Þjóðviljinn - 12.05.1990, Blaðsíða 17
MINNING
Sigursveinn
Framhald af bls. 15
' hernámsandstæðinga liðsinni sitt
við undirbúning Keflavíkurg-
öngu. Kannski vildu samtökin
þiggja útsetningu á lagi Þorsteins
Valdimarssonar, „Þú veist í
hjarta þér“ (tileinkað Keflavík-
urgöngunni 1976)? Og hér réðu
menn ráðum sínum um stofnun
samtaka fatlaðra. - Hvílík
smiðja! Hvenær ann svona mað-
ur sér eiginlega hvfldar, hugsaði
gestkomandi.
Sigursveinn var maður skap-
hita og mikilla tilfinninga. Eg
varð þó aðeins einu sinni vitni að
því þegar hann ,funaði“; spurði í
mesta sakleysi hvort ekki mætti
vera iítil mynd af skólastjóranum
í fyrrnefndum kynningarbæklingi
um skólann. Svarið var eitthvað á
þessa leið: Ef það á að fara að búa
til einhvern geislabaug kringum
■ mína persónu í þessum bæklingi
þá er eins gott að hætta strax við
útgáfuna. - Og nú á síðustu mán-
uðum þegar verið var að ræða við
Sigursvein um forsögu Tón-
skólans mátti stöðugt merkja ótta
hans við að nú ætti að fara að
draga fram í dagsljósið sitthvað af
því sem hann vildi að lægi í þagn-
argildi.
Við veltum því stundum fyrir
okkur hvað sé menning og hvaða
athafnir verðskuldi það að geta
talist framlag til menningar?
Mér finnst störf og barátta Sig-
ursveins bera því vitni að hann
hafi lagt mjög víðan skilning í
orðið menning. Hann samtvinn-
aði á aðdáunarverðan hátt bar-
áttu á svo fjölmörgum sviðum.
Það er því varla ofsagt að með
starfi sínu hafi hann lagt fram
drjúgan skerf til að auka menn-
ingu þjóðarinnar í víðustu merk-
ingu. Fyrir það ber okkur að
þakka. Sigurgleði verður því
skjótt harmi yfirsterkari. Störf
hans kalla okkur til átaka.
Gunnar Guttormsson
Komdu litli Ijúfur
Labbi pabba stúfur:
Látum draumsins dúfur
dvelja inni um sinn
heiður er himinninn.
Blœrinn faðmar bœinn
býður út í daginn.
Komdu Kalli minn.
Nú þegar Sigursveinn D. Krist-
insson frændi minn hefur kvatt
okkur þá detta mér fyrst í hug
þessar ljóðlínur úr kvæðinu
„Fylgd“ eftir Guðmund Böðvars-
son.
Frá því ég man fyrst eftir mér
og kynntist „frænda" eins og ég
kallaði hann alltaf, þá sveif andi
og inntak þessa ljóðs yfir honum.
Hann dró mann til sín, inn í sann-
kallaðan draumaheim. Drauma-
heim lista, gleði og framfara.
Hans draumaheimur var ekki
bara músík eins og margir kann-
ski halda. Hann var fyrst og síðast
mikill mannvinur. Hann var
óþreytandi baráttumaður fyrir
alla sem minna máttu sín í þjóð-
félaginu. Hann vildi leiða okkur
út í daginn, til betra og bjartara
mannlífs. Hann var óþreytandi
að benda manni á gott lesefni.
Það var ósjaldan sem hann sagði
við mig: „Frændi minn lestu þetta
þú hefur reglulega gott af því.“
Alltaf hafði frændi tíma til að
spjalla við fólk, enda þótt vinnu-
dagur hans væri bæði langur og
strangur. Hann gaf sér sérstak-
Iega góðan tíma þegar börn áttu í
hlut.
Sigursveinn var mikill hug-
sjónamaður. Hann gat verið
mjög harður í skoðanaskiptum
við þá sem töluðu af gáleysi um
t.d. málefni öryrkja og barna.
Sigursveinn var mikill ættjarðar-
vinur og baráttumaður um ís-
lenska tungu, enda sflesandi góð-
ar bókmenntir.
Ef að illar vættir
inn um myrkragœttir
bjóða svikasœttir
svo sem löngum ber
við í heimi hér.
Þá er ei þörf að velja:
þú mátt aldrei selja
það úr hendi þér.
Þetta erindi lýsir vel sann-
færingu og baráttugleði frænda.
Hann hafði óbilandi trú á landi og
þjóð. Það kom aldrei til mála að
víkja fyrir illum vættum sem
buðu svika sættir. Þegar við töl-
uðum síðast saman á afmælis-
deginum hans þá sagði hann ein-
mitt við mig að nú færi kannski að
styttast í dvöl þeirra suður á
„heiðinni“.
Já, það má skrifa mikið og
lengi til að minnast Sigursveins
frænda. Við höfum öll misst mik-
inn og góðan vin. En við megum
líka vera glöð og þakklát, því
hann gaf okkur svo mikið.
Við sem í dag kveðjum Sigur-
svein frænda getum að mínu áliti
aðeins á einn hátt þakkað honum
allar gjafirnar. Við gerum það
best með því að halda baráttu
hans áfram og halda fána hans
hátt á lofti.
Göngum langar leiðir
landið faðminn breiðir.
Allar götur greiðir
gamla landið mitt
sýnir hjarta sitt.
Mundu mömmu Ijúfur
mundu pabba stúfur
að þetta er landið þitt.
Ég og fjölskylda mín vottum
Kristni, systkinum og öðrum að-
standendum, okkar dýpstu sam-
úð.
Gunnar Halldórsson
Akureyri
Vegna jarðarfarar
Sigursveins D. Kristinssonar verður dagvist
Sjálfsbjargar, Hátúni 12, lokuð mánudaginn 14.
maí.
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra
Vegna jarðarfarar
Sigursveins D. Kristinssonar verða skrif-
stofur, endurhæfingadeild, sundlaug og bað-
stofa Sjálfsbjargar í Hátúni 12, lokaðar mánu-
daginn 14. maí frá kl. 12.00.
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra og
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra
í Reykjavík og nágrenni
FLUGMÁLASTJ ÓRN
Atvinna
Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli auglýsir hér
með laus störf hús- og öryggisvarða í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar.
Umsækjendur skulu vera heilsugóðir og hafa
lokið grunnskólaprófi eða sambærilegri
menntun. Enskukunnátta og kunnátta í einu
Norðurlandamáli æskileg.
Laun samkvæmt launakjörum opinberra starfs-
manna.
Skriflegum umsóknum skal skilað í skrifstofu
flugvallarstjóra í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á
Keflavíkurflugvelli fyrir 26. maí 1990.
Ómar Ingvarsson deildarstjóri (sími: 92-50600)
veitir nánari upplýsingar um störfin.
Keflavíkurflugvelli, 10. maí 1990
Pétur Guðmundsson
flugvallarstjóri
Sigursveinn D. Kristinsson
tónskáld
Stóragerði 23, Reykjavík
sem lést 2. maí sl.
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju mánudaginn 14.
maí kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Sjálfsbjörg lands-
samband fatlaðra.
Kristinn Sigursveinsson
Sigríður Kristinsdóttir
Halldór Kristinsson
og aðrir aðstandendur
HEILSUVERNDARSTÖÐ
REYKJAVÍKUR
p/ BARONSSTIG 47
Heilbrigðisráð Reykjavíkur óskar eftir að ráða
eftirtalið starfsfólk til starfa við heilsugæslu-
stöðvar í Reykjavík:
SJÚKRALIÐA við Heilsugæslustöð Efra
Breiðholts í fullt starf eða hlutastarf til sumar-
afleysinga. Upplýsingar gefur hjúkrunaarfor-
stjóri í síma 670200.
SJÚKRALIÐA við Heilsugæslustöð Hlíða-
svæðis, tímabilið 13. ágúst til 7. septembertil
sumarafleysinga. Upplýsingar gefur hjúkrun-
arforstjóri í síma 622320.
SJÚKRALIÐA við Heilsugæslustöðina í Foss-
vogi til sumarafleysinga. Upplýsingar gefur
hjúkrunarforstjóri í síma 696780.
Umsóknum skal skila til skrifstofu fram-
kvæmdastjóra heilsugæslustöðva í Reykjavík,
Barónsstíg 47, fyrir kl. 16.00 föstudaginn 18.
maí 1990.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Kennara vantar á tölvubraut, bæði í
hugbúnaðar- og vélbúnaðargreinum.
Óskað ereftirverkfræðingum, tölvunarfræðing-
um, tæknifræðingum eða mönnum með
sambærilega þekkingu.
Upplýsingar í skrifstofu skólans. Sími 26240.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Sjðomúla 39, sími 678509
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Laus staða í Fjölskyldudeild.
Staða félagsráðgjafa við Vistheimili barna er
laus til umsóknar. Æskilegt að viðkomandi hafi
reynslu af meðferðarstörfum.
Nánari upplýsingar gefur Gunnar Sandholt, yfir-
maður fjölskyldudeildar eða Helga Þórðardóttir
í síma 679500.
Umsóknum skal skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 2. hæð á
umsóknareyðublöð sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 25. maí n.k.
SUNDLAUG í ÁRBÆ
Teikningar og líkan af fyrirhugaöri sundlaug
í Árbæjarhverfi er til sýnis í félagsmiðstöðinni Árseli
virka daga frá kl. 17:00-20:00 frá og með 14. maí
og laugardaginn 19. maí frá 13:00-17:00. Fulltrúar frá
Iþrótta- og tómstundaráði og hönnuðir verða
i Árseli mánudaginn 14. mai frá kl. 17:00.
ÍÞRÓTTA- OG
TÓMSTUNDARÁÐ
REYKJAVÍKUR
PCN
Aðalfundur
Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis verður
haldinn í Súlnasal Hótel Sögu laugardaginn 19.
maí kl. 10.00.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins, en auk
þess gerð tillaga um að leggja niður innláns-
deild félagsins. Stjórn KRON
Félagsmálastofnun
^ Hafnarfjarðar
Fundur um málefni aldraðra í Hafnarfirði verður
haldinn í íþróttahúsinu Álfafelli við Strandgötu,
miðvikudaginn 16. maí n.k. kl. 20.30.
Efni fundarins verður kynning á niðurstöðum úr
könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla ís-
lands á högum aldraðra í Hafnarfirði.
Allir velkomnir.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði
Útboð
V
V
Skeiða- og Hrunamannavegur,
Hólakot - Hellisholt
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboöum í ofan-
greint verk. Lengd kafla 7,16 km, fylling 56.000
rúmmetrar og skering 14.000 rúmmetrar.
Verki skal að fullu lokið 1. nóvember 1990.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rikisins
á Selfossi og i Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 14. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 28. maí 1990.
Vegamálastjóri