Þjóðviljinn - 26.10.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 26.10.1990, Blaðsíða 11
Áttavillt fólká neyslu- markaði „Ég myndi fremur kalla þetta markaðsvitund en pólittska vitund." Otti um að þjóðernishyggja fari að grassera er mesti mis- skilningur. Menn skoða málið miklu fremur frá hagrænu sjónarmiði, hvað sameining- in kosti, hvað hagvöxturinn minnki mikið og hvort skatt- arnir hækki, hvort lífskjörin versni og svo framvegis. Sameiningin er ekki tilfinn- ingamál og virðist ekki heldur vera það fyrir Austur- Þjóð- verja. Þó ýmislegt neikvætt hafi komið í Ijós er mikil gleði með sameininguna. Núna ríkir auk þess mikil kaupgleði meðal Austur-Þjóð- verja. Það eina sem blómstrar í Austurþýskalandi er alls kyns verslun. Þar eru peningar og mik- il kaup- og verslunargleði. Þeir sem voru á toppnum og höfðu góð laun gátu ekkert keypt og söfnuðu peningum. Þeim hefúr tekist að skipta þeim sæmilega við myntbreytinguna og eru til- búnir til að kaupa. I augnablikinu er ekki hægt að kaupa hús og jarðnæði. Það var tekin sú vit- lausa ákvörðun að endurskoða það hver eigi hvað, sem þýðir mikla töf í öllu stjómkerfmu við að finna út hver eigi lóðir og fast- eignir. Menn geta því ekki keypt neitt nema bíla og alls konar hluti. Það er sá markaður sem nú springur út. Mörgum menntamönnum fmnst að Austur-Þjóðveijar hefðu átt að gera hlutina upp sjálfir, þeir hefðu átt að vinna sig sjálfir upp úr vandanum með gagnrýnu hug- arfari, þeir hefðu átt að reyna að átta sig á hvaða leið væri best fyr- ir þá og ekki gefast svona gjör- samlega upp, ekki gefa allt upp á bátinn og glata þannig öllu. Þess vegna eru margir menntamenn í V-Þýskalandi dálítið óhressir. Hverju telja menn þá að Austurþjóðverjar hafi glatað við sameininguna? Þó ekki væri nema að halda ákveðinni virðingu, halda mann- legri reisn, en þeir eru búnir að glata henni líka. Það má kannski segja að það hafi ekki verið mikið um mannlega reisn, því þetta var auðvitað fangelsissamfélag, þar sem tíundi hver maður var á laun- um eða fékk sponsur frá leynilög- reglunni STASI, það er talið að allt að því annar hver maður hafi verið að njósna um náungann og á einhvem hátt að styðja fangelsis- reglumar. Vesturþjóðveijum finnst eins og þeir fyrir austan séu með brot- inn hrygg, þeir standi ekki lengur uppréttir. Það er mikið um átta- villt fólk á neyslumarkaði. Og það er auðvitað áttavillt á fleiri sviðum. Það þarf að minnsta kosti eina kynslóð til að fólk verði lýð- ræðislega þenkjandi í Austur- þýskalandi. Það er svona rétt hægt að kalla þær kosningar sem hafa farið ffam pólitískar, menn em að kjósa Kohl og þýska mark- ið. Eg myndi fremur kalla þetta markaðsvitund en pólitíska vit- imd. A hvaða hátt birtist samein- ingin í daglegu lífi Vesturþjóð- verja? Þetta er líkast því að horfa á hungrað fólk ryðjast út úr fangelsi og ætla að upplifa allt sem það hefur farið á mis við og er heldur óskemmtilegt. Þeir sem líða mest undir þessu em Berlínarbúar, andrúmsloftið þar er orðið miklu harðneskjulegra, komnar biðraðir í búðir sem annars vom tómar, því allir em að kaupa vestrænan vaming. Það er mikið um að Austurþjóðveijar komi inn á at- vinnumarkaðinn í Berlín og einn- ig í Vestur-Þýskalandi og undir- bjóði allt, brjóti allar siðrænar reglur sem verkalýðsfélögin hafa komið á, bjóðist til dæmis til að vinna fyrir hálfvirði. Hálfvirði fyrir þá er samt sem áður talsvert mikill peningur miðað við það sem þeir höfðu áður. Þannig er grafið undan þeim rétti sem verkafólk var búið að ná. Þetta hefur líka óbein áhrif á markað- inn. íbúðaverð er uppsprengt. Eft- ir að þeir sem koma að austan hafa fengið vinnu vilja þeir eðli- lega flytja. Straumurinn vestur heldur áffarn, einkum og sér í lagi úr iðnaðinum sem er í rúst í Aust- ur-Þýskalandi. Var hœgt að bjarga einhverju af iðnaðinum? Það hefði verið hægt að bjarga með því að bíða aðeins með myntbreytinguna og leyfa fyrirtækjunum i Austur-Þýska- landi að halda markaðinum í Austur- Evrópu. Þar höfðu aust- urþýsk fyrirtæki mjög góða mark- aðsstöðu, en nú er framleiðsla þeirra orðin allt of dýr, allt er selt í vesturþýskum mörkum, þannig að ffamleiðsla þeirra verður enn dýrari en fyrirtækjanna vestan- megin. Þetta eru mistök sem skrifuð eru á reikning Khols, myntbreytingin hafi gengið allt of hratt. Það er talað um að ffam- leiðnin í austurþýskum fyrirtækj- um sé fimmtiu prósent minni en í vesturþýskum. Þetta stafi að ein- um þriðja af skipulagsleysi, að einum þriðja af lakari afköstum og í þriðja lagi vegna skorts á ný- tísku tækjum. Fyrstu tveimur at- riðunum er líkiega fljótlegast að koma i lag, en fjárfestingin mun taka tima. I öðrum atvinnugreinum koma upp alls kyns vandamál. Kennarar eru t.d. allir orðnir emb- ættismenn hjá sama ríkinu, og þá vilja kennarar fyrir austan fá sömu laun og hinir, en það er ekki hægt. Það myndi tvöfalda launin og rúmlega það, sem þýðir að verkamenn á staðnum myndu líka vilja fá sömu laun og starfsbræð- ur þeirra fyrir vestan, en það er útilokað að framleiða neitt með svo dýru vinnuafli. Og þó að það sé hálfóskemmtilegt má segja að menn vonist til að koma fjárfest- ingaskriðu af stað með því að Austur- Þýskaland sé láglauna- svæði. En sú von er líka að fara út um þúfúr. Það eru strax byijuð verkföll, menn krefjast hærri launa, fá 30%-50% launahækkun. Hve mikið er atvinnuleysi i Austurþýskalandi núna? Það er talið að atvinnuleysi sé nú 20% og á eftir að aukast mikið. Þannig heldur þetta áffam á öllum mögulegum sviðum. Ríkið er svo saman brotið að ekki er einu sinni hægt að innheimta skatta, trygg- ingagjöld og þess háttar. Það verður að taka hvem miljarðinn á fætur öðrum til að jafna svona skuldir. Tekur langan tíma að koma á laggimar nýju stjómkerfi í aust- urhlutanum? Nei, það verður nú sennilega það sem gerist hraðast, að koma á laggimar einhverri pólitiskri yfir- stjóm, miklu auðveldara en að koma framleiðslunni í gang, og þangað til má segja að allt Aust- ur-Þýskaland sé á vergangi. Pólit- íska kerfið var auðvitað þannig að engum var treystandi. Það er varla til að menn séu gjörsamlega hreinir, það er meira að segja grunsamlegt að vera alveg hreinn. Það gengur svona brandari: Ein- hver segir: Það eru ekki til nein gögn um mig hjá STASI og þá er svarað: Þú ert búinn að láta eyða þeim, þú ert ennþá verri. Þetta vantraust heldur áffam og þess vegna er hætta á að litið verði nið- ur á austanmenn, þeir verði ann- ars flokks þegnar. Líklega sleppa þeir sem starfa í iðnaðinum best. Það er almennt viðurkennt að iðn- menntun var mjög góð í Austur- Þýskalandi, kannski ekki alveg jafn nýtískuleg og fyrir vestan, en vönduð eigi að síður. Gamla iðn- menntunarkerfið var í rauninni áfram við lýði í Austur-Þýska- landi. Þeir munu þó reka sig á að vinnuálagið er miklu harðara og grimmara i Vestur- Þýskalandi, en þeir áttu að venjast. Þeir sem starfa í skriffæðinu eða skólakerf- inu verða lengi grunaðir um ein- hveija arfleifð. Menn tala um að það taki 20-40 að yfirvinna þetta. Menntunarstigið fyrir austan er hins vegar almennt gott. Omenntað fólk og háskólafólk er hlutfallslega færra, en fólk með einhverskonar iðn- eða verk- menntun aftur á móti hlutfallslega fleira. Þetta er mikill kostur og fellur vel að ástandinu í Vestur- Þýskalandi þar sem háskóla- menntað fólk er of margt. Hverjar eru nýjustu spár um kostnað við sameininguna? Jafnaðarmenn gagnrýna hvemig staðið er að efhahagsleg- um samrnna og þeir töldu að það hefði átt að bjarga nægilega miklu til að Austurþjóðverjar gætu hald- ið virðingu sinni. Kohl hefúr auð- vitað gert ótal villur, t.d. komu upp illindi við Pólveija að ástæðulausu vegna þess að hann vildi ekki sætta sig við austur- Rætt við Friðrik Hauk Hallsson félagsfræðing, sem búsettur hef- ur verið í Vestur- Þýskalandi í nærri tvo áratugi, um sameiningu og hvemig hún birtist í daglegu lífi landamærin strax, en aðalgagn- rýnin beinist að því að hann setur Þýskaland í gífurlegt skuldafen. Austur-Þjóðveijar vora að vísu ekki svo mjög skuldugir, en kostnaðurinn við sameininguna verður gifúrlegur, ráðast þarf gegn menguninni, leggja vegi og jámbrautir, teinamir era frá því fyrir stríð, það era ekki nema 10% þjóðarinnar með síma. Það er eiginlega ekki hægt að sttmda viðskipti. Ef menn þurfa að hringja verður helst að fara yfir landamærin og hringja þaðan. Það þarf að byggja upp allt innra skipulag samfélagsins. Menn tala um að uppbyggingin kosti 100 milljarða marka á ári með vöxtum og vaxtavöxtum í tíu ár; verður þó eitthvað minna í lokin. Upphæðin er svo há að þótt markið sé sterkt er hætta á að efnahagskerfið ráði ekki við þennan kostnað áfalla- laust. Hverju spáir þú um pólitiska þróun á nœstu árum? Vinstrimenn bregðast með ýmsum hætti við. í mínum augum er þetta ekkert vandamál, Austur- Þýskaland var fangelsissamfélag og átti ekkert skylt við gömlu út- ópíuna sem við áttum um sósíal- ismann, þetta var bara misnotkun á henni, það var troðið á henni eins og hverri annarri tusku. Samt era vinstrimenn í svolitlum sár- um, ekki jafnaðarmenn, heldur ýmsir óháðir sósíalistar, meðal annars í röðum Græningja. Það kom mér á óvart hvað þeir áttu bágt. Flokkur lýðræðissinnaðra sósíalista, arftaki gamla komm- únistaflokksins í Austur-Þýska- landi, kemur til að byrja með til greina sem valkostur fyrir Græn- ingja. Því miður lítur út fyrir að Kohl sé með pálmann í höndun- um. Það er nýbúið að sameina og því fylgdi viss hátíð og hann hef- ur lag á að beina athygli manna að þessari gleðistund, því þrátt fyrir vandamálin er fólk ánægt og finnst sameiningin hafa tekist ótrúlega fljótt og vel. Ég spái því að jafnaðarmenn verði stærstir innan tíu ára. En ánægjan er auðvitað blandin ótta við eitt og annað, m.a. að sameiningin hafi neikvæð áhrif á þýska menningu og lífsstíl. Að það verði ekki sama reisn yfir samfélaginu, stíllinn verði ennþá meira sá að koma sér áfram, og samkeppnin fari á flestum sviðum harðnandi, ekki síst á vinnumark- aði. hágé. Checkpoint Charlie, þekktasta landamærastöðin milli þýsku rfkjanna fjarlægð. Föstudagur 26. október 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.