Þjóðviljinn - 12.01.1990, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 12.01.1990, Blaðsíða 12
Hagræði ngarátak í sjávamtvegi er nauðsyn JóhannAntonsson: Aðskilja þarfveiðar og vinnslu og fjármagna úreldingu fiskiskipa með sölu veiðileyfa Jóhann Antonsson er stjórnar- maður í Atvinnutryggingar- sjóði og hefur víðtæka reynslu af sjávarútvegsmálum. Við spurð- um hann hvort hann væri því hlynntur að tekin yrði upp sala eða leiga á veiðileyfum í íslensk- um sjávarútvegi. Já, ég er ákveðið þeirrar skoð- unar, og ég tel að það eigi að hefja slíka sölu þegar á þessu ári. Það fé sem þannig kemur inn á síðan að nota til þess að fjár- magna víðtæka skipulagsbreyt- ingu á okkar sjávarútvegi, í fyrsta lagi með því að kosta úreldingu skipa og í öðru lagi með sam- göngubótum í því skyni að skapa skilyrði fyrir virka fiskmarkaði á ákveðnum atvinnusvæðum á landsbyggðinni. Minnkun flotans er knýjandi nauðsyn, og ég hef áætlað að minnkun hans um 25% muni kosta um 12 miljarða. Til þess að skapa virkan fiskmarkað á lands- byggðinni þarf ákveðnar sam- göngubætur, sem ég hef áætlað að kosta muni um 8 miljarða, þannig að í heild er um að ræða hagræðingarátak í sjávarútvegi sem kostar um 20 miljarða. Þetta er hægt að fjármagna með leigu á veiðileyfum þannig að kvóti sem losnar við úreldingu verði leigður að fullu, en endurgjaldslaus kvóti komi smám saman til leigu með jöfnum skrefum á 10 árum. Hver á að ákvarða leiguna og hvernig? Það yrðu opinberir aðilar að sjá um. Ég hef í útreikningum mínum miðað við að þorskkílóið verði leigt á 10 krónur, en með þeirri tölu væri hægt að greiða niður þetta hagræðingarátak á 7 árum, þannig að því yrði lokið 1996 ef byrjað yrði á þessu ári. Mikilvægi fiskmarkaðanna Þessi kerfisbreyting myndi á sama tíma koma út í bættri af- komu útgerðarinnar og betri út- komu sjávarútvegsins í heild vegna þess að fiskmarkaðirnir færu að skila árangri. Þú segir að fiskmarkaðirnir gegni mikilvægu hlutverki í þessu sambandi. Hvernig þá? Það hefur á undanförnum árum orðið talsverð breyting á er- lendum mörkuðum og sölustarfi, sem við höfum ekki aðlagast nema að litlum hluta, meðal ann- ars vegna þess að við erum fastir í ákveðnu kerfi í okkar fisk- vinnslu, þar sem fiskvinnslan tekur á móti heilu togaraförmun- um og þarf að vinna úr þeim. Markaðirnir tryggja sérhæfingu í vinnslu og leiða til þess að menn fara að hugsa út frá verðmætum á meðan ríkjandi kerfi snýst meira um magnið. Þær breytingar sem hafa orðið á mörkuðum erlendis og við höf- um ekki svarað nema að litlu leyti felast meðal annars í aukinni eftirspurn eftir ferskum flökum í stað frystingar og smápakkning- um í stórmörkuðum erlendis. Hvorutveggja getur leitt til verð- mætaaukningar á hluta aflans um allt að 40%. Sérhæfing fiskvinnslunnar Forsenda þess að þessir hlutir gerist í þeim mæli sem markaður- inn býður upp á er sérhæfing fisk- vinnslunnar, sem kæmi af sjálfu sér ef markaðirnir næðu fótfestu um allt land. Við höfum séð þessa sérhæf- ingu gerast hér á Suðvesturhorn- inu með tilkomu markaðanna. Hér er mesta gróskan í fram- leiðslu á ferskum flökum sem send eru út með flugi, og hér hafa einstök fyrirtæki náð mjög at- hyghsverðum árangri í smá- pakkningum. Þessi verðmæta- aukning er fyrst og fremst fisk- mörkuðunum að þakka, og þeir sem standa í þessari framleiðslu segja markaðina forsendu þessa árangurs. Það er kannski þess vegna sem markaðirnir hér suðvestanlands gefa sjómönnunum hærra verð en gengur og gerist úti á landi. Sjómennirnir úti á landi vilja fá markaðsverð fyrir fiskinn, en fiskverkunin þar nær ekki sérhæf- ingu og getur því ekki boðið sambærilegt verð. Vítahringir sjávarútvegsins Ef fram heldur sem horfir get- um við séð fram á aukinn þrýsting frá sjómönnum um gámaútflutn- ing, sem jafnframt muni fela í sér minni umsvif í landi og versnandi afkomu fiskvinnslunnar. Þetta er vítahringur, og ekki sá eini, sem sjávarútvegurinn þarf að komast úr. Annar vítahringur er togstreita landshluta, byggðarlaga og fyrir- tækja um kvóta, sem leitt hefur til yfirverðs á skipum og þess að enn meira fjármagn er bundið í sjáv- arútveginum án þess að það gefi nokkurn arð. Jóhann Antonsson: Hagræðingarátak í sjávarútvegi upp á 20 miljarða er hægt að fjármagna með veiðigjaldi. Ljósm. Kristinn. Fiskmarkaðirnir losa um tengslin á milli veiða og vinnslu og gerir það að verkum að menn þurfa ekki að vera með fjármagn bundið útgerð til þess að eiga kost á að fá fisk í vinnslu. Það eitt opnar möguleika á að minnka flotann og gera útgerðina arð- bærari. Staða lands- byggðarinnar Ýmsir hafa orðið til þess að lýsa áhyggjum út af því að minni staðir og minni útgerðar- og fisk- vinnslufýrirtæki yrðu útundan um veiðileyfi og afla ef markaði yrði komið á með þessum hætti. Hvernig lítur þú á þau mál? Ég er miklu hræddari um örlög þessara staða ef þessi breyting kemst ekki til framkvæmdar. Þá á ég sérstaklega við fiskmarkaðina. Á mörgum þessara staða er til- tölulega auðvelt að vera með sér- hæfða vinnslu (t.d. sérpökkun í frystingu) sem krefst meiri vinnu og minna hráefnis. Margir þess- ara staða eru auk þess mikið í saltfiski, þar sem þróun er einnig í gangi í átt til smápakkninga. Það mun henta þessum stöðum mjög vel. Ég óttast um þá togstreitu sem nú er víða út á landi og mun í raun verða meiri í framtíðinni ef þessi kerfisbreyting á sér ekki stað. Söngurinn um að sjómenn á litlu stöðunum út á landi búi við rýrari tekjur vegna lægra fisk- verðs á eftir að verða stríðari og leiða til hnignunar á landsbyggð- inni ef menn taka ekki við sér. íhaldssemi stjórn- málaflokkanna Stjórnmálaflokkarnir hafa ver- ið tregir til þess að móta afger- andi stefnu í málefnum íslensks sjávarútvegs. Hverju sætir það? Stjórnmálaflokkar eru í eðli sínu íhaldssamar stofnanir. í sjálfu sér eru þær breytingar sem hér er um fjallað mjög róttækar, og menn þurfa tíma til að venjast nýrri hugsun áður en þeir eru til- búnir í viðamiklar breytingar. Ég geri mér vonir um að sá umhugs- unartími standi nú yfir. Það er m.a. hlutverk fjölmiðla að kryfja þessi mál, skýra þau út og venja menn við þessa nýju hugsun. Að minnsta kosti á meðan stjórnmálaflokkarnir og stjórn- málamennirnir sýna ekki merki annars en að þeim líði best í ver- öld sem var. -ólg Afli og floti Skýring Gylfa Þ. Gíslasonar á rýrnandi afkomu sjávarútvegsins Gylfí Þ. Gíslason hefur á und- anförnum árum ritað manna mest um nauðsyn þess að taka upp fískveiðistefnu er grundvall- ist á sölu veiðileyfa. I Morgun- blaðinu 12. september síð- astliðinn ritar hann grein um málið með tiliiti til sambandsins á milli verðmætis fiskiskipafíotans og aflaverðmætis úr sjó. Með greininni birtist línurit sem er í sjálfu sér áfellisdómur um það skipulag fiskveiða og útgerðar, sem viðgengist hefur hér á landi síðustu tvo áratugi að minnsta kosti. í greininni segir Gylfi m.a. með leyfi höfundar: „Það er eitt af undirstöðuat- riðum nútíma fiskihagfræði, að þegar leyfð er ótakmörkuð og ókeypis hagnýting á sameigin- legri auðlind í sjávarútvegi, leiði það til ofveiði og eyðingar á þeirri rentu, sem auðlindin gefi af sér, þannig að flotinn hafi til- hneigingu til að vaxa mun meira en aflinn, útgerðarkostnaður vaxi meira en afrakstur, og hagn- aður af veiðunum hverfi. Þetta er einmitt það sem átt hefur sér stað á íslandi eftir styrj- öldina, en lengst af voru leyfðar hér ótakmarkaðar veiðar á botnfiski. Fiskafli hefur sem bet- ur fer farið vaxandi síðan um stríðslok, að sjálfsögðu einkum í kjölfar útfærslu fiskveiðilögsög- unnar, en einnig vegna bættrar tækni. En fiskiskipaflotinn hefur þó vaxið miklu meira. f þessu sambandi á að sjálfsögðu að bera saman breytingu á aflaverðmæti og breytingu á verðmæti fiski- skipaflotans, en ekki á smálesta- tölu hans, þar eð það er fjár- magnsaukningin sem skiptir máli. Sé þetta gert kemur í ljós, að frá lokum síðari heimsstyrj- aldarinnar og fram til upphafs áttunda áratugarins urðu ekki gagngerar breytingar á aukningu aflaverðmætis annars vegar og verðmætis fiskiskipaflotans hins vegar. Á árunum 1960-70 jókst aflaverðmætið um 26% en verð- mæti flotans um 32%. En frá 1970 -87 jókst aflaverðmætið um 106%, en verðmæti flotans hins vegar um 180%. Sést þetta á meðfylgjandi línuriti, sem Þjóð- hagsstofnun hefur gert að beiðni minni.... Þróunin sést greinilega þegar línuritið er skoðað. Við blasir hvað farið hefur úrskeiðis í sjáv- arútveginum, einkum síðan í byrjun áttunda áratugarins. Allt of mikið hefur verið fjárfest. Hver króna sem varið hefur verið til fjárfestingar ber minnkandi arð. Aflinn hefur verið sóttur með vaxandi tilkostnaði. Þjóðfé- lagið hefur sóað verðmætum." Grein sinni lýkur Gylfi með eftirfarandi orðum: „Það þarf að gera ýmsar breytingar á fiskveiðistefnunni, og það er hægt að gera þegar á 400 Aflinn á föstu verði og þjóðarauðsmat fiskiskipa 1945- 1987. Vísitölur 1960=100 400 350 350 300 Fiskiskip 300 250 250 200 / /^y 200 150 150 100 -—Fiskafli 100 50 50 1945 1950 to955 11965 1970 1975 1980 1985 i_hiuiuiu öyim au [jicm lym aiuiauMia vtjioiitíeMii pa pan biuuuyi intjiii tilkostnað við að veiða hvern fisk úr sjó. Sífellt stærri hluti þess arðs, sem fiskimiðin gefa, fer í tilkostnað vegna offjárfestingar í of mörgum skipum miðað við leyfilegt aflamagn. næsta Alþingi. Það ætti að taka alveg fyrir raunverulega stækkun fiskveiðiflotans frá því sem nú er. Það ætti að lengja verulega þann tíma, sem leyfin eru veitt, t.d. í fimmtán ár. Það ætti að veita ein- staklingum og lögaðilum veiði- leyfin, en ekki binda þau við skip. Og það ætti að leyfa algjörlega frjáls viðskipti með veiðileyfi. 1 kjölfar slíkra ráðstafana mundi margt breytast til batnað- ar. En stærsta sporið, sem hægt er að stíga til þess að fiskiskipaflot- inn minnki með sem hagkvæm- ustum hætti, yrði stigið með því að setja lög um að greiða skuli fyrir veiðileyfi. Það er um- deildara sjónarmið en þær ráð- stafanir sem nefndar voru að framan, enda gagngerari ráðstöf- un. Hugsanlegt væri að stíga slíkt spor í litlum áföngum. Hitt er ljóst, að slík viðbót við fisk- veiðistefnuna verður ekki gerð nema samfara breytingum á efna- hagsstefnunni í heild, m.a. stefn- unni í gengismálum, landbúnað- armálum, peningamálum og fjármálastjórn ríkisins.“ 12 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 12. janúar 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.