Þjóðviljinn - 12.05.1990, Blaðsíða 1
Fólk veitir sköpunarþörtinni útrás á ýmsan hátt. Þetta veggjakrot prýöir undirgöngin á mótum Miklubrautar og Lönguhlíðar, en listamennirnir eru óþekktir. Mynd Jim Smart.
Grundarkjörsbúðirnar
Framtíð starfsfólks óviss
Um90 starfsmenn Grundarkjörsbúðanna enn atvinnulausir. Óvísthvort fyrrum eigandi Grundarkjörs geturgreitt laun
í uppsagnarfresti. Mesta atvinnuleysi hjá VR í 20 ár
að er óvíst hvort Jens Ólafs-
son getur staðið við að greiða
því starfsfólki sem ekki hefur
fengið vinnu aftur þau laun sem
það á rctt á í uppsagnarfresti.
Fari svo að hann geti það ekki
verður ríkið að greiða þetta sam-
kvæmt lögum um ríkisábyrgð á
launum, sagði Guðmundur B.
Ólafsson lögfræðingur Verslun-
armannafélags Reykjavíkur í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Um 150 starfsmenn misstu at-
vinnu sína þegar eigandi Grund-
arkjörsverslananna hætti rekstri
þeirra um síðustu helgi. Um 90
þeirra eru enn án atvinnu.
í gær funduðu Alþýðusam-
band íslands og Verslunar-
mannafélög Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar með starfsmönn-
unum í Húsi verslunarinnar og
þar skýrðu lögfræðingar félag-
anna fyrir þeim réttindi þeirra og
svöruðu spurningum um launa-
og orlofsgreiðslur.
Samtök stórkaupmanna fund-
uðu einnig í gær um stöðu sína og
hvernig hægt er að innheimta þær
kröfur sem heildsalar eiga á Jens
Ólafsson.
»Ég er búinn að vinna hjá
þremur eigendum í þessarri versl-
un á fjórtán mánuðum,“ sagði
verslunarmaður í samtali við
Þjóðviljann sem vann þar til fyrir
viku hjá Grundarkjöri í Garða-
bæ.
„Hjá fyrsta eigandanum vann
ég í eitt ár, hjá öðrum í viku og
þeim þriðja í þrjá mánuði,“ sagði
hann.
„Það koma alltaf nýir
bjartsýnismenn til þegar verslan-
ir fara á hausinn en við höfum
góða samninga og réttarstaða
þessa fólks er nokkuð sterk. Það
á rétt á launum í uppsagnarfresti
sem er þrír mánuðir eftir sex
mánaða starf, fái það ekki vinnu
strax aftur, og við sjáum um að
innheimta þetta fyrir fólkið, sem
og uppsafnaðar orlofsgreiðslur,“
sagði Guðmundur B. Ólafsson.
Nokkur hluti þessa fólks hefur
fengið vinnu hjá nýjum eigend-
um en það ríkir óvissa um hvað
verður um Grundarkjörsverslun-
ina við Stakkahlíð. Verslunina
við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði
hefur Vallarás keypt en óvíst er
hvort sama fólk verður endur-
ráðið. í Stakkahlíð unnu tíu til
tólf manns og í Hafnarfirði svipað
margir. Verslunin við Eddufell
hefur verið opnuð aftur af nýjum
eigendum og hefur flest af fólk-
inu þar verið ráðið aftur.
Sama gildir um verslunina við
Bræðraborgarstíg. Fyrrverandi
verslunarstjóri tók við henni og
hann hefur ráðið sama starfsfólk-
ið aftur. Sonur Jens Ólafssonar
tók við rekstri verslunarinnar við
Furugrund í Kópavogi og þar var
sama fólk einnig endurráðið.
Langflest starfsfólk, yfir 60
manns, var í versluninni í Garða-
bæ. Þá verslun hefur Mikligarður
yfirtekið. Haft var eftir markaðs-
stjóra Miklagarðs í Morgunblað-
inu í gær að ekkert væri hægt að
segja um hvort leitað yrði til fyrri
starfsmanna.
Þjóðviljinn hafði vegna þessa
samband við Guðrúnu Sóleyju
Guðjónsdóttur starfsmanna-
stjóra Miklagarðs og sagði hún í
samtali við blaðið að hún vildi
biðja þetta fólk að hafa samband
við sig á mánudagsmorgun.
„Við viljum að sjálfsögðu ráða
vant fólk en auðvitað viljum við
fá að velja úr. Við erum ekki
skuldbundin til að ráða alla aft-
ur,“ sagði Guðrún.
í síðasta VR-blaði kemur fram
að atvinnuleysi meðal félags-
manna Verslunarmannafélags
Reykjavíkur er nú meira en und-
anfarin 20 ár og eru um þrjú pró-
sent félagsmanna á atvinnuleysis-
skrá, þ.e. næstum 300 manns.
VR greiðir um tíu miljónir í at-
vinnuleysisbætur á mánuði.
Atvinnulausum fer enn fjölgandi
og hefur þeim fjölgað um 13 pró-
sent síðustu tvo mánuði.
-vd.
Suður-Afríka
Bremd fyrír gaklra
Iþorpi nokkru norðanvert í
Transvaal, Suður-Afríku,
gerðist það fyrir fáum dögum að
þorpsbúar drógu fjóra karlmcnn
og eina konu út af heimilum
þeirra, börðu á þeim og brenndu
þau síðan til bana. Tilefnið var að
töframaður einn kvaðst hafa
komist að því með kunnáttu sinni
að manneskjur þessar fimm
hefðu orðið ungri stúlku að bana
með göldrum.
Stúlkan hafði dottið í brunn, er
hún var að sækja vatn, og
drukknað. Manneskjur þær
fimm, sem sakaðar voru um að
hafa ráðið henni bana með fjöl-
kynngi voru á aldrinum 54 til 72
ára. Atburðir af þessu tagi eru
ekki einsdæmi þarlendis; þannig
gróf lögregla í Natal fyrr í vikunni
upp lík fjögurra kvenna, sem tal-
ið er að bornar hafi verið sökum
um að hafa valdið tjóni með
göldrum og drepnar. í Natal hafa
konur, sem sagðar eru fjölkunn-
ugar, verið sakaðar um að brugga
pólitískum andstæðingum sínum
banvæna gjörningadrykki.
Töframaður sá í Transvaal,
sem lýsti sök á hendur áður-
nefndum fimm manneskjum,
hefur verið handtekinn og 16
menn aðrir.
Reuter/-dþ.