Þjóðviljinn - 12.01.1990, Síða 7
Vom bankalög bratin?
Samkvœmt lögum um viðskiptabanka megaþeir ekki eiga nema2% af
eiginfé í almenningshlutafélögum. Stöð 2 er ekki almenningshlutafé-
lag. Islandsbanki má samkvœmt lögunum binda um 50 miljónir í
hlutabréfum. Verslunarbankinn eignaðist250 miljón króna hlut
íStöð 2 síðasta dag ársins 1989. Hver rœður yfir 100 miljón króna hlut
eignarfélagsins nú? Erþað Islandsbanki? Erþað eignarfélagið?
Hverjar eru eignir eignarfélagsins?
Akvörðun Eignarhaldsfclags
Verslunarbankans um að
auka hiutafé Stöðvar 2 úr 5,5
miljónum í 400 miljónir og ganga
sjálft í ábyrgð fyrir 250 miljónir
hefur vakið upp ýmsar spurning-
ar varðandi lögmæti þeirrar að-
gerðar. Telja ýmsir innan bank-
akerfisins að lög um viðskipta-
banka hafí verið brotin, en sam-
kvæmt þeim mega bankastofnan-
ir ekki hafa meira en 2% af eigin
fé bundið í hlutafélögum.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans hóf Eignarhaldsfélag
Verslunarbankans strax mjög
grimma hlutafjársöfnun meðal
viðskiptavina bankans, sem
skilaði þeim árangri að á þriðju-
dag voru fjórum aðilum seldar
150 miljónir af 250 miljón króna
hlut Eignarhaldsfélagsins. Þeir
sem keyptu voru Guðjón Odds-
son formaður Kaupmannasam-
takanna, Jóhann Ólafsson for-
maður Verslunarráðs, Haraldur
Haraldsson formaður Félags ís-
lenskra stórkaupmanna og Jón
Ólafsson í Skífunni.
Félagið ætlar svo sjálft að eiga
100 miljónir. Fyrrverandi eigend-
ur Stöðvar 2 eru skráðir fyrir 150
miljón króna hlutafé. Þeir hafa
fengið frest til 5. febrúar að
Bankaeftirlitið hefur ekki séð
ástæðu til þess að hafa afskipti af
viðskiptum Verslunarbankans og
Stöðvar 2. Hinsvegar útilokar
það ekki þann möguleika að eftir-
litið kalli eftir upplýsingum síðar,
enda ættu öll gögn í málinu að
vera til.
„Við höfum elcki enn sem
komið er séð ástæðu'til þess að
greiða upp þann hlut að fullu.
Það var á gamlársdag að Versl-
unarbankinn ákvað að auka hlut-
aféð upp í 400 miljónir. Verslun-
arbankinn var þá enn við lýði, því
samruni bankanna fjögurra í ís-
landsbanka varð ekki fyrr en 1.
janúar.
Á hluthafafundi í Útvegsbank-
anum sl. sumar var ákveðið að
auka hlutafé bankans í 2,5 milj-
arða króna og í framhaldi af því
var ákveðið að bankarnir þrír,
Iðnaðarbanki, Verslunarbanki
og Alþýðubanki sameinuðust
með jafn stóran hlut um kaup Út-
vegsbankans og stofnuðu ís-
landsbanka. Samkomulagið gekk
út á það að þessir fjórir bankar
afhentu um áramót Islandsbanka
allar eignir sínar og skuldir. Sam-
kvæmt því ætti Eignarhaldsfé-
lagið að hafa afhent íslandsbanka
hlut sinni í Stöð 2 upp á 250 milj-
ónir króna.
Hafi félagið ekki gert það,
heldur haldið eftir þessum hlut
hlýtur sú spurning að vakna,
hverjar séu eignir Eignahaldsfé-
lagsins. Samkomulagið gekk út á
að íslandsbanka yrðu afhentar
allar eignir hinna bankanna og
síðan yrði skipuð matsnefnd sem
skilaði áliti fy rir 1. j úlí í ár um hlut
kalla eftir upplýsingum um það
frá Verslunarbankanum og/eða
íslandsbanka, með hvaða hætti
uppgjör vegna Stöðvar 2 hefur
farið fram, eða hvaða tryggingar
lána Verslunarbankans til Stöðv-
ar 2 voru afhentar íslands-
banka,“ sagði Þórðpr Ólafsson
■ forstöðumaður Bankaeftirlitstns
við Nýtt Helgarblað. - Sáf
hvers og eins í bankanum. í fram-
haldi af því á svo að jafna út hlut
eignarhaldsfélaganna, þannig að
ef einhver hefur komið með
meira inn en samið var um yrði
eignarhaldsfélaginu endur-
greiddur mismunurinn og sömu-
leiðis ef upp á vantaði hjá ein-
hverjum yrði eignarhaldsfélagið
að útvega þá peninga.
Samkvæmt þessu eru eignir
Eignahaldsfélags Verslunar-
bankans eingöngu hlutabréf í ís-
landsbanka og jafnframt ættu þá
hlutabréf í Stöð 2 að hafa flust
yfir í íslandsbanka. Hafi eignar-
haldsfélagið ekki yfir neinum
fjármunum að ráða, hvemig get-
ur það þá annarsvegar keypt
hlutabréf fyrir 250 miljónir króna
og hinsvegar tryggt sölu á hluta-
bréfum? Ef þau geta það ekki,
hver keypti þá hlutabréfin? Var
það Verslunarbanki íslands?
Hefur þá ekki Verslunarbankinn
afhent íslandsbanka þessi hluta-
bréf?
Einsog áður sagði þá heimila
lög um viðskiptabanka banka-
stofnunum að eiga sem nemur
2% af eigin fé í fyrirtækjum sem
stunda óskildan rekstur, þar að
auki skulu slík félög vera almenn-
ingshlutafélög þar sem hluthafar
eru 200 eða fleiri. Stöð 2 er ekki
almenningshlutafélag.
Hafi Verslunarbankinn keypt
þessi hlutabréf á síðasta degi árs-
ins, var hann þá ekki að brjóta
ákvæði bankalaga? Hafi hann af-
hent þetta íslandsbanka opnaði
þá ekki íslandsbanki á fyrsta
starfsdegi með of mikla hlutafjár-
eign miðað við það hvað hann má
eiga miðað við eigið fé?
Eigið fé íslandsbanka er 2,5
miljarðar króna samkvæmt
samkomulaginu frá síðasta
sumri. 2% af því eru 50 miljónir
króna. Sitji íslandsbanki nú uppi
með 100 miljón króna hlutafé í
Stöð 2 er hann með helmingi
hærri hlut þar en hann má eiga
samkvæmt lögum um viðskipta-
banka, auk þess sem ljóst er að
hann má ekki eiga hlut í fyrirtæki
einsog Stöð 2, þar sem það er
ekki almenningshlutafélag.
-Sáf
Bankaeftirlítið
í biðstöðu
Föstudagur 12. Janúar 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 7
Suðurnesjamenn
Upplýsingafundur um Evrópska
efnahagssvæðið, EES, verður
haldinn á vegum
utanríkisráðuneytisins þann 15.
jan. kl. 21.00 í Glaumbergi,
Keflavík
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráöherra
hefur framsögu og mun ásamt embættis-
mönnum utanríkisráöuneytisins svara fyrir-
spurnum um viðræður Fríverslunarsamtaka
Evrópu, EFTA, og Evrópubandalagsins, EB,
um myndun sameiginlegs markaöar í Evrópu.
Utanríkisráöuneytið
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir desember mánuð er
15. janúar. Ber þá að skila skattinum til inn-
heimtumanns ríkissjóðs ásamt söluskatts-
skýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Auglýsing frá
utanríkisráðuneytinu
Dagana 10.-11. maí 1990 verður haldið hæfnis-
próf í Reykjavík á vegum Sameinuðu þjóðanna
fyrir umsækjendur um störf hjá Sameinuðu
þjóðunum á eftirfarandi starfssviðum:
1. Stjórnun
2. Hagfræði
3. Tölvufræði
4. Fjölmiðlun/útgáfustarfsemi
Skilyrði fyrir þátttökuí hæfnisprófinu er að um-
sækjandi:
- íslenskur ríkisborgari
- hafi lokið háskólaprófi og hafi jafnframt
tveggja ára starfsreynslu eða hafi lokið há-
skólaprófi í framhaldsnámi á háskólastigi
- hafi góða ensku og/eða frönskukunnáttu.
Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 32 ára.
Pierre Pelanne, deildarstjóri prófdeildar Sam-
einuðu þjóðanna heldur fyrirlestur um hæfnis-
prófið 20. janúar n.k. í stofu 101 í Lögbergi,
Háskóla íslands, kl. 14.00.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást
á alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Umsóknir um þátttöku í hæfnisprófinu verða að
berast utanríkisráðuneytinu fyrir 1. mars 1990.
Prófstaður verður auglýstur síðar.
Reykjavík 11. janúar 1990