Þjóðviljinn - 08.12.1989, Page 4
BÓKABLAÐ
Hugsaðu vel um þig!
Eruð þið hrædd við kransæðasjúkdóm? Er orkan alveg á þrotum?
Fæddist barnið of snemma? Eða langar ykkur að læra listina að elska?
Lausnin er hér!
Mál og menning hefur hafið út-
gáfu á flokki handbóka undir
heildarheitinu BETRA LÍF.
Fjórar bækur eru komnar út og
um býsna ólík efni. Ein þeirra er
nú prentuð í þriðja sinn: hin vin-
sæla og merkilega bók Listin að
elska eftir Erich Fromm í þýðingu
Jóns Gunnarssonar.
Bókin Fitusnautt fæði er hins
vegar frumsamið íslenskt verk.
Það er fréttamaðurinn góðkunni,
Margrét Jónsdóttir, sem deilir
með notendum bókarinnar
óvæntri reynslu sinni. Hún segir
svo frá í inngangi:
„Leiðin að hjarta mannsins
liggur í gegnum magann.“ Mér
fannst þetta gamla orðatiltæki
hafa fengið nýja merkingu þegar
maðurinn minn kom heim úr
Betri næring, betri heilsa, betri
líðan, betra samfélag, BETRA
LÍF. Mynd: Jim Smart.
rannsókn hjá Hjartavernd með
þann úrskurð að blóðfitan hefði
aukist. ... Ég hafði ævinlega haft
gaman af að elda og borða góðan
mat og átti eigulegt safn af mat-
reiðslubókum og úrklippum úr
blöðum og tímaritum. Mér fannst
ég geta haldið bókabrennu...
Það er skemmst frá því að segja
að fjölskyldan tók upp nýtt mat-
aræði til að lækka blóðfituna hjá
heimilisföðurnum og árangurinn
lét ekki á sér standa. í bókinni
gefur Margrét uppskriftir að ótal
ljúffengum réttum, súpum og
forréttum, fisk- og grænmetis-
réttum, kjúklingaréttum, eftir-
réttum og kökum, sem öllum er
ætlað að gera okkur lífið léttara
og lengra.
Að vera útbrunninn - hvað er
það? spyrja félagsráðgjafarnir
Barbro Bronsberg og Nina Vest-
lund í bókinni Utbrunninn. Þær
svara með því að lýsa stig af stigi
hvernig manneskja brennur upp
af þreytu, vonbrigðum eða van-
mætti, og segja svo: „Sumir
brenna út á innan við einu ári,
aðrir spjara sig í nokkur ár eða út
allt lífíð ... En mikilvægt er að
hafa í huga að alltaf má breyta til
batnaðar og stöðva það sem er að
gerast. Það er aldrei of seint...“
Höfundar hafa haldið ótal
námskeið í heimalandi sínu fyrir
fólk sem vill ekki brenna upp
fyrir aldur fram og fyrir þá sem
finnst þeir vera útbrunnir og vilja
ná sér á strik aftur. Þessi bók er
afrakstur af því starfi og nauðsyn-
leg fyrir alla eldhuga sem eiga á
hættu að ganga of nærri sér. Aft-
ast í bókinni er kafli um „hollar
venjur" sem allir hafa gagn af.
Ólafur G. Kristjánsson þýddi
bókina og staðfærði þegar nauð-
syn bar til.
Fyrirburar er fyrst og fremst
ætluð foreldrum sem eignast barn
fyrir tímann. Þar eru útskýrð
ýmis vandamál sem kunna að
koma upp allt frá fyrstu klukku-
tímunum sem barnið lifir og fram
á skólaár. En þó að bókin sé fyrst
og fremst ætluð foreldrum, segir
Gunnar Biering barnalæknir í
formála, „er hún jafnframt þörf
lesning fyrir starfsfólk sjúkrahúsa
sem fæst einkum við nýburameð-
ferð.“
Sigríður Sigurðardóttir þýddi
bókina og staðfærði til að hún
hentaði íslenskum foreldrum sér-
staklega.
Uglan, íslenski kiljuklúbbur-
inn, var stofnaður vorið 1986. 2.
apríl það ár fór fyrsti pakkinn til
um fjögur þúsund áskrifenda.
Um það leyti sem þetta Bókablað
kemur fyrir augu lesenda er sá
sautjándi í dreifíngu til rúmlega
sex þúsund áskrifenda. Við spyrj-
um Sigrúnu Ingjaldsdóttur, um-
sjónarmann klúbbsins, hvernig
hann starfi.
„Hann er öðruvísi bókaklúbb-
ur en fólk á að venjast," segir
Sigrún. „Það tekur okkur stund-
um dálitla stund að útskýra fyrir
fólki hvernig hann er hugsaður.
Þó er það í rauninni einfalt: fólk
er áskrifendur að bókapökkun-
um eins og tímariti. Á tveggja
mánaða fresti eða um það bil fær
það sendan heim bókapakka með
ekki færri en þrem bókum og
greiðir fyrir hann núna 780 kr.
fyrir utan sendingarkostnað -
sem er auðvitað frábært verð!
Verðinu er hægt að halda
svona lágu með því að allir fái
alltaf allar bækurnar, það ein-
faldar kerfið og gerir það ódýrt.
En gallinn er sá að fólk fær ekki
að velja bækur - ekki frekar en
það velur efni í tímariti eða dag-
blaði sem það er áskrifendur að.
Við höfum reynt að vega upp á
móti þessum ókosti með því að
hafa bókavalið breitt, en við
reynum líka að vera liðleg við
fólk og skipta á bókum ef það er
óánægt.
Klúbburinn hefur núna gefið
út um 40 titla, en sumir eru í fleiri
en einu bindi. Vesalingarnir og
Stríð og friður voru til dæmis í
fjórum bindum hvort verk, en
umfangsmesta útgáfan er Kvik-
myndahandbókin sem er fimm
stór bindi. Þetta er þýðing á vin-
sælli breskri handbók eftir Leslie
Halliwell, en við höfum orðið vör
við dálitla óánægju með hana.
Fólki finnst höfundur fordóma-
fullur og hlutdrægur og áttar sig
kannski ekki á að hann ætlar ekki
að gefa kaldar upplýsingar. Hann
er að segja skoðanir sínar á
myndunum."
Ótrúlega
breitt bókaval
- Erfólk annars ánœgt með val
á bókum í klúbbnum?
„Þegar áskrifendur eru orðnir
svona margir er auðvitað erfitt að
gera öllum til hæfis í hverjum
pakka. Mér finnst fólk skiptast í
Sigrún Ingjalds-
dóttir—sjálf fé-
lagi fráupphafi.
Mynd: Jim
Smart.
Ugla-hvað?
Uglan, íslenski kiljuklúbburinn er einstakur í sinni röð á Islandi.
Sigrún Ingjaldsdóttir: Reynum að gera öllum til hæfis
tvö horn. Annars vegar eru þeir
sem vilja létt og spennandi lesefni
- þeir voru til dæmis yfirleitt
ánægðir með Kvikmyndahand-
bókina. Hins vegar eru þeir sem
vilja fyrst og fremst sígilt efni -
þeir voru sumir óánægðir með
hvað Kvikmyndahandbókin tók
mikið rúm þegar hún var að
koma út.
En við erum með ótrúlega
breitt bókaval þegar á heildina er
litið og reynum að hafa hvern
pakka virkilega ósamstæðan
þannig að hann höfði til sem
flestra. Nýi pakkinn er gott
dæmi; þar er fyrst að telja úrval af
smásögum Ólafs Jóhanns Sig-
urðssonar, yndislegt og sígilt ís-
lenskt verk; svo er Jóakim vatns-
fælni eftir Jorge Ámado í þýð-
ingu Sigurðar Hjartarsonar,
skáldsaga eftir suður-amerískan
höfund sem sáralítið hefur verið
kynntur hér á landi - Mál og
menning hefur gefið út eina bók
eftir hann áður, sem var Ástin og
dauðinn við hafíð. Loks er svo
spennubók, Uns sekt er sönnuð
eftir Scott Turow.
Með pökkunum bjóðum við
oft bitastæð og ódýr aukatilboð
sem enginn er skyldugur til að
kaupa en auka breidjina. Vin-
sælast hefur reynst að höfða til
fjölskyldunnar, bjóða til dæmis
barnabækur og matreiðslubæk-
ur. Núna bjóðum við barnabæk-
umar Jólasögu og Jól í Óláta-
garði.“
Eyðir fordómum
Og Sigrún heldur áfram: „Ég
hef sjálf verið félagi í klúbbnum
frá upphafí, löngu áður en ég fór
að vinna fyrir hann, og mér
fannst skemmtilegast að fá
óvæntar bækur í pakka og gefa
einhverju tækifæri sem mér hefði
aldrei dottið í hug að fá mér.
Margir karlmenn hafa hringt og
sagt mér frá því hvað þeir hefðu
haft mikla fordóma fyrir Ævi og
ástum kvendjöfuls sem var í
pakka í fyrra. Samt hefðu þeir
lesið hana af því að hún var kom-
in inn á heimilið og hefðu
skemmt sér svona ofboðslega vel!
Ég held að svona klúbbur brjóti
niður fordóma hjá fólki. Það les
bækur sem því hefði aldrei dottið
í hug að kaupa sér í búð eða fá
lánaðar á bókasafni.
Eins og ég sagði áðan er ekki
hægt að afþakka einn og einn
pakka, áskrifendur fá þá alla
senda. En það má benda fólki á
að bækurnar eru prýðilegar til
gjafa - ef kunningjarnir eru ekki
allir í klúbbnum!“
Ritstjóri klúbbsins er Árni
Óskarsson.
4 SÍÐA