Þjóðviljinn - 27.07.1990, Blaðsíða 28
I
Bókaútgáfa:
Miljóna-
póker
með
metsölu-
bækur
Bókin hefur farið halloka í Bandaríkjunum á næstliðnum
árum hinnar „algjöru sjónvarpsvæðingar" eins og stundum er
að orði kveðið. Viðbrögð bókaútgefenda hafa ekki síst verið
fólgin í því, að veðja með enn meiri fyrirgangi en áður á örfá
nöfn manna, sem hafa framleitt metsölubækur og er trúandi til
að endurtaka þá dáð.
Óskrifaðir
reyfarar
Það er ekki síst veðjað á þá
menn sem semja vinsælar
spennusögur. Til að mynda er
skýrt frá því að Ken Follett hafi
nýlega selt tvær óskrifaðar bækur
fyrir 12 miljónir dollara í fyrir-
framgreiðslur. Breski
stjórnmálamaðurinn og reyfara-
höfundurinn Jeffrey Archer hef-
ur fengið 20 miljónir dollara fyrir
þrjár óskrifaðar bækur. Tilboðin
ganga samt ekki aðeins til
spennusagnahöfunda, Tom Wol-
fe hefur t.d. fengið tilboð upp á
5-7 miljónir dollara fyrir óskrifað
handrit.
Ekki vantar að útgefendur
sjálfir eru hræddir við þessa þró-
un, líkja henni við móðursýki og
vitfirringu. En allir telja sig
neydda til að dansa með. Til
dæmis hlaupa nú bæði Viking
Penguin og New American Li-
brary á eftir reyfarameistaranum
Stephen King og bjóða sem svar-
ar 300 miljónum króna fyrir
næstu fjórár hrollvekjur hans.
Siðirnir
breiðast út
t>ýska vikublaðið Spiegel
greinir frá því, að þessir siðir
breiðist út frá Bandaríkjunum, til
dæmis til þýskra forleggjara (þótt
upphæðir séu vitanlega lægri sem
þar eru í boði). Þá hafa og heyrst
þær fréttir frá Evrópu, að um-
boðsmenn bandarískra höfunda,
sem eitthvert nafn hafa (hvort
sem það er fyrir „góðar“ bók-
menntir eða „afþreyingu") séu
farnir að verðleggja þá svo hátt
að það sé að verða evrópskum
útgefendum ofviða að kaupa
verk þeirra til þýðinga.
j »>
I \‘‘
l |í;
|V r
Stórbisnessinn
ræður
Þessi miljónapóker sem Spieg-
el kallar svo, er tengdur því, að
allt er á hverfanda hveli í bókaút-
gáfunni. Það er hægt að græða
stórfé, en flestir tapa, gömul og
virt forlög eru komin út á barm
gjaldþrots fyrr en varir. Og þá
koma markaðsglöggir og fjár-
sterkir aðilar úr allt öðrum bisn-
ess og kaupa útgáfurnar upp. Síð-
an efna þeir til blóðbaðs - og þá
fjúka fyrst hausarnir af svonefnd-
um menningarvitum, sem setja
metnað sinn í að forlögin gefi út
merkar bækur við hlið þeirra
bóka sem auðveldast er að græða
á. Slík saga gerðist nýlega þegar
virtur útgáfustjóri, André Schif-
frin, sem um 28 ára skeið hafði
stýrt Pantheon, dótturfyrirtæki
Random House, var rekinn úr
starfi, eftir að einbeittir markaðs-
menn höfðu yfirtekið fyrirtækið.
Um 300 höfundar mótmæltu
harðlega og fóru í mótmæla-
göngu - en hver ansar því?
skammgóður vermir. Leikurinn
verður alltaf dýrari og dýrari, og
innheimtan óvissari.
áb tók saman.
Hraðvirk
hakkavél
Um leið er að gerast sú þróun,
að bóksalan færist í hendur stórra
bóksölukeðja. Þar ríkir fyrst og
síðast miskunnarlaus hraði: nýjar
pappírskiljur hafa aðeins tvær og
í mesta lagi þrjár vikur til að
brjóta sér leið gegnum sam-
keppnismúrinn - síðan eru þær
hakkaðar í spað ef lítt gengur.
Bundnar bækur fá aðeins tveggja
mánaða náðartíma í bókaskáp-
unum áður en þeim er slátrað.
Þetta ýtir á eftir því, að búnar
séu til metsölubækur, sem hægt
er að auglýsa fyrirfram - og byrja
með rokufrétt kannski um risa-
vaxna fyriframgreiðslu sem reidd
er af hendi áður en orð er skrifað.
Það hlýtur að verða eitthvað
imerkilegt sem svo mikið er borg-
að fyrir!
Hitt er svo annað mál, að einn-
ig allur sá æsingur sem hægt er að
píska upp í kringum væntanlegar,
hugsanlegar og mögulegar met-
sölubækur, einnig hann er
^fSgíSPtó
ERLÁGtJST
NNI í MYNDINNI
HJÁ ÞÉR?
Gjalddagi húsnœðisldna er 1. dgúst.
Gerðu rdð fyrir honum í tœka tíð.
16. dgúst ieggjast dróttarvextir á lán með lánskjaravísitölu.
1. september leggjast dráttarvextir á lán með byggingarvísitölu.
Gjalddagar húsnœðislána eru:
1. febrúar - 7. maí - 1. ágúst- 1. nóvember.
Sum lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins einn.
SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÖLD AF DRÁTTARVÖXTUM
OG HAFÐU ALLTAF NÆSTU GJALDDAGA INNI í MYNDINNI.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900