Þjóðviljinn - 27.07.1990, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 27.07.1990, Blaðsíða 20
7 z Ý 5 tP 7 y 22 T W ¥ 11 ¥ 10 vr~ S? 12 J"3 11 V H s iT IS 7 22 lb 3— T 1? W ' f V l<i 3 T )H 20 5 21 + ■ )0 7 zz W~ W~ M IV ‘V S? V 2S 23 IV- <7 V- 7- V °1 Vo T R? 12 , 'J 3 3 V J7 s? )S~ 11 V- 23 11 s 22 25 3 3 18 zV V Æ % S? 28 3 20 s? 2? T~ V )V 3 s? Zl n ? s l°i IV S2 J3 n V IV 28 v- 3 IV u ;/ zé S? V- 2í> y~ Já> ■ H 22 IH U> 2? u " 7- 3 4 W~ ) V 15 3 H- ¥ ZJ 22 28 7 5" )H SLÓ- w~ T S2 Z0 2? Ý 2 s? 2!~ 11 ZL> 5 y 18 7- 3ö 23 28 IV vr 5 v~F n H- 11 31 25 £ E 28 AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Krossgáta nr. 106 Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá örnefni á Austurlandi. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj- ans, Síðumúla 37, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 106“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaun verða send til vinningshafa. 5 (d 20 17 10 II II 15 7 — Lausnarorð á krossgátu nr. 102 var Svörtuloft. Dregið var úr réttum Verðlaun fyrir krossgátu nr 106 lausnum og upp kom nafn Steingríms Guðmundssonar, Njálsgötu 29, eru hljómplatan „Til þín“ með 101 Reykjavík. Hann fær senda bókina „Ræktun lýðs og lands. Ung- André Bachman, konungi kok- mennafélag íslands 75 ára 1907-1982“ eftir Gunnar Kristjánsson. teilsöngvaranna". Elísabet Berta Bjarnadóttlr Af hverjum kaupir almúginn gosið? Nýjasta gosdrykkjaafurð fyrir- tækisins Sól hf. heitir Seltzer og er ætluð á Bretlandsmarkað en seld hér einnig. Á dósinni (sem einnig er frá Sól hf.) er áletrun á ensku enda líklega ekki þótt taka því að framleiða dósir með ís- lenskri áletrun fyrir þessar örfáu hræður sem skerið byggja. Á dós- inni stendur (í lauslegri þýðingu) að innihaldið sé gert úr jöklavatni á íslandi. Vatnið á að hafa runnið yfir hraun og storkuberg og er síðan bragðbætt og sett í það fruktósi og glúkosi svo maður megi eiga hressandi upplifun við drykkjuna. Og þessi afurð sem fæst í þrem- ur bragðtegundum er vissulega bæði bragðgóð og hressandi. Undirrituð er hrifnust af lime/ lemon bragðinu en raspberry er ágætt líka. Það sem ekki vekur jafnmikla kátínu er verð þessarar afurðar sem er þegar þetta er skrifað, dýrasti fáanlegur gos- drykkur á landinu. Seltzer var markaðssettur á kynningarverðinu 49 krónur hver dós, sem inniheldur 32,5 senti- lítra. Að „kynningu" lokinni hækkaði útsöluverð Seltzers snarlega í 65 krónur eða um ca. 30 prósent. Nokkrum dögum síð- ar hækkar verðið síðan aftur og nú er útsöluverð Seltzers 69 krón- ur. Til samanburðar má taka verð á hálfum lítra af Egils appelsíni sem kostar út úr sömu verslun 75 krónur. Davíð Scheving Thorsteins- son, forstjóri Sólar hf. varð þjóð- hetja í einu vetfangi þegar hann keypti ölið um árið og komst með það úr fríhöfninni og inn í landið. Það hefur lengi verið draumur margs landans að nýta þetta frá- bæra íslenska hráefni, vatnið, til þess að afla sjálfum sér og þjóð- inni tekna, frægðar og frama. „Okkar vopn er vara sem enginn annar á,“ segir Davíð varðandi útflutning á kolsýrðu íslensku Gvendarbrunnavatni á dósum og tekur ennfremur fram að engum fjármunum sé eytt í kynningu og auglýsingar frekar en þegar Seltzer var settur á markaðinn. Sól hf. selur um hálfa milljón dósa á mánuði af Gvendarbrunn- avatninu fyrst um sinn og von- andi sýnir sá útflutningur hagnað auk þess að vera góð landkynn- ing. Frumkvæði, hugmyndaauðgi og verksvit á allt gott skilið. Það má teljast mjög vel sloppið að setja nýjan svaladrykk á mark- aðinn hvort sem er hérlendis eða erlendis án þess að eyða neinum fjármunum í kynningu og auglýs- ingar. í því sambandi ber auðvit- að fyrst og fremst að hafa í huga að neytandinn er ávallt sá sem endanlega borgar auglýsingu framleiðandans og því ætti núll- gjald í auglýsingar fyrst og fremst að skila sér í vöruverði. Og hefði nú ekki verið stór- kostlegt ef Davíð Scheving hefði treyst sér til að markaðssetja þessa ágætu afurð á verði sem væri í einhverjum tengslum við íslenskan raunveruleika, Sóknar- taxta og kauphækkunarstöðvan- ir? Mun ástin mín vara? Kæru lesendur, vegna ykkar sem voruð úr bænum um síðustu helgi eða af öðrum orsökum grip- uð ekki oní fjölskylduþáttinn, þá ráðlegg ég ykkur að róta eftir helgarblaðinu í blaðabunkanum sem beið ykkar þegar heim kom. Ef þið eruð ekki áskrifendur en hafið að gamni ykkar keypt blað- ið núna aldrei þessu vant, þá gæt- uð þið eflaust fengið blaðið á rit- stjórn Þjóðviljans. Þetta er nefni- lega framhaldsþáttur frá því þá. Eftir að hafa svarað með jái eða neii spurningunum 33 í síðasta þætti er hægt að taka til óspilltra málanna við að reikna út stigin. Hafið samt í huga að líf okkar verður aldrei eins og prentað mál í blaði eða uppskrift einhverra sérfræðinga. Áð þessum orðum sögðum, er samt rétt að leggja frá sér fordóma í garð sérfræðinga eins og fjölskylduráðgjafa. Það má alltaf bæta einhverju við sig af þekkingu á lífsleiðinni. Það má líka leiðrétta sjálfan sig pínulítið með gullkornum frá öðrum. Líta má á þekkingu eins og vörðurnar á hálendinu, þær voru nauðsyn- legar til að halda nokkurn veginn stefnunni. Þannig reiknar þú stigin Hvernig kem ég út? Fyrir hvert já-svar reiknar þú eitt stig. Fyrir hvert nei-svar, nema við spurningu 3 og 6 reiknar þú þér tvö stig. Nei-svör við spurningum 3 og 6 gefa eitt stig. Það er um að gera að fá sem fæst stig. 33-44 stig. Þið eruð par sem gætið fyllsta jafnréttis í sam- skiptum ykkar. Það er ekki nóg með að þið skiptið öllu á milli ykkar, þið skiptið líka með ykkur því sem minnst er af og það er tíminn. Að eiga saman stundir er hin nauðsynlega næring sem þarf til þess að hjónaband eða sam- band geti varað. Við að vinna saman að daglegum störfum fyrir heimilið ávinnum við okkur tíma saman. Jafnrétti við heimilis- störfin og við fjármál heimilisins, eykur líkurnar á að hjónabandið vari lífið á enda. Er það ekki það sem þið viljið? Á réttri leið 43-53 stig. Þið eruð alveg ör- ugglega á réttri leið með sam- band ykkar. Sumir halda því fram að pör hafi engin vandkvæði með jafnréttið í sambandinu, á meðan þau hafi bara hvort annað að kljást við og blessuð börnin sé'u ekki komin í spilið. Þegar þau eru komin í heim- inn, gerist það venjulega án þess að parið hafi ætlað sér það, að annar aðilinn tekur að sér bróð- urpartinn af heimilisstörfunum. Þetta verkar venjulega illa á framvindu sambandsins. Einn kynfræðingur orðar þetta svo: - Parið fer oft að feta sig í átt til skilnaðar um leið og fyrsta barnið er komið. Þessi þróun fer af stað af því að jafnréttið er horfið. Að styðja hinn 53-63 stig. Ykkur finnst svona próf hlægileg. Þið trúið ekki á þetta. Hver og einn verður að fá að vera þar sem hann er. En sam- bandið hefur tilhneigingu til að bíða skipbrot, þegar öðrum finnst að of mikill hluti ábyrgðar- innar hvíli á sér. Þau hjónabönd þar sem parið er raunverulega hamingjusamt, þar hafa venju- lega báðir aðilar yfirsýn. Hann eða hún sjá verkefni hins og reyna að gera hvort öðru léttara um vik. (Að rétta fram hendi í stað baráttu og að vera alltaf að hugsa um að bera ekki skarðan hlut frá borði.) Báðir bera ábyrgð og gangast upp í því. Gættu þín 63-66 stig. Hver er sá eða sú sem heldur út að vera með þér? Gættu vel að missa ekki elskuna þína, því þú finnur aldrei annan, sem er eins þolinmóður, ef þetta samband skyldi springa í loft upp. Haltu fast í þinn eða þína. Gangi ykkur vel með jafnréttið. Seinna tek ég enn frekar fyrir; frá dans- leikjaskoti til mánudagsástar, því margir hafa komið að máli við mig og lýst því hvernig slíkt gangi aldrei upp hjá sér. 20 SÍÐA-NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 27. júlí 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.