Þjóðviljinn - 17.11.1989, Síða 9
Viðbrögðin í
Bundestag voru
heimskuleg
Viljum ekki sameinað Þýskaland segja
austurþýsk ungmenni, sem hér eru í heim-
sókn á vegum UMFÍ
„Það var bæði kjánalegt og
heimskulegt að sjá viðbrögð
þingmannanna í þinginu í Bonn
þegar þeir sungu þjóðsönginn
„Deutschland, Deutschland uber
alles“ eftir að Berlínarmúrinn
hafði verið opnaður. Við sáum
líka að sumir þingmennirnir voru
vandræðalegir, og Kohl kanslari
söng ekki textann heldur blíst-
raði. Þetta var fáránlegt," sögðu
10 austurþýsk ungmenni sem
dvalið hafa hér á landi í kynnis-
ferð.
Hópurinn er frá Dresden og er
hingað kominn á vegum eins kon-
ar ferðaþjónustu austurþýsku
æskulýðssamtakanna, FDJ og
Ungmennafélags íslands. Flestir
innan hópsins eru vinnandi fólk í
ýmsum starfsgreinum, en einn er
námsmaður. Þótt hópurinn sé á
vegum FDJ, sem eru æskulýðs-
samtök sósíalíska einingarflokks-
ins, SED, þá eru þau ekki öll fé-
lagar í honum. Ein stúlka í hópn-
um er talandi á íslensku, þótt hún
hafi aldrei til íslands komið áður.
Hún sagðist starfa á bókasafni.
Viljum ekki
kapítalisma
Þær umbætur sem verið er nú
að framkvæma í DDR eru bæði
nauðsynlegar og óumflýjanlegar,
en okkur líkar ekki þegar V-
Þjóðverjar láta eins og að við vilj-
um selja okkur undir vesturþýsk
yfirráð eða sameinast Sambands-
lýðveldinu. Þetta eru ólík þjóðfé-
lög með ólíka þjóðfélagsskipan
og í ólíkum bandalögum, og við
viljum ekki innleiða kapítalisma í
okkar landi. Við kjósum ekki að
leiða yfir okkur þjóðfélagskerfi
þar sem allt gengur út á neyslu,
og þar sem sérhyggjan og sér-
hagsmunapotið er ráðandi í
mannlegum samskiptum.
Hverju viljið þið þá breyta,
hvaða umbœtur eru mest ákall-
andi?
Við höfum orðið vör við það að
hér á Vesturlöndum halda menn
að ferðafrelsið skipti okkur
mestu máli. Það er misskilningur.
Það sem skiptir okkur mestu máli
eru annars vegar efnahagslegar
umbætur og hins vegar að sjálf-
stæði og tjáningarfrelsi einstakl-
ingsins sé virt og að fréttaflutn-
ingur og fjölmiðlun sé bætt. Við
höfum of mikið skrifræði og of
mikla miðstýringu. Áætlunar-
búskapurinn hefur reynst hemill
á framfarir og það þarf að auka
sjálfstæði einstakra fyrirtækja.
Við teljum ekki að einkavæðing í
iðnaði sé rétta leiðin, og við vilj-
um ekki innleiða kapítalisma. En
það mætti vera meiri einkavæð-
Austurþýsku ungmennin í kringum eldhúsborðið í húsi UMFÍ við Bárugötu í fyrradag. Ljósm ólg.
ing í þjónustugreinum og það
þarf að opna möguleika fyrir er-
lent fjármagn og samvinnu við er-
lend fyrirtæki um rekstur. Þótt
við stöndum betur efnahagslega
en önnur A-Evrópuríki, þá höf-
um við dregist aftur úr tæknilega.
Tölvubyltingin hefur t.d. farið
framhjá okkur, og þegar við höf-
um flutt inn vestrænan tæknibún-
að höfum við oft átt í erfiðleikum
með viðhald vegna tregra við-
skiptasambanda.
Ánnað atriði sem við teljum
mikilvægt er að sú regla sé virt að
mönnum sé umbunað eftir fram-
lagi sínu og vinnu. Það er of
mikið um það í okkar þjóðfélagi
að fólk þiggi laun án þess að
leggja tilsvarandi vinnu á móti.
Það verkar lamandi á efnahaginn
og frumkvæði og vinnugleði
hinna. Þetta á bæði við um vinn-
ustaði og skóla.
Nú talar flokksforystan um að
það eigi að efna til frjálsra kosn-
inga. Hvaða flokkar munu taka
þátt í þeim?
Það eru 5 flokkar í DDR: SED
(kommúnistaflokkurinn), Frjáls-
lyndi demókrataflokkurinn,
Þjóðlegi demókrataflokkurinn,
Kristilega lýðræðisbandalagið
(CDU) og Bændaflokkurinn.
Umbótahreyfingin Neues Forum
stefnir ekki að flokksmyndun eða
kosningaframboði.
Flokkur
og ríki
Hvaða vonir bindið þið við
nýja flokksleiðtogann og forset-
ann, Egon Krenz?
Það er óneitanlega erfitt að
skilja, hvernig hann hefur getað
kúvent í afstöðu sinni eins og
raun ber vitni. Og það er ekki
æskilegt að sami maður gegni
tvöföldu forystustarfi eins og
hann sem flokksleiðtogi og for-
seti lýðveldisins. En það verður
að virða að hann hefur fram-
kvæmt umbætur, hann hefur
beitt sér persónulega fyrir þeim
og lýst því yfir að ekki verði grip-
ið til kínverskra aðferða í Á-
Þýskalandi. Við gætum vel hugs-
að okkur mann sem hefði sterkari
persónuleika í hans stöðu, en það
þarf líka að gefa núverandi stjórn
sín tækifæri.
En hvað um Hans Modrowfor-
sœtisráðherra og flokksleiðtoga í
Dresden?
Hann er hugrakkur maður sem
þorði að standa upp og gera það
sem nauðsynlegt var. Hann er í
miklum metum, að minnsta kosti
í Dresden.
Að lokum, hvernig kemur ís-
land ykkur fyrir sjónir?
Þetta er gott land og fallegra en
við bjuggumst við. En verðlag er
hér hátt, og margar nauðsynjar
mun dýrari en hjá okkur. Bygg-
ingarlistin hér í Reykjavík kemur
okkur undarlega fyrir sjónir, við
höfum ekki séð neitt sambærilegt
annars staðar. Við höfum fengið
allgóða hugmynd um vestræn
samfélög í gegnum sjónvarpið,
og í raun koma hlutirnir okkur
ekki svo mikið á óvart.
Hópurinn dvelur hér í viku og
fer á laugardag.
-ólg
Föstudagur 17. nóvember 1989 NYTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 9