Þjóðviljinn - 12.01.1990, Side 23
DÆGURMAL
ANDREA
JÓNSDÓTTIR
HEIMIR MÁR
PÉTURSSON
Athygliverðustu plötur ársins 1989
Andreajónsdóttir og Heimir Már Pétursson
velja 20 athygliverðustu erlendu plöturnar
og 10 athygliverðustu íslensku plöturnar
áárinu 1989
Sykurmolarnir.
Þegar gera á upp hug sinn
varðandi það sem „best“ vargert
í dægurtónlistinni á síðasta ári er
manni nokkur vandi á höndum.
Það er kannski ekki mikið mál að
velja nokkrar plötur sem sínar
uppáhalds plötur en það er verra
að raða 10-20 plötum á einhvern
lista vegna þess að fólki hættir
eðlilega til að líta á þann lista sem
dóm yfir tónlistarmönnunum.
Skríbentar dægurmálasíðunn-
ar geta að sjálfsögðu ekki flúið
undan þessari staðreynd. En þeg-
ar listar sem þessir eru teknir
saman lenda margir utan þeirra
sem fyllilega ættu skilið að vera á
þeim og röðin á þessum listum er
afstæð. Ég hef tilhneigingu til að
líta þannig á málin að þær plötur
sem ég vel á lista séu allar á sinn
hátt bestar. Þær eiga það allar
sameiginlegt að hafa vakið hrifn-
ingu við hlustun, þó mismikil sé
og að leita oftar en einu sinni og
oftar en tvisvar undir nálina eða
geislann.
Við Andrea Jónsdóttir ákváð-
um að taka saman hvort sinn list-
ann yfir þær plötur sem vöktu
mesta hrifningu okkar á árinu
1989, íslenskar og erlendar. Er-
lendu listarnir eru með 20 plötum
en þeir innlendu 10 vegna þeirrar
einföldu staðreyndar að það
koma margfalt fleiri plötur út er-
lendis en hér á íslandi.
Um leið og við óskum lesend-
um síðunnar gleðilegs árs viljum
við hvetja þá til að láta heyra
meira í sér á nýja árinu en þeir
gerðu á því gamla. Hafi lesendur
ábendingar eða spurningar fram
að færa við síðuna er ekkert sjálf-
sagðara en að skrifa dægurmála-
síðunni.
-hmp
Erfitt val
Mig langar að hafa smá útlist-
ingar með íslenska listanum. Það
er ekki par auðvelt að að velja
svona lista - mikið hugar- og sam-
viskustríð. Ég viðurkenni til
dæmis fúslega að Ríó-platan er
vel gerð og ætti þess vegna að
vera í amk. 6. sæti - en það er
bara þannig, og alls ekkert per-
sónulegt, að ég hef aldrei „fílað“
tónlist Ríós, hvorki fyrr né síðar.
Ég hafði líka hugsað mér að setja
Mezzoforte inn á listann, en kom
þá í hug plata Tómasar R. og fé-
laga, og ákvað að útiloka þær
báðar sem hluta af djass-
deildinni, sem er ekki mitt verk-
svið, né áhuga. Þá Bjartmar og
Rúnar setti ég í nokkurs konar
heiðurssæti í stafrófsröð, því að
báðir hafa sýnt mikla framför
tónlistarlega séð, en segja má það
sama um Bjartmar og Valgeir
Guðjónsson, að þeir hafa gefið
heldur meira út en þeir hafa stað-
ið undir, Valgeir á hins vegar
betri plötur að baki en „Góða
áheyrendur". En „Puðið“ hans
Bjartmars er að mínu viti besta
platan hans tónlistarlega séð til
þessa, og líka textalega séð í
heildina tekið...„Sumarliði er
fullur" er reyndar ennþá hans
besta lag, en maður hefur það á
tilfinningunni að það liggi ekki
eins mikið strit á bak við textana
á „Það er puð að vera strákur" og
suma ádeilu- og gríntexta
Bjartmars á fyrri plötum...og þar
með læt ég útskýringum lokið.
-A
Andrea
Jónsdóttir
10 athygli verðustu ís-
lensku plöturnar á árinu
1989
1. Illur arfur
Sykurmolarnir
2. Betra en nokkuð annað
Todmobile
3. Nóttin langa
Bubbi Morthens
4. Listin að lifa
Stuðmenn
5. Ég stend á skýi
Síðan skein sól
6. Risaeðlan
Risaeðlan
7. Og augun opnast
Hilmar Oddsson
8. Skot í myrkri
Eiríkur Hauksson
9. Það er puð að vera strákur.
Bjartmar Guðlaugsson
10. Tryggð
Rúnar Þór
20 athygliveröustu erlendu
plöturnar á árinu 1989
1. Donavan's Greatest Hits
Donavan
2. The Sensual World
Kate Bush
3. Strange Angles
Laurie Anderson
4. Flowers In The Dirt
Paul McCartney
5. Yellow Moon
Neville Brothers
6. Cry Like Rainstorm
Linda Ronstadt
7. Avalon Sunset
Van Morrison
8. Steel Wheels
Rolling Stones
9. Spike
Elvis Costello
10. Like A Prayer
Madonna
11. Watermark
Enya
12. Oh Mercy
Bob Dylan
13. Mistery Girl
Roy Orbison
14. Blind Man's Zoo
10.000 Maniacs
15. The Road Is My Middle
name
Bonnie Raitt
16. Diamonds And Rust in the
Bullring Joan Baez
Seint á síðasta ári læddist
plata ofurhægt og rólega inn á
íslenskan plötumarkað. Hún var
hvergi auglýst og ég minnist þess
ekki að hafa heyrt hana spilaða í
útvarpi. Þetta sýnir hvað mark-
aðslögmálið er heimskt og vit-
laust vegna þess aö það setur
kastljósið oft á tíðum á plötur sem
betur væru geymdar í skuggan-
um og varpar öðrum og betri
plötum út í hom. Ef fólk færi í
hljómplötuverslanir og eyddi þar
einhverjum tíma í að leita og
hlusta væri sölumynstur ís-
lenskra og erlendra hljómplatna
ef til vill annað en það er.
Jón Hallur heitir maður á þrí-
tugsaldri, ættaður úr Reykjavík.
Hann hefur lagt stund á spönsk
fræði á Spáni í nokkur ár, gefið út
tvær ljóðabækur, „Auk þess legg
ég til að höfuð mitt verði lagt í
bleyti" og „Steinn yfir steini".
Auk þess hefur maðurinn sent frá
sér tvær kasettur þar sem hann
syngur eigin lög og texta og lék
undir á kassagítar. En nú er Jón
Hallur kominn með plötu, „13
tímar og önnur lög“ og hefur
fengið til liðs við sig hljómsveit
sem kallar sig Lestir frá Reykja-
vík. í henni eru þeir bræður Tóti
Risaeðla sem strýkur húðir og
Árni sem leikur á rafgítar, kass-
agítar og banjó. Bróðir Jóns
Halls, Hermann, spilar á bassa og
banjó og sjálfur spilar Jón Hallur
á gítara, orgel, píanó og munn-
hörpu. Hljómsveitinni til aðstoð-
ar er síðan Þorgeir Rúnar Kjart-
ansson á saxafón.
17. Flying Cowboys
Rickie Lee Jones
18. Raw Like Sushi
Neneh Cherry
19. Journeyman
Eric Clapton
20. Crossroads
Tracy Chapman
Heimir Már
Pétursson
10 athygliverðustu ís-
lensku plöturnar á árinu
1989
1. Betra en nokkuð annað
Todmobile
2. Nóttin langa
Bubbi Morthens
3. 13 tfmar og önnur lög
Jón Hallur
4. Illur arfur
Sykurmolarnir
5. Ekki er á allt kosið
Ný dönsk
6. Risaeðlan
Risaeðlan
Þetta er hin besta hljómsveit
og skilar efni Jóns Halls vel. En
það eru lög Jóns Halls og textar
sem halda plötunni uppi. Jón
Hallur er ágætur laga- og texta-
höfundur, semur texta fulla af
svörtum húmor, til dæmis um
Skrattann „sem hefur allan heim-
inn á hornum sér“. Annars
bregður manni þægilega við
fyrstu hlustun á „13 tíma“ og spyr
sjálfan sig: Hvenær gaf Megas
þessa plötu út? Það er nefnilega
þannig með söng Jóns Halls að
þegar hann hefur upp raust sína
gæti maður haldið að gamli
meistarinn sé á ferð. Jón Hallur
er eins og óskilgetið afkvæmi
Megasar. Þetta er Jóni Halli á
engan hátt til vansa, þvert á móti
var tími til kominn að einhver til-
einkaði sér skemmtilegan söng-
stíl Megasar. Textar Jóns Halls,
þó góðir séu, ná ekki þeim fá-
dæma gæðum sem eru á textum
Megasar, en eru engu að síður
mjög góðir dægurmálatextar.
„Kortér í“ er skemmtilegt lag
um tímann sem þýtur frá okkur,
enda er lagið örstutt. Og „Guða-
tala“ sem fjallar um „einkabarn
skaparans", Stalín og sögu hans
sem fáir segi í dag, er einnig ágæt-
ur sálmur.
Eins og nafn plötunnar bendir
til þá eru á henni lagið „13 tímar“
og önnur lög. Þessi „önnur lög“
eru frekar mörg miðað við það
sem gerist á plötum, eða 15 tals-
ins. I þessum samtals 16 lögum
má greina flestar stefnur dægur-
tónlistar, nýbylgju, kántrý og svo
7. Playing For Time
Messoforte
8. Listin að lifa
Stuðmenn
9. Buffalo Virgin
Ham
10. Tryggð
Rúnar Þór
20 athygliverðustu erlendu
plöturnar á árinu 1989
1. Oh Mercy
Bob Dylan
2. Manic, Magic, Majestic
Band Of Holy Joy
3. Steel Wheels
Rolling Stones
4. Strange Angles
Laurie Anderson
5. Mind Bomb
The The
6. New York
Lou Reed
7. The Sensual World
Kate Bush
8. Disintegration
The Cure
9. See The Light
Jeff Healey
10. When The World Know
Decon Blue
11. Freaky Trigger
Win
12. 9.
Public Image LTD
13. Mlah
Les Negresses
Vertes
14. Doolittle.
Pixies
15. Beginning To And Back
Wire
16. Technique
New Order
17. Hunkpapa
Throwing Muses
18. Crossroads
Tracy Chapman
19. Cosmic Thing
B‘52
20. Oranges And Lemmons
XTC
Jón Hallur
framvegis. Þungarokkið er þó
skilið út undan en mér skilst á
Jóni Halli að það standi til „bóta“
á næstu plötu. Það er alger und-
antekning að undirritaður hafi
gaman af þungarokki en kannski
Jóni Halli takist að venja mig á
slíkan takt þar sem honum tekst á
„13 tímum" að gera mig háðan
Kántrý sem hingað til hefur verið
skelfilegt gereyðingarvopn í mín-
um huga, að frátöldu „Hann er
vinsæll og veit af því“ hans Hall-
björns Hjartarsonar.
„13 tímar og önnur lög“ er sú
plata sem kom mér mest á óvart á
síðasta ári. Jón Hallur á greini-
legt erindi í hlustir mannanna og
það verður fróðlegt að fylgjast
með honum í framtíðinni.
-hmp
Dregið í Poppgetraun
Þá hefur verið dregið í popp-
getraun Nýs Helgarblaðs sem
birt var í blaðinu 15. desember.
Alls bárust sjö rétt svör en margir
aðrir voru ansi nálægt því að vera
með öll svörin rétt.
Þar sem vinningarnir eru þrír
reyndist nauðsynlegt að draga úr
lausnunum sjö sem voru réttar og
sá Guðrún Geirsdóttir um að
draga númer sem lausnunum
höfðu verið gefnar. Fyrsta vinn-
ing, Pioneer geislaspilara, fékk
Þorsteinn Gestsson Hjallabraut 6
Þorlákshöfn, annan vinning, 10
geisladiska, fékk Ingibjörg
Blöndal Skipasundi 53 Reykjavík
og þriðja vinning, Sharp ferða-
segulbandstæki, fékk Ragnhildur
Sverrisdóttir Mávahlíð 14
Reykjavík.
Dægurmálasíðan mun hafa
samband við vinningshafana og
þakkar þeim fjölmörgu sem
sendu inn svör fyrir þátttökuna.
Guðrún Geirsdóttirdregur númer
hinna heppnu í Poppgetraun Nýs
Helgarblaðs í gær. Mynd: Krist-
inn.
Rétt svör verða birt á dægurmál-
asíðunni í næsta Helgarblaði.
-hmp
Óskilgetinn sonur Megasar
FöstUdagur 12. janúar 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 23