Þjóðviljinn - 26.10.1990, Page 16
Viðunandi
lífeyrir
Almennu lífeyrissjóðimir standa hins vegar
ekki undir þeim skuldbindingum sem þeir hafa
gefið, segir Hrafn Magnússon framkvæmda-
stjóri Sambands almennra lífeyrissjóða
Eru lífeyrissjóðirnir þess megn-
ugir að standa við þær skuld-
bindingar sem þeir hafa tekið á
sig?
- Það fer eftir því við hvaða
lífeyrissjóði er átt. Lífeyrissjóðir
opinberra starfsmanna og banka-
manna eru tryggðir af rikinu og
bönkunum, þannig að ekki þarf
að óttast um framtið þeirra. Hið
sama er ekki að segja um al-
mennu lífeyrissjóðina, þeir hafa
lofað meiru en þeir hafa getað
staðið við. I raun er hér um að
ræða einfalt reikningsdæmi. Ið-
gjöld og ávöxtun þurfa að standa
undir skuldbindingum framtíðar-
innar. Ef reikningsdæmið er sett
rangt upp þarf að grípa til sam-
verkandi ráðstafana, sem geta fal-
ist í hækkun iðgjalda, bættri
ávöxtun eða skerðingu réttinda.
- I lagafrumvarpinu um líf-
eyrissjóði frá 1987, sem nú er til
endurskoðunar, er gert ráð fyrir
að sú hlutfallstala sem ellilífeyrir
almennu lífeyrissjóðanna er
reiknaður út ffá verði lækkuð úr
1,8 í 1,45% af þeim launum sem
iðgjöld hafa verið greidd af.
Hverju breytir þessi lækkun í
raun ef hún kemur til ffam-
kvæmda?
- Þessi breyting felur í sér
nokkra skerðingu ellilifeyrisrétt-
inda, en þó er sú skerðing ekki
eins mikil og virðist, þvi gert er
ráð fyrir fullri verðtryggingu elli-
Hvemig dreifast launinn á ævinni? þjóðviljinn / óht
Ofangreint Knurit sýnir okkur tekjuskiptingu eftir aldri og kynjum á Islandi árið 1986. Tekjumunur karla og
kvenna er áberandi, en hann skýrist að talsverðu leyti af lengri vinnutlma karla en kvenna á vinnumarkaði.
Samkvæmt skiptingunni 1986 komust tekjur f hámark fyrir fimmtugsaldurinn og fara sfðan lækkandi. Veruleg
lækkun verður eftir 65 ára aldursmörkin.
lífeyris miðað við lánskjaravísi-
tölu, en í dag er þak á fullri verð-
tryggingu hjá mörgum sjóðum.
— Eru þau eftirlaun sem líf-
eyrissjóðakerfið skilar viðunandi
fyrir launþega almennt?
— Til þess að hægt sé að svara
þessari spumingu þarf að líta yfir
allt sviðið, það er samspil lífeyris-
sjóðakerfisins og hins almenna
tryggingakerfis. Undanfarin ár
hefur sú tilhneiging verið ríkjandi
að halda gmnnlífeyri niðri en
auka sífellt tekjutrygginguna.
Með því er í raun verið að draga
úr heildarbótum sjóðanna. Það er
auðvitað matsatriði hvers og eins
hvort ellilaunin em viðunandi, en
bæði em greiðslur sjóðanna mis-
munandi og svo em þær einnig
háðar ævitekjum sjóðfélaganna.
Almennt virðist núverandi kyn-
slóð eftirlaunaþega þó sætta sig
nokkum veginn við sinn hlut,
enda er ástand þessara mála allt
annað nú, en það var fyrir 20 ár-
um. í gmndvelli nýja lagafmm-
varpsins er gert ráð fyrir „viðun-
andi“ lífeyri. Slík viðmiðun er
alltaf háð einstaklingsbundnu
mati, ef þetta takmark næst á ann-
að borð.
— Stundum heyrist að ekki
komist réttlæti á þessi mál fyrr en
komið verði á einum lífeyrissjóði
fyrir alla landsmenn. Er sú hug-
mynd á dagskrá nú?
- Nei, ég tel ekki að sú hug-
mynd sé á dagskrá, aðallega af
tveim ástæðum. í fyrsta lagi væri
erfitt að marka slíkum lífeyris-
sjóði bótareglur, nema með því að
skerða stórkostlega lífeyrissjóðs-
réttindi opinberra starfsmanna,
því þjóðin hefur ekki efni á að
veita öllum landsmönnum þann
rétt. I öðm lagi tel ég eðlilegra að
nokkur dreifmg verði á hinu gíf-
urlega fjármagni sjóðanna, og tel
óráð að slíku fjármálavaldi verði
komið á hendur fárra einstaklinga
á höfuðborgarsvæðinu. Hins veg-
ar þarf að fækka lífeyrissjóðunum
verulega, til dæmis niður í 10- 20.
-ólg.
HANDBRAGÐ MEISTARANS
BAKARl BRAUÐBERGS
Ávallt nýbökuð brauð
- heilnæm og ódýr -
Aðrir útsölustaðir:
Hagkaup: Skeifunni
- Kringlunni
- Hólagarði
Verslunin Vogar,
Kópavogi
Hraunbcrgi 4 sfcni 77272
AUGLYSINGAR AUGLYSINGAR AUGLYSINGAR AUGLYSINGAR
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Námsgagnastofnun
Námsgagnastofnun óskar eftir að ráða starfs-
mann við sérpöntunarþjónustu.
Um er að ræða starf hálfan daginn. Starfið felst
í að annast og hafa umsjón með erlendum sér-
pöntunum á vegum Skólavörubúðar. Einnig að
veita viðskiptavinum faglega ráðgjöf og aðstoð
við öflun sérhæfðra gagna. Leitað er að áhuga-
sömum starfsmanni með kennaramenntun og
reynslu af skólastarfi. Nánari upplýsingar veitir
skrifstofustjóri I síma 28088.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf, sendist Námsgagnastofnun, Lauga-
vegi 166, 105 Reykjavík, eða í pósthólf 5192,
125 Reykjavík, fyrir 1. nóvember næstkom-
andi.
Frá fjárveitinganefnd Alþingis
Viðtalstímar nefndarinnar
Fjárveitinganefnd Alþingis veitir nú eins og
undanfarin ár viðtöku erindum frá félögum,
samtökum og einstaklingum er varða fjárlög
ársins 1991.
Fjárveitinganefnd gefur þeim aðilum, sem vilja
fylgja erindum sínum eftir með viðræðum við
nefndina, kost á að eiga fundi með nefndinni á
tímabilinu 5. til og með 15. nóvember n.k.
Þeir sem óska eftir að ganga á fund nefndar-
innar, skulu hafa samband I síma 91-624099
(Alþingi) eigi síðar en föstudaginn 2. nóvember
n.k.
Því miður gefst ekki tími til þess að sinna við-
talsbeiðnum, sem fram kunna að koma síðar
eða að veita viðtöl utan þess tíma, sem að
framan greinir.
Alþýðubandalagið á Reykjanesi
Alþýöubandalagið Kópavogi
Spilakvöld
Spilakvöld verður I Þinghóli, Hamraborg 11, 3. hæð, mánu-
daginn 29. október kl. 20.30.
Allir velkomnir. Stjórnin
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýöubandalagsins í Reykja-
neskjördæmi verður haldinn laugardaginn 3. nóvember
n.k. í Flug-Hóteli að Hafnargötu 57 I Keflavík kl. 13.00
stundvíslega.
Dagskrá:
1. Ávarp Geirs Gunnarssonar alþingismanns.
2. Aðalfundarstörf.
3. Stjórnmálaumræður.
4. Önnur mál. Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Haustferð í Landmannalaugar
27. október 1990
'Laugardaginn 27. október fér ABK haustferð í Landmannalaugar.
Farið verður frá Þinghóli klukkan 9 að morgni og ekið austur
Hellisheiði. Farið verður um Ölfus og Flóa, austur yfir Þjórsá, upp
Landveg að Tröllkonuhlaupi við Búrfell. Með viðkomu í Foss-
brekkum verður farið um Sölvahraun á Landmannaleið. Skammt
frá Landmannahelli verður ekið upp á Mógilshöfða og yfir í
Hrafntinnusker og skoðaður íshellirinn þar sem jarðhitinn bræðir
íshelluna án afláts. Allt um kring eru spúandi hverir á þessu mikla
háhitasvæði. Þaðan verður aftur haldið á Dómadalsleið og hjá
Frostastaðavatni í Landmannalaugar þar sem gist verður í skála
Ferðafélags Islands eftir kvöldvöku og söng.
Á sunnudeginum verður árdegis gengið á Bláhnjúk en sumir taka
sér styttri göngu eða baða sig í lauginni Ijúfu. Laust eftir hádegið
verður haldið af stað heimleiðis. Þá verður ekið hjá Hófsvaði á
Tungnaá, niður með Vestur-Bjöllum, hjá Sigölduvirkjun og
Hrauneyjarfossvirkjun, yfir Þjórsá hjá Sandafelli, niður Hrossa-
tungur að Gjánni og Stöng í Þjórsárdal. Þaðan verður svo ekið að
Hjálparfossi og heim um Gnúpverjahrepp og Skeið. Heimkoma er
áætluð klukkan 20 að kvöldi sunnudagsins.
Gistigjald í skála er kr. 550 og fargjald er kr. 2.500. Hálft fargjald er
fyrir eftirlaunaþega og ófermda og ókeypis fyrir börn átta ára og
yngri.
Skráið ykkur sem allra fyrst hjá fararstjóranum Gísla Ólafi Pét-
urssyni í síma 42462.
ATHUGIÐ að þátttaka er ÖLLUM velkomin!!
Ferðanefnd ABK
Aðalfundur miðstjórnar Alþýðubandalagsins
Akureyri 26.-28. október
Aöalfundur
miðstjórnar Alþýðubandalagsins verður haldinn á Akureyri dag-
ana 26.-28. október í Alþýðuhúsinu.
Dagskrá:
Föstudagur 26. október
Kl. 17.00 Setnlng.
Ávarp - gestir boðnir velkomnir til bæjarins.
Formaður miðstjórnar kynnir viðfangsefni fundarins.
Almennar stjórnmálaumræður
Framsögumaður:
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalags-
ins.
Umræður
Undir þessum lið verða einnig ræddar fyrirliggjandi til-
lögur á sviði landbúnaðarmála, stóriðju o.fl.
Laugardagur 27. október
Kl. 09.00 Framhald almennra stjórnmálaumræðna
Kl. 12.00 Hádeglsmatur/helmsóknir
Kl. 14.00 Flokksstarflð
Skýrsla flokksstarfsnefndar - afgreiðsla tillagna
Kosnlngaundirbúningur
Vinna að kosningastefnuskrá
Kl. 15.30 Alþýðubandalagið í rfkisstjórn
Ráðherrar flokksins kynna málefni ráðuneyta sinna og
sitja fyrir svörum
Kl. 17.00 Starfshópar
Kl. 20.00 Kvöldverður/vaka
Sameiginlegt borðhald ásamt léttri dagskrá í umsjá
heimamanna
Sunnudagur 28. október
Kl. 09.00 Starfshópar
Kl. 10.30 Umræður/afgreiðsla mála
Kl. 15.00 Fundarslit
Þátttökutilkynningar:
Ferðaskrifstofan Nonni á Akureyri tekur við skráningum á fund-
inn, bókar far með flugi og sér um að panta gistingu fyrir mið-
stjórnarmenn.
Tilkynnið þátttöku strax:
Vegna þess stutta tíma serm er til stefnu verða fulltrúar sem mæta
á miðstjórnarfundinn að hafa samband við ferðaskrifstofuna nú
þegar og eigi síðar en þriðjudaginn 23. október.
Símarnir eru 96-27922 og 96-27923.
Formaður miðstjórnar
16 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. október 1990