Þjóðviljinn - 26.10.1990, Blaðsíða 22
Leikfélag Reykjavíkur sýnir í
Borgarleikhúsi:
ÉG ER HÆTTUR! FARINN!
eftir Guðrúnu Kristínu Magn-
úsdóttur.
Leikstjóri: Guðjón Pedersen.
Dramatúrg: Hafliði Arngríms-
son.
Leikmynd og búningar: Grétar
Reynisson.
Útsetning tónlistar og leikhljóð:
Jóhann G. Jóhannsson.
Lýsing: Grétar Reynisson,
Guðjón Pedersen og Egill
Arnason.
Danskennsla: Lizý Steinsson og
Haukur Eiríksson.
Leikendur: Sigurður Skúlason,
Hanna María Karlsdóttir, Edda
Heiðrún Backman, Eggert Þor-
leifsson, Ragnheiður Arnar-
dóttir, Stefán Jónsson, Harpa
Arnardóttir, Helgi Björnsson,
Bára Lyngdal Magnúsdóttir,
Guðrún Ásmundsdóttir, Karl
Guðmundsson, Þröstur Guð-
bjartsson.
Verðlaunaleikrit úr sam-
keppni Leikfélagsmanna er loks-
ins komið á svið nær ári eftir að
Borgarleikhúsið opnaði. Það var
frumsýnt á sunnudaginn fyrir
fullu húsi áhorfenda sem
skemmtu sér ljómandi vel og hóf
göngu sína við fagnaðarlæti og
spenning, upplýst af athygli
ungra nýrra krafta og fáránlegum
athugasemdum þjóðleikhússtjóra
um lítinn lagstúf í sýningunni.
Þetta er sviphrein og stórglæsileg
sýning byggð á samvinnu þriggja
ungra leikhúsmanna sem taka
næsta veigalítið leikrit og gera úr
því mikið sjónarspil. Hvemig
skyldi standa á því?
Mótsagnir
Samkeppni LR um ný íslensk
leikrit vakti mikla athygli og barst
fjöldi verka dómnefndinni sem í
sátu Hallmar Sigurðsson, Hafliði
Amgrímsson og Sigriður Haga-
lín. Þau völdu ÉG ER HÆTTUR!
FARINN! og mátti strax heyra á
ummælum nefndarmanna að val
þeirra væri óvenjulegt.
Ekki er hægt að gera sér grein
fyrir hvemig verk þau hafa valið,
ætli það sé lengur til í þeirri
mynd. Guðjón, Grétar og Hafliði
hafa unnið verkið til sýningar og
notið til þess fyllsta samráðs höf-
undarins. Hún hefur haft það á
orði opinberlega að hún skilji
ekki hvemig þeim tókst að gera
eitthvað úr bunkanum. Rétt eins
og þeir hafi greitt úr flækju, kom-
ið skipan á óreiðu.
En sjón er sögu ríkari. Fáar ef
nokkrar sýningar undanfarinna
ára em í raun eins ríkulega höf-
undarverk leikstjómarhópsins ef
svo má kalla þríeykið. Helst
koma í hugann sviðsetningar
Brynju Benediktsdóttur á Dags
hríðar spomm Valgarðs Egilsson-
ar og Stefáns Baldurssonar á
Stundarfriði eftir Guðmund
Steinsson. Öll þessi þrjú verk em
í fáanlegum handritsgerðum drög
að sýningarverkum, ekki leikrit
sem hafa skýrar útlínur, greini-
lega byggingu.
Ég verð að viðurkenna að sú
dirfska sem dómnefnd sýndi á
sinum tíma í vali sínu hefur borg-
að sig. Leikfélagið stendur með
pálmann í höndunum. Og eins og
allir vita er pálminn skrautleg
jurt.
Textinn
Við lestur er texti Guðrúnar
samhengislaus, nánast eins og
drög að ljóðabálki. Persónur
hennar em galopnar, þráðurinn
tvinni, hugsunin einlæg í kunnug-
legum klisjum, bamaleg á köfl-
um. Viðfangsefni hennar er lifs-
máti og lífssýn ungrar kynslóðar,
fólks sem er fætt eftir fimmtíu,
foreldra og bama. Tvær persónur
em af enn eldri kynslóð, líklega
frá öðmm eða þriðja áratug aldar-
innar. Þessi hópur tengist allur
böndum vina og vandamanna.
Hann lifir upplausn og reynir að
fóta sig, öryggisleysið mótast af
eftirsjá horfinnar bemsku með
mjög sterkri móðurdýrkun, kvöl
kjamafjölskyldulífsins og ósætt-
anlegum andstæðum skyldu og
frelsis, hamingju og nútímahæg-
inda.
Átök verksins eiga sér þunga-
miðju í Lillý en hún er gamalt
minni, móðir mín í kvíkví, Lóa
litla úr Silfurtunglinu, sú sem gaf
sitt dýrasta djásn. I kringum hana
er annað minni á sveimi:
Heiðbjartur, sá heili, hug-
mynd um mann, minning sem
ásækir hana.
Holdlegt samband á hún við
Áslák sem er sérhver, venjuleg ís-
lensk blók með billega lífsspeki.
Það er hann sem er hættur, farinn
en situr sem fastast. Bergþóra
kona hans er skilin við hann. Hún
er sátt heimavinnandi móðir sem
tekur hveiju sem koma skal, nýr
kafli sem er ekki lokið af því hún
tekur öllu opnum örmum. Bömin
hjónanna og makar þeirra eru líka
á sveimi í hring sem er óijúfan-
Iegur af því þeirra bíður sama
mynstrið. Vinafólkið er til sýnis
sem yfirborðskenndar flgúrur og
eldra fólkið fyrri tið, traust og lið-
in.
Sýningin
Fortjaldið er veggur með tólf
hólfum sem hver og einn er fastur
i. Sviðið er æfmgasalur fyrir
dansara eða endalausir gangar
með handriðinn. Bak við sviðið er
tómið svart. Leikmunir em fáir
enda vinna höfundar sýningarinn-
ar með mjög skýrt afmörkuð tákn.
Athygli áhorfandans á að beinast
að takmarki, ekki reika og finna
sér sjónarpunkt í margræðri
mynd. Sjónrænt séð er þetta sýn-
ing sem dregur dám af minimal-
isma og sækir hreinleika sinn og
myndstíl i ríkjandi skóla Evrópu-
manna í leikmyndum síðustu tvo
áratugina, einkum i Þýskalandi
og Frakklandi. Þetta er smart.
Stílhrein hugsun sem skoðar lífið
sem andstæðu hreinna forma og
manninn læstan inní hólf.
Okkur kann að þykja þetta
nýstárlegt, rétt eins og stílhrein
húsgögn nútímans. I útliti á sýn-
ingin sér skyld eintök í verkum
Þómnnar S. Þorgrímsdóttur, fyrri
leikmyndum Grétars og má rekja
upphaf þessa stíls, tel ég, til leik-
mynda Jennýjar Guðmundsdótt-
ur.
Stílfærsla af þessu tagi er
mjög ólík stílfærslum leikmynda
ffá sjötta og sjöunda áratugnum,
verkum Lothars Gmndt og Magn-
úsar Pálssonar. En sá kimi ís-
lenskrar leiklistarsögu verður
ekki kannaður hér.
Mikilvægur þáttur í sjónar-
spili af þessu tagi er tónlist og
hljóð, frjáls og dramatísk beiting
ljósa, hreyfmgar sem lúta öðm
lögmáli en hermi hversdagslegrar
eftirbreytni. Verkið er nær dansað
enda dans frá upphafi til enda not-
aður sem tákn um bæði innilega
og kalda nærvem.
Af djarfmannlegum efnistök-
um leiðir að sýningin býr yfir
mjög sterkum myndrænum
augnablikum. Atriðum sem
kunna, myndist þau vel, að vekja
athygli á leikhúsi okkar um víða
veröld. Og það er ekki lítill áfangi
í bili.
Leikurinn
Hvemig má lýsa leikmáta
þessa verks? Hann er kæmleysis-
legur á köflum, æsist fljótt, er oft
sjálfhæðinn og jaðrar við sjálfum-
gleði. Leikendur halda honum
ljómandi vel gegnum alla sýning-
una, samkvæmir sér á þröngu
sviði persónutúlkunar. Fáum
gefst kostur á vemlega djúpum
miðum. Edda leikur Lillý og gef-
ur heilsteyptri mynd allan sinn
kraft. Eggert er svipurinn sem
sækir að henni, hljóður og hverf-
ull. Sigurður er fleiprandi sem
Áslákur. Hanna María stoð sem
Bergþóra kona hans. Stefán tíma-
sprengja sem tikkar ójöfnum
takti, Guðrún og Karl mildi og
skylda sem em úr tengslum við
tímann. Ragnheiður og Þröstur
skopmyndir, ungu stelpumar leit-
andi flón og Helgi sviplaus strák-
ur. Persónugerðin er gljúp, sýnd
en ekki gefín.
Og í kringum þessa fléttu er
svo bmgðið á leik. Ótal myndir,
smáskop, einræður, hugsanir,
sýnir. Einu sinni er meira að segja
brotið beinlínis gegn höfúðstefnu
verksins, grátkór karlanna hæðir
móðurdýrkun þess í löngu skop-
atriði. Og svo leysist allt upp í
snöggum dramatískum hápunkti
og sundrast í brot sem sameinast í
dansflokk sem brosir sjálfúm-
glaður ffaman í áhorfendur.
Hættur?
Líkar mér þetta? Háski sýn-
ingarinnar liggur í glæsileik
hennar. Umbúðum. Rétt eins og
Stundarfriður i sviðsetningu Stef-
áns Baldurssonar sem mestrar
hylli naut, hverfíst hún í andstöðu
sína. Hún verður glæsilegt form
svo inntakið fellur í skugga.
Hjóm sem skemmtir áhorfanda,
gleður augað í ótal myndum, frá-
bærlega unnið verk en skilur ekk-
ert eftir. Það er galdur líka og
kannski var það ekki meira en
efni stóðu til. Slíkur galdur er líka
fáséður í leikhúsi okkar tíma og
viss er ég um að áhorfendur eiga
lengi eftir að fagna þessari sýn-
ingu og njóta hennar. Nýju fötin
sýna þrátt fyrir allt ekki annað en
hvað maðurinn er nakinn í um-
komuleysi sínu.
pbb
Afmælis- og
styrktartónleikar
í þessum mánuði eru liðin tvö
ár ffá vígslu Listasafhs Siguijóns
Ólafssonar í hinum endurbyggðu
húsakynnum safnsins í Laugamesi.
í tilefúi af þessum tímamótum
verður efút til sértakra afmælis- og
styrktartónleika í safúinu nk.
sunnudag kl. 20:30. Hlíf Sigur-
jónsdóttir fiðluleikari og David
Tutt píanóleikari munu flytja són-
ötur fyrir fiðlu og píanó eftir
Claude Debussy, Jón Nordal og
César Franck. A efnisskránni er
einnig Nottumo V eftir Jónas
Tómasson sem hann samdi fyrir
þau Hlíf og David.
Á tónleikunum gefst gestum
kostur á að skrá sig i stuðnings-
mannahóp Listasafús Sigurjóns.
Tónleikamir verða síðan endur-
teknir þriðjudaginn 30. október kl.
20:30.
íslenskur
Tónlistardagur
Fyrsti vetrardagur er á morgun,
þá eins og undanfarin ár er einnig
íslenskur tónlistardagur. I tilefni
dagsins er ýmislegt um að vera:
Rarik-kórinn syngur í Kringlunni
kl. 12:30, Tónskóli Sigursveins
verður með opið hús milli kl. 13 og
15. Ríkisútvarpið lætur ekki sitt
eftir liggja, og verður með sérstak-
anþáttárás 1 kl. 14. Tónlistarskóli
Miðneshrepps í Sandgerði verður
með tónfúnd kl. 14, og í forsal
Borgarleikhússins verða blústón-
leikarmilli kl. 15 og 17. Tónlistar-
skóli FIH verður með opið hús
milli kl. 14 og 18, og tónlistarbar-
inn Púlsinn heldur upp á daginn
milli kl. 16 og 18, og aftur ffá
21:30 og ffam á rauða nótt. Á
sunnudag verður síðan ópemhátíð
á Hótel Islandi, og hefst hún kl.
18:30. Það er Tónlistarbandalag ís-
lands sem gengst fyrir þessum ár-
lega tónlistardegi helguðum ís-
lenskri tónlist. Að lokum má geta
þess að íslenskar hljómplötur
verða seldar með sérstökum af-
slætti þennan dag.
Björg Örvar og
Anna Líndal
í Nýlistasafninu
Á morgun kl. 16 opna tvær
myndlistarkonur sýningar í Ný-
listasafúinu. Björg Örvar sýnir ol-
íumálverk í effi sölum safúsins, en
Anna Líndal sýnir offset litógrafiur
og rýmisverk unnin úr jarðefúum í
gryfjunni.
Sýningamar standa til 11. nóv-
ember, og er safúið opið daglega
ffákl. 14-18.
Pétur
og úlfurinn
Vegna mikillar aðsóknar hefúr
verið ákveðið að bjóða upp á
fjórðu sýninguna á Pétri og úlfin-
um og öðmm dönsum, sem Is-
lenski dansflokkurinn hefur sett
upp. Aukasýning þessi verður í ís-
lensku ópemnni næstkomandi
sunnudag.
Terence Etheridge er höfundur
fjölskyldudansins um Pétur og úlf-
inn. Á sýningunni er einnig dans-
aður klassíski ballettinn Konsert
fyrir sjö, sem hann samdi, og Fjar-
lægðir eftir Ed Wubbe.
Kvikmyndasýn-
ing fyrir börn
Norræna húsið býður bömum
að sjá tvær norskar kvikmyndir á
sunnudag kl. 14. Fyrst verður sýnd
myndin „Askeladden og de gode
hjælpere", gerð eftir ævintýri As-
bjömsens. Þetta er leikbrúðumynd,
og segir hún frá Askeladden sem
fær prinsessuna og hálft kóngsrík-
ið. „Jakten pa Juni“ heitir sú síðari
og greinir hún ffá tyrkneska
drengnum Zafir, sem verður að að-
laga sig nýjum heimkynnum sín-
um í Noregi.
22 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. október 1990