Þjóðviljinn - 20.07.1990, Síða 28
Enn bíður Stöðin
Afgreiðslu á umsókn Stöðvar
2 um borgarábyrgð á 200 milj-
óna króna láni hefur margít-
rekað verið frestað í borgarr-
áði og velta menn nú fyrir sér
hvað tefji Orminn langa.
Innanhússkýringin á þessum
drætti er nú talin sú að ákveð-
ið hafi verið að þegja málið í
hel.
Hver er Gísli?
Það er ekki alltaf fyrirhafnar-
laust að ná f hina ýmsu mertn í
kerfinu og gildir það sérstak-
lega í júlímánuði þegar þjóðin
fer í sumarfrí. Stundum jaðrar
við að heilu stofnanirnar séu
mannlausar og þeir einu sem
sinna starfi sínu séu sfma-
dömurnar sem tilkynna að
einn sé í fríi, annar á fundi og
sá þriðji veikur. Á ónefndri
stofnun í borginni hefur að
undanförnu orðið vart við að
ákveðinn starfsmaður þar, að
nafni Gísli, sé ætíð eitthvað af
þessu þrennu, þ.e. veikur, ífríi
eða áfundi. Viðkvæðið „Málið
er hjá Gísla en hann er ekki
við“ heyrist nú svo oft að
grunur leikur á að Gísli þessi
sé alls ekki starfsmaður hjá
stofnuninni heldur sé nafn
þetta sé gæluheiti yfir rusla-
körfuna...
Orgeltónleikar í Dómkirkjunni
Heinz Markus Göttsche, þýskur prófessor í orgelleik, heldur orgel-
tónleika í Dómkirkjunni laugardagskvöldið 21. júlí kl. 20.30. Efnisskrá-
in ber yfirskriftina: 5 aldir, 5 Evrópulönd.
Göttsche er fyrrverandi söngmálastjóri kirkjunnar í Rheinland Pfalz
og er nú kantor stiftskirkjunnar í Landau.
Meðal verka á efnisskránni má nefna orgelverk eftir Frescobaldi,
Bach, Mozart og Mendelssohn.
Komdu og skoðaðu kostagripina frá
RENAULT
Bílasýning laugardag kl. 10-18 og sunnudag kl. 13-18.
Bílaumboðið hf A RENAULT
Krókhálsi 1, sími 686633, 130 Reykjavik. w/ FER Á KOSTUM
NÚ ER HANN ÞREFALDUR!
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Lottó
er fyrir alla...
.. .líka þig!