Þjóðviljinn - 12.05.1990, Blaðsíða 19
A k'\ * » »:« *■?
,v ▼. v '>>* v v v'u íV . Ut flíVV* A *K\i!**4*\ * >T*
I VIKULOKIN
Krabbameinssiúklingar
Þurfa andlegan
stuðning
Samnorrœn ráðstefna í Finnlandi: Brýnt að
sálrœnum og félagslegum þörfum sjúklinga
sé gefinn aukinn gaumur
Ahverju ári frá 100.000
manns á Norðurlöndum
krabbamein, þar á meðal um
700 börn. Nú er um hálf milj-
ón manns á lífi í þessum lönd-
um sem fengið hafa krabba-
mein. Um helmingur þeirra
hefur fengið bót meina sinna
en aðrir hafa krabbameins-
sjúkdóma á mismunandi stig-
um.
Dagana 3.-5. maí var haldin í
Vasa i Finnlandi ráðstefna um
andiegan og félagslegan stuðn-
ing við krabbameinssjúklinga á
Norðurlöndum. Þar hittust 110
þátttakendur, þar af 11 ífá ís-
landi, til þess að ræða ýmsa
þætti i aðhlynningu krabba-
meinssjúklinga. Þátttakendur
voru fúlltrúar flestra heilbrigðis-
stéttanna og einnig sjúklinga-
hópa sem og stjómmálamenn.
Ráðstefnan er sú fyrsta sinnar
tegundar og var skipulögð af
stjóm Norrænnar framkvæmda-
áætlunar gegn krabbameini og
Norrænu krabbameinssamtök-
unum.
Meðal þeirra sem þátt tóku í
ráðstefnunni vom þær Guðrún
Agnarsdóttir, sem á sæti i fram-
kvæmdastjóm Krabbameinsfé-
lagsins, og Lilja Þormar hjúkr-
unarfræðingur sem starfar hjá
Krabbameinsfélaginu að heima-
hlynningu krabbameinssjúk-
linga:
„Markmið þessarar ráð-
stefnu var að vekja umræðu og
þrýsta á um að félagslegum og
sálrænum stuðningi við krabba-
Lilja Þormar og Guðrún Agnars-
dóttin Sjúklingurinn sem manrt-
eskja, ekki einungis krabba-
meinsæxlið, þarf að njóta óskiptrar
athygli og umönnunar.
Mynd Kristinn
meinssjúklinga sé gefinn meiri
gaumur af opinbera geiranum en
sé ekki algjörlega á ábyrgð ein-
stakra stofnana,” sagði Lilja í
samtali við Þjóðviljann. „Þessi
stuðningur varðar öll stig sjúk-
dómsins frá greiningu til loka-
stigs og þarf að koma til vegna
tilfinningalegra viðbragða sjúk-
lings. Þar má meðal annars
nefna kreppu og sorgarviðbrögð,
tilfinningalega og félagslega
einangmn og trúarkreppu.”
„Ráðstefnugestum var skipt í
vinnuhópa og hópamir vom síð-
an beðnir að skoða lista með níu
atriðum og velja út þau þijú sem
þóttu mikilvægust,” sagði Guð-
rún Agnarsdóttir. „Nær öll
Norðurlöndin völdu sömu þrjú
atriðin. I fýrsta lagi þarf að auka
upplýsingar og tjáskipti heil-
brigðisstarfsfólks við sjúklinga
og mennta starfsfólkið til að
takast á við tilfmningaleg við-
brögð sjúklinga. Það er ekki
sama hvemig fólki er sagt frá þvi
að það hafi greinst hjá því
krabbameinsæxli og á ráðstefn-
unni fengum við m.a. að sjá
myndbönd með dæmum um
hvemig hægt er að skýra frá
slíku á ýmsa vegu.
I öðm lagi þarf að leggja á-
herslu á aukinn félagslegan og
andlegan stuðning við sjúklinga
og í þriðja lagi þarf að auka að-
hlynningu í heimahúsum.
Slíka aðhlynningu hefur
Lilja ásamt fleimm verið að
byggja upp hérlendis og íslenski
hópurinn lagði því meiri áherslu
á annað atriði sem er hversu lág-
ar bætur almannatrygginga hér-
lendis em til sjúklinga með
langvarandi og alvarlega sjúk-
dóma. Við vorum eina landið
sem tókum þetta atriði út af
þessum lista forgangsmála og
málum virðist því betur háttað á
hinum Norðurlöndunum að
þessu leyti.”
Önnur ráðstefna sem mun
fjalla um rannsóknir á þessu
sviði verður haldin í Kaup-
mannahöfn í haust og er gert ráð
fyrir að árangurinn af þessu
starfi verði sá að andlegur og fé-
lagslegur stuðningur við krabba-
meinssjúklinga verði stærri þátt-
ur en ella í áætluninni, þegar upp
er staðið.
-vd.
Og lífið líður...
Hugsið ykkur, ég fæ að skrifa hugleiðinguna
afiur! En, nota bene, með þeim skilmálum að biðj-
ast afsökunar á „andstyggilegum og ósönnum að-
dróttunum í garð vinnufélaga” í síðasta Iaugar-
dagsblaði. Það er að segja, klausunni um að strák-
ar skrifi aldrei um mjúku málin sem Pressumenn
voru svo ósvífnir að kippa úr samhengi og birta
• með feitu letri í „hinni pressunni”.
Þessi krafa ein og sér sýnir auðvitað að ég hef
haft alrangt fyrir mér á vissan hátt: Karlmenn eru
mjög viðkvæmir inn við beinið og þar af leiðandi
líklega færari en konur um að fást við viðkvæm og
vandmeðfarin mál. Hins vegar hafði ég rétt fýrir
mér um „strákahúmorinn”: Þeir hafa húmor fýrir
öðrum en ekki fýrir sjálfum sér!
Nú jæja, ég get svo sem dregið eitthvað í land.
Til dæmis skrifaði einn af strákunum ffétt um
bamaheimili um daginn. Og í gær átti ég að skrifa
frétt um vaxtamálin. Hún „féll” að vísu þar sem
bankastjórinn var erlendis, en samt... Sem sagt, ég
biðst innilega fýrirgefningar á að hafa sært við-
kvæm hjörtu og vona að öllum sé fyllilega ljóst,
þrátt fyrir allt, að á málgagni sósíalisma, þjóðfrels-
is og verkalýðshreyfmgar ríkir jafnréttið eina og
sanna. Það er að segja að svo miklu leyti sem það
er hægt. Ég meina, ritstjóramir, fréttastjórinn og
flestir blaðamennimir eru karlkyns en þannig er
það nú víðast hvar og ekki geta þeir gert að því,
eða hvað? Viðmælendur blaðsins em líka flestir
karlar, en getur nokkur gert að því þótt flestir ráð-
herrar, þingmenn, forstjórar og verkalýðsffömuðir
séu karlar? Ekki báðu þeir um að fæðast með tippi!
Jæja, nóg um það. Nú er ég búin að fara með
helminginn afplássinu í þessa fj... afsökunarbeiðni
og það hlýtur að duga. Nú ætla ég að nýta þessa
dálksentimetra sem afgangs em til hugleiðinga um
Reykjavík. Ég er nefnilega nýflutt að vestan í bæ-
inn, siðmenninguna, snjóleysið, Kringluna, pöbb-
ana, strætóana og það allt. Strætóamir, já, þeir em
búnir að valda miklum hugleiðingum á mínu
heimili. „Sjáðu til,” segir maðurinn minn á kvöld-
in þegar hann er kominn heim úr strætó 45 mínút-
um eftir að hann fór út af vinnustaðnum: „Ég gæti
komist til Isafjarðar með fiugi og aftur suður á
jafnlöngum tíma og ég sit í strætó. Hugsaðu þér,
lífið líður og líður á meðan við bíðum eftir strætó.
Við eyðum a.m.k. tólf tímum á viku á biðskýlum
og í vögnunum, sem sagt meir en 50 tímum á mán-
uði og hvað gerir það á ári?!”
Ég hef reynt að benda honum á þau augljósu
sannindi að bílar eru rándýrir og við erum skít-
blönk, tryggingar kosta líka fullt af peningum,
bensínið er alltaf að hækka, bílar eru mengunar-
valdar og slysavaldar og kosta ríkið miljónir árlega
i sjúkratryggingagreiðslum, umferðaráróðri,
gatnagerð og svo framvegis. En þið vitið hvemig
karlmenn eru. Þannig að nú eyðum við öllum frí-
tíma okkar á bílasölum, lesum bílaauglýsingamar í
blöðunum, skoðum hverja blikkbeljuna á fætur
annarri, pmfukeymm, gemm tilboð og spáum og
spekúlemm. Og á meðan líður lífið áffam...
-Villa
í DAG
þJÓÐVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM
Churchill myndar þjóðstjóm í
Bretlandi og gerðar eru víð-
tækar ráðstafanir þar i landi af
ótta við mögulega innrás Þjóð-
verja. Þýski herinn heldur á-
ffam hraðri sókn yfir Holland
og Belgíu. Lýst er áhyggjum af
því að stríðið komi í veg fyrir
að íslendingar geti selt saltaða
síld til Finnlands, Svíþjóðar og
Sovétríkjanna. Skipuð var loft-
vamanefnd í Reykjavík til að
vinna að öryggi nýhemuminna
bæjarbúa.
12. MAÍ
laugardagur, 132. dagur árs-
ins. Pankratíusmessa. Sólar-
upprás í Reykjavík kl. 4.23. -
sólartag kl. 22.27.
VIÐBURÐIR
Það sem gerist á ári hveiju:
vorvertíð hefst.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavlk: Helgar- og kvöldvarsla lytja-
búða vikuna 27. apríl til 3. maí er I Breið-
holts Apóteki og Apóteki Austuröæjar.
Fyrmefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til
9 (til 10 á fri-dögum). Síðamefnda apó-
tekið er opið á kvöidin kl. 18 til 22 virka
daga og á laugardögum kl. 9 til 22 sam-
hliöa hinu fyrmefhda.
LÖGGAN
Reykjavik....
Kópavogur.....
Seltjamames.
Hafnarfjörður.
Garðabær......
1 11 66
4 12 00
.« 1 84 55
.« 5 11 66
.« 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar
Reykjavik...................* 1 11 00
Kópavogur....,..............« 1 11 00
Seltjamames.................» 1 11 00
Hafnarfjörður...............« 5 11 00
Garðabær....................« 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamar-
nes og Kópavog er í Heilsuvemdarstöö
Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8,
á laugardögum og helgidögum allan sól-
arhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðlegg-
ingar og timapantanir i« 21230. Upplýs-
ingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru
gefnar I simsvara 18888. Borgarspital-
inn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir
þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná
ekki til hans. Landspítaiinn: Göngudeild-
in er opin frá k). 20 til 21. Slysadeild
Borgarspítalans er opin allan sólarhring-
inn, « 696600.
Hafnaifjörður: Dagvakt, Heilsugæslan,
w 53722. Næturvakt lækna,« 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt
rr 656066, upplýsingar um vaktlækna,
«51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Lækna-
miöstöðinni, « 23222, hjá slökkviliðinu,
« 22222, hjá Akureyrar Apóteki,
« 22445. Farsimi vaktlæknis 985-23221.
Keflavík: Dagvakt, upplýsingar (
«14000.
Vestmannaeyjar Neyðarvakt lækna,
« 11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartimar. Landspítalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spítalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30,
um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomu-
lagi. Fæðingardeild Landspltalans: Alla
daga kl..15til 16, feöratími kl. 19:30 til
20:30. Öldrunariækningadeild Land-
spítalans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til
20 og eftir sámkomulagi. Grensásdeild
Borgarspitaia: Virka daga kl. 16 til 19, um
helgar kl. 14 til 19:30. Heilsuvemdar-
stöðin við Barónsstíg: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 tll 19:30. Landakotsspítali:
Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19.
Bamadeild: Heimsóknir annarra en for-
eldra kl. 16 til 17 alla daga. St Jósefs-
spitali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Kleppsspitalinn: Alla
daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkra-
hús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til
16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavík: Alla daga kl. 15 til
16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Hjáiparstöð RKl: Neyðarathvarf fyrir
unglinga, Tjamargötu 35,« 622266, opið
allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er I uppiýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvoldum Id. 21
til 23. Simsvari á öðrum timum.
« 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sálffæðilegum
efnum,« 687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, erveitt (slma 11012 milli kl.
19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga
frá kl. 8 til 17,« 688620.
„Opið hús" fyrir krabbameinssjúklinga
og aðstandendur þeima i Skógartiliö 8 á
fimmtudögum ki. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja smitaða og sjúka og
aðstandendur þeinra I« 91-2240 og þar
er svarað alla virka daga.
Upplýsingarum eyðni:« 622280, beint
samband við lækni/hjúkrunarfræðing á
miðvikudögum kl. 18 til 19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf: » 21205,
húsaskjól og aðstoð við konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða oröið fyrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpa, Vesturgötu
3: Opið þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtu-
daga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22,
« 21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem onðið hafa
fyrir siljaspellum:« 21500, símsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
« 21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamót, miðstöð fyrir konur og böm
sem oröiö hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, fræösla, upplýsingar, Vesturgötu
3, ® 91-626868 og 91-626878 allan
sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
» 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt í
® 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
« 652936.
GENGIÐ
11. maí 1990 Sala
Bandarlkjadollar............59,72000
Steriingspund................99,97400
Kanadadollar.................50,77200
Dönsk króna...................9,55140
Norsk króra...................9,34290
Sænsk króna...................9,94260
Finnskt mark.................15,34630
Franskur franki...............10,80170
Belgískur franki............. 1,75980
Svissneskur franki...........42,66320
Hollenskt gyllini............32,48390
Vesturþýskt mark..............36,52930
Itölsk lira...................0,04950
Austumskur sch................5,19330
Portúgalskur escudo.......... 0,41040
Spánskur peseti...............0,57910
Japanskt jen..................0,38779
Irskt pund...................97,78900
KROSSGÁTA
Lárétt 1 þjark 4 fugl
6 glöð 7 hvetja 9 máls
12 maðkur 14 hár
15 grænmeti 16 bátur
19 kaup 20 plpan
21 spjátrungur
Lóðrctt: 2 lélegur 3 hró
4 spil 5 fauti 7 duglegri
8 sterk 10 gekk 11 and-
ann 13venslamann
17 eira 18 fugl
Lausn á síðustu
krossgátu
Lárétt 1 smáa 4 þörf
6 för 7 ansa 9 isak
12 kratt 14 hey 15elr
16 róleg 19 gutl 20 Hma
21 auöna
Lóðrétt: 2 men 3 afar
4 þrif 5 róa 7 athuga
8skyrta 10stegla
11 kartar 13 afl 17 ólu
18 ein
Laugardagur 12. maí 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA19