Þjóðviljinn - 19.10.1990, Qupperneq 19
Minning
Valur Amþórsson
Fæddur 1. mars 1935 - Dáinn 13. október 1990
Valur Amþórsson bankastjóri
Landsbankans er fallin frá, Iangt
um aldur fram. Ég kynntist hon-
um snemma á áttunda áratugnum
þegar við komum báðir inn í
stjóm Laxárvirkjunar á sama
tíma. Hann varð formaður stjóm-
ar og tók við því starfi á erfiðum
tíma er rimma um nýja virkjun í
Laxá stóð sem hæst. Verkefni
nýju stjómarinnar var að setja
niður deilu sem hefur sennilega
öðm fremur markað upphaf nýs
skilnings á umhverfismálum og
náttúmvemd hér á landi. Ég var
varla málkunnugur Val áður, en
mér varð ljóst þegar á fyrstu fund-
um okkar að hér var sá tekinn við
verkstjóm sem gæddur var
óvenjulegum hæfileikum; glögg-
skyggn, röggsamur, eldfljótur að
setja sig inn í mál og umfram allt
laginn við að koma málum áfram,
dró aldrei af sér ef eitthvað lá við.
Það er engin tilviljun að Laxár-
deilan skyldi leyst á formanns-
tíma Vals, hann hafði þann mynd-
ugleik og samningalipurð til að
bera sem átti stærstan þátt í að
skapa nægilegt traust á milli
deiluaðila til að samningar tækj-
ust.
Við störfuðum saman í stjóm-
inni í sex ár. A þeim tíma bar auð-
vitað margt á góma ekki einasta á
fúndum Laxárvirkjunarstjómar,
heldur líka utan funda þegar færi
gafst að láta gamminn geisa. Það
var oft ósvikin skemmtun að ræða
við Val, og fáa menn man ég sem
meiri unun var að deila við í
einkasamtali. Hann hélt fast ffarn
sínum skoðunum, hitnaði í hamsi,
hlustaði vel, henti á lofti, svaraði
að bragði drengilega. Ég man vel
fáein skipti af þessu tagi, við
hækkuðum báðir röddina, en næst
þegar við hittumst héldum við
áfram sameiginlegum verkum
eins og ekkert hefði í skorist.
Valur Amþórsson hafði
óvenju fjölþætta hæfileika sem
komu honum ekki einasta að
gagni í vandasömum störfum sem
kaupfélagsstjóri KEA, í bæjar-
stjóm Akureyrar, í stjóm Laxár-
virkjunar og Landsvirkjunar, í
stjóm Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga eða í Landsbankan-
um, heldur einnig i samskiptum
við vini og kunningja. Hann hafði
áhuga á manneskjunum í kring
um sig, á stundum gleðinnar var
hann hrókur fagnaðarins, jafn
vígur á að koma mönnum til að
hlæja og að setjast við píanóið og
leika það er vel lét í eyrum.
Valur sat i bæjarstjóm Akur-
eyrar fyrir Framsóknarflokkinn,
en var hættur þegar ég kom í þá
stjóm fyrir Alþýðubandalagið ár-
ið 1978. En áhrifa hans gætti
lengi eftir það, bæði vegna þess
að hann átti manna mestan þátt í
að Laxárvirkjun var sameinuð
Landsvirkjun og sat í stjóm síðar-
nefnda fyrirtækisins eftir samein-
inguna, en einnig af því að ítök
hans á meðal framsóknarmanna á
Akureyri vom áfram mikil. Al-
þýðubandalagið var í meirihluta-
samstarfí með Framsóknarflokki,
Samtökum vinstri manna, Al-
þýðuflokki og Kvennaframboði á
þessum ámm. Ég ræddi oft við
Val um mál sem snertu samstarf-
ið og það hafa aðrir bæjarfúlltrúar
í meirihlutasamstarfinu áreiðan-
lega líka gert. Þessi samtöl juku
alltaf skilning minn á þeim við-
fangsefnum sem við fjölluðum
um og ég veit að hann átti iðulega
þátt í að leysa ágreiningsmál sem
upp komu.
Við höfúm séð á bak miklum
hæfileikamanni á besta aldri, það
er skarð fyrir skildi. Eftirsjá okk-
ar er mikil, kannski er hún líka
blandin nokkurri eigingimi,
manni finnst einhvem veginn að
við eigum beinlínis rétt á að hafa
slíkt fólk í trúnaðarstöðum í þjóð-
félaginu.
Við Ragnheiður vottum Sig-
ríði, bömum þeirra hjóna og
vandamönnum öllum okkar
dýpstu samúð.
Helgi Guðmundsson
Alla okkar ævi, skammvinna
eða langvarandi, stöndum við í
nálægð við dauðann. Hann er hið
eina sem við eigum alveg víst, en
enginn veit á hvaða stund. Og
hveijum kann að verða á að
hugsa, hvemig getur nokkur
mannvera litið glaðan dag og búa
þó yfir hinni bitm vissu um vald
dauðans, sem hvorki á til mis-
kunn eða réttlæti.
Við hjónin erum nú komin á
þann aldur að alloft, og stundum
óvænt, höfúm við staðið í návígi
við óréttlæti dauðans, sem vegið
hefur þar sem okkur hlaut að
reynast sárast. Og nú fyrir
skemmstu gerist það á kyrrlátu
haustkvöldi að síminn hringir úr
húsi kærra og góðra vina á ijar-
lægum stað, og konan svarar og
brátt sé ég að henni er verulega
bmgðið og tekur að tárast.
Samstundis veit ég að nú er
harmafregn á ferðinni. Og það var
ekki mikill léttir þó að í ljós kæmi
að ekki hafði verið vegið að okk-
ar eigin frændgarði, heldur að
Ijölskyldu í hópi okkar allra bestu
vina, og þar hafði dauðinn höggv-
ið óvæntara og tilfinnanlegra
skarð en nokkum gat órað fyrir.
Valur Amþórsson var dáinn
og horfinn af sjónarsviði.
Hann sem fyrir skammri
stundu hafði verið fúllhraustur og
athafnasamur í mikilvægu starfi,
virtur og dáður af öllum sem
kunnu góðan mann að meta.
Hér var staðið frammi fyrir
miskunnarlausri staðreynd, sem
ekki verður neitað, og fyllir hug-
ann sársaukafúllri tómleika-
kennd.
Ég veit að við þetta sviplega
og hörmulega fráfall Vals Am-
þórssonar verða margir til að
minnast hans og rifja upp marg-
þættan starfsferil hans, þar sem
hann var alltaf mikilvirkur, ósér-
plæginn og jákvæður.
Ég þarf því ekki að fara mörg-
um orðum um það ævistarf, sem
flestum er kunnugt. En mig lang-
ar til að minnast persónulegra
kynna, sem við hjónin vomm svo
lánsöm að hafa átt við Val Am-
þórsson og hans ágætu konu Sig-
ríði Ólafsdóttur. Samskipti mín
við Val á verksviði hans voru
ekki mikil.
í eitt einasta skipti gerði ég
mér far til hans á Kaupfélags-
skrifstofuna og var að reka smá-
vegis erindi, og var það raunar
íyrir annan mann.
Og ekki stóð á íyrirgreiðslu.
Valur tók símann og hringdi í tvo
aðila og málið var endanlega
leyst á fimm mínútum. Einnig var
Valur jafnt í smáum málum sem
stórum, alltaf tilbúinn að leysa
vanda með jákvæðum úrræðum,
velvilja og drengskap. Ég hef oft
hugleitt hvað það hefúr verið mér
og okkur hjónunum dýrmætt, að
með okkur og þeim Val og Sigríði
myndaðist gagnkvæmt vináttu-
samband og hlýja, og á milli
heimila okkar var oft stofnað til
samfunda og þeirra vegna eigum
við marga þakkarskuld að gjalda.
Heimili þeirra Vals og Sigríð-
ar var í alla staði geðfellt og þar
var ríkjandi heimilisþokki, hlýja
og mannbætandi andrúmsloft.
Gott er að minnast margra
góðra stunda á þessu heimili.
Hjónin voru samtaka sem mest
mátti verða, í því að gera gestun-
um til geðs með glaðværð og alúð
í viðmóti og rausnarlegum veit-
ingum. Aldrei var skortur á um-
ræðuefni og Valur var gæddur
ríkulegri kimnigáfu og var ekki í
vandræðum með að lífga upp
samkvæmi. Og hann tók til hljóð-
færa sinna og lék af þeirri fimi og
tóngæðum, sem hann hafði ráð á,
langt umffam það sem almennt
gerist.
Og hann vildi almennan söng,
og að þeir sem minna máttu sín I
hljóðfæraleik létu einnig til sín
heyra. Ekki var fengist um þó að
gestunum dveldist eitthvað fram-
eftir, og engin hætta var á því að
heimilisfaðirinn svæfi yfir sig að
morgni, því að Valur var árrisull
og komst af með lítinn svefh, og
oft mun hann hafa verið búinn að
vinna heima hjá sér dijúga stund
áður en hann mætti stundvíslega á
vinnustað.
Á þessu heimili var að alast
upp fallegur og mannvænlegur
bamahópur sem fengið hafði að
erfðum mikilsverða ættarkosti
foreldranna og mikil alúð var
lögð við að þeir mættu dafna og
njóta sín.
Samverustundir með þessari
fjölskyldu verða dýrmætur minn-
ingasjóður þeim sem fengu að
njóta þeirra.
Skólaganga Vals tók ekki
mörg ár, borið saman við það,
sem nú er farið að tíðkast, en þó
er víst að hún gerði betur en að
nægja honum til að valda öllum
þeim erfiðu verkefnum, sem hon-
um vom falin á hendur, og óhætt
mun að fúllyrða að aldrei brást
hann því trausti, sem honum var
sýnt.
Mér finnst að naumast hafi ég
kynnst nokkmm manni sem
gæddur hefur verið jafn fjöl-
breyttum gáfúm og hæfileikum
og Valur Amþórsson.
Menntun hans var ótrúlega al-
hliða og hennar var vafalaust afl-
að með mörgu móti utan skóla-
bekkja. Það var sama hvað bar á
góma, stjómmál, lífsvandamál,
saga, bókmenntir eða tónlist,
hann var alls staðar heima og við
hann gat hver og einn rætt sér til
ávinnings.
Þó að með fráfalli Vals Am-
þórssonar hafi gerst stórfelldur og
sársaukafullur mannskaði, á sam-
tíð hans eftir að njóta árangurs af
ævistarfi hans og dýrmætir eigin-
leikar hans verða áfram til í af-
komendunum.
Hin dugmikla og fómfúsa
eiginkona hans, Sigríður Olafs-
dóttir, mun áfram annast og
vemda heimili eins og honum var
að skapi.
Við hjónin þökkum ógleym-
anleg kynni og vináttu Vals, ætt-
ingjum hans og síðast en ekki síst
konu hans Sigriði og bömunum
sendum við innilegar samúða-
róskir. Góðs drengs er gott að
minnast. Með saknaðarkveðju.
Einar Kristjánsson
Við sviplegt fráfall Vals Am-
þórssonar bankastjóra hvarflar í
hug mér ljúf endurminning frá
liðnu sumri. Við hjónin emm
stödd á efri hæðinni að Hólum í
Öxnadal, þar sem Valur og Sig-
ríður hafa af mikilli smekkvísi
innréttað baðstofú í gömlum stíl.
Fyrir áeggjan okkar sest húsbónd-
inn við orgelið og ljúfir tónar líða
um húsakynnin. Þessi tæpa stund
að Hólum, tekin að láni úr annríki
dagsins, reyndist verða hinzta
stund okkar með Vali Amþórs-
syni.
Á leiðinni frá Akureyri hafði
Valur sagt mér margt um bændur
og búskap í Hörgárdal og Öxna-
dal. Á þessum slóðum sem annars
staðar um landið á það við að
„hver einn bær á sína sögu“ og
það leyndi sér ekki að þá sögu
þekkti Valur út í hörgul. Samúð
hans með fólkinu, sem þama býr,
og áhugi hans á kjömm þess
leyndi sér ekki. En við ræddum
líka um löngu liðna nágranna
hans í Öxnadalnum; í þeirra hópi
vom skáldjöframir Jónas Hall-
grímsson á Hrauni og séra Jón
Þorláksson á Bægisá.
Valur Amþórsson var fæddur
á Eskifirði 1. marz, 1935. For-
eldrar hans vom Amþór Jensen,
framkvæmdastjóri þar, og kona
hans, Guðný Pétursdóttir Jensen.
Guðný er látin fyrir nokkmm ár-
um, en Amþór lifir son sinn. Fyr-
ir um það bil tveim áratugum
höguðu atvikin því þannig til, að
við Valur vomm nokkra daga
samtímis á Eskifirði. Þá kynntist
ég Amþóri og Guðnýju, sem
sýndu mér mikla gestrisni og vin-
áttu; það duldist mér ekki, að
æskuheimili Vals var gróið
menningarheimili.
Valur stundaði nám á Eiðum
og síðan I Samvinnuskólanum en
þaðan brautskráðist hann vorið
1953. Veturinn 1955 til 1956
stundaði hann nám í London í
trygginga- og verzlunarfræðum.
Um áratug síðar stundaði hann og
framhaldsnám við skóla sam-
vinnumanna í Svíþjóð. Valur
starfaði hjá Samvinnutryggingum
frá 1953 til 1965, síðast sem
deildarstjóri í áhættudeild. Er mér
í minni frá þeim tíma, að hæfni
hans á sviði endurtrygginga var
viðbrugðið.
Árið 1965 verða þáttaskil í
störfum Vals fyrir samvinnu-
hreyfinguna. Það ár flyzt hann
norður til Akureyrar með fjöl-
skyldu sina og gerist fúlltrúi Jak-
obs Frímannssonar, kaupfélags-
stjóra Kaupfélags Eyfirðinga;
hann var aðstoðarkaupfélagsstjóri
1970 til 1971 og kaupfélagsstjóri
Kf. Eyfirðinga frá 1971 tiljanúar-
loka 1989. Hinn 1. febrúar 1989
tók Valur við starfi bankastjóra
við Landsbanka Islands.
Valur Amþórsson var ritari
Sambandsstjómar frá 1975 til
1978 og formaður stjómarinnar
frá 1978 og til þess tíma er hann
tók við starfi sínu í Landsbankan-
um. Fjölmörgum trúnaðarstörfúm
öðmm gegndi Valur, ekki aðeins
á vettvangi samvinnustarfsins,
heldur einnig á sviði þjóðmál-
anna. Formennsku gegndi hann í
Olíufélaginu hf., Samvinnutrygg-
ingum og Andvöku, svo og í
stjóm Laxárvirkjunar. Hann var
forseti bæjarstjómar Akureyrar
1974-1978 og um margra ára
skeið stjómarmaður í Landsvirkj-
un. Er þá aðeins fátt eitt upp talið.
Kaupfélag Eyfirðinga er ekki
aðeins í hópi allra stærstu fyrir-
tækja landsins, heldur með svo
óvenju fjölþættan rekstur til Iands
og sjávar að slíks munu fá dæmi.
Þessu stóra fyrirtæki stýrði Valur
Amþórsson í tvo tugi ára með
þeim hætti, að hann ávann sér
traust, virðingu og þakklæti
þeirra allra sem þama áttu mest
undir að vel tækist til og í leiðinni
varð hann þjóðkunnur maður.
Við Sambandsstjómarmenn
minnumst atorku hans og mála-
fylgju við hin margvíslegustu
störf í þágu samvinnuhreyfingar-
innar. Skarpar gáfúr og mikil og
fjölþætt reynsla bmtu honum rök-
rétta leið að kjama hvers máls.
Svo prýðilega sem honum fórst úr
hendi að stýra störfúm í Sam-
bandsstjóm þá gat engum dulizt,
að hann var ekki síður maður
hinna stóm fúnda. Hjá honum
vom efnistök og meðferð tung-
unnar með þeim hætti, að þeim
sem á hann hlýddu mun seint úr
minni líða. Sem ég festi þessar
línur á blaðið, þá vekjast upp fyr-
ir mér endurminningar frá aðal-
fundum Sambandsins að Bifröst I
tíð hans sem stjómarformanns.
Skýrslur hans til fúndarins vom
að sjálfsögðu svo vel unnar, að
ekki varð á betra kosið, en þó
verða mér ennþá minnisstæðari
lokaorð þau til fúndarmanna, er
hann mælti jafnan af munni fram.
Eftirlifandi kona Vals er Sig-
riður Ólafsdóttir og varð þeim
fimm bama auðið. Mikill harmur
er nú kveðinn að frú Sigríði og
íjölskyldu hennar allri við svo
svipleg umskipti. Nú vom þau
aftur komin heim í Garðabæinn,
eftir langa og farsæla dvölnorðan
heiða, og vissulega var það von
þeirra sjálfra og vina þeirra allra,
Framhald á bls. 22
Föstudagur 19. október 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 19