Þjóðviljinn - 27.07.1990, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 27.07.1990, Blaðsíða 18
Kortsnoj ekki dauður úr öllum í>að fór ekki mikið fyrir Viktor Kortsnoj á millisvæðamótinu í Man- ila sem lauk fyrir tæpum hálfum mán- uði. Hannvarekkíbeintífelumen þátttaka hans hafði ekki sömu róstur í för með sér og allajafna áður. Kann- ski hafði reykingabann FIDE sem var í gildi í þessu móti eitthvað að segja. í fyrstu sjö umferðunum vann hann þrjár skákir og gerði fjögur jafntefli en eftir það virtist hann sætta sig við tíðindalítil jafntefli. Hann stóð uppi taplaus og hefur ekki afrekað það áður á millisvæða- móti, en þau eru nú orðin fimm tals- ins. Þegar upp var staðið hafði hann hlotið 8 vinninga og var í 5.-11. sæti. Það dugði til að komast áfram í áskor- endakeppninni en þar hefur hann verið meðal keppenda samfellt frá ár- inu 1968. Lajos Portisch féll hinsveg- ar út að þessu sinni, en hann hefur teflt í áskorendakeppninni sleitulaust frá 1965. Það voru ekki allir vissir um að Kortsnoj yrði meðal þátttakenda í Manila. Þegar hann yfirgaf Filipps- eyjar seint í október 1978 eftir einvíg- ið við Anatoly Karpov kvaddi hann heimamenn með þeim orðum að hann hefði kunnað vel við land og þjóð en vegna framgöngu Florencio Campomanes, sem var formaður framkvæmdanefndar einvígisins, myndi hann aldrei tefla þar aftur. Kortsnoj taldi Campo hafa dregið taum Karpovs og sovésku sendinefn- darinnar í hvívetna. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og ástandið varla skánað mikið í huga Kortsnojs, því nú er erkifjandinn Campomanes orðinn forseti FIDE. Hann hefur sennilega talið að táknræn mótmæli sem fælust í því að láta sig vanta á þetta mót færu fyrir ofan garð og neð- an hjá flestum og bitnuðu fyrst og fremst á honum sjálfum. Því tók hann saman pjönkur sínar og hélt til Fil- ippseyja á miilisvæðamótið sem Cam- pomanes hafði skipulagt. Enn og aftur sýndi Kortsnoj styrk sinn og verður áreiðanlega harður í horn að taka í áskorendakeppninni sem hefst á næsta ári. Hann hóf mótið með því að gera jafntefli við Spán- verjann Illescas en síðan var röðin Kortsnoj, taplaus í Manila. komin að sterkasta skákmanni Fil- ippseyja um áratuga skeið, Torre. Og vissulega fann Kortsnoj sinn gamla kraft. 2. umferð: Torre - Kortsnoj Nimzoindversk vörn 1. d4-Rf6 2. c4-e6 3. Rc3-Bb4 4. e3-b6 5. Bd3-Bb7 6. RÍ3-0-0 7. 0-0-d5 8. a3-Bd6 9. b4-dxc4 10. Bxc4-Rbd7 (Kortsnoj stillir upp á svipaðan hátt og Tigran Petrosjan gerði í nokkrum þ.á m. gegn Lajos Portisch í Lone Pine 1987. Tigran lék reyndar 10. .. a5 og eftir 11. b5-Rbd7 12. Bb2-e5 13. Hel-e4 14. Rd2-De7 15. Be2- Had8 16. Dc2-Hfe8 17. f3-exf3 18. Bxf3-Bxf3 19. Rxf3-Re4 20. Rxe4- dxe4 21. Dxe4-Hxe4 22. Rd2-He6 23. e4 fann hann sleggjuna 23. .. R5! og náði vinningsstöðu.) 11. Bb2-De7 14. b5-axb5 12. Rb5-a6 15. Bxb5-Re4 13. Rxd6-cxd6 16. Rd2? (Fram að þessum leik má staðan heita í jafnvægi en Torre sést yfir tiltölulega einfalda mannsfórn.) 16. .. Rxd2 17. Dxd2 Helgi Ólafsson 17. .. Bxg2! (Sennilega hefur Torre aðeins búist við 17. .. Dg5 sem hann getur svarað með 18. d5!) 18. Kxg2-Dg5 skák 19. Khl-Dxb5 20. d5-e5 21. Habl-Da4 22. Bc3-Dc4 23. Bb4-Rc5 24. f3-f5! (Þó svartur hafi auðvitað alla þræði í hendi sér þarf hann að sýna fyllstu aðgæslu engu að síður því hann þarf að verja ýmsa veikleika í stöðu sinni s.s. b6-peðið.) 25. Hgl-Hf6 26. Hbcl-Dh4 27. De2-Dh5 28. Hg2-Hg6 29. Hcgl-Hc8 30. Dfl-Hxg2 31. Dxg2-Df7 32. Hdl-Rd3! (Kortsnoj teflir af fítonskrafti og þessi leikur, og þeir sem á eftir koma, hreinlega rústa stöðuTorre. 33. Hxd3 er vitaskuld svarað með 33. .. Hcl skák og drottningin fellur.) 33. Dd2-e4 34. Bxd6 (En ekki 34. fxe4 fxe4 35. Bxd6 Df3 skák og vinnur.) 34. .. Dxd5 35. Bg3-exf3! 36. Kgl (En ekki 36. Dxd3-Dxd3 37. Hxd3- Hcl skák og mátar.) 36. ... Hd8 37. Dc2-h6 38. Dc7-Da2! - Lokahnykkurinn er áhrifaríkur því jafnvel þó Torre fái hrókinn með skák er það skammgóður vermir því hann ræður ekki við máthótunina á g2. Hann gafst því upp. Fjallað hefur verið um Indverjann Wiswanathan Anand áður í þessum dálkum. Hann er langsterkasti skák- maður sem Indverjar hafa eignast og er þó gömul skákhefð þar í landi og kenningar uppi um að einmitt þar hafi skáklistin í núverandi mynd komið fram. Þetta er m.a. stutt þeim rökum að í tungumáli ýmissa þjóða er fíll látin tákna hrók en sú öndvegis- skepna hefir löngum verið í metum í Indlandi og brúkuð mjög í hernaði. Anand tefldi geysilega létt og skemmtilega í Manila og árangur hans, 3.-4. sæti, var fyllilega verðs- kuldaður. Sterkustu stórmeistarar áttu erfitt með að ráða við hraða tafl- mennsku hyans og hinar sffelldu hót- anir beinar og óbeinar. Lítum á hvemig veslings Mikhafl Gurevitsj tapaði fyrir Anand í 12. umferð: 12. umferð: Anand - Gurevitsj Frönsk vörn 1. e4-e6 2. d4-d5 3. e5 (Þessi leikur naut nokkurra vinsælda í Manila því algengustu leikirnir 3. Rc3 og 3. Rd2 bíta ekki svo glatt lengur.) 3. .. c5 4. c3-Rc6 5. Rf3-Bd7 6. Be2-Rge7- 7. Ra3-cxd4 8. cxd4-Rf5 9. Rc2-Rb4 10. Rxb4-Bb4 skák 11. Bd2-Da5 12. a3-Bxcd2 skák 13. Dxd2-Dxd2 skák 14. Kxd2 (Með því að stofna til stórfelldra upp- skipta hugðist Gurevitsj ná markmiði sínu í þessari skák: jafntefli. Honum fer miklu betur að tefla til sigurs eins og skák hans við Nigel Short í síðustu umferð bar með sér, en þá reyndi hann aftur þessa taktík að stefna á jafntefli með uppskiptum. Sannleikurinn í þessari stöðu er sá að hvítur hefur talsverða yfirburði í rými og þar af leiðandi á svartur erfitt með að verjast í hálfgerðum anda- þrengslum.) 14. .. f6 15. Hacl-Re7 16. b4-Kd8 17. Bd3-Hc8 28. Hxc8 skák Rxc8 19. g4-h6 æðum 20. Rh4-Re7 21. f4-a6 22. HH-Bb5 23. f5-h5 a b c d e f g h (Gurevitsj hefur haldið uppteknum hætti og uppskiptin virðast ætla að skila tilætluðum árangri. Áður en hann lék þessum kom til greina að skjóta inn 24. .. Bxd3. f þessari stöðu finnur Anand stórkostlega lausn sem byggist á meistarsalegum millileik sem gerir aðstöðu Gurevitsj skyndi- lega afar erfiða.) 24. Rg6!! Rxg6 25. exf6! (Hér er kominn millileikurinn snjalli. Riddarinn á sér ekki undankomu auðið vegna 26. fxg7 o.s.frv. Svarið er þvingað.) 25. .. gxf6 26. fxg6-Ke7 (En ekki 26. .. hxg4 27. Bxb5-axb5 28. Hxf6-Ke7 Hf7 skák Kd6 30. g7 ásamt 31.Hxb7 og hvítur vinnur hróksendataflið.) 27. g5!-f5 (Alls ekki 27... fxg5 28. Hf7 skák Ke8 29. g7! Hg8 30. Bg6 og vinnur.) 28. Bxb5-axb5 29. Hcl-Kd6 30. Ke3-Hg8 31. Kf4 (Ekki var hollt að skjóta inn 31. Hc5 með hugmyndinni 31. .. Hxg6 32. Hxb5 því svartur á svarið 31.... b6! og nú strandar 32. Hxb5 á 32. Kc6 og hrókurinn er f sjálfheldu.) 31. .. bl6 32. Hc3-Hxg6 33. Hh3-Hg8 34. Hxh5-Hc8 35. g6-Hc4 (Eða 35. .. Ke7 36. Ke5 og vinnur.) 36. Hg5-Hxd4 skák 37. Ke3-He4 skák 38. Kf2 og Gurevitsj gefst upp. G-peðið renn- ur upp. Þáttaskil hjá kvenfólkinu Glæsilegur árangur kvennaliðsins á Norðurlandamótinu fyrir skemmstu, er liðið varð Norðurlandameistari, kom flestum á óvart. Til þess hefur „kvennabridge" á fslandi ekki verið hátt skrifaður og af litlum árangri að státa. Oftar en ekki hefur lið í þessum flokki verið sent til þátttöku, til jafnvægis við karlaliðið, sem raunar telst Opinn flokkur (bæði kynin). Með þessum árangri hefur þessum hlutum nú verið snúið. Spilararnir fjórir sem mynduðu þetta sigurlið, eiga nú sterkari kröfur á hendur hreyfingunni, svo og allt kvenfólk sem metnað hefur í þessa átt. Gera verður þeim kleift að taka þátt í stór- mótum á erlendri grundu, útbúa svip- að æfingarprógram og karlaliðið hef- ur æft eftir og fenginn hæfur þjálfari, á borð við Hjalta Elíasson. Að þessu fengnu má fara að gera enn frekari kröfur til þessa liðs, að því gefnu að spilararnir sjálfir hafi raunverulegan áhuga á framhaldi. Til þess þarf að finna sér tíma og markmið. Og stækka hópinn. í 2. umferð Bikarkeppni Bridge- sambandsins mætast (hafa mæst) eftirtaldar sveitir (heimasveitir taldar á undan): Guðlaugur Sveinsson Reykjavík gegn Tryggingamiðstöð- inni Reykjavík. Karl Karlsson Sand- gerði gegn Fjólu Magnúsdóttur Reykjavík. Grettir Frímannsson Ak- ureyri gegn Samvinnuferðum/Land- sýn Reykjavík. Sigurður Sigurjóns- son Kópavogi er kominn í 3. umferð. Ásgrímur Sigurbjörnsson Siglufirði gegn Sveini R. Eiríkssyni Rvík. Est- her Jakobsdóttir Reykjavík er komin í 3. umferð. S. Ármann Magnússon Reykjavík gegn Verðbréfum Islands- banka/Eyþóri Jónssyni Delta Hafnar- firði er komin í 3. umferð. Ef umsjónarmaður man rétt, á 2. umferð að vera lokið fyrir endaðan ágúst, en undanrásir og úrslit verða óvenju seint á ferðinni að þessu sinni, eða ekki fyrr en í október. Núverandi bikarmeistarar er sveit Trygginga- miðstöðvarinnar, sem sigraði sveit Modern Iceland í úrslitaleik á síðasta ári, eins og frægt varð í beinni útsend- ingu Stöðvar 2. Athyglisvert er, að þegar blaðað er í meistarastigaskránni, yfir áunnin stig á síðasta keppnisári, yfir þá spil- ara sem unnu sér inn 6 meistarastig eða meir, kemur í ljós að aðeins 29 kvenmenn eru þar skráðar, af samtals 374 spilurum. Flest stig hlaut Hjördís Eyþórsdóttir, eða 70. Aðeins 16 karlspilarar á Iandinu voru ofar en Hjördís og þaraf aðeins 4 spilarar sem hlutu 100 stig eða meir. Hugmynd að breyttu fyrirkomulagi í Bikarkeppni Bridgesambandsins sem Guðmundur Páll viðraði í nýj- asta Bridgeblaðinu (aem er nýkomið út) að spila keppnina í riðlum, í stað útsláttarfyrirkomulags eins og nú tíðkast, er athyglisverð. Ekki einung- is fyrir þær sakir, að áður hefur verið fjallað um þessar breytingar í þessum þætti, með það markmið í huga að efla sjálfa keppnina, heldur er hér á ferðinni í raun byltingarkennd hug- mynd. Ef við skoðum þessa tillögu aðeins nánar, þá sjáum við að eftir- farandi vinnst; a) Leikjum fjölgar og fleiri stig verða því til skiptanna, er upp verður staðið. b) Gengið verður út frá því að 4-5-6 sveitir skipi hvern riðil og ein af þeim sveitum fær að annast framkvæmd- ina. Um leið og dregið verður í riðla (handahófskennt) verður dregið um, hvaða sveit fær heiðurinn af fram- kvæmdinni. Sú sveit ákveður síðan spilastað og spilatíma, í samráði við gefinn tíma mótanefndar BSÍ og við- komandi samráð þeirra sveita sem í hlut eiga. c) Slíkt fyrirkomulag er tvímæla- laust hvetjandi, auk þess sem kostn- aður af ferðalögum ætti að minnka eitthvað. Sigursveit í hverjum riðli (hvort sem riðlar verða 8 eða 16) halda síðan áfram keppni, með útsláttarfy rirkomulagi. d) Slíkt fyrirkomulag getur einnig virkað sem áhugahvati úti á lands- byggðinni. Dæmi: 5 sveitir skipa einn riðilinn. Heimasveit er frá Hólmavík og hún er svo stálheppin að fá Verðb- réfamarkað íslandsbanka, Modern Iceland, Samvinnuferðir og Einar Val Kristjánsson í heimsókn. Sigur- sveitin heldur áfram keppni. Svipuð dæmi mætti nefna, en jú Bikarkepp- nin verður einhvern „sjarma“ að hafa. Ekki satt? Opnun á 1 grandi er mismunandi eftir pörum. Þau sem spila eðlilegt kerfi (Standard) eru flest með opnun í sterkari kantinum. En hvað segja lík- urnar um opnunarstyrk (punkta á hendi)? Lítum á málið: 12 hápunktar: 8.2%. 13 hp: 6.9%. 14 hp: 5.7%. 15 hp: 4.4%. 16 hp: 3.3%. 17 hp: 2.4%. 18 hp: 1.6%. 19 hp: 1.1%. 20 hp: 0.65%. Niðurstaða: Ef opnun á 1 grandi er 12-14, hp: 20.8% Ef opnun á 1 grandi er 14-16, hp: 13.4% Ef opnun á 1 grandi er 16-18, hp: 7.3%. f fljótu bragði virðist hagkvæmara að spila veikara grand, eða hvað? Áður í þessum þætti hefur verið fjallað um hin ýmsu hugtök og heiti, sem fyrirfinnast í bridgespilinu. Að- ferðir sem spilarar nota daglega, hafa allar (flestar) verið reyndar áður og bera hin ýmsu nöfn. Lítum á dæmi: S: 43 H: 542 T: Á3 L: KDG1093 S: G10987 S: Á52 H: K106 H: D987 T: 10984 T: K72 L: 6 L: Á54 S: KD6 H: ÁG3 T: DG65 L: 872 Suður er sagnhafi í 3 gröndum. Vestur spilar út spaðagosa, sem Austur vinnur á ás. f öðrum slag spil- ar Austur tígulkóngi og spilið reynist nú óvinnandi fyrir Suður. Innkoman í blindan hefur verið fjarlægð. Þegar sagnhafi spilar nú háu laufi, gefur Austur þann lit í tvígang (dúkkar). Þessi vörn nefnist Merrimac- bragðið, kennt við bandaríska kola- skipið með sama heiti, sem sökk í Santiago-höfn 1898, í tilraun til að lokka spánska flotann þar inn. Annað dæmi: Sagnir ganga: Suður Vestur Norður Austur 1 lauf 1 hjarta Dobl Redobl Þessi sagnvenja eða svipuð á lægri nótunum, nefnist Kock-Werner re- doblið, kennt við Svíana Rudolf Kock og Einar Werner (sem voru í liðinu með Einari Þorfinnssyni og Gunnari Guðmundssyni, sem tók þátt í heimsmeistaramótinu 1950). Austur sýnir með redoblinu, að hann hefur eyðu eða einspil í hjarta (lit félaga) og óskar eftir því að félagi taki út í annan lit (redoblið er því úttekt í stöðunni, sem margir vanir spilarar kannast við). Að sjálfsögðu breytist þessi notkun ef andstæðingar okkar beita ekki venjubundnu dobli og gefa aðvörun þar að lútandi. Ekki verður farið nánar hér í þá sálma, hvaða afleiðingar (hugsan- legar) þessi sagnvenja getur haft. Það fylgir þó sögunni að besta vonin (vörnin) sé sögn frá andstæðingun- um, sem leysir yfirvofandi hættu á strangri refsingu (hafi félagi komið „létt“ inn á sagnir...). Olafur Lárusson 18 SfÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 27. júlí Í990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.