Þjóðviljinn - 26.10.1990, Page 26

Þjóðviljinn - 26.10.1990, Page 26
Ásdísardóttir Spaug Það hrýtur margt spaugilegt af borðum fjölmiðlanna inn í stofur til okkar jónanna og gunnanna okkur til gagns og skemmtunar, og sem við get- um omað okkur við svona í vetrar- bytjun. Varla að við þurfum að leita neitt út fyrir hcimilisveggina fjóra ef við erum svo heppin að fá bæði sjón- vörpin og dagblöðin inn á gafl. Þá get- um við bara setið heima í mestu mak- indum og velst um af hlátri og skemmt okkur, í stað þess að eyða orku og fjármunum í að fara og sjá gullin lið allra ómara og ladda landsins. Enda er kostnaður eins slíks ferðalags með öllu, sennilega á við margar áskriftir að öllum Qölmiðlunum ef allt er talið og ekki fyrir neina fátæklinga að venja sig á slíkt. Nei, þá er bctra að láta fjöl- miðladjókinn duga. Ég hafði til dasmis ómælda skemmtan af því þegar ég, eitt kvöldið fyrir nokkm, ætlaði í sakleysi mínu að fylgjast með heimsókn Vigdísar for- seta til Lúxembúrgar. Sjónvarpið (cg er ennþá svo gamaldags að cg kalla sjónvarpið Sjónvarp og hitt sjónvarpið Stöð 2) hafði sent sérstakan ffétta- mann á svæðið til að fylgjast með heimsókninni og segja okkur frá öllu saman svo við misstum ekki af ncinu, og oklcur þætti við allt að því vera á staðnum með Vigdísi, cnda cr það einn af tilgöngum slíks myndfjölmið- ils að áhorfandinn geti betur lifað sig inn í atburðina og séð þá í réttu ljósi, heldur en ef hann bara heyrir eða les um þá. Hvað um það, umræddur fréttamaður stendur við flugvélina til- búinn að láta okkur finnast við bara komin til Lúx mcð fána í hönd og bíð- ur komu forseta. Og hvað hcyrum við, saklausir aðdáendur ástkæra ylhýra málsins, rétt um það bil sem Vigdís, fln og glæsilcg og Fróni til sóma eins og alltaf, stígur niður úr loftfarinu. Jú, fféttamaðurinn tilkynnir okkur að hún sé í rauðri dragt mcð hattkúf á höfði! Hattkúf! Ég tók bakföll. Ég saup hveljur af einhverju sem líktist hlátri og gráti samtímis og hugsaði með mér: Guð hvað ég vona að voða fáir hafi heyrt þetta! Er fféttamaðurinn að gera grín að forsetanum? Eða er hún (því fféttamaðurinn var kona) bara svona vitlaus? Ég komst að þeirri nið- urstöðu effir að hafa legið undir fcldi nokkra stund og hugleitt þetta mál, að það væri scnnilcga tilfellið, a.m.k. hcföi hún ekki haft rænu á því að fletta orðinu ,hattkúfúr‘ upp í orðabók áður en hún ákvað að vera svona ffumleg í orðanotkun. Mér finnst svona nokkuð allt að því brottrckstrarsök úr starfl. Annað tilfelli þótti mér líka næsta skcmmtilegt. Það var þegar annar fféttamaður Sjónvarpsins, sem rcynd- ar er líka kona, var að segja okkur með smámæltum, óskýrmæltum tilþrifum ffá morðunum á Musterishæð og eftir- málum þeirra og tilkynnti okkur að konur, böm og gamalmenni heföu hlaupið um undan hermönnum eða lögreglu flcmtri skefld! Þá hugsaði ég: I þetta eina skipti er það mikil guðsblcssun hvc margir af eldrí kyn- slóðinni, scm famir em að tapa hcym, skilja ekki orð af því sem þessi fal- lega, smámælta og óskýrmælta frétta- kona segir. Eldri kynslóðin kann nefnilega að tala, sem er mcira cn margur af vclhcppnaða yngra (gullna?) liðinu gcrir. En þótt ég geti romsað upp úr mér ótal slíkum dæmum mér og íesendum til gagns og skemmtunar, þá era þau ckki nema ómerkilegur sparðatíningur hjá ýmsum öðram skemmtiatriðum fjölmiðlanna. Og þá kcm ég að blcssuðu Morgunblaðinu sem ég er nýfarin að kaupa. Mér fannst ég nú vera komin á þann aldur að það væri bráðnauðsynlegt að kaupa Morgun- blaðið svo ég væri bctui viðræðuhæf um þjóðmálin og svo væri krossgátan þar svo ansi burðug um hclgar. En krossgátan er alltaf eins þannig lagað, alltaf sömu uppfyllingarorðin, mynda- textamir skítauðveldir og engin veru- lcga skemmtileg crfið orð. Svo ég fór að lcsa Morgunblaðið spjaldanna á milli. Og þá fékk ég bata skemmtana- skammtinn fyrir árið í einu sunnu- dags- eða laugardagsblaðinu. Fyrst las ég það sem Súsanna skrifaði. Og næstum rann út af stóln- um. Og svo las ég það sem Jóhanna skrifaði. Og þegar ég var búin að því var heldur lítið eftir af mér. (Til upp- lýsingar fyrir þá lesendur Þjóðviljans sem ekki vita hveijar þær Súsanna og Jóhanna era, þá upplýsist hér með að önnur er fyirverandi leiklistargagn- rýnandi blaðs allra landsmanna cn hin nýorðin núverandi dittó.) Súsanna skrifaði um sýningu Þjóðleikhússins og spé þar sem aldrei era nema örfá sæti laus. Núna þessa dagana cru þau Magnús og Ólína að skemmta okkur hér í Þjóð- viljanum og í fyrradag sagði Magnús okkur frá vini sínum scm haföi það fyrir sið að hugsa i tíu mínútur og skrifa svo I fimm. Þetta heföi Súsanna þurft að vita áður en hún jós af brand- arabrunni sinum um nefnda lciksýn- ingu. „Lcikhúsgagnrýni" af þessu tagi getur ncfnilega enginn tekið alvarlega og það cina scm hægt er að gera er að flissa léttilega að henni. Nú tek ég það fram að ég er ekki búin að sjá ncfnda leiksýningu, enda ckki heiglum hcnt að fá sæti, og veit því ekkert um hvort hún er góð eða vond. En Súsanna kemur því miður með fyndni sinni ekki til mcð að hafa ncin áhrif á það hvort ég fer cða ekki, og hvað mér kcmur til mcð að fmnast um hana þeg- ar þar að kemur, hvaða væntingar ég fer með o. s. frv., en skrif á borð við þau sem úr tölvu hennar rannu, hljóta að hafa cinmitt cinhver slík áhrif að markmiði. Annars heföi hún reynt að skrifa svolítið vitrænni pistil og segja okkur hvers vegna henni fannst sýn- ingin svona afspymu vond. Það sem er þó allra skemmtilegast í þcssu máli er, að þcgar einhver tekur sig til eftir tutt- ugu ár og gerir úttekt eða útvarpsþátt á borð við þann sem Viðar Eggertsson gerði um daginn á Rás eitt um Rósin- krans og Símonar, um þessi fáu lausu sæti, þá verður „leikdómur" Súsönnu ein aðalheimildin. Og þá verður nú gaman að lifa. Eins og áður sagði fletti ég lengra í Morgunblaðinu þennan hclgardag og lenti þá á Jóhönnu, sem haföi ritað yf- irlit um leiksýningar þær sem hún haföi skrifað um í gegnum tíðina. Þctta yfirlit skrifaði hún í kvcðjuskyni til dyggra Iesenda sinna og tilkynnti okkur að hún hefði skrifað um hvorki fleiri né færri cn hundrað og níutíu leiksýningar. Ég skemmti mér meir og meir eftir því sem lengra leið á lestur- inn. Jóhanna sagði okkur til dæmis að Þórann Sigurðardóttir heföi bæði skrifað og leikstýrt leikritinu I smásjá í Þjóðleikhúsinu. En í leikskránni minni stóð að Þórhallur Sigurðsson heföi leikstýrt vcrki Þórannar. Jóhanna haföi líka séð tvær sýningar, aðra hjá Eggleikhúsinu sem hét A sama tíma og hina hjá Alþýðuleikhúsinu og hét Alaska og Eins konar kvcðjuskál. Þeg- ar ég sá þessar sýningar þá hét önnur Á sama stað! og hin Eins konar Alaska og Kveðjuskál! Og þctta var svo sem ckki það eina sem hún tíndi til, þcssi clska, scm haföi misfaríst i kollinum á hcnni þótt ég ætli ckki að tíunda meira af því. En svo kom undirfyrirsögn um ís- lensk verk hjá áhugaleikhópum. Og þá fyrst fór nú að vcrða gaman. Hún taldi upp hina ýmsu leikhópa scm sett hcföu upp íslensk vcrk og ferðaðist um allt Jand i upptalningunni. En svo allt I cinu blandaðist Nemendaleik- húsið (lcikhús menntaðra Icikara á út- skriftarári) inn í hópinn! Og Egg-leik- húsið! Og Alþýðuleikhúsið! Og Ás- Ieikhúsið! Og Leikhúsið í kirkjunni! (Og þótti mér nú bleik bragðið þegar farið var að tclja þær Ásdisi Skúladótt- ur og Guðrúnu Ásmundsdóttur, for- svarsmenn þessara tveggja leikhúsa, til áhugamanna í Iciklist). Nokkrum flciri atvinnuleikhópum - lesist at- vinnuleikhópum - blandaði hún holt og bolt inn í þessa upptalningu sína undir undirfyrirsögninni „áhugaleik- hópar og skólar“ ef ég man rétt. Mér þykir gaman að vita til þess að leiklistargagnrýnandi stærsta blaðs landsins, sem stasrir sig af því að hafa skrifað um tæplcga tvöhundrað leik- sýningar I íslenskum atvinnu- og áhugaleikhúsum (takið cftir að ég skrifa ckki bara ,leikhúsum‘) veit ekki muninn á þessum tveim tegund- um leikhúsa, en hann er sá að í at- vinnulcikhúsum cr fólk búið að mennta sig í mörg ár til starfans, en I áhugalcikhúsum vinnur fólk, sem hef- ur gaman af leikhúsi, en hcfúr ekki menntað sig til jjess. Skyldi Jóhanna virkilcga hafa ætlast til þess i allan þennan tíma að vera tekin alvarlcga? Mér finnst það dásamlcg tilhugs- un að Súsanna skuli ætla að halda áfram á svipaðri braut og Jóhanna, fyr- irrcnnari hcnnar, hvað skcmmtana- gildi leikhúsgagnrýni Morgunblaðsins varðar. Og það er mín helsta von að hún taki nú ekki upp á þcirri nýbreytni að skrifa leikhúsgagnrýni á þeim for- sendum að vera tckin alvarlcga. Ef henni tekst að forðast þá gtyfju þá liggur bcinast við að spytja í bams- legri tilhlökkun: Á hvctju megum við ekki eiga von? Ég einskis barn er Það er staðreynd að engin ein stétt manna hefur verið sam- hentari um að gefa vinnu sína og list til góðgerðarstarfsemi af ýmsu tagi en dægurtónlistarfólk, hvort sem það er á þess heima- velli, í öðrum löndum eða í al- þjóðlegu samhengi. Og auðvitað er það gert í þeim anda að öli eymd, innan hvaða landamæra sem hún er, komi okkur öllum mannsins bömum við og sé því alþjóðleg. Ég er hér t.d. með tvo góð- gerðardiska undir eyrum, annan alþjóðlegri en hinn, en sá stað- bundnari styrkir úrbætur á hörmungum sem ganga manni enn nær hjarta en þær sem.hinn berst gegn. Hér er annars vegar um að ræða diskinn Red hot and blue, sem er alveg nýkominn út, og er geftnn út til að styrkja rannsóknir á eyðni og cfla fræðslu á sjúkdómnum meðal almennings um allan heim, bæði til að hefta útbreiðslu sjúkdóms- ins og til að eyða fordómum gegn fólki sem hefur sýkst af honum. Hins vegar er það disk- urinn Nobody's child sem var gefinn út í júlí til styrktar for- eldralausum og yflrgefnum bömum í rúmeníu. Sú sem stóð fyrir útgáfu síð- amefnda disksins er Olivia Harrison, eiginkona Georgs Hamsonar Bítils. Vegna frétta um hræðilegt ástand bamaheim- ila í Rúmeníu fékk hún hinar Bítlakonumar, þær Barböm Bach, Lindu McCartney og Yoko Ono, til að standa með sér að löglegum styrktarsjóði, og fór síðan til Rúmeníu í apríl á þessu ári til að sannreyna frétt- imar. Eins og fólk hefur séð á fféttamyndum er „líf‘ og um- hverfí þessara bama hræðilegra en nokkur orð fá lýst, og þegar Olivia sá að hryllingurinn var enn verri en hún hafði getað ímyndað sér þrátt fyrir ófagrar lýsingar hringdi hún í mann sinn frá Búkarest og sagði honum að það yrði að gera eitthvað róttækt til auglýsingar fyrir styrktarsjóð- inn, og það strax. Það fyrsta sem Georg datt í hug í sambandi við munaðarlaus böm var lagið Nobody's child, sem skoski söngvarinn Lonnie Donegan, einn af fyrstu táninga- stjömum Bretlands, hafði verið með á prógrammi sínu, á sokka- bandsámm Georgs. Bítlamir höfðu líka spilað undir í þessu lagi inn á plötu með söngvaran- um Tony Sheridan í Þýskalandi 1961. Goggi hóaði því Wilburg- ættinni saman, og hún gerði sér lítið fyrir og smellti laginu á band. En þar með var ekki allt búið - Goggi lá nú í símanum og hringdi í ýmsa tónlistarvini, sem hann vissi að væm að taka upp plötur eða nýbúnir, til að athuga hvort þeir ættu ekki í fómm sín- um afgangslög eða óútgefnar út- gáfur af gömlum lögum, sem þeir gætu sent sér um hæl. Georg fékk góð viðbrögð, og útkoman er 15 laga diskur sem heitir fullu nafni: Nobody's Child - Romanian Angel Appe- al ...kannske svolítið sundurlaus vegna flýtisins, en engu að síður er margt gott á honum. Titillagið er náttúrlega ómissandi og Tra- veling Wilburys fara hæfilega dapurlega í gegnum það. Van Morrison setur sig og sitt yn- dæla gamla lag Wonderful re- mark í hendur Robbies Robert- sonar með flnum árangri, Dave Stewart úr Eurythmics jaðrar við að vera Lennon-legur á köflum, Paul Simon og George Harrison tvímenna huggulega í Home- ward botnid, Stevie Wonder fer á gamalkunnum fallegum kost- um í laginu Feeding off the love of the land, Guns n' roses eru með gott lag, Civil War, og fín- an flutning á því, Eric Clapton með ágætt lag eftir Gogga, That kind of woman, og Ric Ocasek með mjög gott lag, Goodnight little one. Gamli gítarkappinn Duane Eddy teygir strengina óspart á sinn sérstaka hátt í The Trem- bler, og svo er þama Elton John, bara góður, líka Edie Brickell og New Bohemians, Mike and the Machanics, Billy Idol, Bee Gees með hljómleikaútgáfu af How can you mend a broken heart, og sjálfitr Ringo Starr með sitt söngnef „and his all Star band“ - With að little help frorn my fri- ends er þeirra framlag, hljóðrit- að í Grikklandi. Nobody's child er sem sagt svona samtíningur og sitthvað eins og þið sjáið, en bara skemmtilegt og líka fallegt á köflum - og hver getur annað en styrkt það að bamaheimili í Rúmeníu verði betur búin tækj- um og fólki - t.d. að hitadunkum verði komið þar fyrir til að hægt verði að setja bömin í sæmilega volgt steypibað í stað kalds, og að starfsfólk verði nógu margt til að það geti rabbað örlítið við bömin svo að þau hafí meiri möguleika á að verða talandi - að maður nú ekki tali um aukna læknishjálp, en það sem hrjáir þessi böm er allt frá næringar- sjúkdómum til eyðni. Og það er einmitt síðar nefndi vandinn sem tengir Einskis manns bamið í Rúmeníu alþjóðlega disknum Red hot and blue. Sá diskur er allur betur út hugsaður, enda ekki gerður úr garði sem skyndihjálp - heldur þáttur í langtímaprógrammi til að upplýsa fólk um eyðni eins og áður er sagt, og að afla fjár til rannsókna á því. Öll lögin á Red hot and blue em eftir Bandaríkjamanninn Cole Porter, sem samdi ógrynni heimsþekktra laga og söngleikja ffá því um 1930 til 1958. Cole Porter var samkynhneigður og ungur á þeim ámm er það fyrr nefnda var ekki fólki til fram- dráttar fremur en að vera komm- únistar, og er skrýtlan um Reag- an og eyðnina því ekki svo ótrú- leg - Reagan á að hafa sagt þeg- ar hann heyrði um þessa plágu, sem einkum legðist á homma, eins og fólki var í fyrstu talin trú um: Does it kill commies too... (Leggst hún líka á komma)? Cole Porter fæddist árið 1891 og lést 1964, og ef við eig- um að nefna eitthvað eftir hann má nefha söngleiki eins og Kiss me Kate, Can Can og High soci- ety, og lögin Let's do it, Night and day og I've got you under my skin. A síðast nefnda laginu hefst einmitt diskurinn Red hot and blue, í afskaplega fijálslegri útgáfu rapp-dans-söngkonunnar Neneh Cherry. Þetta fallega lag er hér næsta óþekkjanlegt, en vinnur mjög vel á i þessari sér- stöku mynd. Enda þótt aðrir flytjendur haldi sig við uppmnalegar lag- línur Coles Porter má segja um yfirbragð disksins að hann sé bæði ffumlegur og sérstakur - enda hér menn við söng eins og Tom Waits (It's all right with me), Debby Harry og Iggy Popp í skondnum dúett (Well did you evah), Salif Keita (Begin the beguin), Les negresses vertes (I love Paris - auðvitað...), Thompson twins (Who wants to be a millionare?), Kirsty McColl og Pogues (Miss Otis re- grets/Just one of these things), David Byme (Don't fence me in), Jungle brothers (I get a kick), Erasure (Too dam hot), Jimmy Sommerville (From this moment on), Fine Young canni- bals (Love for sale)... Frekar hefðbundnar útgáfur em hjá Neville brothers (In the still of the night), Sinead O'Connor (You do something to me), Annie Lennox (Everytime we say goodbye), U2 (Night and day), k.d.lang (So in love), Lisu Stansfield (Down in the depths), Aztec camera (Do I love you), og ekki síst Jody Watley (After you who)... en virkilega fínar, og em þar U2 jafhvel fremst í flokki. Tveir myndarlegir bækling- ar fylgja hveijum diski, og með stóm letri aldrei þessu vant. Er saga Irvings Berlins og tónlistar hans og texta í grófum dráttum í öðmm þeirra, en í hinum stutt en skilmerkileg svör við: Hvað eyðni er og hvað hún er ekki; og: Hvað við getum gert við henni; auk þess em þar allir textamir prentaðir og hvetjir flytja hvaða lag. Red hot and blue er reglu- lega glæsileg útgáfa, fyrir nú ut- an það mikilvægi sem hún ætti að geta orðið í baráttunni gegn þessum ógnvekjandi sjúkdómi, sem enginn er óhultur gegn - og engum er að kenna, eins og að- standendur disksins vilja undir- strika. Tónlistarmennimir sem hér koma við sögu hafa allir gef- ið sína vinnu, eins og reyndar allir aðrir sem lagt hafa minnsta putta á plóg. Myndbönd hafa verið gerð við öll lögin og fær- ustu kvikmyndagerðarmenn gefið sína vinnu til þess. Mynd- bönd þessi munu verða sýnd eins og þau leggja sig víða um heim á alþjóðlegum eyðnidegi, 1. des. n.k. Sem sagt góðir hálsar, tón- listarmennimir hafa einu sinni enn lagt sitt af mörkum - fyrir einskis manns böm í Rúmeníu og allra manna böm í heiminum. Nú er komið að okkur - ætli við eigum ekki flest fyrir plötuvirði í hvom sjóð? A 26 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. október 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.