Þjóðviljinn - 17.11.1989, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 17.11.1989, Blaðsíða 2
SKAÐI SKRIFAR Ég ver kristindóm fyrir lýðræðinu H! • • « g> O <? § c? <y o \ RÓSA- GARÐINUM KVALALOSTI ÍSLENSKRA FYRIRTÆKJA íslandslax óskar eftir gjaldþ- roti. Tíminn ÞAÐEREINSOG HVERSJÁIUPP UNDIR SJÁLFAN SIG MEÐ ÞAÐ Steingrímur Hermannsson er sagður alltof málgefinn. Mér finnst það ekki ljóður á hans ráði því sjálfur er ég málgefinn. Tíminn FER ÞÁ STJÓRNIN TIL FYRIRHEITNA LANDSINS? Mér skilst á umræðu í blöðum að ef stjórnin færi yrði það líkt og þegar Guð frelsaði ísraelsmenn úr ánauðinni í Egyptalandi. Tíminn HENDIR EKKIPERL- UM FYRIR SVÍN Zsa Zsa ( Gabor leikkona) rakar saman fé og grýtir brauði í fólk. Morgunbla&iA ER ÞJÓÐIN LIONS- KLÚBBUR? Þjóðin á ljónshjartað. Sjálf- stæðismanna er herópið og hvatningin til dáða. Ég, Skaði, er ekki afskiptasamur um trú- mál. Hvorki mín né annarra ef út í það er farið. Mér finnst hinsvegar vissast að trúa á Jesúm og svoleiðis, vegna þess að það gerði hún amma mín sem gaf mér kandís þegar ég var lítill og prjónaði á mig vettlinga. Vettlingana á ég enn. Auk þess finnst mér að það sé meiri ábyrgðarkjölfesta í því samfélagi sem heldur fast utan um sína trú. En eins og þið munið þá kom alls konar rutl og vitleysa í samfélögin þegar vísindamennirnir þóttust ekki lengur koma auga á guð í sínum stjörnukikjum og varð þá til bæði kommúnisminn og kratism- inn og önnur óáran kom í mannfólkið. Það er lika í þessum ábyrga varðveislu- anda að ég tek alltaf treglega undir gagnrýni á okkar þjóðkirkju og allar hennar sælu pok- apresta. Mér finnst það fánalegt þegar þetta unga fólk er að skopast með aðsókn að kir- kjum á sunnudögum, sem sé langt undir vinsældum skemmtistaða og Stöðvar tvö. Hvurnig haldið þið, segi ég þá, að kirkjan geti keþpt við skemmtistaðina um sætanýt- ingu og það á sunnudagsmorgnana þegar þjóðin er timbruð og getur ekki hreyft sig? Haldið þið að kirkjan sé einhverskonar afrétt- arabar eða hvað? Auðvitað er hún það, segir þá Karl frændi minn Jónsson. Jæja, segi ég þá, á nú að fara að rifja upp að trúin sé ópíum og bjór fyrir fólkið og þá þvælu alla úr Marxi. Nei alls ekki, sagði Karl ( Marx) Jónsson frændi minn, sem er allur orðinn svo hógvær eitthvað eftir að Berlínarmúrinn sprakk. Ég á bara við það, að menn eru einmitt svo næmir og móttækilegir fyrir almættinu og öllu and- legu þegar þeir eru timbraðir-og skjálfa eins og hrísla í vindi. Eymd mannsins gefur guði séns, segja vitringarnir. Ég nennti nú ekki að taka mark á þessari andlegu uppljómun í frænda mínum komm- anum. Aftur á móti veit ég ekki alveg hvað ég á að gera við þá sem eru eitthvað að súpa öl með Óðni, toga í skeggið á Þór og klípa Freyju í læfið, þykjast, með öðrum orðum sagt, vera Ásatrúar. Allt í nafni þjóðernisins náttúrlega. Einn þessara manna er vinur minn Einar, sem skrifaði mjög merkilegt lesendabréf í Morgunblaðið á dögunum Hann var að kvarta yfir því, að þjóðkirkjan væri alltaf að messa í ríkisútvarpinu en sjálfur Sveinbjörn allsherjargoði kæmist þar ekki að með sinn boðskap. Gerir það nokkuð til? spurði ég. Víst gerir það til, sagði Einar. Erum við ekki frjálsir menn eða hvað? Vildir þú hafa bara úr einni bílategund að velja eins og Rússar? Vildir þú hafa bara eina sjónvarpsrás? Hvað kemur það málinu við? spurði ég. Guð er guð, eða það hefi ég alltaf haldið Nei lagsi, sagði Einar vinur minn, það er enginn kominn til með að segja það að Guð sé guð. Kristindómurinn er nefnilega ófrjáls og andlýðræðislegur. Eins og ég benti á í Morgunblaðinu þá hefur hann bara einn guð eins og Stalínisminn. Ásatrúin hefur heilt þing af guðum. Gakktu í sjóðinn og sæktu þér hnefa lagsi! Uns sál þín er mettuð og barma- full! Hver guöinn til síns brúks! Ásatrúin, vinur minn kær, sameinar frelsi neytendans og anda lýðræðisins. Hefur maður nokkuð að gera við lýðræði í eilífðinni? spurði ég. Eða eitthvað síkjaftandi guðaþing eins og alþingi hér? Ég skil bara ekki þessa þvermóðsku í þér, Skaði minn, sagði Éinar. Viltu ekki hafa það huggulegt í öðru lífi? Viltu vera háður dutt- lungum einhvers einvalda sem getur gert hvað sem honum sýnist og það um aldir alda? Hvað á það að þýða að þykjast vera lýðræðisvinur þessa heims en auðmjúkur al- ræðisþegn hinummegin, viltu segja mér það? Já en Einar minn, sagði ég. Það eru nú ekki beinlinis leynilegar kosningar og svo- leiðis hjá Óðni í Valhöll. Óðinn er æðstur guða, hinir verða að súpa það súra öl. Að sjálfsögðu, sagði Einar. Þetta er alveg eins og í Valhöllinni hér i Reykjavík. Goðin þinga og vega hvert annað í góðsemi en það er Davíð sem ræður. Þú meinar hann Þorstein Pálsson? sagði ég. Það sem ég hefi sagt, það hefi ég sagt, sagði Einar. Vogar (Blaft Sjálfstæ&is- manna í Kópavogi) VÉRSTYÐJUM HANNSEMSNAR- AN HENGDAN MANN Sjálfstæðismenn um land allt hljóta að styðja Jón Baldvin ein- dregið til áframhaldandi for- mennsku í Alþýðuflokknum meðan hann minnkar jafn ört og formennskutíð Jóns lengist. Vogar HIÐ UNDURSAM- LEGA SAMHENGI í TILVERUNNI íslendingar geta haft vit á einu og öðru en víst er að fjármálavit er ekki þar á meðal. Hallbjörn stendur enn keikur í stafni DV- listans en róðurinn fer að þyn- gjast með hverjum deginum og nýjar plötur bætast við á markað- inn. Poppsífta DV VIÐ EIGUM ÖLL SVO BAGT Geta mafíuforingjar átt við samskonar vandamál að stríða og almenningur? Já að vissu leyti, eins og kemur fram í (kvikmynd- inni) Original Sin þar sem þemað er rán á barnabami mafíufor- SVO ERMIKILL SATANS KRAFTUR Ef þú hefðir ekki selt Satan sál þína myndir þú dást að þeim kon- um sem eftir þriggja ára nám í Fóstruskólanum tækju það að sér að ala upp börn almennnings. Lesendabréf í DV 2 SIÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 17. nóvember 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.