Þjóðviljinn - 26.10.1990, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 26.10.1990, Blaðsíða 18
Skoðanir manna skiptar á biðstöðunni í siöttu skák Sjötta einvígisskák Garrij Ka- sparovs og Anatoly Karpovs fór í bið sl. miðvikudagskvöld eftir 41. leik og afar athyglisverða baráttu. Biðstaðan er afar óljós en Ka- sparov virðist eiga allgóð færi fýrir það peð sem hann fómaði í miðtaflinu. Skoðanir sérfræðinga í New York voru mjög skiptar um biðstöðuna. Júgóslavinn Lju- bojevic spáði jafntefli og virtist ekki yfir sig hrifinn af tafl- mennskunni, taldi Karpov hvað eftir annað hafa hafnað vænleg- um Ieiðum í miðtaílinu. Banda- ríski stórmeistarinn Roman Dzindzihasvili tók djúpt í árinni og taldi Kasparov öruggan um sigur. Látbragð heimsmeistarans gaf þó allt ann- að til kynna. Hann hristi höfuðið í sifellu þegar skákin fór í bið og lék ekki biðleik fyrr en eftir 30 mínútna umhugsun. Keppendur hafa klst. hvor til að ná næstu tímamörkum sem em við 56. leik. Karpov hélt sig við þá reglu að tefla aldrei sama afbrigðið tvisvar í röð og brá út af þeirri leið sem gafst honum svo vel í einvígjunum við Jóhann Hjartar- son og Jan Timman og varð uppá teningnum í 2. og 4. skák. Skort- ur á sjálfstrausti virðist há honum talsvert. Hann fékk góða stöðu út úr byrjuninni, en tefldi óvirkt og gaf Kasparov kost á öflugri peðs- fóm. Ekki er loku fyrir það skotið að heimsmeistarinn hafi a.m.k. einu SKAK sinni misst af öflugasta leiknum, og í þessum skrifúðum orðum er jafntefli líklegustu úrslitin þó bmgðið geti til beggja vona. Bið- skákinni var haldið áfram seint í gærkvöldi og lágu úrslit ekki fyr- ir þegar blaðið fór í prentun. 6. einvígisskák: Garrij Kasparov - Anatoly Karpov Spænskur leikur 1. e4 e5 2.RORc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Rd7 (Karpov leggur til hliðar Za- itzev - afbrigðið 9. .. Bb7 sem varð uppá teningnum í annarri og fjórðu skák. Hann hefur notast við þennan leik í skákmótum uppá síðakstið og þá fyrst og fremst til að forðast hið hvimleiða jafnteflisafbrigði 10. d4 He8 11. Rg5 Hf8 12. Rf3 He8 13. Rg5, en þessa leið hafa fjölmargir skák- menn farið er þeir hafa mætt Kar- pov.) 10. d4 Bf6 11. a4 Bb7 12. axb5 axb5 13. Hxa8 Dxa8 14. d5 Ra5 15. Bc2 Rc4 16. b3 Rcb6 17. Ra3 Ba6 18. Rh2 c6 19. dxc6 Dxc6 20. Bd2 Be7 21. Rg4 Ha8 22. Re3 Rf6 23. Rf5 Bf8 24. Bg5 Rbd7!? (Þessi leikur var harðlega gagnrýndur af viðstöddum, þ.á m. júgóslavneska stórmeistaranum Lubomir Ljubojevic. Alitlegur möguleiki var 24. .. d5 og það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að Karpov velji ekki þann eðlilega leik. Riddarinn á a3 þarfnast vemd- ii-l—j ar. Eflir 25. r?e,9l Bxf6 Dxf6 26. Olafsson b4 d4! er svarta staðan greinilega betri. Það er ekki ósennilegt að Karpov hafi hafnað þessum möguleika vegna ffamhaldsins 25. exd5 Rbxd5 26. Rxb5 Bxb5 27. c4 eða 25. .. Rfxd5 26. Rxb5 t.d. 26. .. Bxb5 27. c4 Bxc4 28. bxc4 Rxc4 29. Be4 er svarta staðan allt annað en þægileg. Ákvörðun Karpovs að leika 24. .. Rbd7 verður skiljan- legri í ljósi þessara afbrigða.) 25. c4! (Kasparov er ekkert að tví- nóna við hlutina. Hann lætur óhikað peð af hendi eigi hann " þess kost að hrifsa til sín fmm- kvæðið.) 25.. . bxc4 26. bxc4 Bxc4 27. Rxc4 dxc4 28. Bb3 (Biskupinn þrýsti óþægilega að kóngsstöðu svarts.) 28.. . Dc3 (Leikið í því augnamiði að hindra 29. He3 sem er svarað með 29,. Dal. En Kasparov er fljótur að setja fyrir þennan leka.) 29. Kh2 h6 30. Bxf6 Rxf6 31. He3 Dc7 32. HD! (Það er næstum með ólíkind- um hversu mikinn þrýsting hvítur hefúr náð að setja á stöðu svarts. Nú er hótunin 33. Rxh6+ og 32... Rxe4 strandar vitaskuld á 33. Bd5 o.s.ffv.) 32. .. Kh7 33. Re3! De7 34. Rd5 Rxd5 35. Bxd5 Ha7 (Sjá stöðumynd 1) (Eitt mikilvægasta augnablik- ið í þessari skák. Kasparov getur hirt drottninguna af Karpov með 36. Hxf7 Dxf7 37. Bxf7 Hxf7, en hann metur stöðuna þannig að hvítur komist ekki i gegnum vamir svarts. Vissulega á svartur góða möguleika á að halda jöfnu, en engu að síður kom þessi leið a b c d e f g h - sterklega til greina. Það er til marks um hið mikla sjálfstraust Kasparovs að hann skuli hafna þessari leið og velja aðra mun tví- sýnni.) 36. Db3!? f6 (Karpov hefúr engan áhuga á þeim leiðindum sem upphefjast með 36... Kg8 37. Hxf7 Dxf7 38. Bxf7 Hxf7 39. De6 o.s.frv. Þó hann hafi ekki haft mikinn tima aflögu teflir hann afar nákvæmt i næstu leikjum.) 37. Db8 g6 38. Hc3 h5! 39. g4! Kh6! (Kasparov leggur skemmti- lega gildru fyrir Karpov. Hér var eðlilegra að leika 39... h4, en eft- ir 40. g5H fxg5 41. HO! Bg7(41. .. Kg7 42. HxfB! og vinnur) 42. Dg8+ Kh6 43. Hf7 og vinnur.) 40. gxh5 Kxh5 (Karpov er þekktur fyrir þau tiltæki sin að vaða með kónginn fram á borði, þó að í þessu tilviki hafi hann ekki átt annarra kosta völ. Nú þegar tímamörkunum var náð hefði Kasparov getað sett skákina í bið og farið þannig að ráðum Mikhael Botvinniks sem lék alltaf biðleik þegar hann átti þess kost.) 41. Hc8!? (Eðlilegur leikur, en 41. Dc8! kom sterklega til greina. Eftir 41. .. Kh6 42. Dg4 hótar hvítur m.a. 43. Hg3.) 41... Bg7 a b c d e f g h - Hér fór skákin í bið og Ka- sparov lék biðleik eftir hálftíma umhugsun. Að sjá var hann allt annað en ánægður með sjálfan sig og hristi höfuðið í sífellu. Björgvin í 2. sæti á heimsmeistara- móti stúdenta Björgvin Jónsson, sem varð í 2. sæti á Skákþingi íslands og tryggði sér með því sæti í Olymp- íuliði íslands, tefldi á heims- meistaramóti stúdenta í Odessa í Sovétrikjunum. Mótið hófst þann 12. október og lauk 23. október. Björgvin varð í 2. sæti af 40 keppendum, hlaut 6 1/2 vinning úr 9 skákum sem verður að teljast afbragðs árangur, því margir af bestu ungu skákmönnum austan- tjaldsþjóðanna tóku þátt í mótinu. Sigurvegari varð Búlgarinn Trif- unov sem hlaut 7 vinninga. Björgvin byijaði mótið vel, vann tvær fyrstu skákir sínar, en síðan kom bakslag, tvö töp, en góður endasprettur, þrír sigrar í röð færðu honum 2. sætið og jafn- framt alþjóðlegan meistaratitil. Rólegt ársþing Ársþing Bridgesambandsins var haldið sl. sunnudag. Yfir 40 fulltrúar sóttu þingið. Helgi Jó- hannsson var endurkjörinn foseti sambandsins. Til 2ja ára voru kjömir þrír fulltrúar, þau Valgerð- ur Kristjónsdóttir, Hörður Blön- dal og Brynjólfúr Gestsson. Fyrir til 1 árs í senn em í stjóm: Magn- ús Olafsson, Guðmundur Sv. Her- mannsson og Kristján Hauksson. Ur stjóm gengu Sigríður Möller, Frímann Frímannsson og Jakob Kristinsson. Samþykkt var breytingartil- laga frá Guðmundi Hermanns- syni varðandi ffamkvæmd ís- landsmóts í sveitakeppni. Gengur tillagan út á að 16 sveitum verður deilt jafnt á milli svæðasam- banda, 8 sveitum samkvæmt ár- angri fyrra árs (þær sem ná í úr- slit) og þeim 8 sætum sem þá er óráðstafað skal skipt milli svæða- sambanda í beinu hlutfalli við fjölda félagsbundinna spilara á hverju svæði. Einnig var sam- þykkt að leggja fyrir stjóm BSÍ að lslandsmótið í tvímenning 1991 verði spilað, undankeppni og úr- slit, um sömu helgi og hefjisf spilamennska á fimmtudegi (frí- degi, t.d. uppstigningardegi) og á föstudegi. Á laugardeginum myndi síðan úrslitakeppnin hefj- ast, með óbreyttu fyrir- komulagi ffá síðasta ári, þ.e. 32 pör í úrslit- um með meistumm hvers svæðis sem komast sjálfkrafa beint í úr- slit. Þingstörf gengu vel undir ör- uggri stjóm Sigmundar Stefáns- sonar. Páll Valdimarsson og Ragnar Magnússon sigmðu Opna minn- ingarmótið á Selfossi um síðustu helgi, eftir að hafa leitt mest allt mótið undir lokin. Sigurinn hékk þó á bláþræði undir lokin, því að- eins skildi að 1 stig þá og næsta par, sem vom Jón Baldursson og Aðalsteinn Jörgensen. I 3. sæti urðu Svavar Bjömsson og Ragnar Hermannsson, í 4. sæti Magnús Ólafsson og Jón Þorvarðarson og í 5. sæti Asgeir Ásbjömsson og Hrólfur Hjaltason. Veitt vom 5 verðlaun, frekar lág. 38 pör tóku þátt í mótinu. Keppnisstjóri var Hermann Lár- Minningarmótið um Alfreð G. Alffeðsson ffv. forseta BSÍ, verður haldið á vegum Munans í Sandgerði og Bridgeféiags Suð- umesja, laugardaginn 10. nóvem- ber. Spilað verður í íþróttahúsinu í Sandgerði. Og áfram um Alfreð Alfreðs- son. Helgi Jóhannsson for- seti BSI, upplýsti á árs- þinginu að stofnaður hefði verið sérstakur sjóður í nafni Alfreðs. Ólafur Lárusson Sjóðnum væri ætl- að að styðja við bakið á yngstu kynslóðinni í íþróttinni. Gott mál. Opna stórmótið á Akureyri hefst í kvöld. Er þetta er skrifað, vom tæplega 30 pör skráð til leiks, flest utan Akureyrar. Afmælismót Bridgefélags Kópavogs, í samvinnu við Spari- sjóð Kópavogs, í tilefni 30 ára af- mælis félagsins, verður spilað 3,- 4. nóvember í Félagsheimili Kópavogs. Spilaður verður baro- meter, með allt að 60 para þátt- töku hámark, með 2 spilum milli para. Glæsileg verðlan em í boði, eða: 100 þús., 80 þú., 60 þús., 40 þús., 20 þús. auk fjölda aukaverð- launa. Keppnisgjald verður kr. 3 þús. á spilara og er kaffi innifalið í gjaldinu. Skráning er hafín hjá Þorsteini Berg í s: 40648 og vs: 73050 og Hermanni Lámssyni í s: 41507. Hermann verður keppnis- stjóri. Árgjald Bridgesambandsins hækkar úr 50 kr. í 55 kr. um næstu áramót. Fellt var á þinginu tillaga frá stjóminni, um að heim- ild fengist til frekari hækkunar ef aðstæður í þjóðfélaginu breyttust. Magnús Ólafsson stjómar- maður í BSI upplýsti að ákveðið væri að Bridgesambandið með stuðningi Vífilfells, Skeljungs og íslandsbanka (verðbréf), myndi halda „Cavendish“ mót á íslandi, síðustu helgina í nóvember. Slíkt mót er eins konar blanda af verð- bréfamarkaði og lottói, þar sem árangur para (geta) er mæld í pen- ingaupphæð þeirri sem almenn- ingur er tilbúinn að leggja í „fyrir- tækið“. Sjálft mótið er spilað með Butler-fyrirkomulagi, þó þannig að hvert spil reiknast út með öll- um salnum. Góðar skorir geta því orðið ansi góðar, og að sama skapi þær slæmu ansi slæmar. Umsjónarmaður þessa þáttar fúll- yrðir að þetta verður eitt fróðleg- asta mót sem haldið hefúr verið til þessa hér á landi. Nánar síðar. Og Skagamenn gangast fyrir opnu sveitakeppnismóti á morg- un. Spilað verður um silfurstig, auk góðra verðlauna. Lítum á „létt“ vamardæmi frá Kelsey: 4 62 ¥ 943 ♦ K87542 *G5 4DG1085 VD1076 ♦ G3 ♦ 98 Sagnir hafa gengið: Suður Norður 2 lauf 2 tíglar 2 grönd 3 grönd Og þú situr í Vestur og spilar út spaðadömu. Félagi þinn lætur þristinn (sýnir áhuga eða tvíspil í litnum). Drottningin fær að eiga slaginn. Þú spilar gosanum og fé- lagi þinn lætur kónginn, sem sagnhafi drepur á ás og spilar um hæl meiri spaða. Hvað nú? Slik rausn hjá sagnhafa vekur óneitanlega gmnsemdir. Líklega er hann að vonast til að við spil- um spaðanum og leggjum þarmeð grunninn að kastþröng hjá félaga okkar. Við spilum því laufaníu í fjórða lag, gosi og drottning hjá félaga, sem sagnhafi tekur á ás. Þá næst kemur tígulnía ffá sagn- hafa, litið frá okkur, lítið úr borði og félagi tekur á drottningu. Léstu virkilega lítinn tígul? Hendur hinna voru: 4 K93 ¥82 ♦ D6 * D107632 4 Á74 ¥ ÁKG5 ♦ Á109 ♦ ÁK4 Hafirðu fúndið tígulgosann upp, á níuna ffá sagnhafa, ertu sannarlega kominn í félagsskap þeirra sem teljast nánast galla- lausir í íþróttinni (sérstaklega í vöminni). Við sjáum hvað gerist ef við leggjum gosann á. Liturinn er stiflaður hjá sagnhafa. Hefðum við tekið spaðaslag til viðbótar, hefði sagnhafi einfaldlega hent níunni i tígli og losað þarmeð um stífluna í litnum. Hin aðferðin, hjá sagnhafa, að leggja niður ásinn í tigli, krefst þess að þú sért aðeins meðalskussi i leiknum, en félagi þinn nánast fúllkominn. Hann verður að finna að henda tíguldömunni i ásinn. Flókið? Kannski. 18 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. október 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.