Þjóðviljinn - 20.07.1990, Blaðsíða 25
Öðruvísi unglingamynd
Laugarásbíó
Unlgingagengin (Cry-Baby)
Leikstjóri: John Waters
Handrit: John Waters
Aðalleikarar: Johnny Depp, Amy
Locane, Ricky Lake o.fl.
Johnny Waters er vafalaust
einn umdeildasti ameríski leik-
stjóri síðustu ára. Myndir eins og
Pink Flamingoes, Polyester og
Female Trouble hafa valdið
miklu fjaðrafoki hvar sem þær
hafa verið sýndar, og gefið Wat-
ers nafngiftina „Konungur sorps-
ins“. Árið 1988 kom hann síðan
öllum á óvart með myndinni
Hairspray sem varð geysivinsæl.
Hún var á léttari nótum en fyrri
myndir Waters, t.d. át enginn
hundaskít o.s.frv.
Nýjasta afrek Waters,
Unglingagengin, gerist eins og
Hairspray, í Baltimore, fæðing-
arbæ Waters. Og eins og Hair-
spray er hún nokkurs konar skop-
stæling á unglingamyndum 6.
áratugarins, nema að þeir sem
vanalega eru vondu gæjarnir
(leðurklæddir á mótorhjólum)
eru góðu gæjarnir hér. Unglinga-
gengin er söngvamynd um
árekstra milli tveggja unglinga-
hópa, Squares, þessa íhalds-
sömu, og Drapes, vandræða-
unglinganna. Waters lýsti því ein-
hvern tíma yfir að hann hefði
alltaf dreymt um að vera vand-
ræðaunglingur 1956, en þá var
hann bara átta ára og átti því erf-
itt með það.
Unglingagengin er fyrsta
Watersmyndin sem skartar virki-
lega myndarlegum aðalleikara.
Það er ameríska sjónvarps-
stjarnan Johnny Depp sem leikur
Fiðlskvldumál
Stjörnubíó
Fjölskyldumál (Immediate family)
Leikstjóri: Jonathan Kaplan
Framleiðandi: Lawrence Kasdan
Aðalleikarar: Glenn Close, James
Woods, Mary Stewart Masterson
í stuttu máli er þetta mynd um
Lindu og Michael sem vildu
eignast barn en gátu það ekki og
Lucy og Sam sem áttu von á barni
en kærðu sig ekki um það. Þetta
stendur orðrétt inn í pró-
gramminu sem Stjörnubíó semur
um myndina og kemst einstak-
lega vel að orði, en hvers vegna
þeir halda áfram og kalla hana
„bráðskemmtilega gamanmynd
sem alvarlegu ívafi“ skil ég ekki
alveg. Kannski halda þeir að eng-
inn vilji fara á mynd sem er fyrst
og fremst alvarleg með skemmti-
legum atriðum inn á milli. Þeir
auglýstu líka Stálblóm sem
skemmtilegustu gamanmynd
allra tíma þó að ein söguhetjan
deyi og hinar þersónurnar skæli
marga potta! Kannski finnst
eigendum Stjörnubíós að aðrir
hlutir fyndnir en mér.
Eiginlega sé ég fátt „bráð-
skemmtilegt“ við fólk sem getur
ekki eignast barn og ungar mæð-
ur sem verða að gefa börnin sín af
því þær eiga ekki kost á að ala þau
sómasamlega upp. Pað er kann-
ski rétt að minnast á það hér að ég
er ekki alveg fordómalaus í þess-
um efnum af því að ég er nýbúin
að eignast barn og tek þetta lík-
lega allt saman alltof nærri mér.
En að öllu nöldri slepptu er Fjöl-
skyldumál afskaplega indæl
mynd. Söguþráðurinn er einfald-
ur en helst til fyrirsjáanlegur.
Góður leikur kemur að mörgu
leyti í staðinn fyrir flókinn sögu-
þráð eða hnyttin tilsvör.
Það er gaman að sjá Glenn
Close leika „venjulega“ konu,
þ.e. ekki brjálaða eins og í Fatal
Attraction eða valdasjúka eins og
í Dangerous Liasions. Hér leikur
hún ósköp indælan fasteignasala
sem á þá ósk heitasta að eignast
barn. James Woods leikur mann-
inn hennar og gerir það vel. Það
er samt Mary Stuart Masterson
sem stelur myndinni í hlutverki
ungu móðurinnar (þetta finnst
fleirum en mér). Hún leikur það
af svo mikilli innlifun að hún á
alla samúð manns.
Þetta er raunsæ og einlæg
mynd um hluti sem eru alltaf að
gerast alls staðar í kringum okkur
og ástæðulaust að reyna að selja
hana sem gamanmynd. Hún
stendur fyllilega fyrir sínu sem
það sem hún er. Sif
TJALDIÐ
Háskólabíó
Leitin að Rauða október
(The hunt for Red Oktober)**
John McTiernan, sá sem gerði Die
Hard, er nú kominn af fimmtugustu
hæð og niður á fimmhundruð metra
dýpi. Sean Connery f hlutverki
rússnesks kafbátsforingja ákveður að
flýja til Bandaríkjanna með kafbát-
inn. Fyrsta nostalgíumyndin um
kalda stríðið en alveg örugglega ekki
sú síðasta.
Vinstri fóturlnn
(My left foot)****
Algjörlega yndisleg mynd sem maður
getur ekki annað en fallið fyrir, nokk-
urskonar óður til líkamshluta. Daniel
Day Lewis sýnir í hlutverki Christy
Brown að vinstri fótur er allt sem þarf
til að vera sjarmerandi og sexý.
Shirley Valentine***
Pauline Collins fer á kostum sem
Shirley Valentine! (Þetta er klisja en
það er alveg satt). Shirley er kona
sem talar við eldhúsvegginn sinn, af
því allir aðrir í kringum hana eru svo
leiðinlegir. Svo talar hún líka við stein
en hann skilur hana ekki því hann er
grískur. Þetta er skemmtileg mynd
um konu sem er dálítið galin og
skammast sín ekkert fyrir það.
Cinema Paradiso
(Paradísarbíóið)****
Það er í rauninni fáránlegt að vera að
gefa svona mynd stjörnur, því hún er
langt yfir alla stjörnugjöf hafin.
Svona mynd er aðeins gerð einu sinni
og þess vegna má enginn sem hefur
hið minnsta gaman af kvikmyndum
missa af henni.
Siðanefnd lögreglunnar
(Internal affairs)****
Það eru aðalleikararnir Gere og
Garcia sem fá þessar stjörnur, þeir
eru báðir góðir, allt of góðir fyrir
þetta lélega handrit sem er mengað af
kvenfyrirlitningu.
Horft um öxl
(Látum það flakka) 0
Þetta er ein leiðinlegasta mynd sem
ég hef séð lengi. Hún er svo fyrir-
sjáanleg að maður getur farið heim
eftir fimm mínútur og samt vitað
endinn. Ég skil bara ekki hvað af-
burðaleikarar á borð við Hopper og
Sutherland eru að gera þarna.
Stjörnubíó
Stálblóm
(Steel magnollas)***
Þetta er ekki „skemmtilegasta gam-
anmynd allra tíma“ eins og stendur í
auglýsingunni. Þetta er reglulega
skemmtileg mynd um líf sex vin-
kvenna í smábæ. En lífið er ekki alltaf
tóm skemmtun svo þið skulið taka
einn vasaklút með.
Laugarásbíó
Alltaf (Always)**
Spielberg er hér með ansi væmna
mynd um flugmann sem deyr en kem-
ur aftur til að hjálpa ungum flug-
manni að verða góður og reyna við
ekkjuna í leiðinni. Dreyfuss er ekki
alveg nógu sannfærandi sem ímynd
fífldirfskunnar en Hunter og Good-
man eru bæði mjög góð.
fyrirliða vandræðaunglinganna,
Cry-Baby, nokkurs konar blöndu
úr James Dean og Elvis Presley.
Hann er kallaður Cry-Baby
vegna þess að á hverjum degi fell-
ir hann tár fyrir pabba sinn sem
dö í rafmagnsstólnum. Ricky
Lake, aðalleikkonan úr Hair-
spray, leikur ólétta systur hans.
Ámy Locane leikur prúðu stelp-
una úr íhaldsklíkunni sem fellur
fyrir Cry-Baby og dreymir um að
vera vandræðaunglingur. Kim
McGuire leikur Hatchetface,
eina af vandræðapíunum. Hún er
einstaklega ófríð, enda svaraði
hún auglýsingu sem Waters setti í
dagblað, þar sem hann auglýsti
eftir einhverri sem væri ljót en
stolt af því!
Tracy Lords leikur hina aðal
vandræðapíuna og er einstaklega
glæsileg. Lords er ekki alveg ný á
hvíta tjaldinu, hún hefur leikið í
u.þ.b. 70 klámmyndum síðan
hún var 15 ára. Iggy Pop, Patti
Hearst, Willem Dafoe og Susan
Tyrell skreyta myndina í litríkum
aukahlutverkum. Það hefurverið
haft eftir Waters að eini maður-
inn sem vantar í þetta annars
fullkomna Ieikaralið sé Harris
Glenn Milstead sem er betur þek-
ktur undir nafninu Divine. Hann
lést 1988 eftir að hafa verið
samstarfsmaður Waters og aðal-
leikari hans alveg frá byrjun.
Unglingagengin er afskaplega
skrautleg mynd, og oft er hún lík-
ari teiknimynd en leikinni vegna
þess hversu öfgafullar týpurnar
eru. Þeir sem halda að Waters sé
búinn að selja Hollywood sál sína
eftir velgengni Hairspray (fram-
leiðendurnir Abrahams og Graz-
er stóðu á bak við við myndir eins
og Cocoon og Parenthood) ættu
að drífa sig á Unglingagengin og
sannfærast um að svo er ekki.
Unglingagengin er frábær
skemmtun, sérstaklega fyrir þá
sem hafa gaman af dálítið öðru-
vísi húmor. Sif
Föstudagur 20. júlí 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25