaleikari en Hringur trommu-
leikari.
„Here Today Tomorrow Next
Week“ er skref fram á við hjá
Sykurmolunum og ég held að
sumir gagnrýnendur erlendir eigi
eftir að sjá dálítið eftir neikvæðni
sinni. Lögin á plötunni eru að
vísu mörg, eða 16, og hefðu
nokkur þeirra mátt missa sín. Þau
skemma frekar heildarmyndina
en hitt, „Shoot him“, til dæmis.
Sykurmolarnir eru um þessar
mundir á tónleikaferðalagi í
Bretlandi og hefur víðast verið
vel tekið og uppselt hefur verið á
flesta tónleika sveitarinnar. „Hér
í dag...“ fór í 70. sæti Billboard-
listans bandaríska í síðustu viku
og hefur sveiflast til á breska
sölulistanum. Fyrst fór hún í 15.
sæti listans, síðan féll hún niður í
40. sæti, en er nú komin upp í 17.
sæti.
íslensku útgáfunni hefur
seinkað nokkuð. En forsvars-
menn Smekkleysu segja mér að
hún sé væntanleg í næstu viku.
-hmp
Óréttlæti heimsins er töluvert,
svo ekki sé minna sagt. Breska
popppressan sem dásamaði Syk-
urmolana fyrir „Life's Too
Good“, fær ekki orða bundist yfir
því hvað „Here Today Tomorr-
ow Next Week“, sé vond plata
við hliðina á „Lífið er of gott“.
Pressuhundur eins blaðanna
sagði í enda umfjöllunar sinnar
um „Here Today..." „Life's Too
Short“, eða lífið er of stutt. Þessi
athugasemd hefur að öllum lík-
indum átt að vísa til þess að Syk-
urmolarnir væru búnir að vera
eftir stutta ævi.
Þessi viðbrögð Melody Maker
og NME sanna fyrir undirrituð-
um hvað þessi blöð eru oft úti að
aka. Þau stunda það að henda
upp hljómsveitum með miklum
látum og lýsa þeim eins og verald-
arundrinu, en taka þær síðan af
lífi með sömu öfgunum. Hvað
Sykurmolana varðar hef ég oftar
en ekki verið ósammála þessum
blöðum. Þegar Sykurmolarnir
voru í uppáhaldi hjá þeim, voru
molarnir varla inni á korti hjá
mér. Á „Life's Too Good“ voru
að mínum dómi fjögur ágæt lög,
„Blue Eyed Pop“, „Coldsweat",
„Deus“, „Birthday“ og „Mot-
orcrash", í þessari röð nokkurn
veginn. Þetta fannst mér vera
bestu popplögin á plötunni og við
vissar kringumstæður voru þau
bara helv... góð. Að öðru leyti
var ég upptekinn við annað en
Sykurmolana.
Skýringin á því hvað breska
pressan tekur nýju plötunni illa,
gæti verið að „Lífið er of gott“ var
meiri poppplata þar sem hún er
poppuðust en „Hér í dag...“.
Lögin á nýju plötunni grípa mann
ekki í dagsins önn eins og „Deus“
og „Coldsweat" gerðu. „Deus“
og „Coldsweat" eru þau lög Syk-
urmolanna sem komast næst því
að vera fullkomin popplög. Strax
við fyrstu áheyrn brutust þau inn í
betri stofur rokkdeildar heilans
og komu sér þar fyrir í virðuleg
sæti.
Bestu lögin á „Hér í dag..eru
miklu þungmeltari en þetta. Það
gildir líka um „Hér í dag...“ eins
„Here Today
Tomorrow
Next Week“
er skref
fram á vió hjá
Popp
verksmiðjunni
Sykurmolar.
og sumar aðrar plötur, að það
verður að hlusta töluvert hátt á
hana. Enda er þetta skemmtitón-
list og illa hentug fyrir lyftur stór-
markaða og almennar kjötfars-
og kartöflusöluverlanir. Ef hlust-
að er hátt á fyrsta lag plötunnar
„Tidal Wave“, kemur í ljós hið
smekklegasta popplag. Hljóð-
færaleikur Sykurmolanna hefur
breyst mikið til batnaðar, og
innganga Margrétar á hljóm-
borðið er til góðs. Brassið hans
Óla Gauks í þessu lagi er vel not-
að og ánægjulegt að unga kyn-
slóðin skuli hafa uppgötvað eldri
fagmenn tónlistarinnar á íslandi.
Ég legg til að Raggi Bjarna verði
fenginn til að syngja eitt hentugt
lag með Sykurmolunum.
Textar skipta miklu máli þegar
plötur eru annars vegar. Góð
tónlist er miklu betri með for-
vitnilegum textum. Sykurmol-
arnir hafa í sykurkari sínu tvö hin
mætustu skáld, Braga og Þór, og
verður það að teljast molunum til
happs. Björk og Einar eru líka
liprir pennar á stundum. Textar
Sykurmolanna eru ruglingslegir
og sundurtættir eins og veru-
leikinn. Oft stendur ekki steinn
yfir steini í þeim myndum sem
molarnir draga upp í textum sín-
um, en engu að síður ættu aliir
sem hafa litið út fyrir nefbrodd-
inn á sér að kannast við alla dell-
una.
„Speed Is The Key“ er dæmi
um texta af þessu tagi, þar sem
eðlur þjóta um á leifturhraða og
menn undrast að enginn skuli
virða geimregturnar lengur.
Björk fer með hlutverk geimkon-
unnar af mikilli innlifun. „Speed
Is The Key“ er popplag klisjað og
þvælt af mikilli fagmennsku og
slær alveg út átrúnaðargoð Syk-
urmolanna Boney M og Abba.
Stefnubreyting Sykurmolanna
er töluverð. Mér finnst hún til
góðs aðallega vegna þess að það
er meira spunnið í lögin á „Hér í
dag...“ en á „Lífið er of gott“.
Það væri rangt að segja að Syk-
urmolarnir hefðu þyngst, væri
nær að segja að þeir hefðu flækst
og rokkast á köflum. Regína er
það lag sem mest hefur heyrst í
opinberum fjölmiðlum. Lag sem
er í meðallagi miðað við af-
ganginn á plötunni. Þetta lag um
fréttaritara DV hefur komið út í
Afríka á ís
Það vita kannski ekki margir
að á meðan Cab Kaye var á ls-
landi í sumar, tók hann upp sex
lög í hljóðveri í Reykjavík. Áður
hafði Cab spilað inn á um 26
plötur á hart nær fimmtíu ára tón-
listarferli en þær plötur voru allar
hefðbundnar djassplötur. f þetta
skipti hljóðritaði hann í fyrsta
sinn tónlist sem er í anda þeirrar
alþýðutónlistar sem hann
kynntist sem ungur maður í
heimalandi sínu Ghana. Tónlist
af þessu tagi hefur sennilega
aldrei verið tekin upp á íslandi
áður, enda hefur hún haft undra-
verð áhrif á þá sem hafa á hana
hlýtt.
Lítið útgáfufyrirtæki, Ax, fékk
áhuga á að Cab hljóðritaði þessa
tónlist, eftir að hafa heyrt hann
spila hana á ýmsum stöðum í
Reykjavík. Það furðulega var að
þegar útgefandinn nefndi hug-
myndina við Cab, þá var hann
nýbúinn að semja lag sem hann
tileinkaði íslandi. Hann hafði
komið til íslands tvisvar sinnum
Cab Kaye með Afríku á fs.
Mynd - Jim Smart
áður, fyrst 1952 og aftur 1984.
Eftir því sem hann kynntist meira
landinu fóru áhrif þess að koma
fram í honum og afraksturinn var
gullfallegt lag sem hann kallar
„Iceblue". En í því lagi talast við
tromma og píanó, eins og Cab
orðar það sjálfur.
Vegna þess hvað útgáfufyrir-
tækið er fátækt, hafa upptökur
Cabs aðeins verið gefnar út á ka-
settu. Kasettan nefnist „Africa
On Ice“ og er hún til í tveimur
útgáfum. Onnur útgáfan eru 150
númeruð og árituð eintök, þar
sem ekkert umslag lítur nákvæm-
lega eins út og annað. Síðan er
kasettan til ónúmeruð og þá er
umslagið án allra sérkenna. Á
kasettunni eru sex lög sem Cab
hefur samið og syngur og leikur
öll sjálfur. Hvert lag fyrir sig er í
raun saga. „Ah Kwili Wa Ba“, er
til dæmis lítil saga af markaðnum.
En textarnir eru flestir á móður-
máli Cabs, Ghanísku.
Hljómplötuverslunin Gramm-
ið við Laugaveg er með „Africa
On Ice“ til sölu, ein verslana.
Símanúmer Ax-útgáfunnar er 96-
52164 eða 96-52105 (Pétur Þor-
steinsson).
hmp
í betri stofum heilans
Föstudagur 20. október 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 23