Þjóðviljinn - 12.01.1990, Page 18
SKÁK
HELGI
ÓLAFSSON
Evrópumeistaramót unglinga í Arnheim:
Hannes lagði stigahæsta þátttakandann
í meira en aldarfjórðung hafa
Hollendingar staðio fyrir Evr-
ópukeppni unglinga 20 ára og
yngri. Þetta mót var um langt
skeið haldið í bænum Groningen
en fyrir nokkrum árum var það
flutt til bæjarins Arnheim sem er í
næsta nágrenni. Evrópumeist-
aramót unglinga er allra athygli-
sverðasta keppni sem margir af
fremstu stórmeisturum Evrópu
hafa tekið þátt í. Frægasti si-
gurvegarinn er tvímælalaust An-
atoly Karpov sem hélt áleiðis til
Groningen veglaus og mállaus
um jólaleytið 1967. Sovéska
skáksambandið hafði búið hann
út með orðsendingu sem átti að
notast ef í nauðir ræki og hún
hljóðaði eitthvað á þessa leið:
Þessi ungi maður er á leiðinni til
bæjarins Groningen í Hollandi.
Kann ekki stakt orð í ensku.
Hann er nú í vanda staddur.
Vinsamlega hjálpið honum.
Karpov rataði til Groningen og
sigraði glæsilega. Segja má að
hann hafi gengið heiminn á enda
því röskum sjö árum síðar eða
1975, sæmdi Max Euwe þáver-
andi forseti FIDE hann æðstu
metorðum skáklistarinnar.
Þeir skákmenn íslands sem
helst blakta um þessar mundir
hafa allir teflt á hinum vel skipu-
lögðu Evrópumeistaramótum
unglinga og hlotið þar dýrmæta
reynslu. Hannes Hlífar Stefáns-
son hélt á mótið skömmu fyrir jól
ásamt aðstoðarmanni sínum,
Þráni Vigfússyni. Fyrir mótið var
hinn þrautreyndi sovéski stór-
meistari, Alexei Dreev, talinn
langsigurstranglegastur, enda er
hann sennilega stigahæsti skák-
maður sem teflt hefur á mótinu -
um áramót reiknuðust Elo-stig
hans upp á 2605 stig. Það er hins
vegar ekkert gefið í þessum efn-
um. Þegar upp var staðið var So-
vétmaðurinn Serper hinn öruggi
sigurvegari, hlaut 10'/2 vinning úr
13 skákum. Dreev varð að láta
sér lynda 2.-3. sæti ásamt Tékk-
anum Hracek. Þeir hlutu báðir 9
vinninga. í 4-.6. sæti komu Búl-
garinn Tobalov, sem er aðeins 14
ára gamall, Agnos, Englandi og
Markovic, Júgóslavíu, allir með 8
vinninga.
Hannes hafnaði í 7.-13. sæti,
með IVi vinning. Frammistaða
hans er viðunandi þó vonast hafi
verið eftir enn betri árangri.
Hann byrjaði þokkalega og var
kominn í hóp efstu manna eftir 10
umferðir með sigri á Dreev. Þá
tapaði hann fyrir Serper en vonir
um hátt sæti ruku út í veður og
vind með tapi í 12. umferð. Sigur
í síðustu umferð lagaði stöðuna.
Hannes á nokkur ár eftir í þessum
unglingamótum og gæti hæglega
endurtekið afrekið frá 1977 er
hann varð heimsmeistari sveina
fyrir ofan Gata Kamsky og Mic-
hael Adams.
Sigur hans yfir Dreev birtist
hér. Það þarf ekki að spyrja að
yfirburða þekkingu sovéskra
skákmanna á byrjunum og Hann-
es var fljótur að verða sér úti um
óyndislega stöðu. En vondar
stöður vinnast oft, kvað Bent
Larsen um árið:
10. umferð:
Aiexei Dreev -
Hannes H. Stefánsson
Drottningarpeðsleikur
1. d4 Rf6
2. Rf3e6
3. Bg5
(Hin margþvældu afbrigði
drottningarindversku varnarinn-
ar, 3. c4 b6 eða drottningar-
bragðs, 3. ...d5 höfða ekki til
Dreev. Hann fer í smiðju til Jus-
upovs sem tefldi þannig með góð-
um árangri í einvíginu við Karpov
sl. haust.)
3. .. d5 6. Bd3 b6
4. e3 Be7 7. 0-0 Bb7
5. Rbd2-0-0 8. c3 Rh5
(Hannes hefur ekki teflt byrj-
unina á þann hátt sem best þykir.
Hollara er að bíða með að hrók-
era og leika - Rbd7 á undan
drottningarbiskupnum og vera
viðbúinn þegar hvítur leikur -
Re5. Vegna þessarar ónákvæmni
í leikjaraöð nær hvítur strax yfir-
burðastöðu).
9. Bxe7 Dxe7
10. Re5 Rf6
11. f4 Rbd7
12. Hf3g6
13. h4 Kh8
14. Hh3 Hg8
15. g4 Re8
16. g5f6
17. gxf6 Rdxf6
18. Rdf3 Rd6
19. De2 Rf5
20. Kh2 Hg7
21. Hgl Bc8
22. Rg5 a5
a b c d e f g h
(Fram að þessu hefur Dreev
byggt upp stöðu sína á markviss-
an hátt. Hannes hefur ekkert
mótspil og getur því aðeins beðið
átekta. Von hans liggur fyrst og
fremst í tímahraki andstæðings-
ins sem átti aðeins fimm mínútur
eftir til að ná tímamörkunum við
40. leik.)
23. e4!?
(Að mörgu leyti undarleg
ákvörðun þegar haft er í huga
hversu tímanaumur Dreev var.
Kannski hefur hann ofmetið
möguleika sína en leikurinn er þó
ekki beinlínis slæmur. Stóru mis-
tökin koma í 27. leik.)
23. .. Rd6!
(Fimm mínútur er ekki mikill
tími en þegar við bættist að Dreev
hugsaði sig í þrjár mínútur um
þennan leik þá var ekki örgrannt
um að Hannes færi að gera sér
vonir. Undirritaður fékk skákina
símleiðis frá Hannesi og hann las
síðustu leikina leifturhratt rétt
eins og Dreev væri enn í tíma-
hraki.)
24. Rxg6+ hxg6
25. e5 Rh5
26. exd6 cxd6
(Betra en27. .. Dxd6 28. De5!
með hagstæðari stöðu vegna hót-
unarinnar 29. Rf7+)
27. Hfl?
(Afleitur leikur. 27. Bxg6 gekk
ekki vegna 27. .. Rxf4 o.s.frv. en
eftir 27. Hf3! stendur hvítur mun
betur að vígi þó öll nótt sé ekki
úti.)
27. .. e5
(Umskiptin gerast vart
sneggri. Skyndilega er Hannes
með hartnær unnið tafl.)
28. f5 Rf4
29. Hxf4 exf4
30. Dxe7
(30. f6 er einfaldlega svarað
með 30. .. Dxf6 t.d. 31. De8 Hg8
o.s.frv.)
31. .. Hxe7 35. Kg2 Kf6
31. f6 Bxh3 36. Kf3 Kxe7
32. fxe7 Bd7 37. h5 Be8
33. Bxg6 Kg7 38. Bxb5 Bxh5+
34. BÍ7 Hh8 39. Kxf4 Hf8+
- og Dreev féll á tíma. Hann
kemst ekki hjá mannstapi, t.d.
40. Ke4 Bg6+ 41. Ke3 Hf5 og
vinnur eða 40. Kg3 Hf5 41. Kh4
Hxd5 42. Kxh5 og Kf6 vinnur.
Skákþing Reykja-
víkur 1990 haffið
Skákþing Reykjavíkur hófst sl.
sunnudag í hinu nýja félagsheim-
ili TR að Faxafeni. Keppt er í
opnum flokki og eru þátttakend-
ur rétt innan við hundrað talsins
þ.á m. Hannes Hlífar Stefánsson,
Þröstur Þórhallsson, Sigurður
Daði Sigfússon, Þröstur Árna-
son, Jóhannes Ágústsson, Lárus
Jóhannesson svo að nokkrir séu
nefndir. Keppni í flokki unglinga
og barna 14 ára og yngri hefst á
morgun laugardag kl. 14 og
stendur skráning enn yfir.
Lausn á skákþraut
Eftirfarandi skákdæmi var
fyrir lesendur í síðasta pistli:
Hvítur leikur og heldur jafn-
tefli.
Lausnin er eftirfarandi:
1. Rf8+ Kh8 3. f8(D)+ Kh7
2. Rg6+ Dxg6 4. Bbl!
(Hugmyndiner4. ..Dxbl5.
Df5+ Dxf5 og hvítur er patt. En
svartur á nokkrar skákir.)
4. .. Bc3+
5. Ke3!
(Enn er við það sama 6...
Dxbl 7. Df5+ dxf5 patt!)
6. .. Bd4+
7. Kd2
(Og enn verður niðurstaðan
patt ef biskupinn er drepinn.)
7. .. Be3+
8. Kc3! Bd2+!
9. Kd4!
Mögnuð hringekja. Svartur
verður að gera sér jafntefli að
góðu.
Að lokum:
Gleðilegt ár
Umsjónarmaður óskar lands-
mönnum öllum gleðilegs árs og friðar
á komandi ári.
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni,
sem jafnframt er úrtökumót fyrir
íslandsmótið, hófst sl. miðvikudag-
inn 3. janúar. 18 sveitir eru skráðar til
leiks. Fjórar efstu sveitirnar spila til
úrslita um Reykjavíkurhornið, að
undangenginni forkeppni allra sveit-
anna. Tíu spil verða spiluð milli
sveita, alls 190 spil. Núverandi
Reykjavíkurmeistari í sveitakeppni
er sveit Flugleiða. Staðan eftir 6 um-
ferðir
Nr.l sveit Flugleiða með 116 stig.
Nr. 2 sveit Verðbréfam. fslands-
banka með 115 st.
Nr. 3 sveit undirritaðs, Ólafs Lár-
uss., með 105 stig.
Nr. 4 sveit Modern Iceland með
102 stig.
Sveit Eskfirðings varð Austur-
landsmeistari í bikarkeppni 1989 eftir
úrslitaleik við sveit Samvinnbu-
bankans á Vopnafirði. f sveit sigur-
vegaranna eru: Sigurður Freysson,
Einar Sigurðsson, Þorbergur Hauks-
son, Andrés Gunnlaugsson og Árni
Helgason.
Keppnisstjóri var Ólafur Jóhanns-
son frá Egiisstöðum.
Síðasta þriðjudag fyrir jól var árleg
jólasveinakeppni hjá félaginu. Þann
vafasama heiður að þessu sinni hlutu:
Ármann J. Lárusson, Lárus Péturs-
son, Rúna Baldvinsdóttir og Sveinn
Sveinsson.
f næsta sæti urðu: Jón Baldursson,
Murat Serdar, Óskar Karlsson og
Ragnar Hjálmarsson. Spilarar voru
dregnir saman í sveitir.
Ekkert er vitað um erlenda þátt-
töku á Bridgehátíð, sem spiluð verð-
ur um aðra helgi í febrúar. Reynt hef-
ur verið við toppmenn í frönskum bri-
dge og vafasamt þykir að Zia Ma-
hmood eigi möguleika á að koma að
þessu sinni, en kappinn er búsettur í
New York þessa dagana. í hans stað
hefur spilari að nafni Polowan (kom
hingað á eigin vegum á Bridgehátíð
fyrir 4-5 árum) boðist til að mynda
sveit á hátíðina, m.a. með Mike Mol-
son frá Kanada, sem einnig hefur ver-
ið tíður gestur á Bridgehátíð. Búast
má við að fyrirkomulag á Bridgehátíð
1990 verði með sama hætti og síðustu
árin, þ.e. opinn tvímenningur og síð-
an Flugleiðamótið í sveitakeppni.
Nýlokið er aðaltvímenning Bridge-
félags V-Húnvetninga. Sigurvegarar
urðu Erlingur Sverrisson og Eggert
Ó. Levý, eftir að gömlu kempurnar
Karl Sigurðsson og Kristján Björns-
son höfðu leitt allt mótið, sem stóð í 5
kvöld. Röð efstu para: Erlingur/ Egg-
ert 620, Karl/ Kristján 597, Einar
Jónsson/ Örn Guðjónsson 549 og Sig-
urður H. Sigurðsson/ Marteinn
Reimarsson 539.
Um 20 spilarar taka að jafnaði þátt
í spilamennsku á vegum félagsins,
sem staðsett er á Hvammstanga.
Tvö jólamót voru spiluð í enda árs-
ins. Á Akureyri með þátttöku ríflega
40 para og í Hafnarfirði með þátttöku
rúmlega 70 para sem er geysigóð þátt-
taka. A Akureyri sigruðu Anton Har-
aldsson og Pétur Guðjónsson, næstir
urðu Zarioh Hamadi og Guðjón Páls-
son og Ármann Helgason og Stefán
Sveinbjörnsson.
f Hafnarfirði sigruðu Brynjólfur
Gestsson og Sigfús Þórðarson í N/S-
áttina en aðrir Selfyssingar, þeir
Helgi Helgason og Grímur Arnarson
sigruðu A/V-áttina.
Sigurvegarar í Butler-tví-
menninningskeppni Bridgefélags
Reykjavíkur urðu Aðalsteinn Jörg-
ensen og Jón Baldursson með 244
stig. í 2. sæti urðu Hermann og
Ólafur Lárussynir með 207 stig og Sæ-
var Þorbjörnsson og Karl Sigur-
hjartarson með 192 stig og Valur Sig-
urðsson og Sigurður Vilhjálmsson
með 185 stig, náðu næstu sætum.
Athyglisvert við þessi úrslit er, að
pörin í 2.-4. sæti röðuðu sér einnig í
efstu sætin í Reykjavíkurmótinu í
desember. Trúlega hefðu þeir Jón og
Aðalsteinn einnig blandað sér í bar-
áttuna, en Jón Baldursson hefur
aldrei sigrað Reykjavíkurmótið í tví-
menning, eina mótið sem þann
frækna spilara vantar í safnið sitt.
Sagnvenjur eru hluti af vopnabúri
góðs bridgespilara. Raunar hluti af
leiknum sem skiptir afar miklu máli.
Að finna út samlegu spilanna og kom-
ast að raun um, sameiginlega, besta
lokasamning.
Lítum á dæmi sem kom nýlega fyrir
á æfingu:
S: K4
H: 5
T: 87632
L: Á10962
S: 863 S: D75
H: 98764 H: ÁDG2
T: KD T: :1095
L: KG3 L: D54
S: ÁG1092
H: K103
T: ÁG4
L: 87
Norður gaf og vakti á 3 spöðum (?),
sem þýddu minnst 10 spil í tígli og
laufi og 7-1:0 hápunktar. Austur pass
og Suður ákvað að reyna 3 grönd,
sem voru pössuð út. Utspil Vesturs
var hjartanía, sem Austur tók á ás og
hjartadrottning um hæl. Lítið frá
Suðri og þá kom hjartagosi (lauf og
tígull fóru úr borði). Tekið á kóng og
spaði sendur yfir á kóng og meiri
spaði og nían hélt. Spaðaásinn færði
Suðri gleðitíðindin í spaða og nú var
sviðið sett. í spaðagosann mátti Vest-
ur missa lítið lauf, en spaðatían setti
Vestur í alvarleg vandræði. Ekki
mátti hann missa tígulhámann, og
þaðan af síður laufahámann, þannig
að hjarta fór í spaðann. Þá kom tígu-
lás og drottning í og smár tígull, sem
kostaði kóng. Tveir síðustu slagir
sóknarinnar komu svo á laufaás og
tígulgosa. 9 slagir til N/S, eða slátt
staðið.
Heppni?
Hvað er heppni?
Er ekki lífið allt ein hepni. Málið
er, getum við aukið líkur okkar í líf-
inu (eða íþróttinni) með undir-
búningsvinnu og aukinni tækni? Sá
sem notar bílbelti eykur líkur sínar á
ferð sinni um lífið. Bridgespilarinn er
í sömu stöðu og ökumaðurinn. Það er
ekki nóg að kunna það. Það þarf að
framkvæma það. Gleðilegt ár.
BRIDGE
18 SÍÐA - NÝTT HELGARÍLAÐ
Ólafur
Lárusson